Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 DV
fréttir____________________________
Svart útlit á Ólafsfirði:
Gjaldþrot Sæunnar
Axels er reiðarslag
- skelfilegt ástand, segir starfsmaður verkalýðsfélagsins
„Það vissu fáir fyrir að ástandið í
fyrirtækinu væri svona alvarlegt
þótt menn vissu að þar væru erfið-
leikar eins og víða annars staðar.
Fólk er slegiö og það er ekkert gam-
anmál aö standa frammi fyrir svona
ástandi skömmu fyrir jól og í upp-
hafi nýrrar aldar. Þetta er skelfilegt
ástand,“ segir Ágúst Sigurlaugsson,
starfsmaður svæðisstjómar Verka-
lýðsfélagsins Einingar-Iðju á Ólafs-
firði, um gjaldþrot Fiskverkunar
Sæunnar Axels, stærsta atvinnu-
veitandans á Ólafsfirði undanfarin
ár. Óhætt er að segja að þrátt fyrir
að flestum hafi verið kunnugt um
erfiðleika í rekstri fyrirtækisins
hafi fáa grunað að gjaldþrot væri yf-
irvofandi, og fréttir af því komu
eins og reiðarslag yfir Ólafsfirðinga.
Sumir tala reyndar um rothögg fyr-
ir atvinnulífið. Sæunn Axelsdóttir
og fjölskylda hennar byggðu fyrir-
tækið upp frá grunni og hefur verið
um samikallað fjölskyldufyrirtæki
að ræða.
Atvinnulífið á Ólafsfirði hefur
ekki blómstrað undanfarin ár, en
segja má að Ólafsfirðingar hafi
árum saman háö mikla baráttu til
þess að halda í
horfinu. Þeim
hefur tekist þaö
með miklum
dugnaði en ekki
meira en það og
íbúum hefur
eitthvað fækk-
að. Að því leyt-
inu tii er ástand-
ið á Ólafsfirði
líkt og á fleiri stöðum víðs vegar um
land sem eiga við þá erfiðleika að
etja að sjávarútvegur og fiskvinnsla
hefur átt mjög undir högg að sækja,
og er það öðru fremur rakið til
kvótaleysis í þessum byggðum.
Margar kollsteypur
Ásgeir Sigurlaugsson hjá Ein-
ingu-Iðju segir að Ólafsfirðingar
hafi gengið í gegn um margar koll-
steypur i atvinnulífinu, ekki hvað
síst fólk sem hefur starfað við fisk-
vinnslu. Ein slík hafi riðið yfir er
Magnús Gamalíelsson, sem var
bæði með rekstur frystihúss og salt-
fiskverkun, hafi hætt starfsemi.
Ólafsfjarðarbær hafi eftir þaö kom-
ið myndarlega að Hraðfrystihúsi
Ólafsfjaröar sem stærsti einstaki
hluthafinn en sú starfsemi hafi lagst
af. Enn eitt áfallið hafi verið er Sæ-
berg sameinaðist Þormóði ramma á
Siglufirði sem þýddi minni land-
vinnslu á Ólafsfirði og nú hafi Sæ-
unn Axels hætt starfsemi.
í öllum þessum hræringum hafi
Ólafsfirðingar oftar en einu sinni og
oftar en tvisvar horft upp á fjölda-
uppsagnir og atvinnuleysi i kjölfar-
ið en ávallt hefur á
einhvem hátt tekist
að rétta úr kútnum
að mestu. Ýmislegt
hefur verið reynt í
þeim tilgangi að
skjóta frekari stoð-
um undir atvinnu-
lífið, m.a. kaup á
keram ik verksmiðj u
sem bærinn hafði
forgang um en sá rekstur gekk ekki
upp og skildi ekkert eftir sig annað
en fjárútlát. Ólafsfirðingum hefur
gengið illa að skjóta rótum í ferða-
þjónustu, fyrst og fremst vegna stað-
setningar. Þó hefur að undanfomu
verið unnið mikið starf á þeim vett-
vangi, m.a. byggð sumarhús við
Ólafsfjarðarvatn, en frumkvæðið í
þeim efnum hefur Ásgeir Ásgeirs-
son, eiginmaður Sæunnar Axels-
dóttur, haft.
Enginn kvóti til
Um árabil var öflug togaraútgerð
frá Ólafsfirði en segja má aö hún
hafi verið lögð af endanlega með
sameiningu Sæbergs og Þormóðs
ramma. Tveir togarar Þormóðs
ramma-Sæbergs landa þó reglulega
afla á Ólafsfirði en þar er um frysti-
skip að ræða sem hafa fullunnið afl-
ann. Því má þó ekki gleyma að á
skipum Þormóðs ramma-Sæbergs er
mikill fjöldi Ólafsfirðinga og giskaði
Ágúst Sigurlaugs-
son hjá Einingu-
Iðju á að þeir væru
um 70 talsins.
En það er stað-
reynd að Ólafs-
fjörður er kvóta-
laus bær og fyrir-
tæki í fiskvinnslu
þar hafa því átt
erfitt uppdráttar
og ýmist orðið að
leigja kvóta dýru
verði eða slást um
fisk til vinnslu á
mörkuðum. Hvað
varðar Fiskverkun
Sæunnar Axels
hefur það svo bæst
við að aðalmarkað-
ir fyrirtækisins er-
lendis, í Brasilíu,
hafa brugðist
hrapallega. Líkum
er leitt að því að fiskverkun á Ólafs-
firði kunni að leggjast endanlega af
nú. Að undanfomu hefur ekkert
verið unnið hjá næststærsta fisk-
verkandanum, Sigvalda Þorleifs-
syni, vegna hráefnisskorts en þar
hafa starfað um 20 manns. Sömu
sögu er að segja um fyrirtækið
Garðar Guðmundsson þar sem um 5
manns hafa starfað en einhver at-
vinna hefur verið hjá Fiskverkun
Stíganda hf. þar sem örfáir aðilar
starfa. Ljóst er að þessi fyrirtæki
eiga við erfiðleika að etja og menn
ræða það í fullri alvöru að í upphafi
nýrrar aldar verði engin fiskvinnsla
lengur rekin á Ólafsfirði.
Þessir samverkandi þættir hafa
orðið til þess
fyrst og fremst
að skapa þá
stöðu sem nú er
uppi á Ólafsfirði.
Mönnum ber
saman um að í
rekstri Sæunnar
Axels hafi ávallt
verið gætt að-
halds og lítið
bruðlað. „Við
sjáum ekki hver
gæti tekið þetta
að sér og náð ár-
angri fyrst rekst-
urinn gekk ekki
upp undir stjórn
Sæunnar og fjöl-
skyldu hennar.
Þar var a.m.k.
ekki bruðlinu og
yfirbyggingunni
fyrir að fara,“
segir Ágúst Sigurlaugsson hjá Ein-
ingu.
Þáttur Byggðastofnunar
Sæunn Axelsdóttir hefur ekkert
farið leynt meö þá skoðun sína að
„hinir háu herrar hjá Byggðastofn-
un“, eins og hún hefur orðað það,
hafi brugðist fyrirtæki sínu og
byggðarlaginu. Þegar Byggðastofn-
un úthlutaði byggðakvóta sínum í
sumar var Sæunn Axels meðal um-
sækjenda og fór ekki leynt með að
mikið lægi við að hún fengi hlut f
kvótanum. Byggðastofnun var á
öðru máli, byggðakvótinn fór vítt og
breitt um landið en staður eins og
Ólafsfjörður, sem er kvótalaus en
byggir á fiskvinnslu, varð út undan.
í kjölfarið sagði Sæunn Axels upp
öllu starfsfólki sínu en uppsagnar-
frestur var framlengdur nokkrum
sinnum þar til yfir lauk.
Talsmenn Byggöastofnunar hafa
svarað gagnrýni Ólafsfirðinga full-
um hálsi og hefur forstjóri stofnun-
arinnar m.a. látið hafa eftir sér að
stofnunin hafi áður veitt Sæunni
Axels fyrirgreiðslu og ef eitthvað sé
hafi fyrirtækið fengið meiri fyrir-
greiðslu en eðlilegt sé miðað við
starfsreglur stofnunarinnar.
Lífiö heldur áfram
Finnist ekki lausn á vanda Ólafs-
firðinga á næstunni má fastlega
reikna með því að fólk muni flytja
þaðan í einhverjum mæli. Uppbygg-
ing atvinnulífsins þar í bæ hefur
ekki verið með þeim hætti að fólkið,
sem nú hefur misst atvinu sína, hafi
að öðrum hlutum að hverfa, flest
hvað, og því hefur hluti fólksins
engan annan möguleika til að fram-
fleyta sér en að flytja annað, t.d. ein-
stæðar mæður sem störfuðu hjá Sæ-
unni Axels.
Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjar-
stjóri á Ólafsfirði, sem er sonur Sæ-
unnar, segir að Ólafsfirðingar hafi
orðið fyrir miklu áfalli og það muni
ekki koma sér á óvart ef fólk flytji
frá staðnum fái það ekki atvinnu
þar. „En lífið heldur áfram. Nú er
það okkar hlutverk að berjast fyrir
okkar byggðarlag og við eigum mik-
ið verk fyrir höndum. Við höfum
haldið í horfinu varðandi fólksfjölda
og um þesscu- mundir er að hefjast
rekstur fjarvinnslufyrirtækis i bæn-
um sem mun skila okkur um 10
störfum og við höfum verið og erum
að skoða fleiri slíka möguleika. Það
þýðir ekkert að gefast upp,“ segir
Ásgeir Logi.
Skuldir Sæunnar Axels eru taldar
vera talsvert yfir 800 milljónir. Fyr-
irtækið á hins vegar umtalsverðar
eignir þar á móti, m.a. birgðir og
útistandandi kröfur, 240 tonna fiski-
skip, Kristján ÓF, sem er reyndar
kvótalaus, og umtalsverðar húseign-
ir á Ólafsfirði. Helstu kröfuhafar í
þrotabú fyrirtækisins verða Spari-
sjóður Ólafsfjarðar og Sparisjóða-
bankinn.
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
Ásgeir Logi Ásgeirsson
bæjarstjóri: „Lífiö heldur áfram."
Svefn & heilsa
t★ ★ ★ ★
Nýr háþróaður heilsukoddi
sem fuUkomnar hvfldina
Frábæru bómullarlökin
kominaítur
Afsláttur af heilsu-
stólum á meðan
birgðir endast
L i s t li ú s í n ii L a u tj a r <1 a I , s i m i 5 8 1 2 2 3 3 • D a I s b r a u t 1 , A k ure y r i, s í tn t A fi 1 115 0
wwwsvefnoylieilsa i s