Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
13
DV
Fréttir
Hörkuslagur um internetnotendur og „fría áskrift“:
- blekking
Fyrirtæki sem bjóða upp á inter-
netþjónustu eru orðin fjöldamörg
talsins en nú hriktir i stoðunum þar
sem islandsbanki og Íslandssími
bjóða nú fría internettengingu. Fyr-
irtækin hafa kynnt þjóðinni að
hægt sé að skrá sig fyrir frirri net-
áskrift í gegnum eitt símtal og um
leið fá frítt netfang fyrir tölvupóst.
Og þetta er fyrir alla þjóðina, ekki
einungis fyrir viðskiptavini Islands-
banka. Þar sem íslendingar eru í
fremstu röð á sviði framþróunar á
Netinu vilja Islandsbanki og ís-
landssími stuðla að enn frekari for-
ystu á nýrri öld en þjónustan hefur
göngu sina 10. janúar árið 2000. Eini
er ekkert ókeypis
þessum heimi
að halda öðru fram, segir formaður félags endursala á internetþjónustu
kostnaðurinn er hefðbundinn síma-
kostnaður á meðan notkun stendur.
Landssíminn og Landsbankinn hafa
brugðist hart við tilboði samkeppn-
isaðilanna og boða nú samstarf um
rekstur netþjónustu með svipuðu
sniði.
Notendur Internetsins hafa borg-
að fast mánaðargjald fyrir notkun-
ina hjá intemetfyrirtækjum og er
þjónusta innifalin í því verði. Verð-
ið fyrir aðganginn er mismunandi
en algengast á bilinu 1.500-2.500
krónur. En er þá tilkoma frírrar
áskriftar að Intemetinu ekki spam-
aður fyrir fólkið í landinu?
„Öll þjónusta kostar eitthvað. Að
halda því fram að þetta sé frítt er
bara blekking. Það er ekkert frítt í
þessum heimi,“ sagði Guðmundur
Kr. Unnsteinsson, formaður félags
endursala á intemetþjónustu, en fé-
lagið var stofnað sem hagsmunafyr-
irtæki fyrir fyrirtæki í internetþjón-
ustu.
„Það er spurning hvaðan pening-
amir eru teknir til að kosta þetta.
Þetta er í raun spurning um til-
færslu. Íslandssími er nýtt fyrirtæki
og hefur vantað viðskiptavini og
þetta er leikur til að öðlast þá. Við
erum að skoða þetta mál ítarlega og
munum leita til samkeppnisstofnun-
arinnar um hvört verið sé að brjóta
samkeppnislög,“ sagði Guðmundur
en það mun skýrast á næstu dögum
meö hvaða hætti intemetfyrirtækin
bregðist. Jafnframt sagði Guðmund-
ur að íslendingar gerðu það miklar
kröfur um þjónustu og til að koma á
móts við þær kröfur verði að greiða
fyrir hana.
I samtali við DV sagði Eyþór Arn-
alds, framkvæmdastjóri Islands-
síma, að þeir myndu veita almenna
þjónustu og styðja öll mótöld, jafn-
vel tvöfóld ISDN. „Notendur okkar
geta hringt í þjónustunúmer ef þeir
eiga í einhverjum vandræðum en
verðið fyrir þá þjónustu hefur ekki
verið ákveðið. Við erum að leita til-
boða en þjónustan verður á kostnað-
arverði en það verður eitthvert mín-
útugjald. Mínútugjaldið hjá notand-
anum er almennt mínútugjald. Við
fáum hluta skrefagjaldanna þótt við-
komandi sé hjá Landssímanum.
Með þessari þjónustu erum við að
opna nýjar dyr til almennings,"
sagði Eyþór. Upplýsingar á geisla-
diski um uppsetningu Intemetsins
verða dreifðar til þeirra sem hafa
skráð sig en sjálf uppsetningin á að
vera mjög einfold. Aðspurður sagð-
ist Eyþór ekki eiga von á að þeir
væru að brjóta samkeppnislög en
þeir væru opnir fyrir þvi aö sam-
keppnisstofnun skoðaði málið. -hól
Framkvæmdir viö fyrsta áfanga byggöarinnar fyrir botni Elliöaárvogs eru á lokastigi en þar eru 14 raðhús á þremur
hæðum og eitt fjölbýlishús. Hjá fasteignasölunni Borgum fengust þær upplýsingar aö mjög vel heföi gengið aö selja
fbúöir og hús í þessum áfanga. Framkvæmdir viö 2. áfanga eru hafnar en þar veröur einnig þjónustu- og atvinnu-
húsnæöi. í árslok 2001 á aö vera risin þarna tæplega eitt þúsund manna byggö. DV-mynd E.ÓI.
Nýja verslunarmiöstöðin á Gleráreyrum á Akureyri:
Geysilegur áhugi á
að fá að vera með
- fyrirtæki í Reykjavík og á Akureyri sýna mikinn áhuga
DV, Akureyri:
„Það hafa mjög margir haft sam-
band og sýnt áhuga á að vera með,
það gæti látið nærri jú að það séu
um 60 aðilar," segir Jákub Jakob-
sen, annar eigenda Rúmfatalagers-
ins, en það fyrirtæki ásamt KEA
hyggst opna fyrsta áfanga verslun-
armiðstöðvar á Gleráreyrum á Ak-
ureyri á hausti á næsta ári. Eins
og fram hefur komið hafa þessir
aðilar keypt verksmiðjuhús
Skinnaiðnaðar á Gleráreyrum og
fleiri hús á þeirri lóð og stærsta
verslunarmiðstöð utan Reykjavik-
ur mun rísa á þessum stað.
Jákub Jacobsen segir að í versl-
unarmiðstöðinni verði 3-4 mjög
stórar verslanir. Tvær þeirra
verði KEA-Nettó og Rúmfatalager-
inn en ekki sé búið að ganga frá
því hverjar hinar verði. „Það
verður að sjálfsögðu litið til þess
hvað mun þjóna best verslunar-
miðstöðinni sem heild að hafa
þarna, en við gerum semsagt ráð
fyrir 3-4 stórum verslunum,
sennOega nálægt 10 matsölustöð-
um og um 15 öðrum verslunum.
Það verður farið í það af fullum
krafti að vinna teiknivinnu núna,
og ég á von á því að verklegar
framkvæmdir hefjist strax og
frost fer úr jörðu í vor,“ segir
Jákub.
Það vekur nokkra athygli að
Jákub segir að þónokkuð margir
aðilar sem reka verslanir í miðbæ
Akureyrar hafi sýnt því áhuga að
vera með starfsemi í nýju verslun-
armiðstöðinni. Fastlega má reikna
með að þeir aðilar hyggist hætta
verslun í miðbænum fái þeir inni
á Gleráreyrum, enda ekki langt
þarna á milli. Jákub Jacobsen seg-
ir að þeir aðilar komi reyndar
víða að sem vOja vera með, og
sumir þeirra reki verslanir á
Akureyri nú þegar, aðrir ekki.
-gk
Einn sá glæsilegasti til sölu..
lapttsi Lkahd
ekinn 95.000 km, 24 venila, dísil, upphækkaður, 38" dekk, 14"
léttmálmsfelgur, allt rafdr., læst drif framan og aftan, 4,88 drif.
180W kastarar, loftdæla, litaðar rúSur o.fl.
Uppl. í síma 892 3742.
ESM
J ÓLAHLAÐBORÐ
Frá 23. nóvember til 23. desember
bjóðum við okkar ljúffenga
jólahlaðborð.
Verð kr. 1.890.- í hádeginu
og kr. 2.990.- á kvöldin.
Pantið tímanlega í síma 568-9566
Munið skötuhlaðborðið
í hádeginu á Þorláksmessu.
HÓTEL ESJA
ICELANOAIR HOTELS