Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1999, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
Fréttir
13
Hörkudeilur vegna ráöningar skólastjóra í Garðabæ:
Augljós hrossakaup
- allir kennararnir hafa sent mótmælabréf
Ný sending!
Furubekkir frá ca. 1900 / frá kr. 42.0
Úrval af smáhlutum tll gjafa
Opið: Mán. - laug. 12:00 - 19:00 / Sunnud. 12:00 -18:00
IKola / brenniofnar
frá ca. 1940 /frá kr. 85.000,-
RAÐGREIÐSLUR
Furuskápar frá ca. 1900 / frá kr. 47.000,-
Hart er nú deilt um ráðningu nýs
skólastjóra við Tónlistarskóla Garða-
bæjar. Allir kennarar skólans hafa
sent bæjarfulltrúum bréf þar sem
þeir krefjast þess að ráðning nýs
skólastjóra verði dregin til baka og
ráðningin verði á faglegum forsend-
um skólanefndar eins og reglugerð
um skólann segi til um.
Forsaga málsins er sú að Gísli
Magnússon skólastjóri hefur nú látið
af störfum vegna aldurs. Allmargar
umsóknir bárust um starf skóla-
stjóra. Skólanefnd gerði tillögu um
ráðningu til bæjarstjórnar, svo sem
venja er. Hún mælti með því, með
fjórum atkvæðum gegn einu, að
Smári Ólason, yfirkennari við skól-
ann, yrði ráðinn. Venju samkvæmt
afgreiðir bæjarráð mál af þessu tagi.
En að þessu sinni ákvað ráðið að bæj-
arstjóm myndi greiða atkvæði um
ráðninguna. Bæjarstjóm fundaði um
málið sl. firrimtudag og greiddi at-
kvæði skriflega sem mun nýlunda við
mannaráðningar, a.m.k. í seinni tíð.
Þar fékk Agnes Löve öll sjö atkvæðin.
Um helgina sendu allir kennarar
skólans bréf til bæjarfulltrúa, eins og
áður sagði, þar sem þeir mótmæltu
ráðningu Agnesar á þeirri forsendu
að hún gengi gegn reglugerð um skól-
ann. Eindreginn vilji þeirra er að
Smári verði ráðinn í starfið. Stór hóp-
ur kennaranna, sem era tæplega 40
talsins, mun íhuga að hætta störfum
verði Smári ekki ráðinn. Einn kenn-
ara, sem DV ræddi við, sagði að um
„augljós hrossakaup" væri að ræða.
Laufey Jóhannsdóttir, forseti bæj-
arstjórnar, sagði að málið yrði rætt á
næsta fundi bæjarráðs sem búið var
að boða í morgun og þar yrði bréf
kennaranna m.a. rætt. -JSS
SS og Áburðarverksmiðjan í samstarf:
Vilja tryggja há-
marksárangur
Haraldur Haraldsson, stjórnartor-
maöur Áburðarverksmiðjunnar, og
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
gengu í gær frá samstarfssamningi
fyrirtækjanna. Á myndinni meö
þeim eru Bjarni Kristjánsson, for-
stjóri Áburðarverksmiðjunnar, og
Hjalti Hjaltason, fjármálastjóri SS.
DV-mynd Hilmar Þór
SláturfélagjSuðurlands og Áburðar-
verksmiðjan hafa gert samkomulag
um sölu áburðar frá Áburðcirverk-
smiðjunni. Samkomulagið felur í sér
að viðskiptavinir SS geta bæði skilað
pöntunum á áburði til SS eða Áburðar-
verksmiðjimnar. Þá geta viðskiptavin-
ir SS greitt fyrir áburðinn með inn-
leggi afurða. Á siðasta ári annaðist SS
sölu á áburði sem nemur um 15% af
heildarsölu Áburðarverksmiðjunnar.
í fréttatilkynningu frá fyrirtækjun-
um segir að með samkomulaginu vilji
SS tryggja gæði og hreinleika afurða
sinna því erlendur áburður sé mjög
misjafn að gæðum. Áburður Áburðar-
verksmiðjunnar sé aftur á móti fram-
leiddur úr úrvalshráefhum og með
hreinni og endumýjanlegri orku. Er
hann því eins vistvænn og við verður
komið. Þá segir að með því að stuðla
að notkun áburðar frá Áburðarverk-
smiðjunni vilji SS einnig tryggja að
bændur í viðskiptum við SS nái há-
marksárangri í framleiðslu landbúnað-
arafurða. -hdm
Samkeppnisstofnun:
Engar athugasemdir
- við áramótataxta leigubíla
„Við geram ekki athugasemdir
við þetta,“ segir Valgerður Marinós-
dóttir hjá Samkeppnisstofnun um
þá ákvörðun Frama, félags leigubif-
reiðastjóra, að setja 25 prósent álag
ofan á hátíðartaxta leigubíla um
áramótin. Þetta er í fyrsta skipti
sem það er gert.
Valgerður sagði að Frami hefði
sent erindi þessa efnis til Sam-
keppnisstofnunar og borið þvi við
að ekki yrði hægt að fá fólk til að
aka yfir áramótin, nema með því að
hækka taxtann. Stofnunin hefði tek-
ið ákvörðun um að gera ekki at-
hugasemdir þar sem umræddur
stórhátíðaLaxti ætti einungis að
gilda i skamman tíma, þ.e. yfir ára-
mótin.
-JSS
Fjárfesting í hlutabréfasjóðum Landsbréfa fyrir áramót tryggir allt aö 61.344 kr. skattaafslátt.
Hlutabréfasjóöir Landsbréfa eru íslenski hlutabréfasjóðurinn og íslenski fjársjóðurinn.
Ávöxtun frá áramótum* íslenski hlutabréfasjóöurinn 25,3%
íslenski fjársjóðurinn 25,4%
Leiðin til skattaafsláttar um áramótin liggur um Landsbréf eða næsta Landsbanka.
Skattaafsláttur
Landsbanki Islands I ANDSBRl 1
*Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá'i. janíiar 1999 -1. desember 1999.
SBE 570 Rafmagnsb
570 W13 mm patrói
stlglausrofl Jr.-,
PFti 20 Lofthöggsborvél
560 W stiglaus rofi _
itösku
Umboðsmenn um allt land
ÆlasCbpco