Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Page 23
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
35
r
x>v_____________________________________________Sviðsljós
Fyrrum eiginkona í hefndarhug skrifar bók:
Kynsvall og eitur-
át Noltes afhjúpað
Svakatöffarinn Nick Nolte á ekki
von á góðu þegar bók fyrrum eigin-
konu hans kemur fyrir sjónir al-
mennings.
Þar er vandlega farið í saumana á
kynsvalli leikarans, fikniefnaneyslu
og svikum. Og öðrum ólifnaði, að
mati frúarinnar.
Nolte og bókarhöfundurinn, dans-
arinn Sharyn Haddad, voru hjón á
árunum 1978 til 1984.
Sharyn heldur því fram í bók
sinni að hún hafi fyrst frétt af vænt-
anlegum skilnaði sínum og hasar-
karlsins Nicks, sem hefur sosum
leikið rómantísk hlutverk með góð-
um árangri líka, í sjónvarpi.
Sænska Aftonbladet segir að
Sharyn skrifi einnig um magn-
þrungna og tryllta tíma í lífl þeirra
hjóna.
„Við áttum afskaplega erfitt með
að hafa einhverja stjóm eða hemil á
okkur. Þetta var erfið ást en ástríð-
Brúðkaup á
Bráðavaktinni
Hollywoodsjarmörinn George
Clooney er nú að velta því fyrir
sér að koma aftur á Bráðavakt-
ina í gervi barnalæknisins
Dougs Ross. Samþykki Clooney
að taka að sér hlutverkið yrði
það bara um skamma hríð og þá
til að giftast hjúkrunarkonunni
Carol Hathaway sem Julianna
Margulies leikur. Julianna er
einnig að hugsa um að hætta í
myndaflokknum. Helst vill hún
hafa gengið upp að altarinu með
barnalækninum fyrst og fætt
honum tvíbura.
Treystir ekki
Nicholson
Mamma Löru Flynn Boyles
reynir allt sem hún getur til að
eyðileggja samband dóttur
sinnar og kvikmyndaleikarans
Jacks Nicholsons. Mamman,
Sara, er nefnilega viss um að
einn góðan veðurdag muni
leikarinn yfirgefa dóttur hennar
eins og allar aðrar konur sem
hann hefur verið í tygjum við.
Lara er bara 29 ára en Jack 62.
Nick Nolte var ekki við eina fjölina
felldur í kvennamálum, segir frúin.
urnar voru líka dás£imlegar,“ segir
Sharyn í bókinni.
Eitt lögðu þau hjónakomin í vana
sinn, nefnilega að fá sér herbergi á
ódýrum subbuhótelum og horfa þar
aftur og aftur á klámmyndir.
„Nick vildi alltaf líkja eftir mynd-
unum og hann leyfði mér ekki að
fara fyrr en allt small saman,“ segir
Sharyn.
Já, ævisaga dansmeyjarinnar er
uppfull af alls kyns skemmtilegum
sögum, fyrir lesandann að minnsta
kosti, sögum um fíkniefnaneyslu og
ásókn í töfralækna. Ekki má gleyma
frásögn af ástarævintýri Nicks og Bar-
bru Streisand meðan á upptökum á
kvikmyndinni Prince of Tides stóð.
„Þetta er athyglisverð bók þar
sem skýrt er frá mörgu um kvik-
myndabransann," segir James Schi-
avone, umboðsmaður Sharyn, í
viðtali við Aftonbladet. Við bíðum
spennt eftir framhaldinu.
Stórleikarinn Tom Hanks og leikstjórinn Frank Darabont eru greinilega
ánægöir hvor með annan, ef marka má hegðun þeirra við frumsýningu
myndarinnar Grænu mílunnar. Þar leikur Hanks aðalhlutverkið. Myndin seg-
ir frá fangavörðum við dauðadeild fangelsis nokkurs síðustu stundirnar fyr-
ir aftöku manns sem var ranglega sakfelldur.
Hurley fleygir
brjóstahaldinu
Ofurfyrirsætan og leikkonan
Elizabeth Hurley verður á síðum
janúartölublaðs bandaríska Elle. Og
hún sýnir næstum því allt. Hin stóru
tískublöðin eru sögð svolítið
öfundsjúk út í Elle sem tókst að fá
hina fögru fyrirsætu til að skreyta
fyrsta blaðið á nýju árþúsundi. Enn
hefur engum tekist að komast að því
hvað ofurfyrirsætan fær fyrir að láta
birta myndir af sér á mörgum síðum.
En víst er talið að bæði Elle og
lesendur fái eitthvað fyrir sinn snúð.
Liz Hurley hefur ekki alltaf verið
ýkja hrifln þegar papparazzar hafa
myndað hana berbrjósta í sólbaði.
En nú fleygir hún sem sagt
brjóstahaldinu af fúsum og frjálsum
vilja fyrir ljósmyndarana. Það er
samt ekki nema á einni mynd. Viðtal
við Liz fylgir myndunum og i því
segir hún að hún hafi öfundað
vinkonur sínar á unglingsárunum
vegna fagurs vaxtarlags þeirra. Sjálf
þroskaðist hún ekki jafh fljótt og
vinkonumar.
i