Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 %raðan ertu? ... i prófíl Andy Sell- ar, 24 ára Baldur Trausti Hreinsson leikari ólst upp á ísafiröi. Hann náöi þeim frama í kofaþorpinu að vera skipaöur lögreglustjóri. I faðmi fjalla blárra: Lögreglustjórinn í kofaþorpinu „Ég er fæddur á ísaflrði 15. mars 1967 og hef orð móður minnar fyrir því að það hafi verið kl. 8.30. Sjáifur man ég ekki eftir því.“ Þannig lýsir Baldur Trausti Hreins- son leikari upphafi jarðvistar sinnar. Hann er um þessar mundir að leika annað aðlhlutverkið í Bláa herberginu eftir David Hare á sviði Borgarleik- hússins. Baldur er yngstur fjögurra systkina og ólst upp á Engjavegi 16 á ísafírði með útsýni yfir spegilsléttan fíörðinn og skugga brattra fíalla sem gnæfðu yfir. „Þegar ég hugsa aft- ur til æskuáranna á ísafirði er alltaf gott veður. Hvort sem er sumar eða vetur þá finnst mér alltaf vera sól og logn.“ Þegar Baldur var að alast upp á Engjaveg- inum var verið að byggja mikil einbýlis- hús og raðhúsalengjur við Urðarveg. Þessar nýbyggingar voru púkunum á Engjaveg- inum gjöful upp- spretta af efni í kofa, fleka, kassabíla og annað það sem þurfti nauðsynlega að byggja. Ég var lögreglustjórí „Við hösluðum okkur völl á tún- bleðli við gamalt sveitabýli sem heitir Hraunprýði og stóð við Urðarveginn. Þama reis kofaþorp með einum 12 eða 14 byggingum, allt úr stolnum spýtum frá Jóni Þórðarsyni byggingarmeistara við Urðarveg og þama vorum við krakkamir allan daginn, frá því dagur reis og til kvölds. Þetta var mikið og skipulegt samfé- lag og Haraldur Júlíusson, nú verslun- arstjóri í Metró, var bæjarstjóri, Sig- urður Jónsson, kallaður Búbbi, var slökkviliðsstjóri og ég fékk það emb- ætti að vera lögreglustjóri í kofaborg- inni. Það kom því í minn hlut að byggja fangelsi. Það fór frekar illa fyr- ir þeirri byggingu. - Baldur Trausti Hreinsson rifjar upp æskuárin á Isafirði Fangelsið sem brotnaði Bolungarvík Flateyrl Okkur hafði borist njósn af því að Hlíðarvegspúkar, en Hlíðarvegur er rétt norðan Engjavegs, ætluðu að fara að þorpi okkar í skjóli nætur og brenna þaö til grunna. Þetta varð til þess að við vöktum heila nótt yfir kof- um okkar og höfðum til taks 200 lítra tunnu fulla af vatni til slökkvistarfa. Ekkert bólaði á innrásarmönnum en við töldum víst að það gæti þurft að taka einhvem til fanga svo við fengum sjálfboðaliða úr okkar hópi, Kristin Þ. Jónsson, og lok- uðum hann inni í fangelsinu. Hann átti að kanna hvort það væri mannhelt. Kristinn fékk æði og braut fangelsið gersam- lega í spón.“ Það tíðkuðust á ísafirði stöðug- ar eijur milli Eyrarpúka sem bjuggu niðri á Eyri, Hlíðar- vegspúka og Engjavegspúka. Bjami var verstur „Ég man eftir heiftarlegum orustum þegar sló í bardaga við Eyrarpúkana. Þá stóðum við alltaf saman á Engja- vegi og Hliöarvegi þótt við elduðum grátt silfúr þess á milli. Ég var aldrei nógu mikill bardagamaður til að taka þátt í þessum orrustum í fremstu víg- línu en vann að baki viglínunnar við undirbúning og njósnir. Ég minnist þess að sá harðsnúnasti í flokki Eyrar- púkanna var Bjami Brynjólfsson sem nú ritstýrir tímaritinu Séð og heyrt. Helstu vopnin í þessum ormstum vora teygjubyssur og túttubyssur og skotfærin þurrkaðar grænar baunir. Eg minnist þess aldrei að neinn meiddi sig, svo orð væri á gerandi. Það gerðist hins vegar þegar við lentum í slöngustríði en þar vom vopnin 10 cm langir stubbar af vatnsslöngum sem ýmist var barið með eða þeim hent af öllu afli. Ég man eftir einum sem fékk svona stubb í andlitið og steinlá á eft- ir.“ Þegar hvað mest kvað að þessum róstum milli púkanna í hlíðinni og hinna á Eyrinni vom gerðar meiri ráð- stafanir af hemaðarlegum toga. Varðtuminn í hlíðinni „Ég man eftir miklum varðtumi sem var reistur í urðinni ofan við Urð- arveg undir forystu Kára Jóhannes- sonar. Þetta var mikið mannvirki úr skreiðarspírum og efst trónaði risavax- in slöngubyssa með slöngu úr bíldekki. Ég man ekki eftir að hún væri notuð en mönnum stóð vissulega stuggur af henni. Þama sátu varðmenn svo og fylgdust með mannaferðum." Baldur kann líka að segja frá enda- lausum leikjakvöldum þar sem krakk- amir söfnuðust saman og léku sér í vinsælum hópleikjum. „Þetta vora helst saltabrauð og að rekja pílu sem var feluleikur milli tveggja hópa og var mjög vinsæll. Mér finnst eins og við höf- um oft fengið að vera úti fram undir myrk- ur. Það var stutt niður í fíömna og beint neðan við Engjaveginn á Torf- nesi var fiskimjölsverksmiðja sem var ekki starfrækt og við hana var tjöm þar sem við sigldum flekum sem við smíðuðum. Þetta var allt saman eitt ævintýri." En það era líka vetur á ísafirði og þá fást krakkar við annars konar leiki. Hættum þegar Jón bróðir varð fyrír bíl „Það er löng brekka upp hlíðina, kölluð Bæjarbrekka, sem endar uppi á Urðarvegi. Þetta er aðalum- Maðurinn heitir Andrew og er Breti og starfar sem skemmt- anastjóri á Astró og nýtur þar mikilla vin- sælda. FuUt nafn: Andrew Mark Sellar. Fæðingardagur og ár: 1. júlí 1975. Maki: Enginn. Börn: Engin. Skemmtilegast: Að dansa alla nóttina við góða tónlist á góðum stað. Leiðinlegast: Að bíða eftir strætó í kuldanum á íslandi. Uppáhaldsmatur: Kínamat- ur, pekingönd sérstak- lega. ferðargata bæjarins og ganga götur þvert á brekkuna. Samt renndu krakkar sér á syngjandi ferð á sleð- um og snjóþotum niður brekkuna. Við Engjavegskrakkamir vorum líka mikið með sleða og þotur á gangstíg sem lá ofan af Urðarvegi, þvert yfir Engjaveginn og niður garð við Seljalandsveg. Þetta var fln sleðabrekka sem var mikið notuð þótt faðir minn væri stöðugt að banna okkur það. Þama var einnig skrunað á kassabílum á sumrin. Þessar sallbunur lögðust eigin- lega af eftir að Jón bróðir minn varð fyrir bíl á sleðanum sínum og handleggsbrotnaði. Þá var eiginlega sjálfhætt." Stálum hjólbörudekkjum Það var ekki alltaf spurt um eign- arrétt þegar púkamir á ísafirði voru i stórframkvæmdum og vant- aði efiii til smíða. „Mig langar eiginlega, þótt seint sé, að biðja suma þá afsökunar sem við stálum frá efni í allt sem við þurftum að smíða. Ég man eftir því að við fórum einu sinni um allan bæ og stálum hjólböra- hjólum til að setja undir kassabíl einn ógurlegan sem við smíðuðum. Við skrúfúðum hjólin undan þeim hjólbömm sem við fúndum og ekk- ert komst upp.“ Baldur telur að fyrsta leiksýning- in sem hann sá hafi verið á ísafirði árið 1974 þegar hann var sjö ára. Það var uppfærsla Litla leikklúbbs- ins á Húrra krakki eftir Amold og Bach en fyrsta sýningin í atvinnu- leikhúsi var þegar Leikfélag Reykjavíkur kom með Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson til ísafíarðar. En heldur Baldur tryggð við æskustöðvamar? „Ég fer ekki eins oft og ég vildi nú orðið. Ég og Harpa konan mín, sem er líka frá ísafirði, emm bæði úr fiölskyldum sem aldrei fara það- an og þar af leiðandi er þama allt það fólk sem okkur er kærast.“ -PÁÁ Uppáhaldsdrykkiu-: Bjór. Fallegasta manneskja: Sarah Michelle Gellar. Fallegasta röddin: A1 Green. FaUegasti likamshluti: Rass- inn. Hvaða hlut þykir þér vænst um? Platan „The Loft“, David Mancuso. Hvaða teiknimyndapersóna myndirðu vilja vera? Stimpy. Uppáhaldsleikari: A1 Pacino. Uppáhaldstónlistarmaður: The BeeGees. Sætasti stjórnmálamaður: Davíð Oddsson. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: The X-files. Leiðinlegasta auglýsingin: Dömubindaauglýsingar yfir- höfuð. Skemmtilegasta kvikmynd- in: Scarface. Sætasti sjónvarpsmaður- inn: Anna Rakel Róbertsdótt-1 ir, Tal stelpan. Uppáhaldsskemmtistaður: Astró. Besta „pikk-öpp“-linan: Hér er tíkall svo þú getir hringt og látið mömmu þína vita að þú komir ekki heim í nótt. Hvað ætlaðir þú að verða? Klámmyndaleikari. Eitthvað að lokum: Gleðilegt árið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.