Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 JjV
ifréttir
Átökin um eignaraðildina í Mjólkursamlagi Kaupfélags Eyfirðinga:
Bændurnir eiga Samlagið
- segir Benedikt Hjaltason, stærsti mjólkurframleiðandi landsins
Benedikt Hjaltason: „Teljum okkur eiga Samlagiö." DV-mynd gk
Hörð deila er milli kúabænda í
Eyjafirði og Kaupfélags Eyfirðinga
þar sem deilt er og hart tekist á um
eignarréttinn í Mjólkursamlagi KEA.
Svipaðar eða sams konar deilur hafa
reyndar skotið upp kollinum víðar á
landinu og, eins og svo oft áður, er
tekist á um eignarhald í kaupfélögum
eða dótturfélögum þeirra. Enginn get-
ur fullyrt með neinni vissu hver á
hvað enda veit enginn með neinni
vissu hver á kaupfélögin eða dótturfé-
lögin, ekki frekar en menn vissu það
tU skamms tíma hver átti Sambandið
sáluga.
Rekstur Kaupfélags Eyfirðinga hef-
ur tekið miklum breytingum undan-
farin misseri og er KEA í rauninni
orðin allt annað fyrirtæki en það var
um áratugaskeið. Mjólkursamlagið,
sem er dótturfyrirtæki, fer ekki var-
hluta af þessari þróun og nú, þegar fé-
lagið er að markaðsvæðast og taka
miklum breytingum, vUja mjóUcur-
bændur í Eyjafirði fá eignarhlut sinn
í samlaginu metinn til fuUs. Um það
er reyndar ekki ágreiningur. Hann er
hins vegar um það hve stóran hlut
bændurnir eiga í Samlaginu.
Bændur stofnuöu Samlagið
Benedikt Hjaltason, mjólkurbóndi á
Hrafnagili, sem er stærsti mjólkur-
framleiðandi landsins með um 500
þúsund lítra ársframleiðslu, hefur
verið aðaltalsmaður óánægðu bænd-
anna. Hann segir stöðuna skýra.
„Mjólkursamlagið, sem samtök
bænda stofnuðu á sínum tíma, er enn
tU staðar og þess vegna eiga bændurn-
ir Samlagið, það er svo einfalt. Menn
hafa hins vegar ekki treyst sér í mála-
ferli gegn KEA vegna þessa, ýmissa
hluta vegna. Menn hafa ekki tíma,
það kann að vera kostnaðarsamt og
reyndar er þetta hlutur sem er ekki
hundrað prósent fyrir dómstólum
vegna þess hvemig mál eru túlkuð.
En ég bendi á að Samlagið, sem sam-
tök bænda stofnuðu, hefur aldrei ver-
ið lagt niður. Mjólkurstöðin er þing-
lýst eign Mjólkursamlags KEA en
ekki eign kaupfélagsins. Á sínum
tima vora uppi kröfur um að bændur
fjármögnuðu byggingu Mjóilkursam-
lagsins sem bændur féOust ekki á, en
þeir vildu að þetta fjármagnaöi sig
sjálft. Hins vegar hefur aldrei verið
færð til lækkunar á byggingarkostn-
aði Mjólkursamlagsins húseign sem
bændur sannarlega áttu í Grófargili,
gamla mjólkursamlagið, sem KEA tók
svo undir aðra starfsemi" segir Bene-
dikt.
Innantómar hótanir?
Mönnum ber ekki saman um
hversu víðtæk óánægja bændanna er.
Benedikt Hjaltason fullyrðir að megn-
ið af mjólkurbændum í Eyjafirði til-
heyri „órólegu deildinni" svokölluðu
en kaupfélagsmenn gera minna úr
því, segja að um fáa bændur sé að
ræða með Benedikt sem háværan tals-
mann og segja reyndar sumir að hann
Fréttaljós
Gylli Kristjánsson
standi einn í þessu „þrasi“. Benedikt
hefur lýst því yfir að til greina komi
að mjólkurbændur i Eyjafirði beini
viðskiptum sínum annað og bendir á
að framleiðsla þeirra nemi 20 milljón
lítrum á ári. Hann segir það rangt að
KEA borgi hæsta fáanlegt verð fyrir
mjólkina og segir að strax sé hægt að
benda á að Mjólkurbú Flóamanna sé
tilbúið að greiða 25 aurum meira fyr-
ir litrann en KEA gerir.
„Ef við náum ekki lendingu í mál-
inu munum við bændur skoða það
mjög vel að fara annað með mjólkina,
enda finnst bændum traðkað á sér
fram og aftur. Það eru nógir til að
taka við mjólkinni, það yrðu einhver
smálæti á meðan þetta gengi yfir en
svo myndi það hjaðna,“ segir Bene-
dikt. Kaupfélagsmenn segja hins veg-
ar að það séu innantómar hótanir að
hóta því að fara annað með mjólkina
því enginn geti tekið við henni nema
leggja út í miklar fjárfestingar. í
Mjólkursamlagi KEA sé verið að
framleiða vörur sem tekið hafi ár og
áratugi að þróa.
Þrír möguleikar
„Það era þrír möguleikar í stöð-
unni að mínu mati,“ segir Benedikt.
„í fyrsta lagi að við leyfum þeim að
eiga Samlagiö og sjá hvort þeir fá ein-
hverja mjólk til að vinna úr. í öðra
lagi að við bændur tökum saman
höndum og föram annað með mjólk-
ina og í þriðja lagi að við kaupum
Samlagið eða náum samningi um
eignarhluta okkar í því. Kaupfélagið
hefur boðið okkur 20-25% eignarhlut í
Samlaginu gegn því að við skuldbind-
um okkur til að leggja mjólkina þar
inn í 3-5 ár. Þetta er óásættanlegt því
við teljum okkur eiga Samlagið," seg-
ir Benedikt.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjómarformaður Kaupfélags Eyfirð-
inga, segist ekki vilja ræða þetta mál
ítarlega á þessu stigi og hann vill ekki
nefna neinar tölur sem mönnum
kunna að hafa farið á milli. „Við eram
í samningaviðræðum við fulltrúa
bændanna þessa dagana.
Ég hef hins vegar sagt það og get
endurtekið það að ég ekkert hissa á
því og hef á því skilning að það sé órói
meðal bænda vegna þeirra breytinga
sem eru að eiga sér stað. Það má líka
segja aö það standi bæði upp á okkur
KEA-menn og forystumenn bændanna
að hafa ekki kynnt það nógu vel sem
er að gerast,“ segir Jóhannes Geir.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
„Kröfur bænda veröa aö vera raun-
hæfar.“
Trúnaöur brostinn
„Trúnaður er brostinn milli aðila,“
segir Benedikt. „Út af ársreikningi
Mjólkursamlagsins hurfu 500 milljón-
ir króna árið 1995 og það án nokkurra
skýringa. Svo þegar ársreikningur
Samlagsins var borinn upp á aðal-
fundi árið 1996 var búið að breyta öll-
um tölum frá 1995 sem færðar voru
yfir á reikninginn 1996 til að fela
þennan gjöming".
Benedikt segir þetta atriði í raun-
inni upphafið af þeim deilum sem nú
eru uppi eða vendipunktur. „Kaupfé-
lagsmenn vilja hins vegar fá okkur
inn í félagið núna en hafa til þessa
aldrei viljað viðurkenna að við ættum
neitt í Samlaginu. Nú vilja þeir
tryggja sér viðskiptin við okkur enda
vita þeir sem er að Samlagið er mjólk-
urkýr kaupfélagsins og þeir vita líka
að án mjólkur verður ekkert mjólkur-
samlag rekið.“
Varðandi 500 milljónirnar sem
Benedikt segir að hafi horfið segir Jó-
hanes Geir: „Það er bara einn árs-
reikningur og einn efnahagur til fyrir
Kaupfélag Eyfirðinga. Það hafa hins
vegar um árabil verið lögð fram á
samlagsfundum yfirlit um eignir og
skuldir sem tengjast Samlaginu. Þetta
er flókið mál að fara út í og það er rétt
að um þetta leyti varð lækkun á eigin
fé Samlagsins sem var sýnt í þessu yf-
irliti yfir efnahag Samlagsins en í
mínum huga hefur það hins vegar
enga praktíska þýðingu gagnvart því
sem við erum að gera núna“.
Á að mjólka þetta meira
En kemur til greina aö bændur
geri KEA tilboð í Samlagið?
„Við í „órólegu deildinni" héldum
fund með KEA-mönnum og þar voru
nefndar ákveðnar tölur. Hins vegar
virtist það ekki einu sinni vera til um-
ræðu að selja Samlagið. Þótt við vær-
um tilbúnir með tilboð þá er greini-
legt að það á að mjólka þetta meira en
gert hefur verið“ segir Benedikt. En
er almenn samstaða meðal bændanna
um kröfur og aðgerðir?
..Það er mjög mikil almenn óánægja
með það sem er uppi á borðinu núna
en það kann að verða annað mál hvað
menn sætta sig við af því að þeir
nenna ekki að standa í illdeilum og
vandræðum".
Hefur bændaforystan eitthvað sýnt
sig í þessu máli og stutt ykkur?
„Bændaforystan. Ef þú átt við Ara
Teitsson og félaga þá hefur sú forysta
ekki birst okkur bændum en hún hef-
ur eflaust eitthvað gert. Það væri
öðravísi baráttan fyrir okkur bændur
ef við hefðum einhvem verkalýðsfor-
ingja sem væri að vinna í þessum
málum fyrir okkur og ef við hefðum
t.d. forystu eins og Rafiðnaðarsam-
bandið hefur, þá liti málið öðravísi
út,“ segir Benedikt.
Bjartsýnn
Jóhannes Geir Sigurgeirsson segir
að vel sé unnið að því að leysa þetta
mál. „Það er í sjálfú sér ágætt að
bændumir hafi í frammi kröfur en
þær kröfur verða að vera raunhæfar.
Við eram í daglegu sambandi við við-
ræðunefnd bændanna og vinnum að
því að þoka þessu áleiðis. Ég er bjart-
sýnn og það er stefnt að niðurstöðu í
málinu innan tveggja vikna,“ segir Jó-
hannes Geir.
Chiropractic heilsudýmímar Sveftilierbergishmgögn
Hálsukoddar Hlífiktrdýnur Rúmteppasett Hágæöa
bómufíariök Sœngttr Saengunxr Lampar Spegiar
Kj*vík _
AKU
Listhúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheilsa.is