Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 UV Qakamál Konan sem hvarf var í verkf ærakassanu m Þaö var hálfskýjað og viðraði vel til veiða mánudagsmorguninn 12. maí 1997. Tveir menn, sem voru á bát sínum á Kanawhaf-ánni nálægt St. Albans í Vestur-Virginíu, sáu þennan morgun und- arlegan hlut á floti skammt undan árbakkan- um. Veiðimennimir hringdu í lögregluna, sem kom á vettvang með hóp aðstoðarmanna, til þess að skoða nánar stóran kassa þakinn aur og þör- ungum. Það lak úr kass- anum þegar hann var hífður á land. Þegar lögreglumenn- imir opnuðu lokið á svarta kassanum flaut konuhönd út úr honum. Á einum fingranna var hringur. Ungum kven- mannslíkama hafði verið troðið í kassann og svo virtist sem höfuð konunnar hefði verið nær skilið við búkinn. Einhvers konar band hafði verið reyrt um háls konunnar. Þó svo að hægt hefði verið að læsa kassanum með lykli var hann ólæstur. Hafði sótt um skilnað frá eiginmanninum Líkið var illa leikið en fotin áttu við lýsingar á klæðnaði konu sem lýst hafði verið eftir. Hún hét Leigh Ann Holley og var tveggja bama móðir. Það kom fljótlega i ljós að líkið var af Leigh Ann sem nýlega hafði sótt um skilnað frá eigin- manni sínum. Leigh Ann hafði verið saknað í 40 daga. Bíll hennar hafði fundist í innkeyrslu Rickeys Holleys þar sem hún hafði skilið böm sín tvö eftir flmmtudagskvöldið 3. apríl 1997. Samkvæmt úrskurði dómstóls hafði eiginmaður Leigh Ann leyfi til að hafa börnin hjá sér um helgar. Foreldrar Rickeys Holleys, sem bjuggu skammt frá henni, greindu frá því daginn eftir að þeir hefðu ekki séð Leigh Ann síðan kvöldið áður. Það varð til þess að móðir Leigh Ann tilkynnti lögreglunni að dóttir hennar væri horfin. Mannrán var ekki taliö útilokað og var málið því fengið alríkislög- reglunni til rannsóknar. Samvinnuþýður við rannsókn morðsins Rickey Holly var starfsmaður hjá fyrirtæki sem lagði hellur. Hann tók þátt í kappakstri í frí- stundum. Rickey var sagður hafa verið samvinnuþýður við lögregl- una við morðrannsóknina. Ná- kvæm rannsókn var gerð á bíl hans og einnig á bil Leigh Ann. Lögreglan fann ekkert athugavert við rannsóknina á farar- tækjunum. „Er þetta jeppinn þinn,“ spurði lögreglumaður og benti á rauðan og gráan Chevrolet í innkeyrslu Rickeys. Holley staðfesti að svo væri og sagði að lyklarnir væru líklega enn í bílnum ásamt öðr- um lyklum. Rannsóknarlögreglu- maðurinn Ray Flint teygði sig inn í bílinn til þess að ná í bíllyklana. Hann tók einnig lykil í sæti bifreiðarinnar. Leigh Ann hafði verið barin og stungin til bana. Öxi eða beitt verkfæri hafði verið notað til voða- verksins. Blár nælon- taumur hafði verið reyrð- ur um háls konunnar. Engir blóðblettir fundust Líkinu hafði verið kom- ið fyrir i kassanum í fóst- Saksóknarinn Bill Forbes kvaöst ánægö ur meö úr- skurö kviö- dómenda. urstellingu. Kassinn var af þeirri gerð sem oft er höfð á pallbílum. Sagt hafði verið að Leigh Ann hefði verið í stuttbuxum þegar hún hvarf en líkið var klætt í svartar leggja- buxur. Leigh Ann hafði verið falleg ung kona með ljóst hár niður í mitti. Ray Flint yfirheyrði Rickey Holly og hann var aftur kallaður i þriggja til fjögurra klukkustunda yf- irheyrslu. Níu klukku- stunda leit í húsi Rickeys Hollys leiddi ekkert í Ijós. Þar fundust engir blóð- blettir. I nóvember 1997 var Rickey Holley ákærður fyrir morð. Dómari úr- skurðaði hann í stofufang- elsi þar til réttað yrði í máli hans. Réttarhöldin hófust í fyrravor. Nokkrum mánuðum seinna var Rickey leyft að yfirgefa heimilið þar sem hann dvaldi með ömmu sinni og flytja inn á sitt eigið heimili ekki langt frá. Dómstóll heimilaði flutning- inn og Rickey var enn leyft að hafa samband við börn Ofsótti eiginkon- una Náinn vinur Rickeys greindi frá því að hann hefði bannað honum að segja frá þvi að hann hefði ofsótt konu sína. Kona nokkur greindi frá því að þegar Leigh Ann hefði haldið innflutn- ingspartí hefði Rickey hringt fimm sinn- um í hana. Annað vitni full- yrti að ' Rickey Holley hefði sýnt ofsa og reynt að kaupa óskráða byssu. Aðstoðarsaksóknarinn Kim Hind- man greindi frá því að Rickey Holley gæti ekki gert grein fyrir at- höfnum sínum allt kvöldið sem Leigh Ann hvarf. Hann hafði verið að gera viö kappaksturbíla ásamt fleirum en vitni greindi frá því að hann hefði horfið af vettvangi til þess að sækja vara- hluti. Lík Leigh Ann fannst ekki langt frá vinnu- stað Rickeys. Hann hefði hins vegar þurft að myrða hana, lim- lesta lík hennar, koma því fyrir í kassanum og fleygja honum i ána á 15 til 20 mínútum og snúa aftur til félaga sinna i hrein- um og þurrum fotum. Ótrúlegt virt- ist að það hefði tekist á svo skömm- um tíma. Ekki var heldur ljóst hvar Leigh Ann hafði verið myrt. Hefði hún verið myrt ofarlega með ánni og lík- inu strax komið fyrir í verkfæra- kassanum hefði kassinn flotið niður eftir ánni um 16 kílómetra áður en hann fannst. Ekkert benti til þess að bílar Holleyhjónanna hefðu verið notaðir við flutning á líkinu áður en því var komið fyrir í votri gröf. Vitni báru að Rickey Holley hefði neytt Leigh Ann með sér í ferðalag til Flórída til að reyna að ná sáttum. Að sögn vitna hafði Rickey beðið Leigh Ann um að koma með sér til að prófa nýjan bíl sem hann hafði fengið sér. Lykillinn í framsætinu Saksóknarar sögðu að lykillinn, sem fannst í framsæti jeppans pass- aði að verkfærakassanum sem hífð- ur var upp úr ánni. Verjandi Rickeys kom hins vegar með nokkra verkfærakassa í réttarsal- inn og sýndi að sami lykill gekk að þremur af fjórum kössum sömu teg- undar. Saksóknarar héldu því fram að morðingi var dæmdur í lífstíöarfangelsi. fundur líksins nálægt vinnustað Holleys og að hann skyldi hafa undir höndum lykil sem passaði að verkfærakassanum sannaði sekt hans. Eitt vitnanna bar einnig að það hefði geflð Holleyhjónunum bláan taum fyrir hund rétt fyrir morðið, sams konar taum og fannst um háls hinnar myrtu. Þann 14. maí 1999 var Rickey Holley fundinn sekur um morð. Hann var dæmdur í lífstíðarfang- elsi. Móðir Leigh Ann sagði við tengdason sinn í réttarsalnum þar sem hann sat og starði niður i borð- ið fyrir framan sig. „Ég mun aldrei fyrirgefa þér. Þú ert vondur. Þú átt ekki skilið að þér sé sýnd nokkur góðvild."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.