Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1999, Page 36
V I K I N G A
L*TT«
* -ð vinna
fei*, *
'fyrhJiL iJsíjMiy
FRETTASKOTIÐ
SÍMiNN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER 1999
Þing Verkamannasambands Islands var sett f gær. Björn Grétar Sveinsson, formaður sambandsins, gagnrýndi stjórnvöld harkalega og sagði að forsætisráðherra og ríkisstjórnin ættu að skamm-
ast sín. Frá ræðunni er greint á bls. 2. Við hlið formannsins eru Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Hervar Gunnarsson, varaforseti ASI. DV-mynd Hiimar Þór.
Bát taliö hafa hvolft undan þremur mönnum á Mývatni:
Einn látinn en
tveggja saknað
Stoke út
um þúfur
íslensku íjárfestarnir sem hugö-
ust kaupa Stoke City ákváðu á fundi
sínum í gær að faila frá tilboði sínu
í félagið. Við nánari skoðun á bók-
haldi Stoke kom í ljós að skuldir fé-
(ijjagsins voru mun meiri en talið var
í upphafi og þar sem eigendur þess
vildu þó ekki fallast á lækkað kaup-
verð var tilboðið dregið til baka.
Málið hafði reyndar dregist allmik-
ið á langinn fyrir smekk sumra fjár-
festanna væntanlegu áður en til
þessarar ákvörðunar kom og þeir
hætt við þátttöku. „Mér líkaði ekki
félagsskapurinn," sagði einn þeirra
í samtali við DV.
Ekki náðist í fulltrúa Kaupþings í
morgun til að fá staðfest hvort
kaupin á Stoke væru þar með end-
anlega úr sögunni. -GAR
Bíræfnir
-»innbrotsþjófar
Brotist var inn í sjö bíla í vestur-
bæ Kópavogs i nótt. Innbrots-
þjófamir, sem að líkindum eru
þeir sömu, létu greipar sópa. Tals-
verðar skemmdir urðu á bílunum
en þeir brutu rúður, stálu hljóm-
flutningstækjum og þá sérstaklega
geislaspilurum og geisladiskum.
Lögreglan í Kópavogi hvetur eig-
endur bifreiða að taka framhliðina
af geislaspilurum úr bílnum þegar
það er unnt og taka lausleg verð-
mæti úr bílnum. Að sögn lögreglu
er mjög líklegt að verið sé að fjár-
magna fíkniefnakaup. Geislaspilar-
ar em auðveld söluvara og em
ungir krakkar stórkaupendur að
■‘^iíku þýfl.
-hól
Einn maður fannst látinn á Mý-
vatni í nótt og tveggja var saknað
eftir að litlum báti þeirra hvolfdi í
gærkvöld, að því er talið er á vatn-
inu á milli Syðri-Höfða og Nes-
landatanga þar sem mennirnir
þrír vom að gera við slitinn ljós-
leiðara Landssímans. Talið er að
aðeins sá sem fannst í morgun
hefði verið í björgunarvesti. Eng-
inn mannanna var í flotgalla.
Tveir mannanna eru starfsmenn
Landssimans en einn er starfs-
maður Kisiliðjunnar við Mývatn -
sá elsti er á sextugsaldri en hinir
báðir á fertugsaldri.
Mennirnir þrir fóru út að vatni
til að hefja viðgerð um klukkan
sex í gærkvöld. Fólk var síðan far-
ið að lengja eftir þeim um klukkan
tíu í gærkvöld og hófst leit
skömmu síðar. Aðstæður til leitar
voru hins vegar afleitar i nótt
vegna veðurs og myrkurs. Allir
björgunarsveitarmenn í nærsveit-
uni og víðar voru tilbúnir til leit-
ar þegar líða tók á nóttina.
Þegar DV fór í prentun var stóra
þyrla Landhelgisgæslunnar TF-
LÍF að leita yfir vatninu en þangað
kom hún í morgun með þrjá leitar-
hunda af höfuðborgarsvæðinu og
fylgdarmenn þeirra.
Bátur mannanna þriggja fannst
á vatninu en einnig brak úr hon-
um. Tveir mannanna era af Norð-
urlandi en einn úr Reykjavík.
-Ótt
Fagridalur 12 í Vogum á Vatnsleysu-
strönd.
12. fanginn:
Rak Bláa lónið
Tólfti maðurinn sem úrskurðað-
ur var í gæsluvarðhald í stóra
fíkniefnamálinu á sunnudaginn
heitir Guðmundur Kristján Guð-
björnsson, 41 árs, til heimilis að
Fagardai 12 í Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Guðmundur var annar af
tveimur rekstraraðilum Bláa lóns-
ins um nokkurra ára skeið á árdög-
um þess áður en bæjarstjórn
Grindavíkur ákvað að fela öðrum
reksturinn.
„Við vissum aldrei hvað Guð-
mundur starfaði eftir að hann kom
hingað en það voru gmnsemdir um
eitthvað misjafnt því það var tíð
umferð við hús hans, menn komu í
flýti og fóru aftur snöggt," sagði
einn af nágrönnum hans í Vogum
sem varð einnig vitni að því að hús
hans var innsiglað eftir handtöku
hans á sunnudaginn. Mun lögregl-
an hafa lagt hald á ýmsa muni þar
sem ætla má að Guðmundur hafi
komist yfir fyrir illa fengið fikni-
efnafé.
Ellefti maðurinn sem úrskurðað-
ur var í gæslu að kröfu lögreglunn-
ar nokkrum dögrnn á undan Guð-
mundi heitir Finnur Sverrir Magn-
ússon, 33 ára, til heimilis að Þver-
ási 4 í Reykjavík. Finnur hefur
lengi verið undir smásjá lögregl-
unnar vegna fikniefnaviðskipta og
verið talin lykilmaður í reykvíska
fikniefnaheiminum. -EIR
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veðrið á morgun:
Skúrir sunn-
an- og vest-
anlands
Á morgun verður hægt vaxandi
norðaustanátt á Vestíjörðum en
annars suðvestlæg átt, 13-18 m/s
sunnanlands framan af degi en
annars hægari. Skúrir eða slyddu-
él á sunnan- og vestanverðu land-
inu en skýjað með köflum og þurrt
að kalla norðanlands.
Hiti verður á bilinu 1 til 6 stig.
Veðrið í dag er á bls. 45.