Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 27 r r>v Préttir Blaðberar óskast í eftirtaldar götur: Laugavegur Lindargata Klapparstígur É^- | Upplýsingar veitir afgreiðsla DV í síma 550 5777 Vegurinn fyrir Búlandshöfða vígður DV, Vesturlandi: Samgönguráðherra mætti með skæri ráðuneytisins að mörkum Snæfellsbæjar og Eyrarsveitar í gær, miðvikudag, og klippti á borða. Nýr vegur um Búlandshöfða á Snæfells- nesi var tekinn í notkun - næstum ári áður en áætlað var. Þar með er samfellt slitlag komið á veginn milli Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar. Hinn nýi vegur um Búlandshöfða er 8,2 kílómetrar á lengd. Hafist var handa við framkvæmdir í byrjun nóvember í fyrra. Það var Héraðsverk á Egilsstöðum sem ann- aðist vegarlagninguna en Skipavík í Stykkishólmi byggði 20 metra langa brú á Tunguós sem er á vegkaflan- um. Upphaflega var áætlað að verk- inu lyki í ágúst á næsta ári en á síð- asta vori komu fram hugmyndir verktaka um að flýta verkinu og var á þær fallist af hálfu Vegagerðarinn- ar. Einhver frágangsvinna mun bíða næsta vors. Sturla Böðvarsson afhjúpaði enn- fremur minnisvarða sem sveitarfé- lögin beggja vegna Búlandshöfða höfðu látið gera í tilefni bættra sam- gangna og aukinnar samvinnu í kjöl- far þeirra. Öllum viðstöddum var síð- an boðið til kaffisamsætis í Félags- heimilinu Klifl í Ólafsvik. Þess má geta að í foruneyti samgönguráð- herra var samgönguráðherra Mongólíu, Gavaa Batkhuu. -DVÓ/GK Matvælaeftirlit: Of mörg grá svæði - segir ráðherra „Það er mikið hagsmunamál fyrir bæði neytendur og framleiðendur matvæla að eftirlit með framleiðsl- unni verði einfald- að,“ sagði Siv Frið- leifsdóttir um- hverfisráðherra I gær. Hún sagðist ánægð með að til- laga hennar um slíka einföldun mála hefði verið samþykkt í ríkis- stjórninni á fostu- dag. Nefnd um opinbera eftirlitsstarf- semi af ýmsu tagi fær nú það viðbót- arverkefni að koma með tillögur um framtíðarskipan þessara mála. „Það sem er erfitt við svona viða- mikla breytingu er að hvert ráðuneyti og hver stofnun vill halda í sitt verk- efni - enginn vill sleppa neinu," sagði Siv. Hún sagði það í sjálfu sér eðlilega tilhneigingu. Hins vegar væri hún ánægð með viðtökumar í ríkisstjórn- inni og greinilega væru menn stað- ráðnir í að taka kyrfilega á vandamál- inu. „Það eru of mörg grá svæði. Mat- vælaeftirlitið hefur heyrt undir þrjú ráðuneyti og þrjár stofnanir og skýra mætti betur leikreglurnar. Það verður hlutverk nefndar Orra Haukssonar," sagði Siv Friðleifsdóttir. -JBP Siv Friðleifs- dóttir. SflMEINING HESTflMflNNSINS œvintýraheim FYRIR heótamenn! Með sameiningu þriggja rótgróinna verslana -w opnum við glæsilega stórverslun með hestavörur í 800 fermetra húsnæði að Fosshálsi i. ! Fjöldi cpnunartilbcða! Einnig verður opnað útibú í Faxafeni io (áður Reiðsport). Öll virtustu merkin í reiðfatnaði. Úrvalið er ævintýralegt. Allt fjrá hóttiöðrum til reiðhalla! v \ euro-star RETTMODEN FOSSHALS i' HEIMflR VLSTURl AFJOSVbGUR föFf$A&KK/ FOSSHÁLS tegundir hnökkum! Við minnum á tjölókylduhátíð á laugardag trá kl. ic-14 Stcrverslun með he&tavörur m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.