Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 Spurmngin Hvað finnst þér um fram- göngu Jóns Steinars vegna sýknudóms prófessorsins? Sigurður Þór Ólafsson: Svolítið vafasamt. Þetta vekur margar spurningar og ég er ekki sáttur við Dað. Guðmundur Jón Viggósson nemi: Hann er ekki að gera rétta hluti. Hann er farinn að gera hluti sem eru ekki leyfilegir. Böðvar Eggertsson hárgreiðslu- meistari: Þetta er algjört kjaftæði og ótrúlegt að hann hafi fengið hann sýknaðan. Hermann Karvelsson nemi: Þetta er skandall. Jón Guðfinnsson tónlistarmaður: Hrikalegt mál. Ingvar Ragnarsson sölumaður: Þetta er orðið eins og bandarískt réttarkerfi. Lögmennirnir ná að snúa öllu á sinn veg og það sem verra er, þeim tekst það. Lesendur_____________ Lækningajurtir forfeðranna - staöreyndir um ginseng Hlómln: Þroska ftæ í fyllingu tímans. l.aufln: Eru notuð í jurtate m mótvirkandi áhrif, P.r ekki notað með rótínni. Róturbolurinn: Múttugusti hluti • jurtarinmir. Stórar hlíðarrætur Smærri hliðarrætur Úrgúngs rótarendar 6 úru giimul kóresk glnsengjurt Ginsengplantan er fjölær sveipjurt, fjarskyldur ættingi æti- hvannarinnar og fleiri ágætra lækningajurta sem forfeðurnir hafa notað um langan aldur. Einar Logi Einarsson skrifar: Undanfarin tæp 30 ár hef ég gefíð sérstakan gaum þeim fæðubótar- efnum og náttúrulyfjum sem í boði eru í almenn- um verslunum. Ég starfa við grasalækning- ar en hef engra hags- muna að gæta varðandi þessar vörur. Hins veg- ar er oft leitað ráðgjafar minnar um notkun þessara efna. Því er mér vel ljós nauðsyn þess að fólk hafi óvilhallar upp- lýsingar um eðli þeirrar vöru sem því stendur til boða. Ginsengplantan t.d. er fjölær sveipjurt og er fjarskyldur ætt- ingi ætihvannarinnar og fleiri ágætra lækn- ingajurta sem forfeður mínir hafa notað um langan aldur. Kínveijar og Kóreubúar uppgötv- uðu lækninga- og hress- ingarmátt ginsengs fyr- ir þúsundum ára. Verðmætasta gins- engið er nefnt Panax ginseng (merkir manns- rótin sem læknar allt), á sér kjörlendi í norður- og vesturhlíð- um steinefnaauðugra fjallshlíða í 800 til 1000 metra hæð. Vegna mikillar eft- irspurnar eftir ginsengi er allt kjör- lendi löngu fullnýtt og meira til. í rót- arbolnum, en það er sá hluti jurtar- innar sem talinn er hafa lækninga- mátt, má finna 7 flokka af virkum efn- um. Nú hefur nýlega verið sýnt fram á með margendurteknum rannsóknum að úthalds- aukandi- og hressingar- áhrifum ginsengrótarinn- ar er ekki hægt að ná með neyslu hreinsaðra og staðlaðra ginsenosíða og þó að þeir væru gefnir í stórum skömmtum höfðu þeir engin slík áhrif. Þá er vitað að ýmsir fjöl- sykrungar í ginsengrót- inni hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. í dag bein- ast sjónir manna ekki síst að fituleysanlegum efnum sem byrja að myndast þegar rótin er 5 ára göm- ul og af mörgum talin hafa þau æxlishemjandi áhrif ginsengrótarinnar sem ekki eru lengur um- deild. Það er vel kunn stað- reynd að mismunandi jurtahlutar hafa ólíka yerkun. Eins og áður seg- ir er rótarbolurinn verð- mætasti hluti ginseng- jurtarinnar. Því neyta Asíubúar helst heilla róta til að vera vissir um að fá rétta vöru. Sum evrópsk fyrirtæki nota aðeins ódýrasta hluta jurtarinn- ar i sína vöru en selja hana sem raun- verulegt ginseng. Varðandi þessa vöru, ekki síður en aðrar, er því heillavænlegast að neytandinn þekki þá vöru sem honum er boðin. Ekki dómur Hæstaréttar - heldur meirihluta Hæstaréttar Guðmundur Magnússon skrifar: Mér finnst ekki rétt að tala um dóm Hæstaréttar í sýknumáli hins ákærða i kynferðismáli því sem mest hefur verið rætt um manna á meðal að undanfórnu. Það var ekki Hæstiréttur sem stóð óskiptur að sýknu hins ákærða. Það var meiri- hluti Hæstaréttar, þrír dómarar af fimm. Hér er mikill munur á þegar rætt er um úrskurð Hæstaréttar líkt og þar hafi verið um samdóma álit að ræða. Það er svo stór spurning sem margir velta fyrir sér einmitt þessa dagana og spyrja gjarnan hver ann- an: Eru allir dómarar Hæstaréttar fullfærir að gegna hinu mikilvæga embætti? Það eru margar spurning- ar sem vakna í þessu sambandi, og ein er sú hvort t.d. fjárhagslegt sjálf- stæði kunni að spila þama inn í. Það er ekki af engu sem frambjóð- endur til þings i Bandaríkjunum þurfa að gera grein fyrir sjálfum sér, m.a. hvort þeir séu efnahags- lega sjálfstæðir svo þeir þurfi ekki að leita ásjár, jafnvel fjárhagslega, hjá skjólstæðingum sínum í stað þess að vera þeim stoð og stytta. Það er ekki einleikið og alls ekki trúverðugt að Hæstiréttur skuli þurfa að skipta sér upp i hópa í við- kvæmum málum. Staðreynd er að ávallt kallar veikleiki einstaklinga, dómara sem annarra, fram veik- leika í ákvarðanatöku í mikilsverð- um málum á úrslitastundu. R-listinn vart með fullu ráði Foreldri skrifar: Það er skelfilegt til þess að vita að flokkar sem hafa kennt sig við félags- hyggju skuli leyfa sér að bregðast kjósendum sínum og öllum borgar- búum á jafn ruddalegan hátt og nú er komið fram. Fyrsta kjaftshöggiö kom þegar meirihluti borgarráðs vildi leggja restina af útivistarsvæði Laugardals- ins undir steinsteypu og nú er það rot- höggið; uppsögn leikskólasamninga. Við foreldrar horfum upp á hæft og yndislegt starfsfólk kveðja og fara til fyrirtækja eins og MacDonalds og Hagkaups. Og hver eru ráð hinnar harðsvír- uðu Ingibjargar Sólrúnar? Ráða erlent fólk til starfa, skylda foreldra í þegn- yHHMGM Þlónusta allan sólarhringinn Lesendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem birt verða á lesendasíðu Að sjálfsögðu eiga lág leikskólagjöld sinn þátt í því að draga að nýja skatt- greiðendur til borgarinnar, segir m.a. í bréfinu. -------m vinnu eða hreinlega að senda börnin heim. Maður verður gjörsamlega máttvana af undrun. Það er augljóst að R-listinn starfar vart með fullu ráði né rænu. Það er ekki nóg með að þessar að- gerðir komi útivinnandi foreldrum og atvinnulífinu öllu mjög illa heldur mun þetta leggja stein í götu þeirra foreldra sem eiga börn á leikaskóla- aldri og eru í atvinnuleit. Sjálfsagt á þetta helst við um konur og svo sér- staklega um einstæða foreldra. En lík- lega er verið aö spara fyrir veisluna miklu í Perlunni fyrir 100 útvalda gesti. Ef við gefum okkur að um 20 börn séu á hverri deild í umsjón 4 leik- skólakennara þá gæti 5000 króna hækkun á leikskólagjöldum gefið um 100.000 kr. til skiptanna, eða 25.000 á mann. Líklega er rétt að draga launa- tengd gjöld frá svo borgin þurfi nú ekki að leggja einn einasta eyri út og þá standa eftir u.þ.b. 20.000 krónur, sem gætu hugsanlega gert gæfumun- inn. En þetta þykir varla gott ráð, því að sjálfsögðu eiga lág leikskólagjöld sinn þátt í því að draga að nýja skatt- greiðendur til borgarinnar. - Illt er að vita að það skuli vera kona sem er í forsvari fyrir þessum ósköpum. DV Prestar í útistöðum Sveinbjörn hringdi: Þetta er orðið afar einkennilegt með prestana hvemig þeir, hver á eftir öðrum og sífellt, lenda í kárín- um við safnaðarfólk sitt og siðar í landsfrægum deilum, blaðaskrifum og þurfa svo jafnvel að yfirgefa sitt brauð með tilheyrandi eftirköst- um. Menn muna deiluna í Lang- holtssöfnuði og nú deilu prestsins í Holti í Önundarfirði og svo prests- ins í Eyjafirði. Þetta er ekkert eðli- legt og ég er ekki undrandi þótt fólk aðhyllist ekki þjóðkirkjuna okkar. Mér finnst biskup, bæði nú- verandi og fyrrverandi biskupar ekki nógu harðir í að setja niður deilur, og það hreinlega í byrjun, svo að ekki komi til leiðinda gagn- vart presti og söfnuði. Ég er á því að prestur eigi að víkja strax og þæfingur er hafmn milli hans og safnaðar, annar prestur taki þá við og þjóni þar tO deilunni er lokið. Nú eru Norsar- ar nógu góðir Friðjón hringdi: Við íslendingar höfum ekki ver- ið beint Vinsamlegir í garð Norð- manna á síðustu árum. Bæði er um að kenna veiðum okkar íslendinga í Barentshafi, löndunarbanni Norð- manna á íslensk skip og deilunum sem spunnist hafa um yfirráð yflr sameiginlegum fiskstofnum þjóð- anna. En nú er öldin önnur. Sumir hér á landi vilja taka mikið mark á þeim Norðmönnum sem helst kynnu að viija beita áhrifum sínum gegn fyrirhugaðri Fljótsdalsvirkjun hér og hvetja til lögformlegs um- hverfismats. Norsku ríkisstjórn- inni og síðan Norsk Hydro hafa verið send tilmæli og áskoranir um að koma í veg fyrir að hér verði sett á fót stóriðja með norsku fjár- magni. - Er nú ekki farin að verða hálfsnúin afstaða okkar gagnvart Norðmönnum. Engin neyðar- þjónusta RARIK Kristinn Sigurðsson skrifar: Það skeði hjá mér nýverið að rafmagn fór af í húsi sem ég bý í. Ný rafmagnstafla er í húsinu en ekki komst á rafmagnið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir við rofana. Ég hringdi í RARIK og þar var sím- svari sem vísaði á annað númer. Þar svaraði maður og gaf góð ráð, sem dugðu þó skammt. Vísaði hann síðan á rafvirkja til að kanna málið. Engan þekki ég rafvirkj- ann. Mér finnst sjálfum að RARIK eigi að koma sér upp neyðarþjón- ustu, ekki síst í desember. Auðvit- að myndi maður greiða fyrir þá þjónustu, en hún er bráðnauðsyn- leg. Vona að RARIK bæti úr þessu, því það er auðvelt ef vilji er til. Stóri bagginn, Byggðastofnun Lárus skrifar: Mér sýnist að ef eitthvað er muni Byggðastofnun missa veru- legt vægi hér í framtíðinni. Það er þess vegna m.a. sem núverandi fé- lagsmálaráðherra er ekki sáttur við að taka við þessu „byggðabatt- eríi“. Stofnunin mun ekki verða jafnafgerandi í málum landsbyggð- arinnar og verður því svelt fjár- hagslega miðað við það sem áður var, þegar stofnunin jós peningum í algjörlega fráleita hluti til þess að sporna gegn fólksflóttanum af landsbyggðinn, eins og það var kallað. Nýir fjármunir koma sem sé ekki til Byggðastofnunar frá ijármálaráðuneyti og heldur ekki frá Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins eins og rætt hafði verið um en þar var um einn milljarð króna að ræða. Nú er sá banki seldur og hef- ur víst nóg með sig og sína að gera. Stóri bagginn, Byggðastofnun, mun því engjast sundur og saman og vonandi verður þessi fjárskort- ur henni að aldurtila fyrr en síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.