Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1999, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
Préttir
Guðmundur Bjamason seldi Kambsel á margföldu undirverði:
Hunsaði viðvaranir
- öðrum kaupanda bægt frá landbúnaðarráðuneytinu
Þrátt fyrir viðvaranir Jóns Hösk-
uldssonar, yfirmanns jarðadeildar
landbúnaðarráðuneytisins, seldi Guð-
mundur Bjamason, þáverandi land-
búnaðarráðherra, eyðijörðina Kambsel
í Áiftafirði í nóvember 1998 á marg-
fbldu undirverði. Kaupendur voru Atli
Ámason, læknir á Seltjamamesi, eig-
inmaður varaþingmanns Framsóknar-
flokksins, Kristjönu Bergsdóttur, og
Helgi Jensson, lögmaður á Egilsstöð-
um.
Jón Höskuldsson benti á það í minn-
isblaði til Guðmundar 18. maí 1998 að
Kambsel væri þá í útleigu. „Ráðstöfún
jarðarinnar til skógræktar myndi
þrengja að sauðfjárbændum á svæðinu
og er auk þess til þess fallin að skapa
úlfúð á svæðinu," sagði Jón í minnis-
blaðinu. Hann sagði kjama málsins
vera þann að Geithellnadalur hefði
verið nýttur til beitar og að þar lægju
hagsmunir sauðfiárbænda i Hamars-
firði og Álftafirði.
Öðrum kaupanda vísað frá
Jón skýrði í minnisblaðinu enn-
fremur frá því að annar einstaklingur
hefði falast eftir að fá Kambsel keypt
árið 1995 en verið hafnað þar sem jörð-
DV; Ólafsfirði:
Bæjarstjórinn á Ólafsfiröi, Ásgeir
Logi Ásgeirsson, hélt fúnd með því
fólki sem missti atvinnuna á dögunum
þegar fiskverkunarfyrirtækið Sæunn
Axels ehf. var lýst gjaldþrota. Fundinn
hélt bæjarstjóri ásamt félagsmálastjór-
anum í bænum, Hafsteini Hafsteins-
syni.
Þó nokkur fiöldi fólks mætti á fúnd-
inn til að ræða málin en Bjöm Snæ-
bjömsson hjá verkalýðsfélaginu Ein-
ingu/Iðju á Akureyri kom einnig á
fundinn. Það hefúr komið í ljós að
nokkrir starfsmannanna sem áður
unnu hjá Sæunni Axels em hættir sök-
um aldurs, sumir hafa fengið vinnu
annars staðar, jafnvel í Ólafsvík, og
enn aðrir hafa fengið vinnu á Ólafs-
firði.
inni hefði verið
ráðstafað til beitar
og að ekki væra
forsendur til að
selja jörðina til
skógræktar.
Þá benti Jón á
að taka þyrfti til
athugunar réttindi
Kambsels til af-
réttar en það væru
eignarréttindi sem
væra í sameign með nágrannajörðun-
um að Geithellnum. „Afréttarland er
þar geysistórt og kostamikið," sagði í
minnisblaði Jóns og sömuleiðis sagði
að þrátt fyrir að óljóst væri hversu
stór afr étturinn væri mætti fúllyrða að
hann næði inn á örævi; „langt inn fyr-
ir þá línu sem afmarka hið nýja „Mið-
hálendi" íslands. Jón Höskuldsson
benti ráðherra sömuleiðis á að
Kambsel væri ein þeirra rikisjarða
sem opna mætti fyrir skotveiðimönn-
um án þess að beitarafhotum væri
raskað.
Gósendalur til skógræktar
Yfirmaður jarðadeildarinnar upp-
lýsti ráðherrann um verðhugmynd
íslendingar fá atvinnuleysisbætur
sjálfkrafa en það er flóknara og erfið-
ara með útlendinga ef þeir hafa ekki
kaupendanna upp á 300 þúsund krónur
og kynnti honum jafnframt sína hug-
mynd að lágmarksverði upp á 1.800
þúsund. Þessa ábendingu Jóns Hösk-
uldssonar virti Guðmundur Bjamason
að vettugi og seldi Áma og Helga jörð-
ina á 750 þúsund krónur eða 58%
lægra verði en helsti sérfræðingur
landbúnaðarráðuneytisins í jarðasölu-
málum taldi vera lágmarksverð miðað
við staðgreiðslu. Eins og áður hefur
komið fram hefur ráðuneytið neitað
DV um afrit af kaupsamningnum
fengið grænt kort. Nokkrar fiölskyld-
ur, ættaðar frá gömlu Júgóslavíu, era
á Ólafsfirði. -HJ
vegna Kambsels með skírskotun til
hagsmuna kaupendanna.
Þeir Atli og Helgi færðu í bréfi, sem
barst landbúnaðarráðuneytinu 10. júní
1997, rök fyrir því að þeim skyldi selt
Kambsel. Þeir sögðust vilja koma
nyfiaskógrækt í gang og að þeir teldu
aðstæður í Geithellnadal kjömar til
þess. Þeir sögðust ennfremur hafa það
eftir Þresti Eysteinssyni, fagmálastjóra
Skógræktarinnar, að Geithellnadalur
væri einn af þremur „ákjósanlegustu
stöðum til nytjaskógræktar á Austur-
landi. Atli og Helgi, sem era eigendur
Geithellna n, sem liggur að Kambsels-
jörðinni, sögðust telja áform sín „sam-
ræmast vel markmiðum ríkisstjómar-
innar um landgræðslu, skógrækt,
koltvísýringsmagn og umhverfsimál í
heild.“
Ríkiö borgaöi þrefalt
Þrátt fyrir ofangreint gerði Helgi
Jensson í samtali við DV í gær lítið úr
Kambseli og verðmæti þess, kallaði
jörðina, jarðarpart" og telur kaupverð-
ið endurspegla eðiilegt markaðsverð í
dag. Hvert markaðsverðið er hefur
hins vegar aldrei verið láta reyna á.
Þess má þó geta að árið 1972 keypti
Jarðasjóður ríkisins Kambsel af þáver-
andi ábúanda á 600 þúsund krónur.
Framreiknuð til dagsins í dag er sú
upphæð 2,1 milljón króna eða þrefalt
hærri en Guðmundur Bjamason sá
ástæðu til að innheimta fýrir jörðina.
Eins og DV skýrði frá í gær hafa fyrr-
um leigutakar Kambsels, bændumir og
heimamennimir Ásgeir Ásgeirsson og
Jóhann Einarsson, nú höfðað mál á
hendur landbúnaðarráðherra til riftun-
ar sölu jarðarinnar. -GAR
Bæjarstjóri fundaði með atvinnuleysingjum
Útlendingar án bóta
Frá fundi bæjarstjóra með atvinnulausum á Ólafsfiröi. DV-mynd Helgi Jónsson.
Guömundur
Bjarnason.
Álfrúin góða og lónið
Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra hef-
ur ákveðið að sökkva
Eyjabökkum hvað sem
það kostar. Umhverfis-
ráðherrann er með
beinskeyttari stjórn-
málamönnum og hefur
á sinni tíð unnið að þvi
hörðum höndum að
fegra umhverfi sitt svo
sem kostur er. Hún hef-
ur áttað sig á því að lón
með raflýstum eyjum,
svo sem Kristján Páls-
son alþingismaður hef-
ur lagt til, er auðvitað
stórbrotið listaverk
sem sóma mun sér á
hálendinu. Túristar
munu flykkjast að og
umhverfís lónið mætti
setja upp göngustíga
sem umhverfissinnar
gætu rölt um í fylgd
umhverfisráðherrans
og kastað brauði til
þeirra fugla sem átta
sig á nútímanum og
una í nýjum og betri
heimkynnum. Lykilat-
riðið til að hægt verði
að koma skikk á há-
lendið með slíku
stórvirki er að hið
norska Hydro fáist
til að reisa umhverf-
isvænt álver á Reyð-
arfirði. Þetta veit Siv
sem er af norsku
kyni. Þegar hún
heyrði á frændum
sínum að þeir voru
að heykjast á því að
reisa álverið brá hún
skjótt við. Hún kall-
aði norska sendi-
herrann á teppið og
gerði honum grein
fyrir að stríð væri í
uppsiglingu ef hann
ekki stæði vaktina
og reisti álverið.
Heimildarmenn Dag-
fara í ráðuneytinu
segja ráðherrann
hafa hvesst sig við
hálflanda sinn og
minnt hann á hvern-
ig fór fyrir Norð-
mönnum í Smugu-
stríðinu. Siv er
kjarnorkukona af
sama stofni og Marg-
areth Thatcher, þó auðvitað sé hún á móti kjam-
orkuvopnum. Siv er ekki kölluð jámfrúin sökum
hörku sinnar. Hin milda ásjóna hennar og ein-
lægur áhugi hennar á umhverfisvænum álverk-
smiðjum veldur því að innanlands sem utan er
hún kölluð álfrúin. Álfrúin góða og lónið er titill
Sivjar beggja vegna hafsins og þar sem sendiherr-
ann var beygður og bljúgur á teppi hennar gekk
hún umhverfis hann og þrátt fyrir milt yfirbragð
mátti ótvírætt greina ógnun í rödd hennar, þar
sem hún gerði Norðmanninum grein fyrir stöðu
hans og þjóðarinnar allrar. „Það verður stríð ef
þið hopið. Járntjald verður reist á milli þjóðanna
tveggja," sagði hún við skjálfandi sendiherrann.
Hún benti honum á að Framsóknarflokkurinn
hefði lagt allt undir I virkjunarmálinu og það
yrði ekki liðið að Norðmenn flýðu frá verki sínu.
Þá stæði undirbúningur sem hæst innan flokks-
ins hvað varðar landareignir á Austurlandi. Ýms-
ir traustir framsóknarmenn hefðu keypt landar-
eignir eystra af ráðuneyti flokksins og þeim
mætti ekki bregðast. Sendiherrann yfirgaf
komtórinn örvilnaður og samdi ýtarlega leyni-
skýrslu til norskra yfirvalda þar sem því var lýst
að Noregur væri á barmi styrjaldar vegna mál-
ins. Afrit af leyniskýrslunni var svo í samræmi
við opna stjómsýslu sent helstu fiölmiðlum á
Norðurlöndum. í ráðuneyti umhverfismála situr
Siv og kætist eftir að hafa skelft frændur sína.
Lónið og raflýstu eyjamar á Eyjabökkum eru í
öruggu sjónmáli.
Dagfari
Hinn hreini tónn
Kristján Jóhannsson stórsöngvari
var í spjalli á einhverri útvarpsstöð-
inni I gærmorgun. Þar var hann m.a.
spurður út í frétt DV
um helgina, þar sem
sagði frá 200 kílóa
leigubílstjóra er rek-
inn hafði verið úr
Karlakór Reykjavík-
ur - vegna offitu ef
marka má orð bíl-
stjórans. Kristján,
sem sjálfur er þéttur á velli,
lét þau orð falla að sér þætti maðurinn
sönglegur og vörpulegur að sjá. Sagð-
ist stórsöngvarinn tilbúinn að bjóða
bílstjóranum í söngtíma til að ganga
sjálfúr úr skugga um hvort hann gæti
sungið. Bíða margir spenntir eftir nið-
urstöðunni, vilja vita hvort bílstjórinn
hafi í raun verið rekinn úr kórnum
vegna fitu eða lélegs söngs ...
Nýbreytni fagnað
Það verður æ vinsælla að sækja
jólamessu á aðfangadag og komast
færri að en vilja. Skjár 1 hefur ákveð-
ið að koma til móts við
þá sem ekki komast í
kirkju á aðfangadag
með því að senda
beint frá jólamessu.
Mun það vera í fýrsta
skipti sem þetta er
gert. Sent verður frá
jólamessu séra Vig-
fúsar Þórs Ámasonar í Grafar-
vogskirkju. Er víst aö margir taka
þessari nýbreytni fagnandi. Einhverj-
ir kunna að velta fyrir sér af hvetju
Grafarvogskirkja varð fyrir valinu en
ástæðan er einföld. Höfuðpaurinn á
Skjá einum er Ámi Þór Vigfússon,
sonur séra Vigfúsar...
Umhverfisímynd
Þegar Jakob Magnússon var að
setja á stofn Græna herinn fýrir sið-
astliðið sumar fór hann víða og bað
fyrirtæki um stuðning.
Hann fékk stuðning
bæði RÚV og Toytota
svo fáir séu nefndir
og styrkti þannig
ímynd téðra fyrir-
tækja sem umhverf-
isvina. Jakob gekk
líka á fund Friðriks
Sophussonar, forstjóra Landsvirkj-
unar, og bauð Landsvirkjun þátttöku í
Græna heraum fyrir slétta milljón.
Þetta taldi Stuðmaðurinn að myndi
styrkja ímynd Landsvirkjunar á sviði
umhverfismála og taldi ekki af veita
og lýsti þvi fiálglega hvemig Lands-
virkjun yrði alltaf stöðugt nálæg í
þáttunum sem gerðir vora. í dag er
Jakob umhverfisvinur og safnar und-
irskriftum í erg og grið gegn áformum
Landsvirkjunar. Er sumum spurn
hvort Firðrik verði ekki að ráða
manninn.
Eins og Gústa frænka
Einhvern tíma um daginn var
Maddama Ágústa í Holti í blöðunum.
Hún kannaðist ekkert við róstur eða
fiandskap í prestakall-
inu og var bara að
hlakka til jólanna. Þá
rifiaðist það upp fyrir
Birni Þorleifssyni,
skólastjóra á Akur-
eyri, að á bernsku-
heimili hans var frú
Ágústa alltaf kölluð Gústa
frænka, enda skyld honum í móðurætt.
I framhaldinu varð til þessi friðar-
bæn.
Landsmenn strjúki kýldan kvið
og kyngi reiði og stolti.
Um veröld alla eflum frið,
einkum þó að Holti.
Biðjum fyrir þeim sem þjást,
þorni slúðurbrunnar,
og um helgihald að slást,
hætti séra Gunnar.
Hagur mannkyns heims um ból
heldur fer að vænka
ef við hugsum öll um jól
eins og Gústa frænka!
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is