Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
Fréttir
PLzzakofinn gufiur upp. og íélagslif í molum:
Skólanemar pitsulausir
timni tjf I.
«w5 twKa tryH ftontnni«tjdksum Vtw »***»»v
vn^evrv
tivista«r'ir'i'-'»bur IR lætur okki
sv«»tu
SVtotvcv
'iim
otatov
.vlvUtX'
, Ö.V 1 *
' 'fcUí*'"-
>u ítaJska tiskutlmaritsins Grazia
undarhverfi á KjaJarn,
°£ feikskófi
Fréttaskot DV - síminn sem aldrei sefur - 550 5555
Logandi fréttir
allan sólarhringinn
Lesendur DV taka hressilega á með
ritstjóminni og hringja inn efni í
fréttir, viðtöl, greinar og pistla. Allan
sólarhringinn eru fréttir að berast til
DV með nútímasímatækni. Þetta
framlag lesenda er vel þegið og vitað
er að margir hafa gaman af að vinna
með ritstjóminni á þennan hátt og sjá
fréttir sínar á prenti. Hvetjum við fólk
til að hafa samband við Fréttaskot DV
í síma 550 5555 og láta vita um ýmis-
legt sem það telur að sé frétt.
Hafið samband við blaðið
Fréttaskyttur DV eiga um tvær
leiðir að velja. Sú vænlegri er að tala
skilaboð inn á talhólf Fréttaskotsins
sem er einfalt mál. Sími Fréttaskots-
ins er 550 5555 og talhólfið tekur við
skilaboðunum allan sólarhringinn
alla daga ársins. Ekki llkar öllum „að
tala við vélar“, eins og þeir kalla það.
Þá er hin leiðin opin - að hringja í
Fréttaskotið á hefðbundinn hátt í að-
alsíma blaðsins, 550 5000, eöa beina
línu, 550 5822, frá kl. 7 á morgnana
fram eftir degi. Ef um er að ræða frétt
sem blaöamenn og ljósmyndarar
þurfa að komast í að vinna strax er
ráðlegt að hringja og tala við blaða-
mann og fréttinni verður gefinn for-
gangur ef þurfa þykir. Á skilaboð I
fréttahólfinu er hlustað nokkrum
sinnum á dag en berast ekki umsvifa-
laust.
Fréttaskotið er ætlað fyrir fréttir
eingöngu - stutt en greinileg skilaboð
til ritstjórnar um fréttnæma viðburði
að mati þess sem hringir. Fulls trún-
aðar er gætt og nafn þess sem hringir
verður aldrei gefið upp. Þeir sem eru
með fastmótaðar skoðanir á hlutun-
um hringja eða skrifa þeirri deild sem
sér um kjallaragreinar og lesendabréf
blaðsins í síma 550 5035.
Þurfi lesendur að ná í afgreiðslu
með kvartanir yfir útburöi á blaðinu
eða koma inn smáauglýsingu hringja
þeir í 550 5000. Ekki nægir að skilja eft-
ir skilaboð til þessara deilda blaðsins.
Sama gildir um annað efni, til dæmis
fréttatilkynningar, þær eiga að berast
eftir öðrum leiðum til ritstjómar.
Þegar talað er inn á talhólf Frétta-
skotsins er mikilvægt að tala skýrt og
rólega, ekkert liggur á, greina frá aö-
alatriðum málsins og muna eftir að
gefa upp nafn, heimilisfang og síma-
númer. Oft er þörf á að ná til frétta-
skyttunnar til að fá nánari upplýsing-
ar en ítrekað skal að fullur trúnaður
ríkir milli DV og þess sem skýtur að
okkur fréttinni. DV greiðir fyrir
fréttaskot leiði það til þess að blaðið
birti fréttina. Verðlaunin eru 3000
krónur og það fréttaskot sem valið er
besta skot vikunnar fær 7000 krónur.
Stórkostlegar fréttir lesend-
anna
í Fréttaskotinu í þessum næstsíð-
asta mánuði ársins 1999 sem nú er að
líða hafa fréttaskot verið með allra líf-
legasta móti og fjölmörg þeirra hafa
ratað inn á forsíðu blaðsins sem hinar
gagnlegustu fréttir. Við skulum aðeins
skoða þetta glæsilega framlag lesenda
okkar: Dorrit og forsetinn. Fimmtán
ára gömul íslensk stelpa sló í gegn og
var á forsíðu finasta tískublaðs ítaliu.
Fyrsta bam flóttafólksins frá Kosovo
er fætt eins og sjá mátti af forsíðu DV.
Hún Fjóla er orðin verslunarstjóri í
Bónusi þótt ung sé. Skiltastríð tann-
lækna í Kópavogi er hafið. „Ketkrók-
ur“ stal jólahangikjöti hobbíbænda í
Grindavík. Útgerðarmaður féll í höfn-
ina og var bjargað. íslendingur varð
yfirmaður hjá Sameinuðu þjóðunum í
Kosovo. íslenskur læknir í London
segir starfsbræður hér á landi öfund-
sjúka. Og svo var formaður Liverpool-
klúbbsins á íslandi rekinn úr félaginu
sinu. Þannig mætti lengi telja.
Eins og fyrr segir er Fréttaskot því
aðeins greitt að það leiði til birtingar
á frétt í blaðinu. I hverri viku berast
hundruð fréttaskota en aðeins hluti
þeirra gagnast blaðinu beint. Hitt er
annað mál að það sem lesendur hafa
fram að færa gefur góða mynd af því
hvað bærist með þjóðarsálinni hverju
sinni. Verið því velkomin í Frétta-
skotið og látið okkur vita um það sem
þiö teljið fréttnæmt. -JBP