Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 55 Leigáflstjórarbaðisigoftar Ferðamálastjórinn í Dublin heíur sent frá sér yflrlýsingu þar sem hann hvetur leigubílstjóra borgar- innar til að baöa sig oftar og fara í hrein föt. Að sögn ferðamálastjórans hafa fjölmargir erlendir ferðamenn kvartað undan því að leigubílar séu subbulegir og að bílstjóramir lykti illa. Þá hefur ferðamálastjórinn lagt til að leigubílstjórar gangist eftirleiðis undir eftirlit þar sem bæði bilar og menn eru skoðaðir hátt og lágt. Að- eins þannig muni takast að gera ieigubílakerfi borgarinnar boðlegt ferðamönnum sem og borgarbúum. Metaðsókn Hinni umdeildu myhdlistarsýn- ingu, Sensation, lauk nýverið í Brooklyn-lista- safninu í Bandarikjun- um. Aldrei áður hefur myndlistarsýn- ing i safninu hlotið jafn- mikla umflöll- un i fjöliniðlum og má helst þakka það borgarstjóra New York, Rudolph Guiliani, sem upphóf deilur við safnið. Það sem fór helst fyrir bijóstið á borgarstjóran- um var myndverk af Maríu mey sem var skreytt filaskít og hótaði hann að afhema alla styrki til safhsins. Svo fór ekki því Guiliani sá að málstaö- urinn var slæmur og vinsældir sýn- ingarinnar jukust með hverjum deg- inum. Við lokun sýningarinnar var ljóst aö 170.000 manns höfðu skoðað hana sem er sögulegt met í safninu. Snjóleysi á Nýja-Englandi Snjóvélar eru keyrðar daginn út !og inn á Nýja-Englandi í Bandaríkj- unum þessa dagana. Þar hefur snjó- leysi háð mjög allri Iskíðaiðkan en svæðið er frægt fyrir hin | bestu skiðalönd. Menn spyija sig hvað sé að gerast þeg- , ar skíða- brekkur eru snjólausar í janúar en á sama j tima séu margir golfvellir enn opnir. Svartnætti blasir við, segir ferða- Íþjónustufólk, ef hann fer ekki snjóa á næstunni. í ríkinu Maine hafa til að mynda ekki verið fleiri dagar samfleytt án snjókomu síöan skrán- ing hófst árið 1881. Þar hefur ekki snjóað síðan 16. mars á síðasta ári, eða í um 300 daga. Skosku hálöndin voru viðkomustaöur belgíska feröamannsins sem tók stein úr fornri gröf. Steinninn reyndist hinn mesti óhappasteinn. Belgískur ferðamaður stelur steini: Skoski steinninn reyndist óheillagripur Belgískur ferðamaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sendi á dögunum böggul til skoska ferða- málaráðsins. í pakkanum var tveggja kílóa steinn sem starfsmenn ferðamálaráðsins vissu í fyrstu ekk- ert hvað þeir ættu að gera við. En skýringin var ekki langt undan því í bréfi sem ferðamaðurinn skrifaði kom fram að hann hefði gripið hnullunginn þegar hann var á ferð um skosku hálöndin. Hann kvaðst hafa tekið steininn úr gröf sem talin er 2000 ára gömul og jafnframt ein sú elsta á Skotlandi og haft með sér heim. Ekki hefði viljað betur til en svo að þegar steinninn var kominn á arinhilluna hefðu óhöppin tekið að dynja á fjöl- skyldunni. Dóttirin á heimilinu hefði fótbrotnað, hann sjálfur misst vinnuna og eiginkonan veikst. öll spjót beindust að steininum en manninum datt ekki í hug að henda honum heldur taldi mikilvægt að hann kæmist aftur á sinn stað. Það ætlar skoska ferðamálaráðið að annast og verður steinninn kominn í gröflna innan tiðar. -Reuter Árþúsundaferð Ferðafálags íslands: Þorrablót í tunglmyrkva Ferðafélag íslands efnir til árþús- undaferðar í Þórsmörk þann 21. janúar næstkomandi. Ferðin er um margt spennandi og kannski ekki síst fyrir þær sakir að farið verður á fullu tungli í upphafi þorra. Að sögn Kristjáns Baldurssonar hjá Ferðafélaginu verð- ur þorri blótaður eftir hentugleikum. „Við leggjum upp á fóstudagskvöldi en eins og alltaf á þessum árstíma höfum við varann á þvi færð getur verið erf- ið. Sá möguleiki er fyrir hendi að gista þurfi í byggð undir Eyjafjöllum fyrri nóttina og þá reynt að komast inn eft- ir snemma á laugardagsmorguninn." Aðfaranótt laugardagsins verður al- myrkvi á tungli og vonandi að ferða- langar fái heiðskírt veður. Skuggi tek- ur að færast yfir tunglið um tvöleytið um nóttina en myrkvans fer ekki að gæta að ráði fyrr en klukkutima síðar. Gist verður samkvæmt venju í Skagfjörðsskála og segir Kristján að laugardeginum verði varið í göngu- ferðir eftir því sem færð og veður leyfa. Um kvöldið er hugmyndin sú að Blysför og tunglmyrkvi er meöal þess sem farþegar Ferðafélagsins munu eiga von á í Þórsmörk um aöra helgi. ferðafélagar komi sér upp sameigin- legu þorrahlaðborði og mun ferðafélag- ið leggja til rófustöppuna. Að kvöld- verði loknum verður mannskapurinn síðan driflnn í blysfór um Langadal. Á sunnudeginum er fyrirhuguð létt morgunganga áður en haldið verður heimleiðis. Nánari upplýsingar fást hjá Ferðafélaginu. Sn f' /(/xijöíjmmi í/ c/acj a husgognum Eæll ffi ft |L,J| P !|gg föstudag 14. jan., kl. 10-18, og laugard. 15.jan.,kl. 10-17. Lítillega útlitsgallað og fleira. Selt með miklum afslætti. lusgogn Bæjarhrauni 12 Hf. * Sími 565 1234 Str c| $ Fjölbreytt úrvai léttosta! Kotasæla Lágt fituinnihald ogfáar hitaeiningar! Hrein, mecf ananaskurli eða með eplum og vanillu. Sígild á brauð, hrökkbrauð og kex, í salöt eða ofnrétti. Létt-Brie Sannkallaður veisluostur. Léttur og góður með brauði, kexi ogferskum ávöxtum. ÍSLENSKIR W OSTAR, www.ostur.is nejuruu prujuu ostateninga í salatið? Þú gctur notað hvort sem er 11% eða 17% Gouda til að búa til salat sem erfullkomin, létt máltíð. Einnigfæst sérstakur Salatostur tilbúinn í litlum teningum. LéttOstur Hreinn, með grænmeti eða með sjávarréttum. Frábært tríó á léttu nótunum. Smurostamir eru þægilegt, bragðgott álegg og líka spennandi í ofnrétti og sósur, t.d. meðfiski, pasta eða greenmeti. Kotasæla með hvíthmk. Bragðmikil ogfitulítil freisting! LéttOstur í 20 g pakkningum. Handhægur og fitulitill.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.