Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Page 57
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
ir
61 V
Enginn sviðsskrekkur
í Varmahliðarskóla
Nemendur Varmahlíöarskóla hafa
að imdanfomu staðið í stórræðum.
Þeir eru nýbúnir að setja á svið Dýr-
in í Hálsaskógi, með aðstoð Jóns
Ormars Ormssonar leikstjóra. Frum-
sýnt var miðvikudagskvöldið 1. des-
ember og aukasýning nokkrum dög-
um síðar. Þegar tíðindamaður DV leit
inn á æfmgu fyrir skömmu var allt á
fullu við að undirbúa frumsýninguna.
Fimmtíu manna kór á aldrinum 6-16
ára, undir stjóm Stefáns R. Gíslason-
ar, var að ljúka söng en að auki era
um 20 leikendur í sýningunni, eða
um 70 manns, en allir nemendur
Varmahlíðarskóla unnu með ein-
hverjum hætti að sýningunni. Sviðið
var klárt og Hálsaskógurinn blasti
við í allri sinni dýrð.
Þau fjögur sem fara með hvað
Mikiö illviöri geisaöi á Suðurlandi í gærdag og ófærö var mikil. Samgöngur
viö Reykjavík voru um Þrengslaveg þar sem Hellisheiöi var kolófær. Frétta-
maöur DV hitti fyrir Valgeröi nokkra sem hamaðist viö aö moka sig inn á
vinnustaðinn sinn, eins og hún sagöi sjálf. DV-myndir Njöröur
Þau fóru meö hvaö veigamestu hlutverkin í Dýrunum í Hálsaskógi: Edda Hlíf
Hlífarsdóttir lék Bakaradrenginn, Gunnhildur Ólafsdóttir var Hérastubbur
bakari, Elvar Logi Friöriksson Mikki refur og Þorbergur Gíslason Lilli klifur-
mús. DV-mynd Þórhallur
bara fínt“, sögðu þau og ekkert mál
að læra rulluna.
„Þetta er búið að vera mjög gaman
og skemmtilegt að taka þátt i þessu.
Hópurinn er mjög samstiUtur og leik-
stjórinn er alveg mátulega ákveðinn," f
segir Edda Hlíf. „Mórallinn er góð-
ur,“ bætir Þorbergur við, og hvort
það verði einhver aðsókn. „Jú, jú, við
fyllum húsið,“ segja þau, en bæta síð-
an við að jafnan komi foreldramir á
frumsýninguna og það megi reikna
með svona 350 manns. „Síðan eru það
áhugasamir listunnendur sem koma
á aðra sýninguna og fylgjast með
þessu efnilega listafólki", bæta þeir
svo við í lokin félagamir Þorbergur
og Elvar Logi, alveg eins og þeir séu
bara nokkuð óbangnir með sig þarna
frammi í firðinum. -ÞÁ
- _ Alþingi:
I jolafri eftir viku -
veigamestu hlutverkin í sýningunni
vom tekin tali. Það era þau Edda Hlíf
Hlífarsdóttir, Gunnhildur Ólafsdóttir,
Elvar Logi Friðriksson og Þorbergur
Gíslason. Það var svolítill galsi í
krökkunum enda nýkomin af leik-
sviðinu og svörin vora því mörg hver
á léttari nótunum. Aðspurð sögðust
þau öll hafa leikið áður, enda árvisst
að leikrit sé sett upp i Varmahlíðar-
skóla. Æflngar höfðu gengið vel og að
þeirra dómi liti vel út með framsýn-
inguna þrátt fyrir að æfingatíminn
heíði verið styttri núna en jafnan
áður. Hvemig það gengi að lifa sig
inn í hlutverkið, eða byggist þetta
ekki mikið á því? „Jú jú það gengur
„Ég geri mér vonir um að hægt
verði að ljúka þingstörfum fyrir
næstu helgi og þingmenn fari þá í
jólafrí," sagði Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, við DV undir kvöld í gær.
Þá var nýlokið fundi forseta með
formönnum þingflokka um þingstörf
fram að jólaleyfl.
Þegar blaðið fór í prentun í gær-
kvöld var önnur umræða um fjárlög
næsta árs á lokastigi. í dag og á mánu-
dag er gert ráð fyrir að unnið verði í
þingnefndum nema hvað gengið verð-
ur til atkvæðagreiðslu um fjárlögin í
hádeginu á mánudag. Stefnt er að því
að afgreiða fjárlög næsta árs, íjár-
aukalög þessa árs og þingsályktunar-
tillögu um framhald framkvæmda við
Fljótsdalsvirkjun áður en þingið fer í
jólafrí.
Frumvarp um Stofnun hlutafélaga
um Landsbanka íslands og Búnaðar-
banka varð að lögum í gærmorgun.
ir.is
sunna@visir.is
osfrv@visir.is
Notaðu vísifingurinn!