Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 DV
... í prófíl
Það er erfxtt að vera giftur. Þetta
vita allir sem hafa reynt. Ef
hjónabandið er vel heppnað þá
er það botniaus og blind sæla til ævi-
loka en vont hjónaband, með enda-
lausu stríði og vopnuðum átökum og
skilningsleysi er ávísun á óhamingju.
Hugtakið raðgifting var til skamms
tíma lítt eða ekki þekkt í íslensku
máli en sennilega vita allir við hvað
er átt. Flestir þekkja einhvern sem á
að baki fleiri en eitt hjónaband eöa
sambúð og afkastamesta fólkið getur
talið slík ævintýri í tugum. Sennilega
á Kristmaim Guðmundsson rithöfund-
ur (1901-1983) metið hvað fjölda hjóna-
banda varðar en hann mun hafa gifst
átta sinnum alls.
Skilnaðartíðni hefur aukist á sein-
ustu áratugum síðasta árþúsunds og
nú munu skilnaðir á íslandi vera ár-
lega á bilinu 500-600. Fjöldi óskráðra
sambúða skilar sér ekki inn í þá töl-
fræði svo líklegt er að raunverulegur
fjöldi skilnaða sé eitthvað meiri. Til
samanburðar er fjöldi hjónavígslna á
íslandi á bilinu frá 1200-1400 á hverju
ári um þessar mxmdir.
viðkvæmt málefni sem varðar hjóna-
bandið. Þá er hægt fylgjast með heila-
bylgjum, blóðþrýstingi, hjartslætti og
fleiri þáttum sem hafa áhrif á hegðan
okkar í samskiptum við aöra. Samtöl-
in eru einnig tekin upp á myndband.
Dr. Gottmann segist hafa komist að
þeirri niðurstöðu m.a. aö óhamingju-
samt hjónaband auki líkur á því að
missa heilsuna um 35% og stytti að
jafnaði líf beggja um 4 ár. Það er sem
sagt ekki bara óþægilegt að vera illa
giftur heldur beinlínis lífshættulegt.
Gottmann segist geta spáð um afdrif
hjónabanda með öryggi í 90% tilvika.
Hjón sem leita til hans geta fengið
svar við spumingunni: Mun hjóna-
bandið endast?
Lítum sem snöggvast á einfalt próf
sem Gottmaxm notar við undirbúning
rannsókna siima.
Mun hjónabandið
endast?
Svaraðu eftirfarandi spumingum
með já eða nei og teldu síðan saman
hve mörg jákvæð svör þér tókst að
fá.
1. Ég þekki vonir og þrár maka
míns í lífinu og hvert hann/hún vill
stefna.
2. Ég veit af hverju maki minn hef-
ur mestar áhyggjur um þessar
mundir.
3. Ég veit hvaða þrír dagar í lifi
maka míns hafa mesta þýðingu fyr-
ir hann/hana.
4. Ég get nefnt þrjá eiginleika sem
ég dái í fari maka míns.
5. Ég sýni maka mínum oft blíðuhót
og snerti hann/hana.
6. Kynlíf okkar er að jafnaði í góðu
lagi.
7. Ég hlakka til að eyða fristundum
með maka mínum.
8. Maki minn er einn minn besti
vinur.
9. Maki minn segir mér yfirleitt
hvemig dagurinn hefur liðið.
10. Ég hef yfirleitt áhuga á skoðun-
um maka mins og afstöðu.
11. Mér finnst ég geta lært af maka
mínum, jafnvel þótt við séum ekki
sammála.
12. Þegar viö deilum finnst mér
vera tekið mark á mínum skoðun-
um.
13. Ég get viðurkennt þegar ég hef
rangt fyrir mér í deilum við mak-
ann.
14. Við getum gert að gamni okkar
um málefni sem við erum ekki sam-
mála um.
15. Maki minn hefur gott lag á að
róa mig ef ég kemst í uppnám.
16. Maki minn og ég erum gott „lið“
saman.
17. Þegar við deilum skiptir ekki
öllu máli fyrir mig að hafa betur.
18. Ég sætti mig við að um ákveðin
málefni verðum við aldrei sammála.
19. Við deilum ábyrgð hjónabands-
ins með okkur og getum bæði kom-
ið fram fyrir hönd fjölskyldunnar.
20. Við eigum góðar minningar
saman.
Fékkstu fleiri en þrettán jákvæð
svör? Þú ert I góðu hjónabandi sem
mun endast þangað til þið eruð bæði
orðin tannlaus og kölkuö og komin
með bleiu. Þá verðið þið enn svo ást-
fangin aö það mun ekkert pirra ykk-
ur.
Voru jákvæð svör á bilinu 7-12?
Hjónabandið stendur á tímamótum.
Það eru veikleikar sem hægt er að
bæta og það eru sterkir þættir sem
geta fleytt ykkur áfram. Það er kom-
inn tími til að þið farið saman í helg-
arferð bara tvö.
Voru jákvæð svör færri en 6? Þetta
hjónaband er í hættu á að leysast upp.
Ef þér finnst það slæm tilhugsun eru
enn til nægar tilfmningar til aö bjarga
því. Ef ekki þá skuluð þið annaðhvort
leita aðstoðar eða fara hvort sína leið.
Nokkur algeng
hættumerki
Það er sagt að næst á eftir oröun-
um: „er hann kominn inn?“ óttist
karlmenn ekkert eins mikið og oröin:
„við þurfum að ræða sarnan." Margir
karlmenn eiga erfitt með að ræða um
tilfmningar og flókin samskiptamál
þvi þeir eru vanari því að láta verkin
tala og finnst að konur tali fyrst og
fremst til að ræða málin í kaf. Þetta
ættu menn ekki að óttast því auðveld-
ara er að leysa úr vandræðum í hjóna-
bandi meðan þau eru enn á frumstigi
og ekki vaxin hjónunum yfir höfuö.
Ef þú getur svarað tveimur eða
fleiri eftirfarandi fullyrðingum ját-
andi eru vandræði í uppsiglingu og
þið hjónin ættuð að setjast niður strax
og ræða málin.
1. Þegar ég er með makanum vil ég
gjaman vera annars staðar.
2. Það er spenna á milli okkar.
3. Makinn veit yfirleitt ekki hvað ég
er að hugsa.
4. Ég vildi að samband okkar væri
nánara.
5. Maki minn hefur viljað vera mik-
ið einn undanfarið.
6. Við deilum meira en við gerðum
áður.
7. Upp á síðkastið höfum við ekki
gert neitt skemmtilegt saman.
8. Smámál vilja vinda upp á sig og
verða að stórum ágreiningsefnum.
9. Við höfum sært tilfinningar
hvort annars nýlega.
10. Við þurfum virkilega að setjast
niður og ræða um hjónabandið.
megin: Eftirfarandi eru útbreiddar
goðsagnir um hjónaband og samlíf
og álit dr. Gottmans á þeim.
1. Hjón verða að jafna ágreining
sinn. Gottmann segir að í 69% til-
vika sé ágreiningur hjóna djúpstæð-
ur og óleysanlegur.
2. Leitið hjónabandsráðgjafar.
Rannsóknir sýna að einungis 35%
þeirra sem leita sér hefðbundinnar
hjónabandsráðgjafar sjá framfor.
Aðeins 18% töldu ári eftir ráðgjöf að
hjónabandið hefði batnað.
3. Það verður aö skipta húsverkun-
um jafnt. Báöir bera ábyrgð á heim-
ilinu og því sem þarf að gera þar. Sá
sem stendur i tímamælingum og er
að telja húsverk sem hann á inni
hjá makanum er sennilega ekki
ástfanginn lengur.
4. Karlar eru frá Mars, konur
eru frá Venusi. 70% eiginkvenna
segja að vinátta þeirra við eigin-
manninn sé undirstaða góðs kynlífs.
70% eiginmanna segja það sama. Af
þessu má ráða að kynin eru frá
sömu plánetunni eftir allt saman.
5. Karlmönnum er ekki eiginlegt að
vera einhleypir. Sumir afsaka fram-
hjáhald með því að segja að karl-
menn séu nú bara einu sinni svona.
Þetta er ekki náttúrulögmál og er
reyndar argasta þvæla. Tíðni fram-
hjáhalds er ekki bundin við kyn-
ferði heldur aðstæður. Fjöldi ungra
kvenna sem segjast hafa haldið
fram hjá manni sínum er heldur
meiri en karla sem játa framhjá-
hald.
6. Framhjáhald er helsta ástæða
skilnaða. Þetta er ekki rétt. Sam-
kvæmt niðurstöðum dr. Gottmanns
segja 80% hjóna sem skilja að þau
hafi fjarlægst á löngum tíma og
framhjáhald hafi því fremur verið
afleiðing en orsök.
-PÁÁ
Vísindi og ást
Alls staðar í heiminum langar
menn og konur til þess að njóta ham-
ingju i hjónabandi og árlega er gefinn
út fjöldi leiðsögubóka um refilstigu
hjónabandsins, hjónabandsráðgjöf er
arðbær og vinsæll útvegur og mý-
mörg húsráð ganga manna milli hvað
þetta varðar. Vestur í Bandaríkjunum
hefur virtur vísindamaður helgað sig
rannsóknum á þessu sviði og byggt
um sig heila stofnun. Sá heitir John
Gottmann og er forstöðumaður The
Gottmann Institute sem er rekin í
tengslum við Washington- háskólann
í Seattle. Dr. Gottmann hefur að sjáif-
sögðu gefið út bók sem fjallar um að-
ferðir við að bæta hjónabandið en hef-
ur einnig vakið athygli fyrir vísinda-
lega nálgun sína við rannsóknir á
hjónabandi. Gottmann tengir fjölda
rafskauta við hjón og pör sem koma í
rannsóknarstofu hans og stýrir síöan
umræðum þeirra á milli um eitthvert
Þaö er stundum sagt aö ástin lækni öll mein og rannsóknir sýna aö óhamingjusamt hjónaband leiöir til tíöari veik-
inda og styttir meöalævi um fjögur ár. Þessi hjón viröast hafa komist yfir þaö versta.
Nonni
- klippari
forsetans og
biskupsins
Fullt nafn: Jón Halldór Guð-
mundsson.
Fæðingardagur og ár: 21. janú-
ar ‘62.
Maki: Erla Arnardóttir.
Börn: Halla Karen, 16 ára, Elín
Klara, 7 ára, og Hjálmar Gauti, 6
Skemmtilegast: Mér finnst gam-
an að ferðast erlendis.
Leiðinlegast: Ryksuga.
Uppáhaldsmatur: Villibráð.
Uppáhaldsdrykkur: Gott rauð-
vín.
Fallegasta manneskja fyrir
utan maka: Meg Ryan.
Fallegasta röddin: Tom Jones.
Fallegasti líkamshluti: Tits and
ass.
Hvaða hlut finnst þér vænst
um? Gamla skenkinn sem ég
fékk frá ömmu minni.
Hvaða teiknimyndapersóna
myndirðu vilja vera? Batman,
hann er alltaf með flottar dömur.
Uppáhaldsleikari: Don John-
son.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Ómar Diðriksson trúbador.
Sætasti stjórnmálamaður:
Engin neitt sérstaklega lagleg.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Mi-
ami Vice.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Verðbréfaauglýsingar.
Skemmtiiegasta kvikmyndin:
Greace.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn: |
Dóra Takefusa.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Skuggabarinn.
Besta „pikk-öpp“-línan: Sérðu
hvað ég er með stórar hendur.
Því stærri hendur, því stærri...
Hvað ætlaðir þú að verða?
Bestur.
Eitthvað að lokum: Permanent-
ið dettur inn aftur.
Hann heitir Jón en gengur
undir nafninu Nonni á Effect.
Hann á heiðurinn af frægustu
klippingum landsins á tveimur
tignustu mönnum landsins,
það er forseta okkar, hr. Ólafi
Ragnari Grímssyni, og biskupi
íslands, hr. Karli Sigurbjörns-
syni.
Mun hjónabandið endast?
- taktu prófið og mældu ástarhitann