Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
Viðskipti _________________________________________________________________________________pv
Þetta helstlViðskipti á VÞÍ, 727,8 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 215 m.kr. ... Mest viðskipti með hlutabréf
Olís, 107 m.kr., og lækkuðu bréfin um 5,7% ... Almennar lækkanir einkenndu markaðinn ... Úrvalsvísitalan lækk-
aði um 1,44% og er nú 1.431 stig ... Marel lækkaði um 6,3% og Haraldur Böðvarsson um 5,9% ...
Marel besti fjárfest-
ingarkosturinn
Marel er besti fjárfestingarkost-
urinn á VÞÍ ef marka má könnun
Viðskiptablaðsins meðal verðbréfa-
fyrirtækjanna. Marel heldur sæti
sínu sem besti fjárfestingarkostur-
Vöruskiptahall-
inn 2,1 milljarð-
ur í október
- fyrstu tíu mánuði
ársins var vöru-
skiptahallinn 21,7
milljarðar
í októbermánuði voru fluttar út
vörur fyrir 11,8 milljarða króna
og inn fyrir 13,8 milljarða. Vöru-
skiptin í október voru því óhag-
stæð um 2,1 milljarð króna. í
október 1998 voru vöruskiptin
óhagstæð um 2,6 milljarða króna.
Fyrstu tíu mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 118,7 millj-
arða króna, að því er fram kemur
í frétt frá Hagstofu íslands. Inn-
flutningur á sama tímabili nam
140,4 milljörðum. Halli var því á
vöruskiptum við útlönd sem nam
21,7 milljörðum króna en á sama
tíma árið á undan voru þau óhag-
stæð um 22,7 milljaröa króna á
föstu gengi.
inn á VÞÍ frá því í september þegar
síðasta könnun Viðskiptablaðsins
fór fram en íslandsbanki skýst upp
í annað sæti en bankinn var í því
flmmta í september. Gengi Marels
hefur hækkað um meira en 190%
frá áramótum og 20% frá því að síð-
asta könnun Viðskiptablaðsins fór
fram um miðjan september.
í umsögn verðbréfafyrirtækjanna
segir m.a. um Marel að verkefna-
staöan sé góð og vörusala fyrirliggj-
andi 3 mánuði fram í tímann. Mar-
el vaxi hraðast í markaðshlutdeild
sambærilegra fyrirtækja og sölu- og
markaðsmál virðist í góðu lagi.
Marel virðist geta aukið veltu án
þess að launakostnaöur aukist mik-
ið og loks hafi félagið sérstöðu þar
sem það sé að bjóða lausnir sem
enginn annar aðili bjóði.
Líkt og í september greinir verð-
bréfafyrirtækin mjög á um gæði
fjárfestingarkostanna á VÞÍ en 18
fyrirtæki á Aðallista voru nefnd til
sögunnar en ekkert fyrirtæki á
Vaxtarlista komst í hóp fimm bestu
kostanna.
Úrvinnsla könnunarinnar fór
þannig fram að fyrirtæki voru gefin
5 stig voru fyrir að vera valið besti
kosturinn og svo koU af kolli og 1
stig fyrir að vera valiö fimmti besti
kosturinn. Þannig var mest hægt að
hljóta 35 stig í könnuninni.
Bestu
fjárfestingarkostirnir
Sæti Félag Stig
1. Marel 13
2. íslandsbanki 11
3. -4. Grandi 9
3.-4. Opin kerfi 9
5. Jarðboranir 8
6. -7 Nýherji 7
6.-7 Þormóður rammi 7
8.-10.SÍF 5
8.-10.Samherji 5
8.-10. Baugur 5
Landsbankinn fagnar
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
Mannesmann
snýst til varnar
Klaus Essel, forstjóri Mann-
esmann, hefur hafið vamarbar-
áttu með það að markmiði að
sannfæra fjárfesta um að hafna
yfirtökutilboði Vodafone. Essel
segir að Mannesmann sé mun
meira virði en Vodafone býður
og sakar stjórnendur Vodafone
um stefnuleysi. Essel styður mál
sitt meðal annars með spá um að
hagnaður Mannesmann af fjar-
skiptastarfsemi muni vaxa um
meira en 30% á ári til ársins
2003.
„Landsbanki íslands hf. fagn-
ar þeirri ákvörðun ríkis-
stjómarinnar að leggja fram
lagafrumvarp á Alþingi til að
afla heimildar til sölu á hlut
ríkisins í bankanum,“ segir í
frétt frá Landsbankanum.
Bankinn telur söluna munu
styrkja bankann og stuðla að
því að hann verði áfram vel í
stakk búinn til að taka þátt í
áframhaldandi vexti efna-
hagslífs og fjármagnsmarkað-
ar á Islandi.
I fréttatilkynningu sem
Landsbanki íslands hf. sendi
frá sér kemur fram að bankinn fagnar
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
leggja fram lagafrumvarp á Alþingi til
að afla heimildar til sölu á hlut ríkis-
ins í bankanum. Eignarhlutur ríkisins
nemur nú 85% af heildarhlutafé bank-
ans.
Mun styrkja bankann
I því lagafrumvarpi sem ríkisstjórn-
in hyggst leggja fram er gert ráð fyrir
að heimilað verða að selja 15% af nú-
verandi eignarhlut ríkisins og mun því
eignarhlutur þess hafa lækkað í 72% af
heildarhlutafé bankans að söiu lok-
inni. Nafnverð þess hlutafjár sem unnt
verður að bjóða til sölu mun nema um
Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbank-
ans, fagnar þeirri ákvörö-
un ríkisstjórnarinnar að
leggja fram frumvarp til
sölu 15% hlutar hennar í
bankanum.
vel innan
825 milljónum króna. Mið-
að við núverandi markaðs-
gengi á hlutabréfum bank-
ans nemur markaðsvirði
þessa hlutafjár rúmlega 3
milljörðum kr. Landsbank-
inn styður einnig að nú
skuli stefnt að dreifðri sölu
hlutafjárins til almennings,
líkt og gert var við sölu á
15% hlutafjár í bankanum
vegna hlutafjárútboðs í
september 1998 en hluthaf-
ar í Landsbankanum eru
nú um 6.900 talsins. Hlutur
næststærsta hluthafans er
við 3% af heildarhlutafé og
hlutur þess þriðja stærsta er rúmlega
1% en aðrir hluthafar eiga innan við
0,5%. Með sölu á hlut rikisins skapast
svigrúm fyrir enn fleiri fjárfesta að
koma að rekstri bankans.
Landsbankinn sagðist telja að þetta
myndi styrkja bankann og tryggja að
enn virkari markaður yrði með hluta-
bréf í bankanum en verið hefði. Jafn-
framt yrði verðmyndun bréfanna
traustari. „Með viðtæku útibúaneti
sínu og fjölbreyttu vöru- og þjónustu-
framboði er Landsbankinn vel í stakk
búinn til að taka þátt í áframhaldandi
vexti efnahagslífs og fjármagnsmark-
aðar á íslandi. Þessi aðgerð mun enn
stuðla að því."
Nýr framkvæmdastjóri
Rafrænnar miðlunar hf.
Atli Örn Jónsson hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Rafrænnar miðlunar
hf. Atli Örn lauk stúdents-
prófi frá MA 1981 og útskrif-
aðist sem viðskiptafræðingur
af sölu- og stjómunarsviði
viðskiptadeildar HÍ 1987.
Hann hóf störf hjá Kredit-
kortum hf. árið 1987 og hefur
starfað þar síðan. Hann heíúr
gegnt starfi aðstoðarfram-
kvæmdastjóra EUROPAY íslands.
Ársæll Hreiðarsson, núverandi
framkvæmdastjóri Rafrænnar miðlun-
ar og einn eigendanna, mun stýra
Atli Örn Jóns-
tækni- og þróunarstarfi félags-
ins. Atli mun taka við nýja
starflnu í upphafl nýs árs. ,
Rafræn miðlun er vaxandi
fyrirtæki á sviði greiðslumiðl-
unar sem starfar á fyrirtækja-
markaði og sér meðal annars
um miðlun færslna vegna
greiðslu-kortaviðskipta. Raf-
ræn miðlun rekur miðlægan
búnað til heimildaröflunar og
upplýsinga- og færslusöfnunar.
Eigendur Rafrænnar miðlunar hf.
em Ársæll Hreiðarsson, Flugleiðir hf.,
Baugur hf„ Skýrr hf„ Opin kerfi hf„
SPRON og EUROPAY ísland.
Robert Ahldin
gengur til liðs
við Arctic
Ventures
Robert Ahldin, einn virt-
asti intemetsérfræðingur á
Norðurlöndunum, hefur
gengið til liðs við Arctic
Ventures og tekið sæti í
stjórn félagsins. Arctic
Ventures er framtakssjóður
sem fjárfestir í intemet- og
„wireless“-fyrirtækjum á
Norðurlöndum, einkum í Sví-
þjóð og Finnlandi.
Robert Ahldin er talinn
fremsti greiningarmaður á
hátæknimarkaði á Norður-
löndum og hefur starfað á
þeim markaði í 5 ár en ein-
beitt sér að netfyrirtækjum
síðustu 2 árin. Fjölmörg við-
töl hafa birst við Ahldin síð-
ustu vikur i blöðum á borð
við Newsweek og Business
Week. Hann hefur annast
fjölda útboða, m.a. fyirir
Icon-MedOab, Boxman.com
og Letsbuyit.com sem íslend-
ingar eiga 7% í. Áður hefur
veriö tflkynnt að John Pal-
mer, forstjóri og stofnandi
Letsbuyit.com, hafi tekið sæti
í ráðgjafamefnd sjóðsins.
Samruni SH End-
urskoðunar ehf.
við KPMG Endur-
skoðun hf.
Samkomulag hefur verið
undirritað um samruna SH
Endurskoðunar ehf. og
KPMG Endurskoðunar hf.
undir nafni þess síðamefnda.
Samraninn kemur tU fram-
kvæmda um næstu áramót.
SH Endurskoðun flytur þá
skrifstofur sínar í aðalstöðv-
ar KPMG að Vegmúla 3.
Eigendur SH Endurskoöun-
ar ehf. era þeir Sveinn Jóns-
son og Haukur Gunnarsson.
Þeir segja markmiðið með
samrunanum að bjóða viö-
skiptavinum víðtækari þjón-
ustu. Um leið eru starfsmönn-
um veittir betri möguleikar
tU þjálfunar og fræöslu í sam-
einuðu félagi.
KPMG er eitt stærsta end-
urskoðunar- og ráðgjafarfyr-
irtæki landsins. Eftir sam-
runann munu starfsmenn
verða um 150 talsins. KPMG
International er eitt stærsta
endurskoðunar- og ráðgjafar-
fyrirtæki í heimi með um 100
þúsund starfsmenn í 160 lönd-
um.
[\ÍAsgc>gv\, Wafnarfirði.
A4odcl/ /^L»*anesi.
SWatAnuir, Clsafipði.
Blówa- og gjafavömbúðÍM/ Sawðápl<»*ól<i.
Dyngjan, Vopnafipði.
BjóIfsbæp/ Seyðisfirði.
RaffœLjav. 5veins öwðmwndss./Égilssföðu
Viða»*sbúð/ 1~ásLmðsfi**ði.
>Ái*vi»*Li»W/ 5cífossi.
sf.
(E\nn\g
miLið MPval af
gjaj'avÖPM og sLaHi
jypip Ká+íðiMa.
Sími 553 2010.
- borgar sig
Áskrifendum DV býöst ný plata Bubba
flortensi „Sögur l^&O - mD”-. á sérstöku
tilboösveröi eöa aöeins E • kr ■
H*gt e r aö greiöa meö
eðc - - -
Visa/Euro
5a póstgíró
Nístu vikurnar veröur plata
Vilhjálms heitins
Vi 1 h j á 1 mssonar-i Pálma
Gunnarssonari Björgvins
Halldórssonar og Papanna á
sérkjörum til áskrifenda DV-
Samhliöa þessum
tilboöum veröur
tónlistarmaöur
vikunnar í beinu
spjalli á Visir-is og
hagt veröur aö hlusta
á brot af lögum
plötunnar-
www.visir.is
Á Fókusi á
Visir-is veröa
einnig viöburöir
og tilboö í gangi
m e ö
E n s í m i -i
S e 1 m u -i
SSSó 1
o g flaus ■
Fylgist með!
S3S-1DMS-
■vísir.isl