Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Blaðsíða 41
JLí'V' LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
41
Selspik er ekki ýkja algengt í dag, en
hér áður fyrr var það soðið og borð-
að heitt. Ulfar segist skera brákina
utan af því áður en hann ber það
fram með harðfiski. í íslenskri mat-
arhefð kemur fram að harðfiskur var
borðaður í staðinn fyrir brauð fyrr á
öldum og þess vegna notað á hann
smjör.
Selshreifinn minnir örlítið á svið.
Áður fyrr var oft búin til úr honum
sulta, það þótti mannlegra því út-
flettur minnir hann á hönd.
Sýrðar gellur. í dag er meira um að
þær séu matreiddar soðnar.
Sætur sundmagi
á töðugjöldum
Úlfar Eysteinsson er þekktur fyr-
ir áhuga sinn á íslenskum hefðum í
matargerðarlist og hefur að sjálf-
sögðu sótt námskeið hjá Hallgerði
Gísladóttur. Úifar segist eiginlega
vera matarsafnari enda kemur í ljós
að hann lumar á forðabúri sem fáir
geta státað af. Hann reiðir fyrir-
varalaust fram úr erminni gamlan
íslenskan mat í útrýmingarhættu,
þann sama og Hallgerður talar um í
bók sinni. Selspik, selshreifa og
rengi úr hval er komið á borðið jafn
snöggt og hendi væri veifað. Úlfar
lúrir lika á siginni og soðinni grá-
sleppu, sem einnig er að verða sjald-
séð.
Við ræðum súrinn og erum sam-
mála um að hann sé best að borða
með ísköldu brennivíni. Spikið og
fitan séu erfiðari fyrir nútíma ís-
lendinga sem búa í húsum með
Spánarveðri allan ársins hring. Hér
áður fyrr, þegar ekki var alveg eins
heitt innandyra og útivera manna
meiri en í dag, hefur fitan vafalaust
verið vel þegin og beinlínis þótt
lostæti. Líkaminn kallaði á hana sér
til vemdar og orkugjafar 1 frost-
hörkunum.
Eftirrétturinn sem Úlfar hefur
töfrað fram fyrir okkur er úr alit
annarri átt og á líklega betur við
með viilibráðinni en súrmatnum.
Þetta er sundmagi, soðinn, sýrður,
niðurskorinn og sykurbrúnaður,
borinn fram með þeyttum rjóma.
Þetta hljómar ekki kræsilega en
reynist ótrúlega gott. Sundmaginn
rennur ljúflega niður með brúnum
sykrinum, enda sjáifur frekar
bragðlaus og tekur því vel við syk-
urbragðinu. Hann er svolítið mjúk-
ur undir tönn, næstum seigur og
minnir örlítið á gráfikjur eða jafn-
vel snöggsoðið pasta. Þessi réttur
var á borðum á töðugjöldum og
handa gestum við hátíðleg tækifæri
á bænum Sökku i Svarfaðardal
snemma á þessari öld. -MEÓ
Sígraena JéOaömSi
— eéa/foe <to e/fctw
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrœn
eðaltré, í hæsta gceðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
<>*■ 7 0 ára ábyrgð **• Eldtraust
t* 7 2 stcerðir, 90 - 500 cm t* Þarf ekki að vökva
t* Stálfótur fylgir <>*• íslenskar leiðbeiningar
t* Ekkert barr aö ryksuga ** Traustur söluaðili
** Truflar ekki stofublómin í* Skynsamleg fjárfesting
eýfciw <to
Bandalag íslenskra skóta
Þægindi
SEM AUÐVELT
ER AÐ VENJAST
Mán. - fös. 10:00 -18:00 • Fimnthid. 10:00 - 20:00
Laugard. 11:00 -16:00 • Sunnud. 13:00 -16:00
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - Sími 568 6822
- ævintýri líkust
/fclt'OL ta () una er
HÆBIN DASTáLL &
UR LEÐRI
KR. 64. □□□
sprelllifandi
(úr bókardómi DV)
Einstök bók um viðburðaríka ævi Sveins Þormóðssonar
biaðaljósmyndara.
„Lifandi ogfjörug bók þar sem sprelllifandi karakterar
sprettafram á ncestum hverri síðu“
(Össur Skarphéðinsson - DV).
„Ævisaga Sveins er í raun heimild um Reykjavík og
hvernig hún byggðist uppfrá þriðja áratugnum. “
„Lýsingar á samferðamönnum eru margar hverjar
bráðskemmtilegar. “
„„Á hcelum löggunnar“er skemmtileg lesning
sem óhætt er að mæla meðfyrir alla
Sveinn Þormóðsson er og verður engum líkur.
(Björn Jóhann Björnsson - Degi).
„„Á hælum löggunnar“er líflega skrifuð bók“
(Erlendur Jónsson - Mbl.).
ÍSLENSKA BÓKAÚTGÁFAN
Dalvegi 16b, sími 554 7700
Reynir Trauetason /
I