Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1999, Qupperneq 78
82
lyndbönd
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
Myndbanda
GAGNRÝNI
THE.
THIRXEETlTH
nooR
The Thirteenth Floor
+++ Douglas Hall er að vinna að tilraunaverkefni fyrir tölvufyrirtæk-
ið Intergraph sem hannað hefur afar fullkominn sýndarveruleika,
svo raunverulegan að hann er óaðgreinanlegur frá raunveruleikanum. Inn í
þennan sýndarveruleika hefur það sett ýmsar persónur, sumar hverjar byggð-
ar á raunverulegum persónum. Þegar yflrmaður hans finnst myrtur og ýmis-
legt bendir til þess að hann hafi framið morðið fer hann að gruna að ekki sé
allt með felldu í sýndarveruleikanum.
Ráðgátan í sögunni er kannski helst til of augljós og ekki nógu mikið gert
tO að setja áhorfendur út af sporinu. Myndin nær því ekki alveg að byggja
upp þá spennu og eftirvæntingu sem annars hefði getað orðið. Hún bætir það
þó upp með góðum leikurum og athyglisverðum pælingum um stöðu sýndar-
veruleikapersóna í raunheimi, um margt hliðstæðum spumingum sem Blade
Runner setti fram um gervimenn. Craig Bierko og Gretchen Mol eru kannski
svolítið flöt í meginhlutverkunum en eiga ansi skemmtilegar sýndarveru-
leika-innáskiptingar. Vincent D’Onofrio og Armin Mueller-Stahl eru mjög
góðir í aukahlutverkum sínum og gefa myndinni ákveðinn klassa.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Josef Rusnan. Aðalhlutverk: Craig Bierko, Vincent D'Onofrio,
Gretchen Mol og Armin Mueller-Stahl. Bandarísk, 1999. Lengd 100 mín. Bönnuð innan 16
ára. -PJ
The Mating Habits of the Earthbound Human
Skemmtilega spes
++ Ef ég ræki hér í upphafi líkt og venja er sögu-
þráð myndarinnar myndu eflaust flestir lesendur
halda að um væri að ræða dæmigerða rómantík. Það
eru nefnilega efhistökin sem gera þessa mynd frá-
brugðna (og áhugaverða) en ekki umfjöllunarefhið.
Það er látið í veðri vaka að myndin sé gerð af geimver-
um sem rannsaka tilhugalíf mannsins líkt og um
hveija aðra skepnu væri að ræða. Tilraunadýrin eru
Billy (Mackenzie Astin) og Jenny (Carmen Electra)
sem hittast snemma í myndinni á skemmtistað. Þeim
líst vel hvoru á annað og Billy er svo lánssamur að fá símanúmer hennar. Eitt
leiðir af öðru og í langan tíma ríkir mikil hamingja þar tU babb/bam kemur
í bátinn.
Þessi frásagnaraðferð heppnast á köflum vel og ekki laust við að glott sé
límt við varimar út myndina. Hún verður þó aldrei mjög fyndin og ekki tekst
að viðhalda ferskleika efnistakanna. Af þeim sökum fæ ég mig ekki tU að gefa
myndinni fleiri en tvær stjömur en vU um leið benda áhugasömum kvik-
myndafíklum (og varla spUlir fyrir ef þeir em að ganga í gegnum tilhugalífs-
ferli myndarinnar) að berja hana augum. The Mating Habits of the Earth-
bound Human er skemmtilega spes.
Útgefandi Skífan. Leikstjóri Jeff Abugov. Aðalhlutverk: Mackenzie Astin, Carmen El-
ectra og David Hyde Pierce. Bandarísk, 1999. Lengd 92 mín. Bönnuð innan 12. -bæn
Convoy
Uppreisnarglaðir „trukkarar"
lcld Gúmmíöndin nær engan veginn margræðni
nafnsins Rubber Duck sem hetja myndarinnar
gengur undir. Lfkt og það væri ekki nóg tU að ragla les-
endur þá er heitið fullkomið rangnefni og hetjan engin
gúmmíkarl enda leikin af sjálfúm Kris Kristofferson.
Karlmennskan uppmáluð bjargar hann öðrum trakk-
stjóra úr klóm lögreglunnar og er þar með hafm atburða-
rás sem engan gat órað fyrir. Öndin og félagar flýja lög-
regluna sem er staðráðin í að koma lögum yfir þá.
Trukkarar koma aftur á móti viðs vegar að tU að styrkja Öndina og félaga í
baráttunni svo úr verður ógnarlöng trakkalest. Smátt og smátt breitist ökut-
úrinn í mannréttindabaráttu og óprúttnir pólitíkusar taka að hugsa sér gott tU
glóðarinnar.
Convoy er óneitanlega nokkuð furðuleg mynd og með ólíkindum hvemig
hún umbreytir vörabílsstjórastéttmni í hippahreyfingu. Það er þó rétt að
leggja áherslu á að þrátt fyrir þennan einkennUega samfélagsvinkU er kvik-
myndin fyrst og fremst grín- og hasarmynd. Satt best að segja hefur húmornm
ekki elst sérstaklega vel en hasaratriðin era enn einkar skemmtUeg og jafnvel
broslegri en brandaramir. Reyndar gefur það þeim sérstakan blæ og ekki laust
við að maður fyUist nostalgíu á köflum. Lesendur/áhorfendur sem era orðnir
langþreyttir á hasarmyndum samtimans gætu gert margt vitlausara en að
skella Convoy i tækið.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Sam Peckinpah. AðaUUutverk: Kris Kristoffer-
son, Ali McGraw og Emest Borgnine. Bandarísk, 1978. Lengd: 106 mín. Bönnuð inn-
an 12. -bæn
Some Girl
UngEngaþunglyndi
í Some Girl snýst aðalsagan um rauðhærða
stelpu sem feUur kylliflöt fyrir sætum og sjarmer-
andi strák sem reynist bara ómerkUegur kvennabósi.
Síðan era sagðar nokkrar litlar hliðarsögur um tilfinn- _ t
mgamál vina hennar og kunnmgja. ClÍRL
Þetta er enn ein myndin í flokki þeirra sem hófu ‘ ' ' ■
göngu sína með myndum eins og Breakfast Club og St.
Elmo’s Fire. Þetta era myndir um unglinga/ungt fóik að fúUorðnast og fmna
sér stað í lifinu. Áherslan er á dramatík en gamansemi og tónlist eiga að stytta
áhorfendum stundir. Þessar myndir era auðvitað misgóðar en þessi leit fýrir-
fram svolítið forvitnUega út hvað efnistök og leikhóp varðar. Ég varð þó fyrir
vonbrigðum þvi sagan er nauðaómerkUeg. Reynt er að hressa upp á hana með
djörfú orðbragði en eftir sem áður er sögufléttan stefnulaus og óspennandi.
Einhverjar pælmgar um ást, vináttu, tryggð og fjöUyndi era þama en það er
grunnt á þeim og þær bæta engu við fýrri myndir í sama dúr. Tónlistin er
bara hefðbundið unglingaþunglyndi og gerir ekkert fyrir myndina. Ef ekki
væri fýrir ansi góðan leikhóp væri þetta ferlega leiðinleg mynd, en þrátt fýr-
ir leikarana er hún ekki þess virði að sjá.
Útgefandi Myndform. Leikstjóri Rory Kelly. Aðalhlutverk: Marissa Ribisi, Michael
Rapaport, Jeremy Sisto, Juliette Lewis og Giovanni Ribisi. Bandarísk, 1999. Lengd
90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Armageddon. Tilvist mannkynsins ógnað.
Nú þegar mannkynið er I þann
veginn að sigla inn í þriðja árþús-
undið má segja að þaö sé nokkuð
upptekið við að líta í eigin barm,
gera upp stöðu sína og spá í fram-
tíðina. Ekki er ólíklegt að nokkur
óvissuhrollur fari um suma og
hérlendum bókmenntafræðingi,
Úlfhildi Dagsdóttur, hefur orðið
tíðrætt um eins konar alheims-fyr-
irtíðaspennu í því sambandi. Kvik-
myndimar eru sem alheimsmenn-
ingarfyrirbrigði spegill mannssál-
arinnar og viðfangsefni þeirra tek-
ur mið af aðlíðandi árþúsundamót-
um. í hverri myndinni á fætur
annarri hefur tilvist mannkynsins
verið ógnað, hvort sem er af inn-
rás geimvera (Independence Day),
loftsteinahríð (Armageddon) eða
djöfsa sjálfum (End of Days). Hin
síðustu ár hafa einnig verið að
koma myndir þar sem ekki ein-
ungis mannkyninu eða lifi á jörð
er ógnað heldur sjálfum veruleik-
anum.
Falsheimur gegn raun-
heimi
Kvikmyndum er yfirleitt ætlað að
spegla raunveruleikann, fjalla um
hann á vitrænan hátt eða lífga upp
á hann áhorfendum til skemmtun-
ar. Ákveðið lágmarksraunsæi þarf
oftast til að áhorfendur geti lifað sig
inn í myndina en það er einnig
hægt að grafa undan raunsæinu til
að skapa spennu eða koma áhorf-
endanum á óvart. Oft skipa ein-
hvers konar falsheimar sess i mynd-
um, draumaheimar sem ekki eiga
sér stoð í þeim raunveruleika sem
myndirnar gefa sér. Westworld
(1973) er kannski fyrsta fræga dæm-
ið um mynd þar sem falsheimurinn
ræðst gegn raunheiminum. Þar
gengu róbótar í skemmtigarði ber-
serksgang og réðust gegn raunfólk-
inu. Falsheimurinn varð að alvöru,
blekkingin að raunveruleika.
Það má segja að Disney-myndin
Tron (1982) hafi verið ákveðið
brautryðjendaverk á þessu sviði.
Hún var ekki með gáfulegri mynd-
um en þótti samt athyglisverð fyrir
ævintýralegt sögusviöið þar sem
leikjahönnuöur fer inn í eigin tölvu-
leik og á þar m.a. samskipti við per-
sónur sem hann sjálfur hefur hann-
að. Brazil (1985) gaf raunveruleikan-
um langt nef meö því að láta sögu-
hetjuna að lokum flýja endanlega
inn í eigin draumaheim og sama ár
gerði Woody Allen Purple Rose of
Cairo þar sem persóna í kvikmynd
steig af tjaldinu og varð ástfangin af
raunverulegri konu. Þegar kom
fram á tíunda áratuginn varð hug-
myndin um sýndarveruleika æ
þekktari og ýmsar myndir léku sér
með þá hugmynd; sú flottasta og for-
vitnilegasta var Strange Days.
purningin
um eigm
Og nú eru kvikmyndagerðar-
menn famir að sökkva sér æ dýpra
í (ó)raunveruleikapælingarnar,
enda gæti jarðvegurinn vart verið
frjósamari. Mannveran er að
The Matrix. Tölvurnar búnar aö gera uppreisn.
drukkna í endalausu upplýsinga-
streymi en fáir ná að festa hönd á
því. Flest göngum við í gegnum lífið
og notum daglega tækni sem við
skiljum ekki. Tölvur verða æ öfl-
ugri og venjulegu fólki óskiljan-
legri. Heimsmeistarinn i skák var
nýverið sigraður af skáktölvu. Er
nema von í þessu umhverfi að auð-
veldara sé en nokkru
sinni fyrr að virkja
ótta manna við hið
óskiljanlega og óvissu
þeirra í glundroða-
kenndri veröld. Ekki
færri en fjórar mynd-
ir undanfarin tvö ár
hafa fjallað um fólk
sem kemst að því að
heimur þess er ekki
raunverulegur heldur
platveröld. Jim Car-
rey var fangi sjón-
varpsþáttar í hinni
léttlyndu The Trum-
an Show en hinar
þrjár gera meira út á
spennuna. í Dark
City var heimur per-
sónanna tilraunastofa
geimvera. í The Mat-
rix voru tölvurnar
búnar að gera upp-
reisn og fanga mann-
kynið í eins konar
sýndarveruleikafor-
rit. í The Thirteenth
Floor er það mann-
fólkið sem býr til
sýndarveruleika og
skartar myndin m.a.
persónum sem aldrei
hafa verið af holdi og
blóði en hafa samt sjálfstæðan vilja
og kannski jafnvel einhvers konar
sál. Það er ekki nóg með að þær
komist að því að veröldin sem þær
lifa í sé platveröld heldur eru per-
sónurnar sjálfar platpersónur og þá
fer nú tilvistarkreppan að verða að-
kallandi.
Pétur Jónasson
Myndbandalisti vikunnar
FYRRI VIKUR <
I VIKA A LISTA '
Vikan 30. nívember- 6. desember
_ , -- . . -.
TITILL IITGEF. TEG.
1 ] "í , 1 , Matríx ' Waroer Hjndir
2 ! 2 J 2 1 1 Skfaa
3 1 NÝ 1 1 1 EíTv 1 dCMyndböod Canua
4 i 1 1 3 j Tmecrime nnMíiBii i NncrMyidr HHi : Se«n Nflfl
|5 { 3 2 * Resurrection LM,nd,#nB
S 4 1 4 J Fgrcesefutnre f CtCMjndbtad .1 lH
7 1 6 1 7 I Aiíntonraod ) HMólabw 1
S : , s j10 5 Cniladion , CIC MjmdkMd i ■., ■... ' J . is^
9 Whoaml w. f SUh 1 Spenna
10 sknnÉnnfli 1 5 1 4 : Ufe is beautiful 1 Caman
11 19.3| Plunkett & MacLeane 1 Háskóiabíó , Spenna
12 1 7 1 2 ! ' n 1 3 ; Wing commander j SAMMyndbónd Spenna I
13 Happiness ' Skifan 1 Dranta
14 ■■■ I ■ yly 1 NV 1 1:1 i i | Bride of Chucky J Skífan l : Spcau
15 1 1 J 12 -i 2 1 Perdita Durango , Háskólabíó , Speaiu
16 ; 13 * 9 ; " l pmpw i 8mm si,,vT-.w. ’ !: Spenna
17 í 16 1 5 » JackFrost 1 Wamer Myndv 1 Gaman
1S 1 19 ) 12 j Payback iMns , WaroerMjndr MHHi } j Speona
19 ; H 7 7 At first sight . MbnHrMyndr j
20 Al 2 Frfonds Lowiofl m u PHtntf IJNT Camar
m