Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 JLf'V
%!önd
Milljarðamæringurinn Edmond Safra neitaði að yfirgefa brennandi íbúð sína:
Óttinn við rússnesku
mafíuna yfirsterkari
Málið virðist liggja ljóst fyrir.
Bandariskur hjúkrunarfræðingur
hefur viðurkennt að hafa kveikt í
íbúð milljarðamæringsins Edmonds
Safra í Monte Carlo fyrir síðustu
helgi með þeim afleiðingum að
Safra og hjúkrunarkona sem annað-
ist hann létu lífið. Punktur, basta.
Eða hvað?
Þeir eru margir sem eiga bágt
með að trúa því að sagan sé svona
einfóld. Og fyrir því liggja margar
ástæður. Þó sú helst að Edmond
Safra trúði vinum sínum fyrir því
ekki alls fyrir löngu að einhverjir
hefðu fullan hug á að koma honum
fyrir kattarnef, hann hefði fengið
líflátshótanir. Breskir fjölmiðlar
segja að hann hafi óttast rússnesku
mafiuna eins og pestina.
Grímuklæddir bófar
Hjúkrunarfræðingurinn Ted
Maher, sem þénaði rúmlega fjörutíu
þúsund krónur á dag fyrir aö ann-
ast Safra, viðurkenndi ekki strax að
hafa lagt eld að þakíbúð Safra. Hann
hélt því fram að tveimur grímu-
klæddir menn hefðu ráðist inn í
íbúðina, lagt til sín með hnífi og síð-
an kveikt í kofanum. Maher skipaði
húsbónda sínum, sem þjáðist af
Parkinsonsveiki, og hjúkrunarkon-
unni Vivian Torrente að loka sig
inni í baðherbergi við svefnherbergi
Safra og kallaði síðan á hjálp. Lög-
regla og slökkvilið komu á staðinn
en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,
bæði eiginkonu Safra, sem svaf í
annarri álmu 800 fermetra íbúðar-
Erlent f ré
Ijós
w
innar, og slökkviliðsmanna tókst
ekki að sannfæra millann um að
koma út. Og þar sem íbúðin var svo
rammgerð tókst slökkviliðsmönn-
um ekki að brjóta sér leið inn til
sjúklingsins og hjúkrunarkonunn-
ar. Þau köfnuðu um síöir af völdum
reyks.
Ætlaöi ekki aö drepa
Að sögn saksóknarans í Mónakó,
Daniels Serdets, ætlaði Maher
aldrei að drepa húsbónda sinn.
Maher ætlaði einfaldlega að reyna
að ganga í augun á Safra með því aö
„bjarga“ lífi hans. Ástæðan þess var
sú að Maher þótti yfirmaður hjúkr-
unarliðs Safra vera heldur harð-
neskjulegur. Þessu vildi Bandarikja-
maðurinn mótmæla með íkveikj-
unni og sögunni sem hann diktaði
upp. Hann skar sjáifan sig meira að
segja í tvígang með hnífi til að auka
enn frekar á trúverðugleika sögunn-
ar.
Draumórana burt
„Ef vísbendingamar staðfesta frá-
sögn hans og ef það sem hann segir
passar nákvæmlega við það sem við
höfum séð, þjónar engum tilgangi
að vera með einhverja draumóra
um hugsanlega utanaðkomandi að-
ila. Hann segist hafa verið einn að
verki og af persónulegum ástæðum
og ég trúi honum,“ sagði saksóknar-
inn Daniel Serdet við fréttamenn
eftir að játning Mahers lá fyrir í
vikunni.
Gott og blessað. Þeirri spumingu
er hins vegar enn ósvarað hvers
vegna tæknideild lögreglunnar í
Monte Carlo segir að eldurinn hafi
komið upp á tveimur stöðum í íbúð
Safra. Maher segist sjálfur aðeins
hafa kveikt einn eld, í ruslafötu í
vaktherberginu við hliðina á her-
bergi Safra.
Þá vekur framferði Safra og
hjúkrunarkonunnar inni á baðher-
berginu furðu manna. Þau hringdu
átta sinnum úr farsíma sem þau
voru með. Safra hringdi fyrst í lög-
regluna sem þá þegar hafði verið
látin vita af eldsvoðanum. Því næst
talaði hann við eiginkonu sína, hina
brasilísku Lily, sem grátbað hann
um að koma út. Hann vildi það ekki
þar sem hann taldi sig óhultari inni
í rammgerðri íbúðinni en utan.
Mátti þá einu gilda þótt reynt væri
að fullvissa hann um að allt væri í
lagi. Hjúkrunarkonan Torrente
ræddi síðan sex sinnum við aðra
hjúkrunarkonu í starfsliði Safra. í
síðasta samtalinu talaði Torrente
um reykinn sem var farinn að
berast inn í baðherbergið og að þau
myndu missa meðvitund innan
Þessi mynd sýnir glögglega hversu illa farin þakíbúö milljarðamæringsins Edmonds Safra var eftir eldsvoöann um
síöustu helgi. íbúöin var svo rammgerö aö slökkviliösmenn áttu í erfiöleikum meö aö komast inn um þakið.
skamms. Nokkrum mínútum síðar
voru þau örend.
Óttaöist um líf sitt
Loks furða margir sig á því að líf-
vörður Safra, sem kom mjög fljót-
lega á vettvang, skyldi ekki hafa að-
stoðað björgunarmenn að komast í
gegnum kirfilega læstar dyrnar eins
og hann hafði þó verið beðinn um.
Þótt margt bendi til á þessari
stundu að Ted Maher beri einn
ábyrgð á dauða Edmonds Safra og
að dauði milljarðamæringsins hafi
verið hreint óviljaverk, eins og Ser-
det saksóknari hefur sagt, er það
engu að síður staðreynd að Safra
óttaðist mjög um líf sitt. Ibúð hans
bar þess líka vitni. Hún var svo vel
varin fyrir öllum óboðnum gestum,
meðal annars með skotheldu gleri í
öllum gluggum, að slökkviliðsmenn
sem börðust við eldinn áttu í mesta
basli með að brjóta sér leið í gegn-
um þakið.
Já, Safra óttaðist rússnesku mafí-
una. Ástæðan er sú að banki hans,
Republic National Bank of New
York, lék stór hlutverk í rannsókn
bandarísku alríkislögreglunnar á
peningaþvætti rússneskra glæpa-
manna í bönkum í Bandaríkjunum
og víðar. Reyndar voru það forráða-
menn banka Safra sem létu FBI vita
um grunsamlegar tiifærslur fjár-
muna frá Rússlandi árið 1998.
Að sögn talsmanna FBI voru við-
brögð banka Safra til mikillar fyrir-
myndar. Þar var komið upp sér-
stöku eftirlitskerfi með dularfullum
fjármagnsflutningum.
Búinn aö selja bankann
Bandarísk lögregluyfirvöld segja
að alls hafi rússneskir glæpamenn
og jafnvel háttsettir embættismenn
líka komið fimmtán millörðum doll-
ara undan, þar af tíu milljörðum af
láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til
rússneskra stjómvalda.
Þegar Safra lést var verið að
ganga frá sölu banka hans og ann-
arra fjármálastofnana til bresku
fjármálasamsteypunnar HSBC.
Litlu munaði þó að þau viðskipti
færu út um þúfur í sumar þegar
verðbréfamiðlari sem vann með
Republic National Bank varð upp-
vís að stófelldum fjársvikum.
Fyrir sextán árum komst Safra
upp á kant viö greiðslukortafyrir-
tækið American Express. Hann
hafði þá nýlega selt fjármálarisan-
um einn banka sinn og stofnað fyr-
irtæki sem átti að keppa beint við
American Express. Forráðamenn
þess sökuðu þá Safra um að vera
viöriðinn eiturlyfjasölu og vera
flæktur í Irangate-hneykslið sem
snerist um ólöglega vopnasölu
Bandarikjamanna til írans til að
fjármagna starfsemi Contra-skæru-
liða sem börðust gegn sandinista-
stjóminni í Níkaragva. Þeirri
rimmu lyktaði með því að Americ-
an Express varð að biðjast opinber-
lega afsökunar árið 1989 og láta átta
milljónir dollara af hendi rakna til
góðgerðarstofnana að vali Safra.
Líkt viö Mídas konung
Edmond Safra var 67 ára þegar
hann lést í síðustu viku, gyðingur
fæddur í Líbanon, af ætt mikilla
fjármálamanna í keisaraveldi
ottémana. Faðir hans, Jacob, var
ættaður frá kaupsýsluborginni Al-
eppó í Sýrlandi en flutti með fjöl-
skyldu sína til Beirút í Líbanon.
Safra flúði til Ítalíu 1949 undan of-
sóknum á hendur gyðingum í Lí-
banon sem höfðu færst mjög í vöxt
eftir stofnun tsraelsríkis. Sautján
ára gamall hóf Safra feril sinn í
verslunarfyrirtæki í Mílanó. Þrem-
ur árum síðar flutti fjölskyldan til
Brasilíu þar sem hún stundaði
verslun og viðskipti eins og fyrr.
Safra kaus hins vegar að flytjast bú-
ferlum til Sviss árið 1956 þar sem
hann hóf rekstur eigin banka, Trade
Development Bank. Tíu árum síðar
opnaði hann banka í New York, áð-
umefndan Republic Bank.
Safra var oft talinn vera eins kon-
ar guðfaðir nútímalegra einka-
banka. Markmið hans var að gera
forrríka viðskiptavini sína frá
Monte Carlo til Miami ánægða.
Samferðamenn hans líktu honum
gjarnan viö Mídas Frygíukonung úr
grísku goðsögunum sem fékk þá ósk
sína að allt varð að gulli sem hann
snerti. Við andlátið voru auðæfi
Safra metin á íjóra til fimm millj-
arða dollara.
Edmond Safra kvæntist auðugri
brasilískri ekkju, LUy að nafni, árið
1976. Þau áttu ekki böm saman en
hún átti böm með fyrri eiginmanni
sínum.
Safra var jarðsettur í vikunni í
Genf í Sviss sem hann leit á sem aðra
heimaborg sína. Margt stórmenni var
þar saman komið, menn á borð við
nóbelsverðlaunaþegann Elie Wiesel,
David Levy, utanríkisráðherra ísra-
els, Sadruddin Aga Khan fursta og
Javier Perez de Cuellar, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
LUy Safra feUdi tár yfir kistu eigin-
manns sins.
Byggt á Libération, Washington
Post, Le Monde og Sunday
Times.
Lily Safra stígur inn í bílinn sem flutti lík eiginmanns hennar, Edmonds
Safra, til greftrunar í Genf í Sviss á þriöjudag.
r Töfraou
fram það 5*
með Petn Pokus
s&‘K
Fæst í öllum betri
leikfangaverslunum
Dreifing:
HSS ehf.
sími 564 4600