Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
Utlönd
9
Skýrsla ÖSE um Kosovo:
Börnin frentja
ofbeldisverkin
Margir verstu ofbeldisglæpirnir
sem framdir eru í Kosovohéraði i
Serbiu eru verk barna og unglinga.
Spennan og óreiðan sem fylgja i
kjölfarið lenda síðan á fullorðna
fólkinu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu (ÖSE) sem gerð var opinber
á mánudag, að því er segir i banda-
ríska blaðinu Washington Post.
Skýrslan greinir frá mannréttinda-
brotum frá því hersveitir NATO
komu til héraðsins í júní og júgó-
slavneskir hermenn héldu á brott.
í skýrslunni er greint frá miklum
Qölda ofbeldisverka ungmenna, þar
á meðal þrjátiu handsprengjuárás-
um á heimili Serba í borginni Liplj-
an í júlí og ágúst. Þar voru að verki
unglingar á aldrinum fjórtán til
tuttugu ára. í sömu borg stakk
sautján ára unglingur fullorðinn
Serba með hníf í september. Á aðal-
götu héraðshöfuðborgarinnar Prist-
ina tóku fimm drengir á aldrinum
tíu til tólf ára sig til og gengu í
skrokk á serbneskum manni í lok
október.
„Framtíð Kosovo felst í börnun-
um,“ sagði Bemard Kouchner,
æðsti sendimaður Sameinuðu þjóð-
Bernard Kouchner, fulltrúa SP í
Kosovo, líst ekki á aukna þátttöku
barna og unglinga í ofbeldisverkum.
anna í Kosovo, í yflrlýsingu sem
fylgdi skýrslunni. „Eitt það hræði-
legasta sem fram kemur í skýrsl-
unni er hins vegar aukin þátttaka
unglinga í mannréttindabrotum."
m
o
o
&
o
0
Vitato rg
með innkeyrslu fráVitastíg og Skúlagötu
Bílastæðasjóður
Pessir vígalegu hermenn eru hluti nýrrar úrvalssveitar sem Andres
Pastrana, forseti Kólumbíu, setti á laggirnar til aö berjast gegn skæruliðum
marxista sem valda stjórnvöldum þungum áhyggjum.
Tutu segir pabbann
eiga að fá Elian
Suður-afríski erkibiskupinn
Desmond Tutu sagði i gær að
bandarísk yfírvöld ættu að skila Eli-
an Gonzales, 6 ára dreng sem missti
móður sína og stjúpa á flótta frá
Kúbu, til fóður hans. Elian, sem
fannst á gúmmíslöngu undan strönd
Bandaríkjanna, er nú hjá ættingjum
í Flórída.
Faðir drengsins hefur krafist þess
að fá drenginn til sín og nýtur
stuðnings Fidels Castro Kúbufor-
seta.
„Kúba og Bandaríkin ættu að
breyta í þessu máli eins og Salómon
konungur," sagði Tutu og vitnaði í
biblíuna. Taka ætti tillit til þess
sem væri barninu fyrir bestu. „í
kjölfar áfallsins vegna móðurmissis-
ins ætti hann að fá að vera með nán-
ustu ættingjum sínum,“ sagði erki-
biskupinn.
Spennan á milli Bandarikjanna
og Kúbu vegna málsins jókst enn
frekar í gær í kjölfar ráns á
skemmtiferðabát undan strönd
Kúbu á mánudaginn. Yfirvöld í
Havanna kröfðust þess að bátnum
yrði skilað til Kúbu ásamt mönnun-
um sex sem rændu honum og skip-
verjunum tveimur.
Sex menn vopnaðir hnífum ógn-
uðu skipverjunum tveimur og
neyddu þá til að sigla bátnum til
Flórída. Kúbskir strandgæslubátar
veittu ræningjunum eftirfór en
bandaríska strandgæslan tók þá í
bandarískri landhelgi.
í Havanna söfnuðust tugir þús-
unda námsmanna og verkamanna
fyrir utan skrifstofu sendifulltrúa
Bandaríkjanna í Havanna. Kröfðust
mótmælendur að Elian fengi að
snúa heim til foður síns.
AKAI
:
TX220
' £fverdlagid liér ^
vasri ekl?i svona sjúklega
lieilBrigí vaz.ri ég Jdúíhh
&cf sprau^a þac/ nic^ur
v fvrir lij’andi löngu/ >
28" steieó sjónvarp með Scart tengi
og textavarpi
TVC284
TENSai
TVR600
2ja hausa einfalt en vandað myndbands-
tski með NTSt afspilun og Scart tengi
VSJ701
GRUÍ1DIG
29" 100 riða
Hegatron Nicam
Stereó sjðnvarp með textavarpi og Scart tengi
100HirM72ÍÖÖ
AKAI
6 hausa Nitam Stereð myndbandstski.
Einfallt en öflugt tski ð frábsru verði
VHIHRDIR lattmð Jóma ki; Pttttsínii Póiit kaffk IQRBURLAI3 D SlMgrWjala. MÉuit D V Hicvtnása. D MmcImh Blonduoa sígfiðmdáð. Sadktitli KA. DM liisjjaíimUmpi If fngtyiOK HóartUrð. Badahöln AUSIiJRLAIO: ö teaktoi [aHulilui.VailanIfiit lesfcwssud laopiún. HenafirðL 0fnelnðnu
*** D RnðstK Shteíiii UrIk Urtó.k 0 Fiskiiðsijarlac iistridiiL Ua IjéMó l« Uh leuiili SOBUIIAID lrfuss»tjii« U Heln* UaskO. lelta káuabi Seloul lK Srlte. lás. MiksUk. Imti hawuiwRiri^!