Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Qupperneq 75
DV LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
79
afmæli
Tll hamingju með afmælið 12. desember
100 ára
Jenný S.Á. Guðmundsdóttir, Hrafnistu í Hafnarfirði.
85 ára
Ásta Ketilsdóttir, Mýrargötu 18a, Neskaupstað. Karla Bemdsen, Dvalarh aldraðra, Sauðárkróki.
80 ára
Aðalheiður Jónsdóttir, Munkaþverárstræti 5, Akureyri. Guðrún Guðmundsdóttir, Helgamagrastræi 15, Akureyri. Karl Jónsson, Strembugötu 19, Vestmannaeyjum.
75 ára
Guðjón Valdimarsson, Kleppsvegi 62, Reykjavík. Högni Klemensson, Sunnubraut 9, Vík. Ketill Kristjánsson, Þinghólsbraut 37, Kópavogi. Hann verður að heiman.
70 ára
Hulda Jónasdóttir, Lindahlið, Húsavík.
60 ára
Benedikt Þ. Jónsson, Hrísum, Hvammstanga. Halldór Þorgrímsson, Skólagerði 40, Kópavogi. ísleifur Guðmannsson, Víkurási 2, Reykjavík. Kalla Lóa Karlsdóttir, Möðrufelli 1, Reykjavík. Lena Margrét Rist, Úthlíð 3, Reykjavík. Magnús O. Stephensen, Þrastarlundi 8, Garðabæ. Smári Guðsteinsson, Hrauntúni 63, Vestmannaeyjum.
50 ára
Arnþór Sigurðsson, Rauðarárstíg 9, Reykjavik. Björgvin Guðmundsson, Lindarseli 7, Reykjavík. Esther Óskarsdóttir, Heiðmörk la, Selfossi. Guðmxmdur Karl Baldursson, Lýsubergi 16, Þorlákshöfn. Jóna Stígsdóttir, Hæðargötu 6, Njarðvík. Magnús Sveinsson, Laufengi 27, Reykjavík. Margrét Guðlaugsdóttir, Furugrund, Bessastaðahreppi. Peter L. Mogensen, Stuðlabergi 84, Hafnarfirði. Þórarinn Höskuldsson, Árholti 5, Húsavík.
40 ára
Droplaug Guðnadóttir, Dunhaga 13, Reykjavík. Hafsteinn B. Hafsteinsson, Hraunsvegi 23, Njarðvík. Laufey Ó. Gísladóttir, Jörfabakka 26, Reykjavík. Ólafur Ólafsson, Lækjarfit 1, Garðabæ.
/
jjrval
góðurferðafélagi
—til fróðleiks og
skemmtunar á ferðalagi
eða bara heima í sófa
Ólafur Hilmar Sverrisson
Ólafur Hilmar Sverrisson, for-
stöðumaöur fyrir nýsköpun og þró-
un hjá Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi, Logafold 83, Reykjavík,
verður fertugur á mánudaginn.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1980 og
viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1984.
Ólafur var skrifstofustóri hjá Líf-
eyrissjóði verslunarmanna í
Reykjavík 1984-86, sveitarstjóri í
Grundarfirði 1986-90, fjármálastjóri
hjá Kjörís hf. 1990-91, bæjarritari
hjá Kópavogskaupstað 1991, bæjar-
stjóri í Stykkishólmi 1991-99 og er
nú forstöðumaður nýsköpunar og
þróunar hjá Áburðarverksmiðjunni
í Gufunesi.
Ólafur sat í stjóm Heimdallar
1976-78, í stjóm Félags viðskipta-
fræðinema 1982-84, í fræðsluráði
Vesturlands 1986-90, í
stjóm Hraðfrystihúss
Grundarfjarðar 1986-90,
í stjórn Samtaka sveit-
arfélaga á Vesturlandi
1988-90 Og 1994-95, í
stjórn héraðsnefndar
Snæfellinga 1991-95, sat
í stjóm launanefndar
sveitarfélaga 1993-99, í
stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga
1994-99, situr í stjórn
Fasteignamats ríkisins
frá 1995 og í stjórn
Námsgagnastofnunar.
Ólafur var ritstjóri
Hagvangs 1982-84.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 18.6. 1983 Ragn-
heiði Gunnarsdóttur, f. 2.9. 1960,
B.Sc. í hjúkrunarfræði frá HÍ. Hún
er dóttir Gunnars Dofra
Kjartanssonar, f. 29.6.
1935, d. 9.9. 1970, versl-
unarmanns í Reykjavík,
og k.h„ Helgu Sigfús-
dóttur, f. 2.5.1937, versl-
unarmanns. Stjúpfaðir
Ragnheiðar er Hjalti
Stefánsson, f. 23.9. 1925,
framkvæmdastjóri í
Reykjavík.
Synir Ólafs og Ragn-
heiðar eru Gunnar
Dofri, f. 13.4.1988; Sverr-
ir Ingi, f. 21.2. 1993;
Kjartan, f. 12.1. 1997.
Alsystkini Ólafs eru
Anna Gunnhildur, f. 29.7. 1950,
rekstrarstjóri í Reykjavík; Oddný
Guðrún, f. 27.8. 1956, dósent við HÍ,
búsett í Reykjavík; Pétur öm, f.
14.3.1969, lögfræðingur í Reykjavík.
Hálfsystkini Ólafs, samfeðra:
Kristinn Ágúst, f. 23.12. 1932, d. 9.5.
1957; Sigurður Júlíus, f. 14.8.1934, d.
16.2. 1953; Alma Valdís, f. 18.1. 1943,
lögfræöingur í Garðabæ; Óskar
Finnbogi, f. 19.1. 1945, verkfræðing-
ur í Reykjavík; Gunnar Axel, f. 19.1.
1945, verkfræðingur í Garðabæ;
Garðar, f. 11.1.1949, verkfræðingur í
Garðabæ; Guðmundur, f. 31.12.1955,
búsettur í Danmörku.
Foreldar Ólafs; Sverrir Júlíusson,
f. 12.10. 1912, d. 30.4. 1990, útgerðar-
maður og alþm., og k.h., Ingibjörg
Þorvaldsdóttir, f. 25.6. 1925, vefnað-*.
arkennari.
Ætt
Sverrir var sonur Júlíusar
Bjömssonar, sjómanns í Keflavík,
og k.h., Sigríðar Sverrínu Sveins-
dóttur húsmóður.
Ingibjörg er dóttir Þorvalds Böðv-
arssonar og k.h., Gróa María Odds-
dóttir.
Ólafur Hilmar
Sverrisson.
Sigrún Símonardóttir
Sigrún Símonar-
dóttir, tryggingafull-
trúi hjá sýslumannin-
um í Borgamesi,
Berugötu 2, Borgar-
nesi, verður sextug á
morgun.
Starfsferill
Sigrún fæddist að
Grímarsstöðum í
Andakílshreppi og ólst
þar upp til þriggja ára
aldurs en síðan í Borg-
amesi. Hún lauk
landsprófi frá Bama-
skóla Borgamess 1954, stundaði
nám við Iönskólann í Borgarnesi í
tvö ár og stundaði nám við Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur 1957-58.
Sigrún vann hjá Pósti og síma í
Borgamesi 1958-64 og hefur starfað
hjá sýslumanni Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu í Borgarnesi frá 1964.
Sigrún hefur starfað í Sjálfstæðis-
flokknum í áratugi. Hún var vara-
maður í bæjarstjóm Borgamess
1982-84, sat í bæjarstjóm frá 1984,
var forseti bæjarstjórnar Borgar-
ness 1990-94 og formaður bæjarráðs
1996-98. Hún hefur gegnt ýmsum
nefndar- og trúnaðarstörfum á veg-
um bæjarfélagsins, m.a. setið í
stjórn HAB, Grundar-
tangahafnar, í fræðslu-
ráði og skólaskrifstofu
Vesturlands. Þá er hún
formaður stjómar Dval-
arheimilis aldraðra í
Borgamesi.
Fjölskylda
Sigrún giftist 17.6. 1960
Ólafi Ásgeiri Steinþórs-
syni, f. 22.8. 1938, féhirði.
Hann er sonur Steinþórs
Einarssonar, f. 27.9. 1895,
d. 12.6.1968, sjómanns og
bónda í Bjarneyjum, síð-
ar verkamanns í Flatey og Stykkis-
hólmi, og k.h., Jóhönnu Stefánsdótt-
ur, f. 24.7. 1897, d. 21.10. 1997, hús-
móður.
Böm Sigrúnar og Ólafs Ásgeirs
eru Steinþór Páll Ólafsson, f. 27.6.
1970, flugmaður hjá Flugleiðum;
Símon Ólafsson, f. 3.9. 1974, bifvéla-
virki hjá Bifreiðum og landbúnaðar-
vélum í Reykjavík en unnusta hans
er Anna Sigmundsdóttir, f. 3.9.1979,
nemi; Guðjón Fjeldsteö Ólafsson, f.
26.1. 1984, nemi í Grunnskóla Borg-
arness.
Systkini Sigrúnar eru Örn Ragn-
ar Símonarson, f. 10.6. 1934, bifvéla-
virki í Borgarnesi; Teitur Símonar-
son, f. 12.10. 1937, bifreiðasmiður í
Kópavogi; Sigurbjörg Símonardótt-
ir, f. 30.10. 1941, verslunarmaður í
Hafnarfirði; Bergsveinn Símonar-
son, f. 25.1.1945, kjötiðnaðarmaður í
Borgamesi.
Foreldrar Sigrúnar voru Símon
Teitsson, f. 22.3. 1904, d. 13.4. 1987,
jámsmíðameistari í Borgarnesi, og
Unnur Bergsveinsdóttir, f. 24.8.
1913, d. 7.8. 1992, húsmóðir.
Ætt
Símon var bróðir Guöjóns, for-
stjóra Skipaútgerðar ríkisins. Sím-
on var sonur Teits, b. á Grimars-
stöðum Símonarsonar, b. i Ásgarði,
bróður Ingibjargar á Hvanneyri,
móður Gróu, móður Helga Sigurðs-
sonar, fyrsta hitaveitustjóra í
Reykjavík. Ingibjörg var einnig
móðir Teits, afa Teits Jónassonar
forstjóra, og langafa Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings. Þá var Ingi-
björg móðir Vilhjálms Ámasonar,
húsasmíðameistara, föður Óskars,
fyrsta garðyrkjustjóra Reykjavíkur
og Guðrúnar, húsmóður og kennara
í Reykjavík. Símon var sonur Teits,
ættfoður Teitsættar, bróður Jóns, b.
í Efstabæ, langafa Magnúsar skálds
og Leifs prófessors Ásgeirssona. Jón
var einnig langafi Péturs Ottesens
alþm. og Jóns Helgsonar ritstjóra.
Móöir Teits á Grímarsstöðum var
Sigríður Jónsdóttir, b. á Ausu Páls-
sonar.
Móðir Símons járnsmíðameistara
var Ragnheiður Fjeldsted, dóttir Dan-
íels Fjeldsted, b. á Hvítárósi, bróður
Andrésar, b. á Hvítárvöllum, fóður
Lárusar hrl, afa Katrínar Fjeldsted
alþm.. Daníel var sonur Andrésar, b.
á Narfeyri og á Hvítárvöllum Vigfús-
sonar, gullsmiðs á Stóru-Tungu á
Fellsströnd, ættfoður Fjeldstedættar-
innar Sigurðssonar. Móðir Andrésar
á Narfeyri var Karitas, systir Skúla,
afa Kristínar, móður Skúla Thorodd-
sen ritstjóra, Þórðar læknis, Þorvald-
ar náttúrufræðings og Sigurðar verk-
fræðings, föður Gunnars Thoroddsen
forsætisráðherra. Karitas var dóttir
Magnúsar Ketilssonar, sýslumanns í
Búðardal. Móðir Daníels var Þor-
björg dóttir Þorláks, hreppstjóra á
Hvallátrum við Breiðafjörð Gríms-
sonar, og Katrínar Einarsdóttur,
systur Eyjólfs eyjajarls. Móðir Ragn-
heiðar Fjeldsted var Sigurlaug Ólafs-
dóttir, b. á Norðurreykjum í Hálsa-
sveit, Jónassonar og Amfríðar Ei-
ríksdóttur. -s
Foreldrar Unnar voru Bergsveinn
Sigurðsson sjómaður' óg Sigurlína
Bjarnadóttir, verkakona í Reykja-
vík. Sigrún verður að heiman.
Sigrún Símonardóttir.
_______________________________fréttir
Næturgalar komu með írska
stemningu á Kaffi Krók ,
Næturgalar taka lagiö: Guömundur St. Sigurösson, Karl Sigurgeirsson, Þor-
björn Gíslason, Ólafur Jakobsson og Elínborg Sigurgeirsdóttir sem lék und-
ir á píanc. DV-mynd Þórhaliur Ásmundsson.
DV, Skagafirði:
Þótt landsvæði það sem í dag
heitir Húnaþing vestra sé ekki fjöl-
mennt hefur það látið mikið að sér
kveða á tónlistarsviðinu um nokk-
urt skeið og kannski lengur. Ritari
þessa pistils er ekki í nokkrum vafa
um að tónlistarlíf dafnar vel í „vest-
ur-sýslunni“.
Þar hefur á undanfómum árum
verið staðið fyrir mörgum tónlistar-
viðburðum. Á tímabili var mjög líf-
legt yfir tónlistarfélaginu en einnig
hefur drjúgur hópur fólks látið að
sér kveða og staðið fyrir uppákom-
um nokkuð reglulega, þar sem söng-
ur og tónlist hefur verið í hávegum
haft.
Það var upp úr þessum jarðvegi
sem sönghópurinn Næturgalamir
spratt fyrir 10 ámm. Tilgangurinn
var fyrst og fremst að skemmta
sjálfum sér og síðan kannski ein-
hverjum í leiöinni.
„Við höfum lítið komið fram síð-
ustu fimm árin en höfum samt
reynt að hittast á hverju ári og
skemmta okkur saman, fórum t.d.
saman til írlands og Danmerkur.
Svo í haust var komið að þessum
tímamótum aö tíu ár voru frá því að
sönghópurinn var stofnaður og við
ákváðum að setja saman skemmti-
dagskrá og halda upp á þetta. Við
efndum til afmælishátíðar í félags-
heimilinu á Hvammstanga sem
heppnaðist ákaflega vel.
Hvert sæti var skipað og við vor-
um mjög kátir með undirtektimar,“
segir Karl Sigurgeirsson, einn félag-
anna, en auk hans eru í Næturgöl-
unum Guðmundur St. Sigurðsson, L
Þorbjörn Gíslason og Ólafur Jakobs-
son.
Næturgalamir mættu síðan á Kaífi
Krók á Sauðárkróki og héldu þar
stórgóðan og skemmtilegan konsert
og var stemningin ákaflega góð þrátt
fyrir að fámennt væri en góðmennt,
og létu allt of margir þennan viðburð
fram hjá sér fara. -ÞÁ —