Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Page 55

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Page 55
3L>V LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 63 •étf/r 711 hamingju með afmælið 16. janúar 85 ára Elísabet S. Thorarensen, Gautlandi 13, Reykjavík. 80 ára Guðmundur Ámason, Ártúni 4, Selfossi. Kristixm Gíslason, Hlíðargötu 55, Fáskrúðsfírði. Sigurborg Sigm-ðardóttir, Grandavegi 47, Reykjavík. Vigdis Magnúsdóttir, Skaftárvöllum 7, Kirkjubkl. Þorbjörg Guðmundsdóttir, Drápuhlíð 21, Reykjavík. 75 ára Gunnar Halldórsson, Skeggjastöðum, Selfossi. Sigxu’ður Alexandersson, Bólstaðarhlíð 66, Reykjavík. 60 ára Geir Viðar Svavarsson, Suðurhólum 2, Reykjavík. Kristinn Konráðsson, Haínargötu 14, Siglufírði. 50 ára Eyjólfur Harðarson, Esjubraut 31, Akranesi. Sigríður Erlendsdóttir, Hlíðartúni 2, Mosfellsbæ. Sigríður Jónsdóttir, Bjargarstíg 15, Reykjavík. Sigtryggur Valgeir Jónsson, Kóngsbakka 2, Reykjavík. Steinn Jónsson, Ólafsvegi 8, Ólafsfirði. 40 ára Árni Olivier Enard, Hátúni lOa, Reykjavík. Ásta Ólafsdóttir, Sæbólsbraut 30, Kópavogi. Bylgja Björk Guðjónsdóttir, Vogalandi 4, Reykjavík. Gerður Ósk Oddsdóttir, Sjólyst, Reyðarfirði. Guðbjörg Jóhannsdóttir, Laufhaga 5, Selfossi. Gunnar Þ. Bjömsson, Framnesvegi 62, Reykjavík. Hansína Á. Jóhannsdóttir, Álftarima 5, Selfossi. Mímir Völxmdarson, Öldugötu 57, Reykjavík. Nanna Þóra Áskelsdóttir, Hásteinsv. 22, Vestmeyjum. Ólafur Þ. Steinbergsson, Breiðuvík 49, Reykjavík. Pétur Hans Pétursson, Lundarbrekku 2, Kópavogi. Reynir Viðarsson, Laugateigi 11, Reykjavík. Eldsneyti 21. aldarinnar: - stórfyrirtæki hugsa stórt og ísland í lykilhlutverki Vaxandi mengun og gróðurhúsaá- hrif hafa kallað á miklar rannsókn- ir á nýjum orkugjöfum í stað olíu og bensíns. í dag veðja margir á að metanol leysi þennan vanda og bú- ist er við að árið 2004 muni nýir bíl- ar streyma á markaðinn sem nota munu vetni eða metanól sem elds- neyti en í þessu ferli mun ísland spila merkilegt hlutverk. í febrúar á síðasta ári var stofnað fyrirtækið The Icelandic New Energy Ltd. í samstarfi Vistorku hf., Shell International BV, Norsk Hydro ASA og DaimlerChrysler. Fyrirtækinu er ætlað að gera ísland að tilraunavettvangi í Evrópu fyrir notkun á vetni sem orkugjafa i stað eldneytis úr jarðolíu. Hugmyndin sem New Energy vinnur út frá er að nota vetni sem eldsneyti bæði i hreinu formi og einnig sem metanol. Dr. Bragi Árna- son segir í DV i gær að fyrstu þrír vetnisknúnu strætisvagnarnir, sem jafnframt eru hluti af verkefni fyrir- tækisins, komi á götur Reykjavíkur árið 2002. Bílaframleiðendur, olíufélög og önnur stórfyrirtæki um allan heim leggja nú ofurkapp á tækniþróun á þessu sviði þar sem vitað er að olí- an er ekki óþrjótandi. í Bandaríkj- unum er t.d. starfandi heil stofnun, American Methanol Institude, sem eingöngu sinnir slíkum rannsókn- um. Á vegum stofnunarinnar hefur farið fram ítarleg rannsókn á áhrif- um metanols á umhverfið sem eru talin hverfandi miðað við bensín og olíur. Metanol er vel þekkt efni og hef- ur m.a. verið notað t efnaiðnaði síð- an á nítjándu öld. Það er t.d. notað við framleiðslu á plasti, krossviði, ýmsum hreinsiefnum og einnig sem eldsneyti, m.a. á kappakstursbíla. Framleiðsla Bandaríkjamanna á metanoli áriðl998 var rúmlega 10 milljónir tonna og vex stöðugt. -HKr. Dr. Bragi Árnason. Hvergi á landinu er sá siður haldinn í heiðri nema í Ólafsvík aö börnin fara í „sníkjuleiðangur" á þrettándakvöld, banki uppáklædd ýmsum gervum. Hér eru víst einir níu púkar í heimsókn á einu heimilinu. DV-mynd Pétur S. Jóhannesson Púkar og álfar fá í gogginn undir Jökli: Árlegur sníkju- leiðangur barna Það var sannkölluð þrettánda- gleði hjá bæði ungmn sem gömlum í Ólafsvík þegar jólin voru kvödd þó „úti væri norðanvindur" eins og segir í góðri vísu. Lionsklúbbarnir í bænum efndu til sinnar árlegu blysfarar frá Hvammi og niður á Sá og þar var kveikt í brennu, þó ekki væri hún stór þar sem veður var afleitt. Þar var margt um manninn sem horfði á brennuna og á eftir var flugelda- sýning. Þegar þessu var lokiö hófst hinn árlegi sntkjuleiðangur barna um bæinn. Þá banka þau á hverjar dyr og sníkja sér i gogginn. Eflaust hef- ur farið um suma þegar dyrnar voru opnaðar að sjá þá púka af öll- um stærðum, í margs konar gerf- um, standa fyrir utan með opna poka og vilja fá sitt. Lagið var tekiö af þeim ef óskað var eftir og ýmis- legt var gert til að fá í gogginn. Nóg var að gera hjá fólki að fara til dyra meðan þetta stóð yfir og a.m.k. í eitt húsið komu um 100 krakkar. Fólk hefur undirbúið sig vel fyrir þetta kvöld, meðal annars keypt sleikjó, poppað, allt er gert fyrir krakkana. Þessi siður er ekkí víða stundaður á landinu. Effir því sem næst er komist eru um 40 ár síðan hann var upp tekinn í Ólafs- vik en ekki eru allir á einu málí hver aðdragandinn að honum er en hann er skemmtilegur. -PSJ UMBOÐSMENN Vesturland: I Tálknafirði. I Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. ’ Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.