Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1999, Page 22
34
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1999
Fólk í fréttum
Orn Arnarson
Örn Arnarson, hinn frábæri
sundkappi úr Hafnarfirði, vann
einn fræknasta sigur í íslenskri
íþróttasögu er hann varð tvöfaldur
Evrópumeistari, í 200 m baksundi
og í 100 m baksundi, í Lissabon í
Portúgal um síðustu helgi.
Starfsferill
Öm fæddist í Reykjavík 31.8.1981
en hefur átt heima í Hafnarfirði frá
fæðingu. Hann var í Viðistaðaskóla
og síðan einn vetur i Flensborgar-
skóla. Hann var i unglingavinnunni
í Hafnarfirði eitt sumar en starfar
nú hjá Speedo-umboðinu.
Öm hóf að æfa sund hjá SH er
hann var fimm ára. Hann fór
snemma að keppa fyrir félagið,
vann fjölda móta á unglingsárunum
og setti fjölda unglingameta.
Örn er margfaldur íslandsmeist-
ari í fjölda greina. í 25 m laug á
hann íslandsmet i 50 m, 100 m, 200
m og 400 m skriðsundi; i 50 m og 200
m flugsundi; í 50 m, 100 m og 200 m
baksundi og í 100 m og 200 m fjór-
sundi. 1 50 m laug á hann íslands-
met í 50 m og 200 m skriðsundi; í 100
m og 200 m baksundi og í 200 m fjór-
sundi.
Örn hreppti silfurverðlaunin í 200
m skriðsundi og 200 m baksundi á
Evrópumeistaramóti unglinga í
Antwerpen 1998; hreppti gullverð-
launin í 200 m skriðsundi og silfur-
verðlaun í 200 m baksundi á Evr-
ópumeistarmóti unglinga í Moskvu
1999; varð Evrópumeistari í 200 m
baksundi í Sheffield á
Englandi 1998, hlaut silf-
urverðlaun í 100 m
baksundi í Glasgow 1999,
bronsverðlaun í 100 m
baksundi í París 1999,
bronsverðlaun í 200 m. Þá
hreppti hann sjö gullverð-
laun á Smáþjóðaleikun-
um 1 Liechtenstein 1999.
Öm var kosinn íþrótta-
maður ársins í DV 1997
og 1998 og íþróttamaður
ársins af íþróttafrétta-
mönnum 1998.
Fjölskylda
Systur Arnar eru Ólöf Ema Arn-
ardóttir, f. 24.12. 1974, nemi í hjúkr-
unarfræði við HÍ, en unnusti henn-
ar er Kristján Hilmar Sigurðsson
smiður; Erla Amardóttir, f. 2.3.
1990, nemi við Víðastaðaskóla og
keppandi í sundi fyrir SH en hún
vann m.a. til fimm verðlauna á ung-
lingamóti í sundi nú í haust.
Foreldrar Arnar eru Öm Ólafs-
son, f. 1.6. 1956, vélstjóri í Hafnar-
flrði og fyrrv. unglingamethafl og
unglingameistari í sundi, og k.h.,
Kristín Jensdóttir, f. 29.8. 1954, hús-
móðir.
Ætt
Örn er bróðir Guðmundar Ólafs-
sonar sem var margfaldur íslands-
meistari og landsliðsmaður í sundi.
Annar bróðir Arnar er Friðrik H.
Ólafsson, formaður ÍBH, er einnig
keppti í sundi, faðir
Ómars, íslandsmeistara
og landsliðsmanns í
sundi. Öm er sonur
Ólafs, íslandsmeistara og
landsliðsmanns í sundi,
bróður Kolbrúnar, móð-
ur Sesseiju Árnadóttur,
formanns Sundsambands
íslands. Önnur systir
Ólafs er Hrafnhildur,
fræknasta sunddrottning
íslendinga, en hún setti
sjötíu og átta íslandsmet
í einstaklingsgreinum fullorðinna í
átján mismunandi greinum og að-
ferðum, móðir Magnúsar Más Ólafs-
sonar, ólympíufara og margfalds ís-
landsmeistara í sundi; Bryndisar
Ólafsdóttur, ólympíufara og marg-
falds íslandsmeistara í sundi; Hug-
rúnar Ólafsdóttur, íslandsmeistara
og íslandsmethafa 1 sundi, og Arn-
ars Freys Ólafssonar, íslandsmeist-
ara og íslandsmethafa í sundi. Ólaf-
ur er sonur Guðmundar húsgagna-
smiðs Ólafssonar, b. frá Hólum í
Dýraflrði, Guðmundssonar frá Hól-
um, Guðbrandssonar, b. í Gerð-
hömrum, Sigurðssonar, pr. í Holti í
Önundarfirði, Jónssonar, Arasonar,
skálds í Vatnsfirði, Magnússonar,
prúða í Ögri. Móðir Guðmundar frá
Hólum var Ástríður Jónsdóttir, pr.
á Söndum, Tómassonar. Móðir
Ólafs var Guðrún Bjamadóttir frá
Lambadal, Jónssonar. Móðir Guð-
rúnar var Elísabet Markúsdóttir, b.
á Söndum, Eyjólfssonar. Móðir El-
ísabetar var Elísabet, systir Mark-
úsar, pr. á Álftamýri, langafa Ás-
geirs Ásgeirssonar forseta. Elísabet
var dóttir Þórðar, ættföður
Vigurættarinnar, bróður Ingibjarg-
ar, ömmu Jóns Sigurðssonar for-
seta. Þórður var sonur Ólafs, ættföð-
ur Eyrarættarinnar, Jónssonar.
Móðir Guðmundar húsgagnasmíða-
meistara var Sigríður Kristín ljós-
móðir Jónsdóttir, b. á Kirkjubóli í
Korpudal, Sigurðssonar og Ingi-
bjargar Bjamadóttur frá Hvammi i
Dýrafirði. Móðir Ólafs Guðmunds-
sonar var Sesselja, dóttir Einars frá
Helgustöðum, Eiríkssonar, b. á
Helgustöðum, Einarssonar, b. á
Helgustöðum, bróður Eiríks í
Vorsabæ, langafa Sigríðar, móður
Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir
Sesselju var Margrét Sigmundsdótt-
ir frá Iðu.
Móðir Arnar Ólafssonar er Unn-
ur Ágústsdóttir, stýrimanns í Hafn-
arflrði, Hjörleifssonar. Móðir Unnar
var Ingibjörg Einarsdóttir.
Kristín er systir Júlíusar Bess er
varð íslandsmeistari öldunga í lyft-
ingum, föður Magnúsar Bess sem er
nýbakaður íslandsmeistari i vaxtar-
rækt. Kristín er dóttir Jens, vél-
stjóra í Hafnarfirði, Eyjólfssonar,
bókbindara í Bolungarvík, Guð-
mundssonar. Móðir Jens var Val-
gerður Ólöf Amórsdóttir.
Móðir Kristinar er Jóhanna
Loftsdóttir, sjómanns í Hafnarfirði,
Sigfússonar. Móðir Jóhönnu var
Kristín Jónína Salómonsdóttir.
Örn Arnarson.
Afmæli
Aðalsteinn Jónsson
Aðalsteinn Jónsson kerfls-
fræðngur, Esjugrund 30, Reykja-
vík, varð fertugur í gær.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófl frá MA
1979, stundaði nám í stærðfræði
við háskóla í Gautaborg og hefur
sótt fjölda námskeiða í kerflsfræði.
Aðalsteinn var kerfisfræðingur
hjá SKÝRR um skeið, starfaði síð-
an hjá Rekstrartækni sf., síðan hjá
Tölvutækni hf., var starfsmaður
hjá Nýherja hf., og loks hjá Al-
mennu kerfisfræðistofunni hf.
Hann hefur nú verið kerfisfræð-
ingur hjá Forritun-AKS hf sl. þrjú
ár.
Fjölskylda
Kona Aðalsteins er Hrefna Sig-
ríður Bjartmarsdóttir, f. 2.4. 1958,
húsfreyja og þjóðfræðinemi við HÍ.
Hún er dóttir séra Bjartmars Krist-
jánssonar, f. 14.4. 1915, d. 20.9. 1990,
pr. á Mælifelli I Skagafirði og síðar
á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði, og
k.h., Hrefnu Magnúsdóttur, f. 3.3.
1920, húsfreyju.
Böm Aðalsteins og Hrefnu Sig-
ríðar eru Magnús Jón, f. 31.3. 1984;
Jökull Sindri, f. 15.8. 1988; Sunnefa
Hildur, f. 14.7. 1992; Jón Bjartmar,
f. 18.7. 1994.
Alsystur Aðalsteins eru Aðal-
björg, f. 22.6. 1955, húsmóðir í
Reykjavík; Guðrún, f. 28.10. 1956,
skrifstofumaður, búsett á Seltjam-
arnesi; Kolbrún, f. 5.1. 1963, píanó-
kennari, búsett í Reykjavík.
Hálfsystir Aðalsteins, samfeðra,
dóttir Maríu Kristjánsdóttur leik-
stjóra, er Salbjörg Rita, f. 18.11.
1973, mannfræðinemi við HÍ, bú-
sett i Garðabæ.
Foreldrar Aðalsteins em Jón Að-
alsteinsson, f. 20.4. 1932, læknir,
búsettur i Garðabæ, og Kolbrún
Inga Sæmundsdóttir, f. 14.11. 1937,
* ^
BILASALAfÍ bill.is
Jolacjlaðmnyur
Til sölu Jeep Cherokee 5,9 Limited '98,
ekinn 24 þús.,
svartur.
Stórglæsilegur bíll
rneð öllu.
Bilasalan bill.is Malarhöfða 2 Sími: 577 3777 Fax: 577 3770
Aletfang: bill@bill.is Heimasíða: vuvuuu.bill.is
Verö áöur 4.500.000
Jólualaðnlnyur, J.090,000 styr.
sjúkraliði í Reykjavík.
Kona Jóns er María
Kristjánsdóttir leik-
stjóri.
Maður Kolbrúnar er
Bjöms Amórsson jám-
smiður.
Ætt
Jón er sonur Aðal-
steins Jónssonar, b. á
Halldórsstöðum og á
Kristnesi í Eyjafirði,
Aðalsteinn Jónsson.
Jónssonar, og Aðalbjarg-
ar Stefánsdóttur, b. í
Kristnesi, Jónssonar.
Kolbrún er dóttir Sæ-
mundar Einars Þor-
valdssonar, kaupmanns
á Norðfirði, og Guðrún-
ar Elínar Kristjánsdótt-
ur verslunarmanns.
Athugasemd frá
Sigurði Helga
Guðjónssyni hrl.
í viðtali við Sæunni Axelsdóttur,
útgerðarkonu frá Ólafsíirði, í helg-
arblaði DV, er nafn mitt ranglega
nefnt til sögunnar og með þeim
hætti að vont er við að una.
í viðtalinu segir Sæunn m.a. frá
ráðningu lögfræðingsins Sigurðar
H. Guðjónssonar og viðbrögðum for-
sætisráðherra við henni. Að sögn
Sæunnar á forsætisráðherra að hafa
orðið eins og snúið roð í hundi og
sagt að fyrst hún hefði ráðið sér
þann lögfræðing þyrfti hún ekki að
ímynda sér að nokkur heiðvirður
maður kæmi nálægt henni.
Mig rak í rogastans er ég las
þetta. Ég þekki umrædda Sæunni
ekki neitt og hef aldrei tekið að mér
nein lögfræðistörf fyrir hana. Og
ekki veit ég til þess að ég eigi al-
nafna í lögfræðistétt þótt nálægt því
fari. Loks vil ég í lengstu lög trúa
því að orðspor mitt sé ekki það illt
og laskaö að heiðvirðir menn forðist
mig og umbjóðendur mína eins og
heitan eldinn.
Hér hlýtur að vera einhver maðk-
ur i mysunni. Mér hlýtur að vera
ruglað saman við einhvern jafnvel
enn illræmdari lögfræðing en ég er.
Vænti ég þess að fljótlega upplýsist
hvaða lögfræðingur sé hin rétta
andstyggð heiðarlegra manna
þannig að nafn mitt hreinsist og
heiðvirðir menn breiði fagnandi út
faðminn á móti mér.
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur ol» miill him/n,
og stighcekkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
i
SSO 5000
DV
Til hamingju með afmælið 14. desember
95 ára
Þorkell Sveinsson, Hvassaleiti 58, Reykjavík.
90 ára
Lilja Steinsen, Víðimel 56, Reykjavík.
75 ára
Anna Jóna G. Betúelsdóttir, Furugerði 13, Reykjavík. Vigfús K. Vigfússon, Bæjartúni 9, Ólafsvik.
70 ára
Árveig Kristinsdóttir, Hrafnagilsstræti 21, Akureyri. Guðbjörg Axelsdóttir, Gullsmára 9, Kópavogi. Guðmundur Magnússon, Amþórsholti, Borgarnesi. Stefán K. Arnþórsson, Karlsbraut 21, Dalvík.
60 ára
Ingibjörg Andersen, Hásteinsvegi 49, Vestmannaeyjum. Kristín Lngibjörg Ketilsdóttir, Hallgilsstöðum, Akureyri. Pétur Sæmundsson, Vallarbraut 6, Njarðvík.
50 ára
Guðný Ragnarsdóttir, Fífuseli 16, Reykjavík. Haukur Konráðsson, Kambsvegi 7, Reykjavík. Hulda Karen Ólafsdóttir, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Ingibjörg Gestsdóttir, Engjaseli 60, Reykjavík. Ingibjörg Pálsdóttir, Stafnaseli 5, Reykjavík. Jónína Pálsdóttir, Hvassaleiti 151, Reykjavík. Karen Sigurðardóttir, Löngumýri 39, Garðabæ. Kolbrún Hulda Jónsdóttir, Nestúni 3, Stykkishólmi. María Gxmnarsdóttir, Hæðarbyggð 2, Garðabæ. Sigurborg Valdimarsdóttir, Rauðagerði 49, Reykjavík. Stefán Böðvarsson, Lágengi 13, Selfossi.
40 ára
Albert Guidice, Hamragarði 9, Keflavík. Benedikt J. Sverrisson, Vitastíg 11, Reykjavík. Grétar Örn Máni Baldvinsson, Hlíðarhúsi, Brú. Guðmundur H. Guðnason, Grenihlíð 15, Sauðárkróki. Guðmundur H. Finnbogason, Hraunbæ 128, Reykjavík. Guðmundur T. Sigurðsson, Kjalarlandi 23, Reykjavík. Gunnar Karl Guðmxmdsson, Engihjalla 3, Kópavogi. Jóhanna B. Hallgrímsdóttir, Gunnlaugsgötu 20, Borgamesi. Pállna G. Hallgrímsdóttir, Hjallalandi 31, Reykjavík. Þorvaldur Finnsson, Heiðarhvammi 7a, Keflavík.