Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Page 45
I IV LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000
veiðivon ^
Paö er allt í lagi að brosa eftir aö hafa landaö þessum væna fiski.
Hvað segja veiðimennirnir?
Minnisstæðast frá sumrinu -
Enn þá er eitt árið runnið sitt
skeið, árið 2000 gengið í garð og veiði-
þátturinn að fara í gengnum 23. árið í
Dagblaðinu og núna DV. Veiðimenn
hafa fengið jólaglaðninginn, dýrari
veiðileyfi næsta sumar, hlutur sem
ekkert þurfti að fanga neitt sérstak-
lega um áramótin. En svona er þetta
bara, veiðin er góð og slök og veiði-
leyfln hækka og hækka þó enginn viti
af hverju.
Umsjón
GunnarBender
Veiðileyfasalan gengur vel fyrir
næsta sumar eða svo var að heyra á
veiðileyfasölum í vikunni sem við
höfðum samband við. Það hefur sjald-
an verið eins mikið fjör í veiði-
leyfasölunni eins og núna.
Veiðimenn slá ekki slöku við, það
er spennan kringum veiðiskapinn,
hvort maður fær fisk eða ekki. Þegar
maður lætur fluguna reka yfir hylinn
og allt í einu, TAKA!!
Við heyrðum aðeins hljóðiö í
nokkrum veiðimönnum og spurðum
þá hvað væri minnisstæðast frá síð-
asta veiðisumri. Og svörin létu ekki á
sér standa.
Tökurnar voru meiri háttar
„Það er ekki spurningin, það var
29. júní við Norðurá í Borgarfirði þeg-
ar ég veiddi 5 laxa á Hist túpuna á
Eyrinni og Brotinu," sagði Ingvi Hafn
Jónsson og bætti við: „Þetta var um
kvöldið og tökurnar voru meiri hátt-
ar, algerar neglingar. Ingólfur Ás-
geirsson hafði kennt mér þetta
nokkrum dögum áður og ég hef sjald-
an lent í skemmtilegri veiði,“ sagði
Ingvi Hafn.
Sáum rosalega væna laxa
„Ég held að það sé ekki spurning,
það sé efsta svæðið 1 Vatnsdalsánni,
það hefur upp á ýmsa möguleika að
bjóða og laxamir þar eru stórir,“
sagði Sævar Sverrisson.
„Ég fór þangað við annan mann og
sá sem fór með mér hafði aldrei veitt
lax. Hann veiddi 12 punda fisk. Lax-
amir sem ég veiddi voru 16 og 8
punda. Það voru rosalega vænir laxar
þarna upp undir fossi og svo fengum
við vænar bleikjur. Við héldum að
það væri smálaxaganga, sem við
sáum á einum stað en það voru væn-
ar bleikjur, mjög vænar. í Víði-
dalsánni veiddi ég líka væna laxa,“
sagði Sævar i lokin.
Mikið af fiski í hylnum
„Þegar ég veiddi minn stærsta lax í
Efranesflúðum í Eystri-Rangá í fyrra-
sumar en fiskurinn var 19 punda og
tók svarta Franses. Baráttan við hann
var fjörleg," sagði Þröstur Elliðason.
„Og líka þegar ég var að veiða með
konunni minn i Einarshyl í Breið-
dalsá en þar veiddum við vel. Það
kom skemmtilega á óvart hvað mikið
var af fiski í hylnum en við fengum
nokkra fiska,“ sagði Þröstur ennfrem-
ur.
Veiðieyrað
í Hallá í næsta nágrenni Skaga-
strandar er á lausu þessa dagana
en veiðifélag Reiknisstofnunar
bankanna hefur haft hana á leigu
til nokkurra ára. Verður spenn-
5 andi að sjá hverjir bjóða í hana. Og
í Eyjafjarðará var ekki leigð en
nokkur tilboð bámst í hana, bænd-
j ur munu því áfram vera með ána.
I Margir hafa velt fyrir sér til hvers
| þeir landeigendur við ána vom að
I standa í þessu útboði. Það hefúr
6 ekki þjónað miklum tilgangi.
Rýmum fyrir nýjum vörum
Ekta pelsar, handunnin,
útskorin, massíf og innlögð
húsgögn, Ijós, klukkur og
gjafavara o.fl. o.fl.
Sigurstjarnan
í bláu húsi við Fákafen.
Sími 588 4545.
Bifreiðastöðin Hreyfill var stofnuð
í Baðstofu iðnaðarmanna við
Vönarstræti í Reykjavík 11. nóvember
1943.
Félagið er því lítið eitt eldra en
íslenska lýðveldið.
Frá upphafi heíiur félagið leitast við að
veita íbúum höfuðborgarsvæðisins
góða þjónustu. Leitað hefur verið nýrra
og ferskra leiða hverju sinni til bættrar
þjónustu.
Á síðasta ári var gert verulegt átak til
styttri útkallstíma, aukinnar þjónustu
og betri nýtingar á bifreiðaflota
Hreyfilsmanna er tekið var í notkun
nýtt tölvu- og greiðslukortakerfi í bílum
félagsins.
Nú geta viðskiptavinir greitt fyrir
þjónustuna með greiðslukortum, auk
þess sem útkallstími hefur verið styttur
verulega.
Bifreiðastöðin Hreyfill þakkar
viðskiptavinum sínum viðskiptin á
liðinni öld og horfir björtum augum
tilframtíðar.
I *
NWREVFfíZ/
Handan við hornið,
handan við aldamót
5 88 55 22 !