Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Side 2
2 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 JLP’W fréttir Pestarbæli í kjallara við Hverfisgötu: Miðaldra kona að drukkna í skít „Konan á húsnæðið og má gera það sem hún viil við það. Sum mál eru þess eðlis að ekki er hægt að ræða þau í fjölmiðlum," sagði Oddur R. Hjartar- son, forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, um konu á sextugsaldri sem býr í kjallaraíbúð við Hverfisgötu og hefur ekki þrifíð hjá sér svo árum skiptir heldur sankað að sér sorpi. í fyrradag bilaði rafmagnsrofi í húsi konunnar og þurftu starfsmenn Orku- veitu Reykjavikur þá að kalla út slökkviliðsmenn í eiturefnabúningum til að komast inn í kjallaraíbúð kon- unnar. Köttur í andköfum „Ég bý hér ásamt kettinum mín- um,“ sagði konan þegar DV heimsótti hana síðdegis í gær. Þegar hún lauk upp kjallarahuröinni skaust kötturinn út með andköfum eins og hann ætti líf- ið að leysa og á blaðamanni skall alda ódauns sem ekki verður lýst með orð- um. Sjálf var konan þakin skít í and- liti, íklædd tötrum. Ásýnd hennar í dyragættinni var líkust svipmynd frá miðöldum. „Við gefúm konunni frest til að taka til hjá sér. Við verðum að fara að sett- um reglum og virða friðhelgi heimilis- ins,“ sagði Oddur R. Hjartarson og undir orð hans tók Lúðvík Ólafsson, héraðslæknir í Reykjavík, sem neitaði að öðru leyti að tjá sig um málið. Að- spurðir viðurkenndu Oddur og Lúðvik að þeir hefðu aldrei komið inn í íbúð konunnar en starfsmenn Orkuveitunn- ar, sem fóru þangað inn í eiturefna- búningum, hafa látið hafa eftir sér að svínabú væru þrifaleg í samanburði við það sem mætti þeim í kjallaranum við Hverflsgötu. Verölaus eign „Ég keypti hæðina fyrir ofan kon- una en stend nú í þeim sporum að - yfirvöld ráöþrota Kjallarakonan við Hverfisgötu á leiö heim til sín. DV-mynd Hilmar Þór geta hvorki flutt inn, leigt húsnæð- henni. Fn; ið út né selt það vegna lyktarinnar urinn í ba sem leggur upp úr kjallaranum," garðinum sagði Gunnar Hjaltason sem vinnur nægir mér nú að því að gera upp íbúð í um- sagði Gur ræddu húsi. „Þegar ég bar mig upp ar Hjalta-^. við starfsmenn Heilbrigðiseftirlits- son. ins í Reykjavík trúði enginn þar lýs- -EIB ingum mínum á lyktinni. Þar bentu menn mér á að reyna að ýta við konunni og fá hana til að þrífa en ég hef ekki lagt í að banka upp á hjá Frétt DV frá í gær um starfs- menn Orku- veitunnar f eiturefna- búningunum við Hverfis- götu. Gylfi Árnason, framkvæmdastjóri Opinna kerfa hf., og Þorvaldur Jacobsen, framkvæmdastjóri Vísis.is, handsala kaupin á nýja Internetmiölaranum í húsakynnum Vísis í gær. Vísir.is kaupir öflug- an Internetmiðlara 1 gær keypti Vísir.is af Opnum kerfum hf. öflugasta netmiðlara sem starfræktur hefur verið hér á landi. Þetta er tölva af gerðinni Hewlett Packard L2000 en það er nýjasta gerð þessara miðlara. Ástæða kaupanna er sú að sífellt fjölgar heimsóknum á Vísi.is en fjölgunin hefur numið 20-25% á mánuði. Intemetmiðlarinn byggir á svo- kallaðri klasalausn og er búinn tvö- földu öryggiskerfi en það á að tryggja mikinn áreiðanleika í rekstri. -rt Keikó fær aukið rými DV, Vestmannaeyj um: Nú stefnir í að Keikó fái aukið rými í Klettsvík því í gær var lagt net þvert fyrir innsta hluta víkurinnar. Gert er ráð fyrir að há- hyrningnum verði sleppt úr kvínni út í víkina næstu vikum. Netið er mikið að vöxt- um, 285 m langt og 14 til 15 m á dýpt, með stórum flotbelgjum og gert á allan hátt eins sterkt og kostur er. Var það búið til í Netagerðinni Ingólfi i Vest- mannaeyjum. Netinu var slakað út af bryggju og það dregið út af kafara- bátnum Hamri. Netið er fest i bergið beggja megin við víkina og í botni eru stór anker og keðjur af stærstu gerð til að halda því niðri. Veitir ekki af því því straumkast er mikið í Kletts- vík, ekki síst i illviðri eins og gekk yfir sl. mánudag. Þá brotnaði kvíin á tveimur stöðum. Sex kafarar unnu við að koma netinu fyrir í gær auk annarra sem koma að verkinu. JefT Foster, yflrþjálfari Keikós, segir að með tilkomu netsins verði ákveðin þáttaskil en háhymingurinn hefur verið í kvínni frá því hann kom til Eyja í september 1998. „Við höfum verið að undirbúa þennan áfanga i marga mánuði og gerum ráð fyrir að sleppa Keikó út í Víkina ekki seinna en um miðjan febrúar,“ sagði Jeff. Gert er ráð fyrir að tvo daga taki að festa netið. -ÓG stuttar fréttir Hervör víkur ei Hervör Þor- valdsdóttir, dómari við Hér- aðsdóm Reykja- víkur, neitaði í dag að víkja sæti í meiðyrða- máli Kjartans Gunnarssonar gegn Sigurði G. Guðjónssyni. Kjart- an kærði Sigurð fýrir grein hans sem birtist í dagblaðinu Degi þriðjudaginn 31. ágúst á síðasta ári og krafðist þess að ummæh hans yrðu dæmd dauð og ómerk, auk miskabóta, birtingu dóms og máls- kostnaðar. Hervör kvað sjálf upp úrskurðinn. Stúdentaráö mótmælir Stúdentaráð mótmælir nýrri nafngift Viðskiptaháskólans og seg- ir að nafhið Háskólinn í Reykjavík gangi þvert á þá hefð að skólar kenni sig við það svið sem þeir stunda kennslu og rannsóknir á. Stúdentaráð fmnur einnig að því að Viðskiptaháskólinn sé ekki eini há- skólinn í Reykjavík þar sem fyrir eru m.a. Kennaraháskóli íslands, Listaháskóli íslands og Tækniskóli íslands Ráðherra mótmælir Heilbrigðis- ráðherra mót- mælti þeirri fullyrðingu Geðhjálpar að boðaður hefði verið 100 millj- óna króna nið- urskurður á geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. í yfirlýsingu frá heilbrigðisráðherra kemur fram að það sé miður að halda þessu fram. RÚV greindi frá. Gott útlit Einn þeirra sem fengu styrk úr verkefnasjóði Atvinnuþróunarfé- lags Eyjafjai'ðar við úthlutun á dög- unum var EgUl Jónsson tannlæknir vegna áframhaldandi þróunar staðl- aðrar fyllingar til að nota í tann- lækningum. Að óreyndu og ókönn- uðu máli lítur verkefnið næstum út fyrir að vera fyndið en hlæi hver sem vill þegar Egill uppfmn- ingatannlæknir verður kominn með einkaleyfi um allan heim. Dagvist stórhækkar Gjöld fyrir 8 tíma dagvistun bams í forgangshópi hafa hækkað um allt að þriðjung á síöustu tveim- ur árum. Þetta kemur fram á vef Al- þýðusambands Islands. Þá kemur fram að gjöld fyrir 8 tíma dagvistun barns hjóna eða sambúðarfólks hafa hækkað um allt að fjórðung á sama tímabili. Laun Rnns upp Samkvæmt því sem Dagur kemst næst hækkar Finnur Ingólfsson í launum um allt að 35% með því að fara úr ráð- herrastóli yfir í Seðlabankann. Kjaradómur úr- skurðaði nýlega um laun ráðherra og frá 1. janúar sL voru þau rúmar 546 þúsund krónur á mánuði að meðtöldu þingfararkaupi. Laun bankastjóra Seðlabankans munu vera um 740 þúsund krónur á mán- uöi. Níu skiptu um kyn Þegar hafa níu íslendingar gengist undir kyn skiptiaðgerð og af þeim eru sex karlmenn sem í dag eru konur en þijár konur sem í dag eru menn. Þrir þeirra eru undir 16 ára aldri og aðrir þrír yfir fimmtugu. í dag er vitaö um fjóra einstaklinga sem bíða eftir að komast i aðgerö. Verðstrið í Lundúnaflugi Allt stefnir í hörku verðstríð í flugi til Lundúna í sumar. Flugleið- ir hafa þegar kynnt ferðir á 18.900 krónur og um helgina kynna Heimsferðir vikulegar ferðir sínar til borgarinnar á 17.900 krónur. Báðar upphæðimar eru að meðtöld- um sköttum. -GAR/JAB/hól

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.