Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Blaðsíða 30
42
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
Fólk í fréttum
Hjálmar Árnason
Hjálmar Waag Ámason, alþing-
ismaður Reykjaneskjördæmis,
Faxabraut 62, Reykjanesbæ, er nú
í fréttum DV vegna Fljótsdals-
virkjunar en hann er formaður
iðnaðamefndar Alþingis.
Starfsferill
Hjálmar fæddist í Reykjavík
15.11.1950, ólst þar upp til átta ára
aldurs en síðan í Kópavogi. Hann
lauk stúdentsprófí frá MH 1970,
kennaraprófi frá KHÍ 1979, BA-
prófl i íslensku frá HÍ 1982, og
M.Ed.-prófi í skólastjórnun frá
Bresku Kólumbíu-háskólanum í
Kanada 1990.
Hjálmar var kennari við Grunn-
skóla Sandgerðis 1970-72 og
1977- 78, við Fróðskaparsetur Fær-
eyja 1972-73, við Flensborgarskóla
1973-77, Holtaskóla í Keflavík
1978- 80, við Víðistaðaskóla og
starfaði í Fræðsluskrifstofu
Reykjanes 1980-81, við Fjölbrauta-
skóla Suðumesja frá 1981, og
skólameistari þar frá 1985. Þá er
hann alþm. Reykjaness fyrir
Frcunsóknarflokkinn frá 1995.
Auk kennslustarfa hefur Hjálm-
ar stundað þáttagerð í útvarpi, lög-
gæslustörf, blaðamennsku og sjó-
mennsku.
Hjálmar sat í stjóm Félags ís-
lenskra menntaskólakennara
1975-77, i stjóm Samtaka
móðurmálskennara
1980-82, sat í stjóm
Skólameistarafélags ís-
lands 1991-95 og var for-
maður þess 1993-95, sat
í stjórn FH 1981-83, var
fyrsti formaður íþrótta-
bandalags Reykjanes-
bæjar 1996-99, ritstjóri
tímarits SVFK 1993-96,
sat í markaðs- og at-
vinnumálanefnd Reykja-
nesbæjar 1994-98, var
fulltrúi Alþingis á ÖSE-
þingi 1995-99, fulltrúi íslands á
þingi Evrópuráðsins 1995-99, er
varaformaður Vestnorræna þing-
mannasambandsins, er formaður
iðnaöamefndar Alþingis, varafor-
maður samgöngxmefndar og situr
auk þess í sjávarútvegsnefnd og í
efnahags- og viðskiptanefnd. Hann
er formaður Lánasjóðs landbúnað-
arins frá 1999.
Hjáimar hefur þýtt sögur og ljóð
og samið kennslubækur og leið-
beiningarrit fyrir kennara.
Fjölskylda
Sambýfiskona Hjálmars var
Bergljót S. Kristjánsdóttir, f. 28.9.
1950, lektor. Þau skildu. Foreldrar
hennar: Kristján Andrésson, og
k.h., Salbjörg Magnúsdóttir.
Hjálmar Waag
Árnason.
Böm Hjálmars og Berg-
ljótar eru Ragnheiður, f.
17.8. 1972, nemi viðHÍ,
búsett í Reykjavík og
eru böm hennar María
Kristína og Bergljót;
Kristján, f. 3.12. 1975,
nemi við HÍ, búsettur í
Hafnarfirði en dóttir
hans er Þórhildur.
Hjálmar kvæntist 6.1.
1978 Valgerði Guð-
mundsdóttur, f. 3.6.
1955, kennara. Hún er
dóttir Guðmundar Rún-
IKLAUSTRINU
Opnum kl. 11.00 að morgni alla daga
með léttum hádegisverði.
JÓLAMA TSEÐILL
Á jólamatseðli er að finna Ijújfenga rétti sem
þú verðurað prófa.
Borðapantanir í síma 552-6022
Á fimmtudögum leikur
dj asshlj ómsveitin Viðfj arðar undrin:
Guðmundur Pétursson, gítar, Eðvarð Lárusson, gítar,
Þórður Högnason, bassi,Birgi Baldursson, trommur,
frá kl. 22.00 íyrir matargesti.
Föstudaga og laugardaga
leika Dos Paraguayos
fyrir matargesti.
KLAUSTRID
\ N N O \U M \ v 1 \
Klapparstígur 26 - sími 552 6022
ars Guðmundssonar, og k.h., Bryn-
dísar Ingvarsdóttur.
Börn Hjálmars og Valgerðar eru
Ingvar, f. 4.1. 1979, nemi við HÍ en
unnusta hans er Eva Ingimundar-
dóttir nemi; Bryndís, f. 22.3'. 1987,
nemi.
Uppeldisdóttir Hjálmars og dótt-
ir Valgerðar, er Dagmar Guð-
mundsdóttir, f. 4.4. 1972, nemi við
HA en unnusti hennar er Óttar
Már Ingvarsson, nemi við HA.
Systur Hjálmars eru Svava, f.
1949, kennari í Reykjavík; Kristin,
f. 1952, hjúkrunarfræðingur, bú-
sett í Kópavogi; Soffia, f. 1964,
ferðamála- og félagsfræðingur.
Foreldrar Hjálmars eru Árni
Waag, f. 12.6.1925, kennari í Kópa-
vogi, og k.h., Ragnheiður Ása
Helgadóttir, f. 5.7. 1927, húsmóðir.
Ætt
Ámi er bróðir Karinar, móður
Hjálmars Waag Hannessonar
sendiherra. Árni er sonur Hjálm-
ars Waag, skólastjóra í Klakksvík
í Færeyjum sem lést ungur, bróð-
ur Einars Waag, stofnanda og for-
stjóra Föröjabjór.
Móðir Áma var Kristín Áma-
dóttir, prófasts á Stóra-Hrauni
Þórarinssonar, á Eyrarbakka
Ámasonar, b. á Klasbarða Jóns-
sonar. Móðir Þórarins var Jómnn,
systir Tómasar Fjölnismanns, afa
Jóns Helgasonar biskups og
Tómasar læknis, afa Ragnhildar
Helgadóttur, fyrrv. ráðherra. Jór-
unn var dóttir Sæmundar, b. í Ey-
vindarholti Ögmundssonar, pr. á
Krossi, bróður Böðvars, langafa
Þuriðar, langömmu Vigdísar Finn-
bogadóttur. Ögmundur var sonur
Presta-Högna Sigurðssonar. Móðir
Sæmundar var Salvör Sigurðar-
dóttir, systir Jóns, afa Jóns for-
seta. Móðir Árna prófasts var Ing-
unn, systir Helga, afa Ásmundar
Guðmundssonar biskups. Ingunn
var dóttir Magnúsar, alþm. í
Syðra-Langholti Andréssonar og
Katrínar Eiríksdóttur, ættföður
Reykjaættarinnar Vigfússonar.
Móðir Kristínar var Anna Elísabet
Sigurðardóttir, hreppstjóra i
Syðra-Skógarnesi Kristjánssonar
og Guðríðar Magnúsdóttur.
Ragnheiður er dóttir Helga,
bróður Bjama, alþm. og ráðherra
á Reykjum í Mosfellsbæ, afa Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdóttur alþm.
Systir Helga var Þórdís, móðir
Gunnars Bjamasonar ráðunautar.
Helgi var sonur Ásgeirs, b. í
Knarrarnesi Bjamasonar, b. þar
Benediktssonar. Móðir Helga var
Ragnheiður, systir Sigríðar,
ömmu Sigurðar Helgasonar, fyrrv.
stjómarformanns Flugleiða. Ragn-
heiður var dóttir Helga, b. á Vogi,
bróður Ingibjargar, langömmu
Kristjáns Eldjám forseta. Helgi
var sonur Helga, alþm. á Vogi
Helgasonar.
Móðir Ragnheiðar var Svafa,
systir Odds, föður Jóns hrl., og
hálfsystir Huldu, ömmu Jónasar
Haraldssonar, aðstoðarritstjóra
DV. Svafa var dóttir Jóns, b. á
Álftanesi Oddssonar, og Mörtu
Mariu, systur Haralds prófessors,
föður Jónasar, fyrrv. bankastjóra.
Systir Mörtu Maríu var Þuríður,
móðir Níelsar Dungal. Marta Mar-
ía var dóttir Níelsar, b. á Gríms-
stöðum Eyjólfssonar og Sigríðar,
systur Hallgríms, biskups og alþm.
Sigríður var einnig systir Elisabet-
ar, móður Sveins Bjömssonar for-
seta, afa Önnu Ólafsdóttur Bjöms-
son, fyrrv. alþm. Sigríður var dótt-
ir Sveins, prófasts og alþm. á
Staðastað Níelssonar og Guðrún-
ar, systur alþingismannanna Hall-
dórs á Hofl og Ólafs á Sveinsstöð-
um. Systir Guðrúnar var Þórunn,
móðir Jóns Þórarinssonar alþm.,
afa Jóhanns Hafstein forsætisráð-
herra. Önnur systir Guðrúnar var
Sigurbjörg, amma Jóns Þorláks-
sonar forsætisráðherra. Guðrún
var dóttir Jóns, pr. og alþm. á
Hösukuldsstöðum Péturssonar.
7/////////7A
Áskrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
/1ÖTN*
Smáauglýsingar
DV
550 5000
DV
Tll hamingju með
afmælið 9. desember
85 ára
Guðrún Hlíf Guðjónsdóttir,
Ási B, Hellu.
80 ára
Marinó Viborg Guðmundsson,
Seljabraut 12, Reykjavík.
Hann verður að heiman.
Maron Pétursson,
Hólavegi 11, Sauðárkróki.
Stefania Finnbogadóttir,
Torfnesi, Hlíf 2, ísafirði.
Eiginmaður hennar er Hans
Valdimarsson. Þau taka á móti
gestum í samkomusalnum á
Hlíf, laugard. 11.12. kl. 15.00.
75 ára
Helgi V. Helgason,
Grimsstöðum I, Reykjahlíð.
60 ára
Jens Valur Franklín,
Eskihlíð 20, Reykjavík.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Rauðalæk 42, Reykjavík.
Kolbrún Gimnarsdóttir,
Langholtsvegi 36, Reykjavík.
50 ára_______________________
Ámi Sigtryggsson,
Bröttukihn 22, Hafnarfirði.
Birgir Ingólfsson,
Blesugróf 2, Reykjavík.
Bjöm Ómar Jakobsson,
Heiðarholti 34f, Keflavík.
Carlos Sanchez,
Birkihlíð 6, Hafnarfirði.
Guðbjartur Sigurðsson,
Háseylu 39, Njarðvík.
Jónatan Ólafsson,
Neðstaleiti 18, Reykjavík.
Ómar Karl Arason,
Ægisgrund 17, Garðabæ.
Pétur Einir Þórðarson,
Kvistabergi 9a, Hafnarfirði.
Reynir Gunnarsson,
Leirulækjarseli 2, Borgamesi.
Sigurður Aadnegard,
Háuhlíð 8, Sauöárkróki.
Snorri Zophoníasson,
Bakkavör 24, Seltjarnamesi.
40 ára
Amar Gíslason,
Þingaseli 1, Reykjavík.
Feng Wang,
Háaleitisbraut 47, Reykjavík.
Ingvar Albert Jónsson,
Ásgarði 30, Reykjavík.
Jóhanna K. Guðbjartsdóttir,
Greniteigi 25, Keflavík.
Jón Björgvin Garðarsson,
Fljótaseli 28, Reykjavík.
Jónas Jónsson,
Kleppsvegi 40, Reykjavík.
Kristbjörg Steingrímsdóttir,
Laugarásvegi 1, Reykjavík.
Martin Harris Avery,
Vallargötu 4, Vestmannaeyjum.
Sigríður Kristinsdóttir,
Þórshamri, Reykholti.
Sigurður Jakobsson,
Varmalæk, Borgarnesi.
Vilhjálmur Thomas,
Unufelli 50, Reykjavík.
Skrifborð, gesta- og fundarstólar: sparar™rt mfa
' -J a þessu arþusundi
40-80% afsláttur
Lageru
a þúsaldamótum
mvm
Skrifistctubúnaður
Haliarmúla 2 Sími 540 2030