Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000
43*»
%imm
Brekkurnar þurfa ekki að vera erfiðar
:: líítrfW"
^TrÍmm
fe/.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
ínu neTur rario rram utarattur nusoreta
í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 25. útdráttur
4. flokki 1994 - 18. útdráttur
2. flokki 1995 - 16. útdráttur
1. flokki 1998 - 7. útdráttur
2. flokki 1998 - 7. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 2000.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess Liggja upplýsingar frammi hjá íbúðalánasjóói,
í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Ibúðalánasjóður
| Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
Skokkarar landsins bíða spenntir
eftir birtingu hlaupadagskrár ársins
svo skipuleggja megi þær keppnis-
greinar sem ætlunin er að taka þátt
í. Hún er væntanleg fljótlega en á
meðan beðið er gæti verið gagnlegt
að rýna í helstu maraþonhlaupin er-
lendis á nýbyrjuðu ári. íslenskir
skokk-
arar
eru
famir í
vax-
andi
mæli
farnir
Aö sögn kunnugra er þaö merkileg lífsreynsla aö taka þátt í fjöl-
mennu maraþonhlaupi í einhverjum af stórborgum heimsins.
að sækja í borgarhlaup er-
lendis og láta jafnvel eftir
sér að fara í fleiri en eitt á
hverju ári. Að sögn kunn-
ugra er það merkileg lífs-
reynsla að taka þátt í fjöl-
mennu maraþonhlaupi í
einhverjum af stórborgum heims-
ins. Hér á eftir fylgir listi yfir dag-
setningar helstu borgarhlaupa
heimsins á líðandi ári:
Þess má geta til viðbótar þessari
upptalningu að Mývatnsmaraþon er
dagsett 23. júní í ár. -ÍS
Tyggjó er megrandi
Þeir sem sífellt eru jórtrandi
tyggjó verða oft fyrir háðsglósum
annarra sem finnst þannig iðja
vera alger tímasóun. En nýjustu
rannsóknir benda til þess að nota
megi tyggjó sem megrunaraðferð.
í desembermánuði síðastliðnum
voru birtar niðurstöður úr rann-
sókn sem gerð var á veguni hins
virta tímarits, New England Jo-
urncd of Medicine. Niðurstöður
þeirrar könnunar voru á þá leið
að sá sem jórtrar tyggigúmmí
brennir töluverðum fjölda af
kaloríum við þá iðju. Ef miðað er
við jórtur í eina klukkustund þá
eyðir viðkomandi að jafnaði 8
kaloríum á þeim tíma. Þeir sem
eru duglegir við jórtur
tyggigúmmfs geta því brennt alft
að 90 kaloríum við þá iðju eina ef
um 8 klukkustundum er varið í
það á hverri dagstund.
-ÍS
Staður Stund
Möltu-maraþon febrúar
Los Anqeles-maraþon 5. mars
Maui (Hawaii)-maraþon 19. mars
Barcelona-maraþon 19. mars
Lundúnamaraþon 6. apríl
Parísarmarabon 9. apríl
Nashville-marabon 29. apríl
Rotterdam-maraþon apríl
Boston-maraþon 17. apríl
Kínamúrsmaraþon maí
Stokkhólmsmaraþon 3. júní
Manitoba-maraþon 18. júní
San Francisco-marabon 9. iúlí
Nova Scotia-maraþon 23. iúlt
Helsinki-marabon 14. áqúst
Berlínarmaraþon september
Hróa hattar-marabon 26. september
Toronto-maraþon 15. október
Chicaqo-maraþon 22. október
Aþenumaraþon 5. nóvember
Flestir skokkarar kannast við
þá þreytu- og vonleysistiifinningu
sem heltekur skrokkinn þegar
hlaupið er upp erfiðar brekkur.
Fyrir suma er það nær óleysanlegt
vandamál og margir hafa tilhneig-
ingu til þess að hlaupa aðeins á
jafnsléttu. Engin ástæða er þó til
þess að örvænta. Með skynsemi og
markvissri æfingu er nánast hægt
að eyða þessu vandamáli og
brekkurnar verða nánast aukaat-
riði 1 hugum skokkafa ef rétt er á
málum tekið - hvort sem hlaupið
er upp eða niður í móti.
Lausnin felst að mestu leyti í að
viðhalda hlaupataktinum. Margir
skokkarar streða mikið við að við-
halda hraðanum í meginatriðum
þegar hlaupið er upp í móti. Þó að
það geti gengið einhvern afmark-
aðan tima kemur það í flestum til-
fellum niður á viðkomandi á síð-
ari stigum hlaupsins. Þeir sem
kunna að takast á við brekkurnar
þekkja þetta ferli. Þeir eru ekkert
Umsjón
Isak Örn Sigurðsson
að stressa sig á því þegar aðrir eru
að fara fram úr þeim í brekkun-
um. Þeir vita sem er að þeir munu
komast fram úr þeim á síðari stig-
um hlaupsins.
Skokkarar ættu í raun að líta já-
kvæðum augum á mishæðirnar
því brekkur eru tilvaldar til að
kenna réttan hlaupatakt sem er
einn mikilvægasti þátturinn i ár-
angri hvers hlaupara. Ef brekkun-
um er leyft að eyðileggja taktinn
er ekki von á góðu. Þeir sem
vemda hlaupataktinn í brekkun-
um eru yfirleitt þeir sömu og eiga
nóg eftir í endasprettinn í lok
hlaupanna.
****
Z&r ' 1
'V
. RÍ
r.
«
Erlend hlaupadagskrá:
Borgarhlaup er ævintýri
Skokkarar ættu í raun aö líta jákvæöum
augum á mishæöirnar því brekkur eru
tilvaldar til aö kenna réttan hlaupatakt
sem er einn mikilvægasti þátturinn í ár-
angri hvers hlaupara.
Ondunin er mikilvæg
Hvort sem hlaupið er upp eða
niður í móti er mikilvægt að
reyna að viðhalda sömu öndun-
inni og gert er á jafnsléttu. Reynið
að forðast að hafa áhyggjur af því
þó að hraðinn detti niður í brekk-
unum. Styttið skrefin eftir því sem
brattinn eykst og lengið þau aftur
ef brattinn minnkar. Það er allt í
lagi að taka „barnaskref ‘ ef bratt-
inn er mikill. Lyftið fótum eins lít-
ið frá jörðu og hægt er að komast
af með. Hlaupatakturinn á alltaf
að vera sá sami og áreynslan
nokkum veginn sú sama í brekk-
unum og á jafnsléttu. Ef öndunin
verður hraðari táknar það að of
hratt er hlaupið eða fótunum lyft
óþarflega mikið frá jörðu.
Mikilvægt er að reyna að
hlaupa nokkurn veginn uppréttur,
svipað og gert er á jafnsléttu. Það
hefur þreytandi áhrif að halla sér
fram þegar hlaupið er upp í móti
og að sama skapi ef menn halla
sér mikið aftur þegar hlaupið er
niður í móti. Að auki má búast við
verkjum í mjóhrygg og fótum ef
skrokkurinn er ekki í nokkum -
veginn lóðréttri stöðu. Ef skokkar-
ar verða varir við verki í mjóbaki
á uppleið er oftast því um að
kenna að menn halli sér of mikið
fram. Ef menn hins vegar fmna
fyrir eymslum í öxlum eða had-
leggjum á uppleið má líklega bæta
úr því með því að sveifla höndun-
um minna og halda þeim nær lík-
amanum.
Á sama hátt má yflrlett rekja
bakverki á niðurleið til þess að
menn hall sér of mikið aftur. Ef
menn tapa hlaupataktinum á nið- ’
urleið er það yfirleitt vegna þess
að of hratt er farið.
Mikilvægt er að hafa ekki
áhyggjur af tapi meðalhraðans
þegar glímt er við brekkurnar.
Staðreyndin er sú að hann eykst
frekar en minnkar ef farið er að
þessum ráðleggingum. Þaö geta
menn aðeins reynt með þvi að
prófa þessar aðferðir á sjálfum
sér.