Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Síða 70
V 74
^natgæðingur vikunnar
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 OV
Nýkaup
bíirsi'in li rxkMklnn hýr
Perustrudel með
vanillusósu
Það þarf smánatni en rétt-
urinn er einstaklega
skemmtilegur:
Fyrir 4
2 stk. nýjar perur
2 msk. sykur
1 dl brauðrasp
1/4 engifer
1 stk. smjördeig, flatt út i
30x40 sm
1 stk. egg
30 g möndluflögur
Vanillusósa
2,5 dl ijómi
1/2 tsk. flórsykur
2 tsk. vanillusykur
Perurnar afhýddar, kjarn-
hreinsaðar og skomar í bita.
Sykur, brauðrasp og engifer
blandað saman, perubitunum
velt upp úr blöndunni. Pakkið
inn I smjördeig og penslið
smjördeigsiengjuna meö þeyttu
eggi. Stráið möndluflögum yflr
og bakið við 180°C í u.þ.b. 30
mínútur.
Vanillusósa
Rjóma, flórsykri og vaniilu-
sykri hrært saman og þeytt í
þykkt krem. Skerið perustrudel-
ið í sneiðar, setjið á diska og
berið fram með vaniflusósunni
og ferskum ávöxtum, t.d. jarðar-
berjum.
Fyrir 6
4 egg
3 dl sykur
1 dl hveiti
200 g smjör
200 g súkkulaði
100 g heslihnetur
6-8 stk. jarðarber, fersk
(bláber eöa kiwi)
Súkkulaðibráð
175 g suðusúkkulaði
1 stk. Mars, stórt
1 dl koníak eða viskí
Bræðið saman smjör og
súkkulaði og látið kólna lítið
eitt. Þeytið saman egg og sykur
uns létt og ljóst. Bætið
súkkulaðiblöndunni saman við
eggjablönduna og hrærið hægt í
á meðan. Bætið í hveiti og hesli-
hnetum. Setjiö í form og bakið
við 180"C í 35-40 minútur. Losið
tertuna úr forminu og hellið
volgri súkkulaðibráðinni yfir
hana.
Súkkulaðibráö
Allt brætt í potti. Látið kólna
og hellt yfir tertuna. Skreytt
með jarðarberjum, bláberjum
eða kiwi.
1 1 ..
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
SMHHæHHHBMMNMMHMBæær.' MHH
„Mér finnast hreinlega engin jól nema hafa sörur á borðum og þessi uppskrift er alveg einstaklega
góö,“ sagöi Guðrún Birna sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni.
Að hætti Guðrúnar Birnu:
Láttsteiktar lambalundir
- og sörur í tilefni hátíðarinnar
Matgæðingur vikunnar að þessu
sinni er Guðrún Bima Gylfadóttir.
Hún er mikifl sælkeri og þekkt fyr-
ir fjölbreytni og fágun í matargerð.
„Mér finnast hreinlega engin jól
nema hafa sörur á borðum og þessi
uppskrift er alveg einstaklega góð,“
sagði Guðrún Bima og bætti svo
við: „Fiskisúpan ber nafn mannsins
míns sem er einnig mikifl sælkeri,
súpan er hans eigin uppskrift og er
alveg sérlega góð og ég skora á afla
að prófa hana.“
Gjörið svo vel:
Fiskisúpa Jóns
2 msk. smjör
skeljar af humri
2 tsk. karri
1 tsk. paprikuduft
1 rauð paprika
1/2 laukur
1 lítil dós af tómatþykkni
rjómi eftir smekk
hvítvín eftir smekk
rækjur eftir smekk
humar eftir smekk
salt eftir smekk
&kert vesen
pipar eftir smekk
1/2 1 fiskisoð
Aðferð:
Látið smjörið og humarskeljamar
krauma vel til að fá kraftinn. Karri-
ið, paprikuduftið, paprikan, laukur-
inn og tómatþykknið sett út i. Rjóm-
anum, hvítvíninu, rækjunum og
humrinum er bætt við en athugið
að setja fiskinn alveg í restina.
Léttsteiktar lambalundir
500 g lambalundir
salt og pipar
olía til steikingar
Aðferð:
Olía er hituð á pönnu. Lamba-
lundunum er skeUt á pönnuna í 2-3
mín. á hvora hlið. Saltað og piprað
létt i restina.
Meðlæti:
Það er tUvalið að bera þetta fram
með sykurbrúnuðum kartöflum,
grænmeti með fetaosti, kryddolíu og
piparostsósu með sveppum.
Sörur
3 eggjahvítur, stífþeyttar
3 1/2 dl flórsykur
200 g möndlur, finhakkaðar
Aðferð:
Eggjahvítumar eru stífþeyttar og
flórsykrinum og möndlunum blandað
létt við í þeytingu.
Sett í litla toppa á plötu og bakað í
ca 8 mín. við 180°C.
Krem:
4 msk. kakómalt
3 msk. síróp
3 eggjarauður, stífþeyttar
100 g ísl. smjör (lint).
Síríus suðusúkkulaði
Aðferð:
Stífþeytið eggjarauðumar. Blandið
restinni varlega saman við. Kremið er
sett á kaldar kökumar og þeim stung-
ið smástund inn í ffysti. Síðan era þær
hjúpaðar með bræddu suðusúkkulað-
inu.
Ég skora á Inga Þór Ásmundsson,
blómabónda og mesta sælkera sem
sögur fara af.
Spagettí vændiskonunnar
Spaghetti putanesca er spagettí-
réttur vændiskonunnar. Samkvæmt
hefðinni notuðu dætur næturinnar
tælcmdi Um þessa óviðjafnanlega
réttar tU að laða að viðskiptavini og
fá þá tfl að dvelja lengur tU að
stunda meiri viðskipti. Ástæðan fyr-
ir því að einmitt þessi réttur var
valinn var sú að það tekur enga
stund aö elda hann.
3 msk. ólífuolia
2 hvítlauksrif
1 dós flysjaðir tómatar
(og safinn)
1/4 boUi saxaðar svartar ólifur
2 tsk. kapers
1 tsk. mulinn, þurrkaöur rauður
pipar
1/2 tsk. oregano
1/4 tsk. svartur pipar
1 dós ansjósur
2 msk. fersk steinselja
salt
500 g spagettí
Hitið olíuna á stórri
pönnu, bætið við hvítlaukn-
um og látið krauma í eina
mínútu; ekki brúna lauk-
irin. Hrærið tómötunum
saman við með safanum,
ólífunum, kapers, rauðum
pipar, oregano og svörtum
pipar. Látið krauma við
miðlungshita og hrærið
öðru hverju í þar tU sósan
fer að þykkna, eða um það bU 15
mínútur. Bætið ansjósunum og
steinseljunni við og maUið í tvær
mínútur. Bætið saltinu út í.
Á meðan sósan er að maUa er
spagettíið soðið. -sús
Nykaup
!>ar scm ferskleikinn býr
Grafið lamb
Fyrir 6
600-800 g lamba innralæri
3 tsk. salt
1 tsk. sykur
1 tsk. timian
1 tsk. rósapipar
1 tsk. svartur pipar úr kvöm
1 tsk. viUijurtablanda
Rósmarínsósa
1 tsk. þurrkað rósmarín (eða
1 msk. ferskt)
1 dós sýrður rjómi (18%)
1 tsk. dijonsinnep
salt og pipar
Blandið kryddtegundunum
saman og veltið kjötinu upp úr.
Látið standa í sólarhring í kæli
og veltið þá vöðvanum aftur
upp úr kryddinu. Látið standa
annan sólarhring í kæli. Skerið
í þunnar sneiðar og berið fram
með faUegu salati og rósmar-
ínsósu.
Rósmarinsósa
Blandið öUu saman og hrær-
ið vel þar til hunangið hefur
j leyst upp.
HoUráð
Hægt er að nota sömu krydd-
blöndu á nautavöðva.
Gamalt og gott
sérrítriffle
Fyrir 6.
8 stk. makkarónukökur
1/2 dós kokkteflávextir
2 stk. eggjarauður
1 stk. egg
2 1/2 dl rjómi
2 msk. súkkulaðispænir
2 blöð matarlím
3 msk. sérrí
Myljið makkarónurnar og
| setjið í botn á uppháu glasi
ásamt kokkteUávöxtum (svolít-
inn safa meö). Leggið matar-
límið í bleyti í kalt vatn. Þeytið
saman eggjarauður, egg og syk-
ur uns létt og ljóst. Þeytið
rjómann og bætið í með sleif
ásamt súkkulaðinu. Hitið sérrí-
ið og bræðið matarlímið þar í.
Hellið blönduna í mjórri bunu,
hrærið í með sleif. Skiptið í
glösin og látið stífna í kæli.
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þœr fæst.