Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 15 Tökum í taumana Af hverju er ekki bara hægt að fljóta sof- andi að feigðarósi og láta sig dreyma eitt- hvað fallegt í leiðinni? Hlýtur ekki allt að enda einhvem veginn að lokum? Það sem heldur fyrir manni vöku eru íslensk stjómmál, þessi ótrú- lega fundvísi á ógöng- ur. Eins og að vera far- þegi í bíl þar sem að vísu er ekið um stór- brotið landslag, en það er eitthvað mikið að ökulaginu, spuming hvort bílstjórinn sé með réttu ráði. Þessi handarbakavinnu- brögð: hlutimir eru framkvæmdir fyrst, undirbúningurinn kemur allra síðast, þegar allt er um garð gengið. Og þá í formi réttlæting- ar. íslensk stjórnvöld eru alltaf í tímahraki. Frægt er þegar álver- ið í Straumsvík var reist í heima- tilbúnu kapphlaupi við kjamork- una sem myndi „innan örfárra ára“ leysa vatnsaflsvirkjanir af hólmi og íslendingar sætu uppi með verðlaus vatnsföll. Tveimur árum eftir að virkjunin var tekin í gagnið tók olíukúrfan lóðrétta stefnu upp á við en eftir sátu ís- lendingar og þurftu að borga með sinni eigin orku. íslensk stjórnmál Nú er látið heita að búið sé að lofa Norðmönnum Fljótsdals- virkjun og þeir geti fyrst við ef kaupin ganga ekki eftir. í þjóðina er síðan hent þessu mála- myndarplaggi frá Landsvirkjun sem á að heita hlutlaus út- tekt og samt enda allir póstamir á „auk þess leggjum við til að Eyjabökk- um verði sökkt“. Vel á minnst: hefúr Landsvirkjun beðið þjóðina afsökunar á hinum makalausa bæklingi (Lowest energy priœs, 1995) sem dreift var í sendiráð erlendis þar sem sagði að á íslandi byggi undir- málsfólk og ekki tíðkaðist að setja erlendum aðilum neinar pappírs- skorður þegéir stórvirkjanir væru annars vegar? Umræðan í þinginu Var það þetta sem Halldór Ás- grímsson átti við þegar hann æpti framan í þjóöina úr ræðustól að þingmenn væru betur í stakk búnir að fjalla um Fljótsdals- virkjun en ein- hverjir kontórist- ar úti í bæ? Aftur og aftur er stagl- ast á sömu tugg- unni um afglöp þingsins árið 1981 sem þjóðin verði nú að súpa seyðið af, hvað sem tautar og raular. „Lögin frá *81“ gegna nú sama hlutverki og syndafallið í kristninni áður, þar sem ófarir mannanna voru jafnan útskýrðar út ífá ótímabæru áti á einu epli. Hér þarf að staldra við. Nú þurfa farþegamir að gripa í taumana og láta bílstjórann sofa úr sér álvímuna áður en lengra er haldið. Lögformlegt umhverfismat strax er lágmarkskrafa. Pétur Gunnarsson Kjallarínn Pétur Gunnarsson rithöfundur „íslensk stjómvöld eru alltaf í tímahraki. Frægt er þegar álverið í Straumsvík var reist í heimatil- búnu kapphlaupi við kjarnorkuna sem myndi „innan örfárra árau leysa vatnsafls virkjanir af hólmi og íslendingar sætu uppi með verðlaus vatnsföll.u „„Lögin frá *81“ gegna nú sama hlutverki og syndafallið í kristninni áður, þar sem ófarir mannanna voru jafnan útskýrðar út frá ótímabæru áti á einu epli.“ Ljóður á ráði fagurra fljóða Á göngu höfundar um erlenda borg á námsárum sínum blasti iðulega við honum skilti af hendi sem hélt á vindlingi og sneri glóðin inn i lófann. Var yfir- skriftin á þann veg að eigi skyldi fólk láta standa sig að lág- stéttarósið. Við fyrstu sýn virtist boðskapurinn vera sá að á þenn- an hátt skyldu menn eigi á vind- lingum halda heldur á hátt þann er þokkadísir meðhöndla slíka hluti með tiu tomma munn- stykkjum í auglýsinginn tóbaks- framleiðenda. Við frekari athugun kom þó í ljós að boðskapurinn var annar og alvarlegri. Það er að reyking- ar væru heilsuspillandi ósiður, einkenni lágstéttar. Verða þó ekki allir er ánetjast hafa tóbaki i þann dilk dregnir. Kannanir hafa þó sýnt að reykingar meðal menntaðs fólks eru verulega miklu fátíðari en meðal þeirra er engrar æðri menntunar hafa not- ið. Þess sjást glögg merki i lag- skiptingu heilbrigðiskerfísins sjálfs. þar sem einsdæmi er að læknar reyki. Nokkru meiri er tóbaksnotkun hjúkrunarfræð- inga, enn meiri meðal sjúkra- liða og hvað mest meðal ræstingarfólks. Háleit mark- mið Á vinnustöðum utan heilbrigð: iskerfisins kem- ur þessi munur einnig víða greinilega í ljós. Meðal þeirra sem menntunar hafa notið eru reykingar fátíðar en vaxa með minnkandi skólagöngu. Nú er stefht að vímulausu íslandi þeg- ar fram líða stundir. Háleit markmið hafa verið sett fram sem virðast ekki innan seilingar „Alþjóðlegur samanburður sem landinn er gjarn að grípa til sýnir einnig að íslendingar eru eftirbát- ar annarra þegar kemur að tó- baksvörnum. Eru vindlingareyk- ingar t.d. meiri hér en meðal flestra þróaðra Evrópuþjóða að Grikkjum undanskildum.u miðað við vöxt þeirra efna sem gerð eru upptæk frá ári til árs. Markmiðið er sett að gefhu til- efni vegna þeirrar röskunar félagslegs siðgæðis sem neysla veldur auk vaxandi glæpatíðni, auðgun- arbrota og annarra er í kjölfarið fylgja.. Rökrétt er að álykta að eðlilegt sé að vamir gegn fikni- efiianeyslu hefjist með tóbaksvömum. Þegar íjárlög hafa verið afgreidd kem- ur ætíð í ljós að þeir málafokkar sem mest fé rennur til eru félags- og heilbrigðismál. Engu að síður reynist erfitt að fá enda til að ná saman í síðar- nefhda málaflokknum sem þarf á komandi árum að glíma við þá menningarsjúkdóma sem eiga eftir að íþyngja heilbrigðiskerf- inu mest, þ.e. sjúkdóma af völd- um reykinga og offítu. Eftirbátar annarra Af þeim ástæðum er einnig réttlætanlegt að verja meira fé en nú er gert til áróðurs gegn reyk- ingum þar sem þær hafa ásamt annarri vimuefnaneyslu farið vaxandi meðal ungs fólks. Eru telpur síst eftirbátar drengja i þeim efnum miðað við kannanir meðal grunnskólabama og - unglinga. í stað þess að nálgast markmið um vímuefnalausa fósturjörð vfrðist það því vera að fjarlægj- ast. Alþjóðlegur saman- burður sem landinn er gjam að grípa til sýnir einnig að ís- lendingar eru eftirbátar annarra þegar kemur að tóbaksvömum. Eru vindlingareykingar t.d. meiri hér en meðal flestra þróaðra Evr- ópuþjóða að Grikkjum undan- skildum. íslendingar telja sig fal- legasta, sterkasta og gáfaðasta meðal norrænu frændþjóðanna og eru stoltir af en njóta jafnframt þess vafasama heiðurs að reykja u.þ.b. þrisvar sinnum meira en Finncir, Svíar og Norðmenn. Kristjón Kolbeins Kjallarinn Kristjón Kolbeins viðskiptafræðingur Með og á móti Raforkudreifikerfi veitustofnana Hveragerðis selt Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis, Bæjarmálafélagið, lagði fyrir skömmu fram tillögu þess efnis að hefja samn- ingaviðræður við Rafmagnsveitur rík- isins um að selja þeim rafveitu bæjar- ins. í framhaldi af breytingartillögu fulltrúa Framsóknarflokks á næsta fundi samþykkti meirihlutinn síðan að óska eftir tilboðum frá fleiri aðilum og binda ekki söluna tilboði frá Rarik. Skóla og göt- ur í stað raf- veitu Þótt skuldastaða bæjarins sé góð er ljóst að þeim ijármunum sem felast í dreiílkerfi rafveitu bæjarins er betur varið í þau verkefni sem eru lög- boðin, t.d. um- bætur og stækkun leik- skóla og grunn- skóla, gatna- gerð og upp- byggingu bæj- arins sem ferðamanna- bæjar. Við í Bæjarmálafélaginu teljum að lækka eigi skuldir Hveragerðis- bæjar og auka þannig ráðstöfun- arfé sveitarfélagsins til framtíð- ar. Eins og sagt var í bókun á bæjarstjórnarfundi gerir fjár- hagsleg staða bæjarfélagins ekki kröfu um sölu eigna til að tryggja verkefnalegt og fjárhags- legt sjálfstæði þess. Hér er ekki um neina „gullgæs" að ræða, eins og sumir vilja halda fram, heldur auðlind sem er líklega á réttum tíma að selja nú. Rafveit- an hefur verið rekin með tapi þar til örfá undanfarin ár, en allt bendir til breytinga í orkuum- hverfi á næstu árum þar sem vænta má aukinnar samkeppni varðandi sölu og dreifingu raf- orku. Hafsteinn Bjarna- son, fulltrúi Bæjar- málafélags Hvera- gerðis í bæjar- stjórn. Sjálfræðinu endanlega fórnað Knútur Bruun, full- trúi Sjálfstæðisfé- lagsins Ingólfs I bæjarstjórn Hvera- gerftis. Sala rafveitu Hveragerðisbæj- ar er eitt af þeim málum þar sem meirihlutinn, Bæjarmálafélagið, lætur skamm- tímasjónarmið ráða ferðinni. Sjálfræði Hver- gerðinga i orkumálum yrði endanlega fórnað með sölu rafveit- unnar. Ég er ekki í vafa um að raforkuverð til almennings og fyrirtækja, t.d. garðyrkjustöðva, sem eru margar hér í Hveragerði, mundi hækka með sölu rafveitunnar til Rarik. Eins og ég lét bóka á bæj- arstjómarfundi má rekja tillög- una um að selja rafveituna til þess að reyna að hifa bæjarsjóð upp úr skuldafeni, til óstjómar í fjármálum bæjarins af hendi meirihluta bæjarfulltrúa síðast- liðin fjögur ár. Þetta er vanhugs- uð ráðstöfun sem stórskaðar framtíðarhagsmuni allra bæjar- búa. Hér ráða þröngsýn skamm- tímasjónarmið ferðinni og sjálf- ræði Hvergerðinga í orkumálum er endanlega fórnað. Ég hef held- ur ekki hlotið neinar undirtektir við þeirri ósk að halda borgara- fund um málið þar sem Hver- gerðingar sjálfir fá að tjá vilja sinn. -eh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.