Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Síða 38
38
bókarkafli
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
ff
Helvíti er hlíðin næs
if
gluggað í Skagfirsk skemmtiljóð
í Skagafiröi hafa íbúarnir orö á sér fyrir aö kunna aö meta smellnar ferskeytl-
ur og hefur héraöið aliö margan þekktan hagyrðing.
/ inngangi þriðja
bindis af Skagfirskum
skemmtiljóöum segir
Bjarni Stefán Konráðs-
son að bœkur þessar
sýni svo ekki verði um
villst að vísna- og Ijóða-
gerð lifi enn góðu lífi í
Skagafirði. „Tilefnin
eru óþrjótandi eins og
sést í þessari bók. Vísa
getur kviknað af nánast
engri glóð. “
Lítum á nokkur dœmi
um skagfirskan
skemmtikveðskap:
Andrés H. Valberg er meðal elstu
núlifandi hagyrðinga af skagfirskum
ættum, fæddur 1919. Hann er faðir
Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara.
Andrés yrkir um flest sem fyrir verð-
ur. Hann færði fleyg orð Gunnars á
Hlíðarenda í nútímamál með eftirfar-
andi hætti:
„Aö leggja burtfrá landi snœs
lítt ég hlýöi oröum.
Helvíti er hliöin nœs,“
hrópaöi Gunnar foröum.
Andrés er fljótur að svara fyrir sig
þegar kunningjar hans bauna á hann
sóðalegum vísum. Einn félagi hans í
Kvæðamannafélaginu Iðunni hugðist
bekkjast við þann gamla en fékk að
bragði þessa vísu frá Andrési:
Ekki er slúöurs ylgjan smá
út úr húöar dalli,
þegar túöan opnast á
andans hrúöurkalli.
Andrés hitti Ólaf Sveinsson frænda
sinn á Skagfirðingamóti og þótti hann
nokkuð brattur þrátt fyrir háan aldur.
Um framferði Ólafs á mótinu orti
Andrés:
í sig hella öli fer
örvar smellinn muna.
Lífs á velli leikur sér
laus við kellinguna.
Axel Þorsteinsson bóndi á Litlu-
Brekku í Skagafirði er vel hagmæltur.
Hann er jafnframt forðagæslumaður
og kom á bæ einn þar sem, svínarækt
var að leggjast af þar sem siðasta svín-
ið lá dautt í stíu sinni. Þá kvað Axel:
Hér er ekki feitan gölt að flá
því fjandinn hljóp í allra besta svínið.
Úr ímyndunarveiki féll það frá
og fitjar ekki lengur upp á trýnið.
Birgir Hartmannsson frá Þrasastöð-
um í Fljótum er þekktur hagyrðingur í
Skagafirði og hestamaður að auki.
Hann orti um brekkudómara (áhorf-
endur) á hestamannamóti:
Tala margt og hafa hátt
hestum þylja lofið.
Menn sem gátu aldrei átt
almennilegt í klofið.
Drottinn mér frá dómum forð
dæmin fæ ég litið
um menn sem skortir aldrei orð
aftur á móti vitið.
Um sjálfan sig orti Birgir:
Eigin kostum eflaust gæti
ætlað hán sess.
En meðfætt skagfirskt lítillæti
letur mig til þess.
Grímur Jónasson verkfræðmgur á
nokkrar vísur í bókinni um Skagfirsk
skemmtiljóð. Hann orti eftirfarandi
um frænda sinn og vin, Áma Bjama-
son, bónda og hreppstjóra á Uppsölum
í Blönduhlið en Ámi er þekktur söng-
maður:
Syngur mest af Blönduhlíðarbænd-
um
búskap orðinn latur við að sinna.
Yrkir vfsur um flesta af sínum
frændum
og framleiðir mör á kostnað okkar
hinna.
Syngur bassa í sjö eða átta kórum
sinnir lítið búskapnum um hríð.
Yfirvald í .ótrúlega stórum
asnahópi frammi í Blönduhlíð.
Grímur er einnig frændi hinna róm-
uðu söngbræðra frá Álftagerði og þeir
fá frá honum þessa vísu:
Skagfirðingar skil ég verði
skeikulir á lífsins vegi
með óhljóðin frá Álftagerði
í eyrunum á hverjum degi.
Séra Hjálmar Jónsson þingmaður og
afkomandi Bólu-Hjálmars á sitt inn-
legg í bókinni. Hann var spurður um
það hvemig vísur yrðu til og svaraði
svona:
Andagift ég ekki skil
eða þekki.
Stundum verða stökur til
stundum ekki.
Hjálmar frétti að nafiii hans Áma-
son, framsóknarmaður með meira,
hefði setið yfir bjórglasi með flokks-
bræðrum sínum í flokksherbergi
Framsóknar. Um þetta orti Hjálmar:
Framsókn inn í flokksherbergi þrey
ir
fyilir glasið nafni minn og segir:
„Á mig sækir ógurlegur þorsti
eitt sinn skal hver deyja að minnsta
kosti.“
Jón Kristjánsson, framsóknarmaður
af Austurlandi, er ættaður frá Óslandi
í Skagafirði og er vel hagmæltur. Þeg-
ar Jóhanna Sigurðardóttir mælti hin
fleygu orð um sinn tíma sem myndi
koma var Jón ritstjóri dagblaðsins
Tímans sem þá kom enn út. Hann stóð
upp í þingveislu og fór með þessa vísu:
Ég skála fremur faglega
og fer að því heldur laglega.
Minnist þið þess
að mjög er ég hress
minn Tími kemur daglega.
-PÁÁ
f
Mögnuð bók Óttars Sveinssonar
sem greinir frá hrikalegum atburðum
þegar ms. Suðurland sökk fyrir
norðan heimskautsbaug á jólanótt
fyrir þrettán árum.
ölulistans
Öttar áritar um helgina
Reykjavík Laugardaginn 11. des.
Hagkaup, Kringlunni kl. 13-15
Hagkaup, Skeifunni kl. 16-17.30
Sunnudaginn 12. des.
Hagkaup, Kringlunni kl. 14-15
Dalvegi 16b, sími 554 7700