Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Qupperneq 64
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
iðsljós
Pitt á leið í
hnapphelduna?
Brad Pitt er mikið töfratröll eða
hormónadrumbur í hópi leikara og
hefur án efa leikið aðalhlutverk í
draumum ungmeyja vitt um heim
undanfarin misseri ekki síður en
aðalhlutverk í ýmsum bíómyndum.
Ekki hefur piltinn skort félags-
skap hins veikara kyns neitt sér-
staklega en nú berast þær fréttir að
vestan að alvara sé i spilinu og
brúðkaup sé fram undan.
Tilvon-
andi frú Pitt
er leikkonan
Jennifer
Aniston sem
skaut fyrst
upp á
stjömuhim-
ininn í sjón-
varpsþáttun-
um um
Friends eða
Vini sem
hafa notið
gríðarlegrar
hylli báðum
megin við
pollinn síðustu ár.
Skötuhjúin hafa verið í ástarsam-
bandi undanfama mánuði en nýlega
mættu þau saman á tónleika hjá
Sting og þar vakti athygli gesta mik-
ill demantshlunkur sem Jennifer
bar í hring á fmgri. Þóttust menn
kenna að þar færi ósvikinn trúlof-
imarhringur. Leikaraparið lék á als
oddi og Jennifer meira að segja príl-
aði upp á svið og raulaði nokkrar
strófur með hinum aldna rokkara
og regnskógaverði, Sting.
Þegar þau sjálf eða talsmenn
þeirra em spurð um giftingaráform
verður fátt um svör en enginn segir
beinlinis nei. Þannig er talið næsta
víst að pilturinn Pitt sé genginn út
og i góðum höndum.
Brad Pitt er sagöur
í giftingarhugleiö-
ingum.
Jim Carrey þykir í meira lagi kven-
samur.
Carrey er aftur
kominn á sjens
Jim Carrey er meðal eftirsóttustu og
hæst launuðu leikara í HoUywood. Þessi
teygjanlegi gamanleikari hefur komið
heimsbyggðinni til að gráta úr hlátri
yflr myndum eins og Ace Ventura,
gæludýraspæjarinn, Gríman, Heimskur,
heimskari og fleiri gullmolum. Síðast
sló hann í gegn í Truman Show sem
mörgum þótti óþægileg framtiðarsýn.
Carrey hefur nýlega lokið við að leika
í kvikmynd sem heitir Me, Myself and
Irene. Þar er mótleikari hans mikil feg-
urðardís úr Texashreppi i Ameríku og
heitir René Zellweger. Ekki er að orð-
lengja að þau hrifúst þegar í stað hvort
af öðru og nú er svo komið sögu að far-
ið er að pískra um brúðkaup i homum.
Talsmenn beggja hafa neitað harð-
lega að gifting sé í sigtinu en talsmenn
kvikmyndaleikara myndu segja að svart
væri hvítt ef það hentaði hagsmunum
umbjóðenda þeirra.
Carrey hefur verið iðinn við kolann í
kvennamálum og má segja að í drauma-
borginni sé slóð af brostnum hjörtum
eftir hann hvar sem hann fer. Hann hef-
ur ítrekað lent upp i hjá mótleikurum
sínum og má nefha þar fómarlömb eins
og Lauren Holly og rokkekkjuna og
leikkonuna Courtney Love. Carrey kall-
ar því ekki allt ömmu sína i kvennamál-
um en kannski er hér ftmdin hin eina
sanna ást.
Sean Penn
ætlar að skilja
Sean Penn hefur getið sér gott orð
sem leikari og leikstjóri. Hann var eitt
sinn giftur Madonnu og þá gat hann
sér ekki eins gott orð sem skaphundur
og áflogaseggur en þá átti hann vanda
til að fljúga í reiðiköstum á ljósmynd-
ara sem sátu um
skötuhjúin. Lét
Penn þá hendur
skipta og braut
bæði vélar og
tæki ljósmynd-
ara og var iðu-
lega sektaður
fyrir.
Þau Madonna
skildu síðan og
hann giftist Sean Penn er
Robin Wright sagöur vera aö
leikkonu. Þau ski|ía viö konu
hafa tollað sam- sína-
an talsvert lengi. Robin hefur verið
heima og hlynnt að bömum þeirra
tveimur sem heita Dylan og Hopper og
era komin af höndum, orðin níu og sex
ára gömul.
Robin Wright fékk góða dóma fyrir
leik sinn í stórmyndinni Forrest Gump
hér um árið en hún hefur látið leikfer-
il sinn víkja fyrir barnauppeldi undan-
farin ár. Nú vill hún gera breytingu á
þessu og halda út á vinnumarkaðinn á
ný. Þessu er hinn skapstóri eiginmað-
ur hennar ekki alveg sammála og telur
enga þörf á tveimur fyrirvinnum á
heimilinu þar sem hann lifl við stöðug
uppgrip og bömin þarfnist móður
sinnar og sitthvað fleira tínir hann til
sem mótrök við fyrirtætlunum Robin.
Þessu vill hún eðlilega ekki una og
hafa átök milli hjónanna leitt til þess
að nú er skilnaður talinn næsta skref i
málinu. Það verður kannski Sean til
happs að Madonna er á lausu en hún
lýsti því yflr í heimildarmynd fyrir
fáum árum að Sean væri stærsta ástin
í lífl hennar.
dt s
Tlmamótatæki
Á síðasta ári setti Kenwood á markaðinn verðlaunasamstæðuna Series 21,
sem hlaut EISA verðlaunin 1998/99 sem besta bíóstæða ársins.
Nú er komin ný árgerð af þessum
tímamótatækjum með fjölbreyttum nýungum.
SE-A901 býður upp á eftirtalda möguleika:
• Dolby Digital
• DTS
• Circle Surround 5.1
• 6x100 W kraftmagnara
• Fullkomiö hátalarasett meö 2 subwoofers
• Gagnvirk fjarstýring meö snertiskjá
Tilboðsverð kr. 169.900
agpSTOD
þar sem gæðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavfk, sfmi 568 8840
Fullt verö kr. 199.900 www.taktur.is
I
1