Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Side 32
32
sakamál
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
Stóri og litli hundurinn
Fyrir nokkru kom upp sakamál í
Þýskalandi sem hefur vakið mikla
umfjöllun. Aðdragandinn var ekki
óvenjulegur, en atburðarásin var það
og undirréttardómurinn þótti sögu-
legur. Því er þess beðið með athygli
hver niðurstaðan verður fyrir hæsta-
rétti. Um er að ræða manndráp. Tveir
hundaeigendur mættust með
hundana sína og þá upphófst atburða-
rás sem hefur orðið efni i margar
blaðagreinar.
Einn góðan veðurdag...
Það var sunnudagur um vor, him-
inninn nær heiður og veðrið
gott. I raun einmitt þess kon-
ar veður sem hundaeigend-
ur kjósa til þess að fara í
gönguferðir með hina fjór-
fættu vini sína. Og það
gerðu líka margir þennan
dag á vinstri bakka Main-ár-
innar við
Riisselsheim í Suður-
Þýskalandi. Einn þeirra var
fimmtíu og tveggja ára gam-
ail vélvirki, Edgar Kahl, og
með honum var kona hans.
Þau voru með lítinn
kjölturakka, sem kallaður
var Putzi, í bandi. Þetta var
ein margra sunnudags-
gönguferða hjónanna, en
fram að þessu höfðu þær all-
ar gengið vel fyrir sig.
Venjulega stóðu þær í þrjá
stundarfjórðunga.
Kahls-hjón höfðu verið
gift I rúmlega þrjátíu ár en
höfðu engin böm eignast.
Þau höfðu hins vegar átt hunda í
um aldarfjórðung. Nokkrum árum
fyrir atburðinn sem hér segir frá
höfðu þau átt tvo litla hunda, en þeg-
ar þeir dóu höfðu þau keypt
kjölturakka, sem fékk svo nafnið
Putzi.
Var í miklu uppáhaldi
Putzi var á sinn hátt staðgengiU
bams í lífi Kahls-hjóna. Þau létu sér
afar annt um hann, og er haft fyrir
satt að Edgar hafi þótt næstvænst um
hann af öllu lifandi á eftir konu sinni.
Hann sinnti þvi Putzi af mikilli
umhyggju og eftir á séð er víst óhætt
að segja að í skjóli hennar hafl orðið
til með honum eins konar sérhyggja,
sem átti eftir að birtast á óvæntan
hátt þennan simnudag.
Edgar Kahl hafði þróað með sér
mikla vemdarhyggju vegna Putzi.
Hann vildi ekki að neitt kæmi fyrir
hann. Þess vegna fór hann aldrei í
gönguferð með hann án þess að hafa
á honum ól þvi þannig gæti hann haft
stjórn á honum og komið í veg fyrir
að hann færi sér að voða á einn eða
annan hátt. En það nægði ekki. Dæm-
in úr borgarlífmu sönnuðu að margt
óvænt getur komið fyrir og að allur
er varinn því góður. Þess vegna fór
Edgar
aldrei
út að ganga með Putzi nema hafa með
sér úðadós með táragasi. Upp gæti
komið sú staða að verjast þyrfti fyrir-
varalaust. En honum átti eftir að vefj-
ast tunga um tönn þegar hann var
beðinn að skýra hvers vegna hann
hefði einnig gengið með hníf á sér
þennan sunnudag við Main-ána.
Skýringin
Sú skýring sem fékkst að lokum á
því hvers vegna Edgar gekk með
vasahníf með tíu sentímetra löngu
blaði var sú að hann hefði
lesið um að stór hundur
hefði eitt sinn ráðist að
minni hundi og bitið hann
til dauða. Það, hafði Edgar
hugsað með sér, skyldi
aldrei koma fyrir Putzi.
Hann skyldi ekki verða
fómardýr stórs, grimms
hunds. Ein spuminganna
sem síðar var varpað fram
var hvort sú vemdar-
hyggja sem náð hafði tök-
um á Edgar vegna Putzi
hefði orðið eitthvað annað
og meira, það er snúist
upp í eins konar of-
sóknaræði, og því hefði
það ef til vili aðeins verið
spuming um hvenær við-
brögð hans vegna áreitni
við Putzi, eða jafhvel bara
meintar áreitni, yrðu talin
allt annað en eðlileg. Er í
því sambandi meðal ann-
ars vísað í ummæli Ed-
gars eftir það sem gerðist
þetta síðdegis, þegar hann
sagði að hann hefði haft
hnífinn á sér „af þvi það
hefði gefið honum eins
konar öryggistilfinningu".
Til móts við stóran
hund
Er þau Kahls-hjón höfðu gengið á
árbakkanum um stund sáu þau að á
móti þeim kom ungur maður með
stóran hund. Þar var á ferð tuttugu
og sjö ára tölvunarfræðingur, Victor
Nicolas, með tíkina Penny, sem var
að mestu af Rottweiler-kyni. Victor
var kvæntur og tveggja bama faðir.
Penny mjög gefm fyrir að leika sér,
en þeir sem til hennar þekktu sögðu
síðar að hún væri svo meinlaus og
gæf að hún myndi ekki einu sinni
gera ketti mein. Hún var í miklu upp-
áhaldi hjá eldri dóttur Victors, Miri-
am.
Um gæflyndi Penny vissi Edgar að
sjálfsögðu ekkert. Hann virti bara fyr-
ir sér stóra tíkina, sem var einnig í
bandi, nálgast þau hjón og Putzi. Og
allt í einu sýndi Penny áhuga á að
leika sér við Putzi. Þá gerði Edgar sín
fyrstu mistök.
Hann ætlaði
ekki aö bíða
eftir því að
leikurinn sner-
ist upp í blóðug átök og greip því til
úðabrúsans. Er táragasið kom í augu
Penny ýlfraði hún og hljóp til eiganda
síns sem tók þessari aðfór illa og
sagði við Edgar: „Asninn þinn. Hver
fjárinn gengur að þér? Tikin hefur
ekkert gert þér.“
Annar þáttur
Victor gekk nú með tíkina að Edg-
ar sem hafði þá tekið Putzi í fangið og
hrópaði: „Hjálp! Náið í lögregluna!"
„Já, það er ágætt,“ svaraði Victor.
„Föram bara til lögreglunnar. Þetta
er allt of langt gengið hjá þér.“ Hann
tók síðan undir handlegg Edgars og
hugðist leiða hann í átt til miðhluta
bæjarins þar sem lögreglustöðin var.
Það sem næst gerðist virtist síðar
frekar óljóst í huga Edgars. „Ég get
ekki munað það í einstökum atrið-
um,“ sagði hann þegar hann kom fyr-
ir rétt. „Ég veit bara að ég var skyndi-
lega kominn með vasahnífinn i hend-
ur og stakk í manninn í blindni."
Hnifsblaðið gekk
beint í hjarta Victors.
Ungi maðurinn féll
saman. Þar sem all-
margt var um mann-
inn á árbakkanum
____________ dreif að fólk og ein-
hverjir reyndu að
koma honum til hjálpar en það var
um seinan. Hann var særður til ólífis
og varð ekki bjargað.
Meðan björgunartilraunimar
stóðu yfir horfði Edgar á með
Putzi í fanginu.
Rannsókn og ákæra
Lögregla og sjúkraliðar
komu fljótlega á staðinn og var þá
staðfest að Victor Nicolas væri látinn.
Vitni bentu á Edgar og sögðu frá því
að hann væri banamaðurinn. Var
hann handtekinn og færður til yfir-
heyrslu. Jafnframt vora tekin niður
nöfn vitna, en þau síðan yfirheyrð.
Kom fram hjá þeim að tíkin Penny
hefði hvorki sýnt af sér grimmd né
árásarhneigð þegar hún hugðist láta
vel að kjölturakkanum Putzi.
Edgar sagöi aftur á móti að hann
Victor Nicolas í baði
með eldri dótturinni,
Miriam
Edgar Kahl og
kona hans
hefði veitt því athygli þegar Penny
nálgaðist að hún hefði lagt aftur eyr-
un, sýnt tennumar og urrað, rétt eins
og hún væri að búa sig undir árás.
Þarna bar honum og vitnum ekki
saman, en ýmsum þótti síðar sem
vera mætti að þama hefði Edgar þóst
sjá fyrir það sem hann hafði óttast
svo mjög, árás stórs og grimms hunds
á Putzi litla. Og reyndar fengu þau
unmmæli hans hljómgrunn.
Systurnar
Miriam og
Victoria
Ráttarhöldin
Edgar var dreginn fyrir rétt þar
sem honum var gefið að sök að hafa
orðið Victor Nicolas að bana. Sak-
sóknarinn leit greinilega svo á að um
manndráp hefði verið að ræða en
ekki ásetningsmorð. Hann fór fram á
tveggja ára fangelsisdóm sem skyldi
þó vera skilyrtur.
Verjandi hélt fram málstað skjól-
stæðings síns eins og vænta mátti. En
það
var þó
sjálfur
réttur-
inn,
það er
kviðdómendur og dómari sem komu
hvað mest á óvart. Edgar Kahl var
sýknaður og talinn hafa snúist gegn
Victor Nicolas í sjálfsvöm.
Dómurinn vakti mikil viðbrögð.
Margir töldu með ólíkindum að málið
skyldi hafa verið til lykta leitt með
slíkum dómi, en aðrir drógu í efa að
Edgar hefði snúist Putzi til vamar á
þennan hátt að ástæðulausu.
Hvort er meira
virði...?
Hvað mest
fékk dómurinn á
ekkju Victors
Nicolas, Yvonne.
Hún er sögð
hafa tekið hann
mjög nærri sér,
enda má með
sanni segja að í
þessu tilviki
hafi hundalíf
verið metið
meira en manns-
líf. Að auki kem-
ur til sú kald-
hæðni, megi
marka þá sem
sáu atburðinn á
árbakkanum, að
hundalíf kann alls ekki að hafa verið
í hættu. Aðeins hafi verið um ímynd-
aða hættu að ræða hjá Edgar Kahl.
Einn þeirra sem fylgdust með mál-
inu komst þannig að orði eftir dóms-
uppkvaðninguna: „Það má segja,
svona táknrænt að það dugi ekki
alltaf að hafa hundana í bandi. Það
þurfi líka að hafa eigendur þeirra í
bandi.“
Ekkja Victors, Yvonne, verður nú
að sjá ein fyrir dætrunum tveimur.
Þar eð hún sætti sig ekki við dóminn
áfrýjaði hún honum. Margir bíða þess
meö áhuga hvort honum verður
hnekkt eða hann staðfestur á hinu
æðra dómsstigi.
Yvonne hefur selt Penny, sem er
komin á annað heimili utan Rússels-
heim. Þar er tíkin sögð sýna sömu
ljúfú lundina og fyrr.