Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1999, Side 23
O Jól á Hveravöllum
O Gefa bílnum drullutjakk
• Hvernig ganga
jólagjafakaupin ?
O Geisladiskar
Sýning á
og tæknivinnu:
Smíðuðu
eigin bíla
DV, Ólafsfirði:
Nú eru nemendur Gagnfræðiskól-
ans í Ólafsfirði komnir í jólafrí en
síðustu vikuna fyrir frí var sýning á
þeim munum sem nemendur gerðu
í handavinnu á önninni. Nemendur
sem stunduðu verkgreinar voru í
hönnunar- og tæknivinnu sem felur
í sér að þeir gera sinn eigin bíl og
setja í hann drifbúnað. Fyrst þurftu
þeir að hanna módel úr viði og síð-
an var plastað yflr mótið í bakara-
ofni. Þá voru nemendur einnig að
hanna tölustafi sem ætlaðir eru á
hús. Meðan á sýningu stóð fór fram
keppni um bestu hönnunina. Það
voru bæði stúlkur og drengir sem
tóku þátt í þessu verkefni.
Munir krakkanna á sýningunni
vöktu athygli. DV-mynd Helgi.
JóUniiöfin í ár
Praktísk og
vel smíðuð
hirsla
„Ég ætla að velja mér sérlega falleg-
an danskan beykiskenk," sagði Júlíus
Haraldsson, verslunarstjóri í Habitat í
Kringlunni, þegar DV bað hann
að velja sér jólagjöf í verslun-
inni.
Beykiskenkurinn er stakur
en fer vel með margs konar
húsgögnum að sögn Júlíusar.
„Ég sé hann fyrir mér í stof-
unni heima, þar sem hann færi
án efa vel. Maður á alltaf nóg
af dóti til að geyma í
svona skenk, það er
víst aldrei vandamál.
Þetta er praktísk og
vel smíðuð hirsla og
hinn mesti kosta-
gripur," sagði Júl-
íus Haraldsson í
Habitat.
Júlíus Haralds-
son í Habitat:
„Maður á alltaf
nóg af dóti til
aö geyma í
_svona
skenk."
Heimir Sindrason, tannlæknir og tónskáld:
„Það kitlaði barnssálina að vera jólabarn og ég hef alltaf verið ánægður með afmælisdaginn minn."
Heimir Sindrason, tannlæknir og tónskáld:
Hélt ég hefði eyðilagt jólin
- en komst síðar yfir það
„Ég er mikið jólabam í mér og
þegar ég var krakki hlakkaði ég
alveg óskaplega til jólanna," segir
Heimir Sindrason, tannlæknir og
tónskáld, en hann er fæddur 24.
desember árið 1944. Hann segir
að þegar hann var krakki hafi
hann misst af afmælisgjöfunum
þar sem hann átti afinæli á jól-
um en umbunin sem hann
fékk í staöinn hafi verið
þess virði. „Það kitlaði
bamssálina mikið að
jólabam og ég
hef alltaf
verið mjög
ánægður
með það. Ég
man hins veg-
ar að þegar ég
fór eitt sinn
sem skiptinemi
til Bandarikj-
anna leist mér
ekkert á blikuna.
Þá átti ég allt í
einu afinæli daginn
fyrir jól og það var ekkert merkilegt
við afmælið mitt. Þetta var náttúrlega
glatað og ég fór heim frekar ósáttur við
þetta mál,“ segir Heimir og hlær.
Varð ekkert númer
Hann segir að mömmu sinni hafi
fallið það þungt fyrir hans hönd að
hann hafi ekki átt neinn raunveruleg-
an afinælisdag og reynt að bæta hon-
um það upp þegar hann var krakki.
„Það gerði hún með því að halda upp á
afmælið mitt og eins bræðra minna
saman en það gekk ffernur illa. Hann á
afmæli í mars, snemma vors, en ég
auðvitað um hávetur þannig að stemn-
ingin var ólík. Mér leist samt ágætlega
á hugmyndina og þetta varð úr i fáein
ár en fyrirkomulagið datt fljótlega upp
fyrir því bróðir minn var svo óánægð-
ur með þetta. Hann var auðvitað sá
sem átti afmæli og þegar var reynt að
troða mér með, svo ég fengi líka gjafir,
varð hann ekkert númer á eigin af-
mælisdegi og hann var frekar óhress
með það,“ segir Heimir.
Ekki merkilegur afmælis-
dagur
Hann segir þó að hann hafi fengiö
fleiri afinælisgjafir hin síðari ár en
þegar hann var á bamsaldri og bætir
viö í gríni að enda séu að verða síðustu
forvöð áður en hann fari að hrökkva
upp af. „Annars kemur það ótrúlega
mörgum á óvart að maður eigi afmæli
á þessum degi. Þegar ég fer í banka og
menn lesa kennitöluna mína eru þeir
oft mjög hissa og sérstaklega af þvi að
ég er fæddur 1944. En þetta er ekki
merkilegri afmælisdagur en hver ann-
ar,“ segir Heimir.
Hann segir að þó hann hafi alltaf
verið ánægður með að eiga afinæli á
jólunum hafi hann sem bam haft mik-
ið samviskubit yfir að hafa eyðilagt jól-
in fyrir mömmu sinni. „í þá daga lágu
konur í viku á fæðingardeildinni
þannig að ég taldi mig eiga sök á að
hún missti bæði af jólum og áramótum
og þar sem ég er svo mikið jólabam
fannst mér þetta hræðilegt. Ég taldi
nefnilega dagana til jóla alveg frá upp-
hafi árs og gat ekki beðið. En ég komst
nú yfir þetta síðar,“ segir hann og
brosir.
Afmælisveisla kl. 6 á
aðfangadag
Heimir segist hafa mjög gaman af
jólaskreytingum og jólaundirbúningi
og segir að konan sín sé mögnuð jóla-
kona. „Ef hennar nyti ekki við byggi
ég nú í hálfgerðu hreysi,“ segir hann.
„Húsið er nú ekki jafnjólalegt og oft
áður á þessum tíma því hún hefúr ver-
ið önnum kafm í próflestri en það
stendur allt til bóta. Við hlökkum bara
til að halda hátfð, borða ijúpu og hafa
það gott eins og vera ber á jólurn."
Heimir segist aðspurður aldrei hafa
boðið vinum til sín í afmælisveislu á
aftnælisdaginn en segist þó hafa gert
eina undantekningu þegar hann varð
fimmtugur. „Þá bauö ég vinum og
kunningjum í mat til min kl. 6 þann 24.
desember en varð auðvitað að setja
neðanmáls að þetta væri til gamans
gert Enda mætti enginn," segir Heim-
ir og kímir. -HG
Grýlukvöld í Kolaportinu
Þorláksmessu kl. 20:00
Grýla, Leppalúði og jólasveinar gefa krökkum að 10 ára aldri 400 jólagjafir.
Þeir krakkar sem mœta í tröllabúning geta tekið þátt í keppni um
besta tröllabarnió. Grýlubörnin og Grýla fara fyrir
Markaðstorg aldamótaskrúðgöngu,
1//%I A DADTIA Opið á Þorláksmessu
KULAl UK 1 Iti Kl. 12:00-23:00