Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Page 20
20
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 DV
Flestu ungu fólki finnst hugtakið
miðaldra ógeðfellt og umber mið-
aldra fólk og eldra af þolinmóðri
kurteisi. Því finnst ástandið, mið-
aldra enn fremur álíka spennandi
og ristilspeglun og finnst fráleitt að
það finni sjálft sig einhvem timann
í því. Margir þeirra sem eru orðnir
miðaldra og eldri muna enn eftir
þvi þegar sú hugsun rann upp fyrir
þeim eins og ískaldur foss að þeir
væru annaðhvort orðnir miðaldra
eða í þann veginn að verða það.
Það að vera miðaldra er ekki
ólíkt þvl að hafa sérstæðan, mein-
lausan en ólæknandi húðsjúkdóm.
Fyrstu viðbrögð eru örvæntingar-
fullur lífróður til að halda einkenn-
unum niðri. Síðan tekur við von-
leysisleg uppgjöf og seinast hættir
maður að taka eftir sjúkdómnum og
hverfur í hóp annarra sjúklinga
sem líkt er ástatt fyrir.
Við skulum nú líta á nokkrar
staðreyndir og goðsagnir um þær
breytingar sem verða á líkama okk-
ar og hugsun þegar við komumst á
miðjan aldur. Hér er miðað við að
miður aldur sé 45 ára. Það er hent-
ug tala sem byggist samt ekki á
neinum meðaltalsævilíkum. Þessi
umíjöllun á reyndar aðeins við um
karlmenn. Konur sem verða mið-
aldra fást við breytingaskeiðið sem
eitt og sér er umfangsmikill vandi
og um það hafa verið skrifaðar sér-
stakar bækur en miðöldrun karl-
manna er yfirleitt afgreidd með ein-
um stimpli og á honum stendur:
Grái fíöringurinn. Þess vegna skul-
um við fræðast um miðöldrun eins
og hún blasir við sterkara kyninu:
Konur hætta að taka
eftir þár (della)
Karlmenn sem bera sig af þeim
virðuleik og fágun sem aðeins mið-
aldra karlmenn og eldri ná, öðlast
virðingu og aðdáun margra kvenna.
Þær hrífast hins vegar alls ekki af
karlmönnum sem reyna að bæta
upp hármissi á enni með taglsöfnun
í hnakka eða fara að tileinka sér
ungæðislegt fas og ganga í skopp-
arafotum. Ef hárið þynnist á að
raka hausinn allan og sýna karl-
mennsku sína berskjaldaða. Síðast
en ekki sist þarf maður að byrja að
klippa hárin sem vaxa út úr eyrun-
um og nefinu. Annað er subbulegt.
Minnið gefur sig (della)
Við lifum á tímum offramboðs
upplýsinga og afþreyingar. Heili
meðalmanns þarf að vinna miklu
meira í dag en oft áður í sögunni.
Það er þess vegna álag en ekki
gleymska þegar miðaldra karlmenn
eiga erfitt með að muna einhver
smáatriði. Flestir eiga best með að
vinna andlega krefjandi störf á
morgnana og þetta ágerist þegar
aldurinn hækkar. Einbeittu þér
þess vegna fyrir hádegi en slappaðu
af seinnipartinn og leggðu kapal.
Heyrnin gefur sia á
miðjum aldri (della)
Ef þér flnnst heyrnin vera farin
að dofna um miðjan aldur þá er það
ekki vegna líkamlegrar hrömunar
heldur vegna álags sem hún hefur
mátt þola. Áralangur hávaði frá
vinnuvélum, þungarokki, keðjusög-
um, eiginkonum, vélsleðum, högg-
borum, haglabyssum og flugeldum
hefur sljóvgað heymina. Þess vegna
er best að nota heyrnarhlífar. ÉG
SAGÐI HEYRNARHLÍFAR.
Eyrnasneplarnir taka að
stækka (staðreynd)
Eymasneplar á 45 ára karlmanni
eru um það bil 6 millímetrum lengri
en þeir voru um tvítugt. ítarlegar
mælingar breskra vísindamanna
hafa leitt í ljós að þeir lengjast um
0,22 millímetra á ári eftir tvítugt.
Vísindamenn mældu eymasnepla
206 manna til þess að komast að
þessu. Ef fegrunaraðgerðir eru frá-
taldar er ekkert við þessu að gera
nema gorta af því.
Þú færð oftar brióst-
sviða (staðreynd)
Um fertugsaldurinn slaknar örlít-
ið á lokubúnaðinum milli maga og
vélindis. Þetta verður til þess að ef
Fætur karlmanna geta stækkaö um heilt númer á aldrinum frá 30-50 ára.
Eitt af því sérkennilega viö aö veröa miðaldra er að eyrun á manni stækka.
maður liggur flatur eftir matinn
geta magasýrur lekið upp í vélindað
og þær valda brjóstsviða. Þessar
sömu sýrur gætu leyst upp skipti-
myntina í vasa þínum svo þetta er
ekkert gamanmál. Ráðið gegn þessu
er að leggja sig ekki eftir matinn og
borða helst ekkert síðustu tvo tím-
ana áður en lagst er til hvílu.
Mikil fitusöfnun framan á magan-
um eykur á þetta vandamál. Ekki fá
ístru.
Þú situr lengur á doll-
unni (staðreynd)
Eftir miðjan aldur eru samdrætt-
ir í ristli og endaþarmi ekki eins vel
samhæfðir og áður og því tekur þig
lengri tíma að leggja frá þér kvöld-
matinn frá því í gær. Gegn þessu
má vinna með því að éta meiri trefj-
ar og halda ristlinum þannig í topp-
standi. En það er líka hægt að njóta
þessara fáu næðisstunda með góðu
lesefni. Allt þarf sinn tíma.
Mikil fitusöfnun á kviö og lifbeini getur stytt vinnulengd getnaðarlims um allt
aö þrjá sentímetra.
Þú dregur ekki í hland-
skálina á þriggja skrefa
færi lengur (staðreynd)
Um 25 ára aldur fara af stað
hormónabreytingar í líkama karl-
manna sem með tímanum verða til
þess að blöðruhálskirtillinn stækk-
ar. Hann þrýstir síðan á þvagrásina
líkt og þegar maður stígur ofan á
garðslönguna. Þetta verður til þess
að hjá flestum karlmönnum dregur
verulega úr rennslishraða við þvag-
lát. Læknavísindin kunna ýmis ráð
við þessu önnur en að gera aðgerð á
téðum kirtli. Sumir eru þeirrar
skoðunar að fjörugt kynlíf dragi úr
stækkun blöðruhálskirtilsins.
Þama er þvi svigrúm fyrir forvarn-
arstarf.
Hnán og fæturnir gefa
sig (defla)
Margir halda að stirðleiki og
verkir í fótum og hjám séu óumflýj-
anlegur fylgifiskur miðaldra karl-
manna og séu afleiðingar álags. Svo
er ekki. ítarleg rannsókn gerð við
Stanfordháskóla í Ameríku sýndi að
karlmenn á aldrinum 55-75 ára sem
skokka og hlaupa kvarta minna
undan slíkum verkjum en þeir sem
aldrei hreyfa sig. Það er sem sagt
nauðsynlegt að hreyfa sig og halda
sér léttum og liðugum.
Þú verður sköllóttur á
kálfunum (staðreynd)
Mörgum Finnst hallærislegt að
missa hárið á höfðinu en það er
ekkert hjá því að fá skallabletti á
kálfana. Þetta er hlutskipti margra
karlmanna og er sérstaklega áber-
andi fyrir neðan sokkmörkin. Or-
sökin er minnkað blóðflæði til út-
lima sem drepur hárpokana. Við
ýtum síðan undir þetta með of
þröngum sokkum. Ráðið við þessum
er að ganga í víðari sokkum eða
vera berfættur og forðast of stuttar
buxur.
Limurinn styttist (della)
Margir karlmenn virðast standa í
þeirri trú að jafnaldri þeirra og
besti vinur minnki eftir miðjan ald-
ur. Það er ekki rétt. Hið rétta er að
stærð hans er óbreytt en margir
karlmenn stækka talsvert mikið um
Eyrun lengjast, fæturnir
stækka og heyrnin veisnar
- hinir margvíslegu fylgifiskar þess að verða miðaldra karlmaður