Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 IjV
fréttir______________________
Hugsanlegur flutningur höfuöstöðva RARIK til Akureyrar:
Viðbrögðin jákvæð
DV, Akureyri:
„Eins og málin liggja fyrir í dag
fmnst mér viðbrögðin heilt yfir hafa
verið ágæt í öllum meginatriðum.
Það er ósköp eðlilegt að spumingar
kvikni i tengslum við svona hug-
myndir en þaö hefur oft verið rætt
um að flytja ríkisstofnanir til i land-
inu. Þessi stofnun er í eðli sínu
landsbyggðarstofnun," segir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, um þá hugmynd sem komin er
upp á yfirborðið að flytja höfuðstöðv-
ar Rafmagnsveitna ríkisins til Akur-
eyrar og að öllum líkindum sameina
segir Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
RARIK veitustofnunum Ak-
ureyrarbæjar. Hugmyndin er
ekki ný, hún náði t.d. ekki
fram að ganga árið 1993, þeg-
ar hún var síðast rædd af al-
vöru, en nú hefur imdirbún-
ingur málsins staðið lengi
yfir og málið verið betur und-
irbúið en áður samkvæmt
þeim upplýsingum sem DV
heftir.
Ýmsir hafa tjáð sig um
ágæti hugmyndarinnar og yf-
irleitt verið jákvæðir, nema
e.t.v. talsmaður starfsfólks
fyrirtækisins í Reykjavík, en
Kristján Þór Júl-
íusson: „RARIK
er í eöli sínu
landsbyggöar-
stofnun."
DV-mynd gk.
þar starfa um 60 manns af
um 250 starfsmönnum
RARIK. Kristján Þór segir
að þar sem fyrirtækið starfi
fyrst og fremst á lands-
byggðinni sé ósköp eðlilegt
að höfuðstöðvar þess séu
þar. „Akureyri henti mjög
vel í því sambandi og við
höfum lagt fram hugmyndir
um að leggja fram okkar
veitur inn í þetta dæmi,
ásamt því að það sé upplagt
að taka upp viðræður við
aðrar orkuveitur á starfs-
svæði RARIK. Ég held að
það felist í þessu ákveðin sóknarfæri,
ekki bara fyrir Akureyringa heldur
fyrir miklu fleiri.“
Kristján Þór segir að of snemmt sé
að segja nokkuð til um það hversu
mikil fjölgun starfsmanna RARIK yrði
á Akureyri nái hugmyndin fram að
ganga. „Það er ails ekki í okkar huga
að fara að standa í einhveijum hreppa-
flutningum á fólki, það er löngu liðin
tíð og þannig munum við ekki vinna.“
Krisfján Þór segir að ákvörðun
muni liggja fyrir á þessu ári varðandi
það hvort af þessu verður en fram-
kvæmdin sjálf muni teka lengri tíma.
-gk
Flugskóli íslands:
Engin átök
Vegna fréttar í DV í gær um
breytingu á stjóm Flugskóla íslands
skal það tekið fram að engin átök
uröu þegar Amgrímur Jóhannsson
í Atlanta tók við sem stjómarfor-
maður af Halldóri Kristjánssyni,
skrifstofustjóra í samgönguráðu-
neytingu. Það var að frumkvæði
ráðuneytisins að Amgrímur kom að
stjómarformennskunni. Arngrímur
sagði i gær að vissulega væru
vandamál í skólanum sem þyrfti að
taka á en fyrrverandi stjóm hefði
unnið gott starf og m.a. skilað skól-
anum i hans hendur með fullum
JAR-réttindum, þ.e. réttindum sam-
kvæmt hinum nýja evrópska staðli
um flugkennslu.
Hestamiðstööin:
Óvíst hvar höfuð-
stöðvarnar verða
DV, Akureyri:
íris Ingibergsdóttir viö heimili sitl á Grettisgötunni í gær. Hún bendir á flóöljósin sem halda fyrir henni vöku. DV-mynd S.
Formleg ákvörðun hefúr ekki verið
tekin varðandi það hvar höfuðstöðvar
Hestamiðstöðvar íslands verða stað-
settar í Skagafirði, en sem kunnugt er
ákvað Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra að „miðstöð hestamennsku á
Islandi" verði í Skagafirði.
Ríkið hefur skuldbundið sig til að
leggja fram 25 milljónir króna í 5 ár,
eða frá árinu í ár til ársins 2004. Sveit-
arfélagið Skagafjörður leggur fram ár-
lega 15 miiljónir króna á móti, og er
fyrsta greiðslan í nýsamþykktri fjár-
hagsáætlun sveitarsjóðs. Þá mun fyrir-
hugað að þriðji aðili komi inn með 5
milljóna króna greiðslu árlega. Við-
ræður standa yfir varðandi það hvaða
aðili það verður.
Ekki hefur verið auglýst eftir starfs-
mönnum, og sem fyrr sagði er óvíst með
staðsetningu höfuðstöðva Hestamið-
stöðvarinnar. Líklegast hefúr verið talið
að þær verði að Hólum í Hjaltadal, en þá
hefur Sauðárkrókur einnig verið nefnd-
ur í þvi sambandi. Hins vegar er gert
ráð fyrir að starfsemi stöðvarinnar
verði víða í Skagafirði. -gk
Málsókn
Tómas Zoéga geölæknir og Óiafur
Ólafsson, fyrrum landlæknir, stinga
saman nefjum á fundi Mannverndar
þar sem tilkynnt var um málsókn sam-
takanna á hendur ríkinu vegna gagna-
grunnslaganna. Þeir sem standa aö
málsókninni telja aö gagnagrunns-
lögin brjóti í bága við réttindi sjúk-
linga, heilbrigöisstarfsmanna, al-
mennings og barna þegar persónu-
greinanlegar upplýsingar veröa af-
hentar þriöja aðila án samráðs viö
sjúklinga eöa heilbrigðisstarfsmenn.
Mannvernd hefur ráöiö Ragnar Aöal-
steinsson hæstaréttarlögmann til aö
reka máliö fyrir dómstólum.
Kona á Grettisgötunni:
Andvaka í flóðljósum
- sírenuvæli og barnagráti
„Ég fæ ekki svefn nótt eftir nótt.
Þetta byrjar á sírenuvæli og svo
skella þeir á flóðljósum sem lýsa
upp svefnherbergið mitt þannig að
það líkist einna helst kvikmynda-
veri,“ segir íris Ingibergsdóttir sem
býr ásamt Óskari manni sínum á
Grettisgötu 12, við hlið leikskólans
Njálsborgar. „Annaðhvort er alltaf
verið að brjótast þarna inn eða þá
að kerfið er bilað. Þegar ég loks
staulast fram í eldhús eftir svefn-
lausa nótt byrja bömin á leikskól-
anum að grenja. Ég er að verða vit-
laus,“ segir íris sem er 65 ára öryrki
en Óskar maður hennar er blikk-
smiður á eftirlaunum.
Það er öryggisfyrirtækið Securit-
as sem sér um gæslu á Njálsborg en
Hallfríður Hrólfsdóttir er forstöðu-
kona á leikskólanum:
„Þessi garður hér á milli Grettis-
götu og Njálsgötu er mjög þröngur
og skuggalegur í myrkri. Við finn-
um oft ýmislegt hérna þegar við
mætum til vinnu á morgnana og því
vil ég hafa gott öryggiskerfi. Ég er
með fullkomið bruna- og eldvarnar-
kerfi, þjófavarnarkerfi og flóðljós
sem geta lýst upp allan garðinn.
Þetta er æðislega perfekt," segir
Hallfríður leikskólastjóri sem harm-
ar svefnleysi nágranna síns. „Ég er
að bíða eftir rafvirkja sem getur
stillt ijósin þannig að þau trufli ekki
íbúa í hverfinu. Ég get ekki gert að
því liðna en ætla að leggja mig fram
um að þetta gerist ekki aftur,“ segir
Hallfríður. -EIR
ísland á Norðurlandamótinu á La Manga:
Er á toppnum
- eftir 3-2 sigur á Færeyjum - Atli setti met
Islenska knattspymulandsliðið er á
toppnum á Norðurlandamótinu í
knattspymu eftir fyrsta hlutann, sem
lauk á Spáni í gær en þá sigruðu ís-
lendingar, Færeyinga, 3-2. Leikurinn
byrjaði þó ekki vel þvi eftir 36 minút-
ur voru Færeyingar, sem hafa aldrei
unnið ísland á knattspymuvellinum,
komnir í 0-2. En íslenska liðið sýndi
mikinn karakter og vann sig aftur inn
í leikinn. Ólafur Öm Bjamason fékk
vítaspymu rétt fyrir háifleik sem Rík-
harður Daðason nýtti, líkt og 17 mínút-
um síðar þegar Ríkharður skoraði úr
sinni annarri vítaspymu, sitt níunda
landsliðsmark. Vítaspymuna fékk
Tryggvi Guðmundsson sem lagði síðan
upp sigurmarkið fyrir Bjarka Gunn-
laugsson á 67. mínútu og islensku
strákamir fógnuðu sfnum áttunda
sigri á Færeyjum í röð og toppsætinu
á Norðurlandamótinu. Norðmenn
gerðu 1-1 jafntefli við Svía og hjáipuðu
því íslenska liðinu á toppinn.
Sjö af níu stigum í boöi í hús
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari
hefur því byrjað vel í sínu nýja starf
því hann hefur náð sjö af 9 stigum í
hús og eignast jaftiframt met, því eng-
um öðram landsliðsþjálfara í knatt-
spymu hefur tekist að stjóma fyrstu
þremur landsleikjunum án taps. Atli
náði þó ekki öðra meti, því markið
Kurt Mörköre skoraði á 19. mínútum,
kom 3 mínútum áður en Atli jafnaði
met, Júri Hitchev, yfir lengstu bið eftir
fyrsta marki á sig því íslenska liðið
hafði haldið hreinu i fyrstu 199 mínút-
umar undir stjóm Atla.
Hefur haldiö hreinu í 249 mínút-
ur
Ámi Gautur Arason kom inn á sem
varamarkmaður í háifleik og hélt
hreinu í sínum sjötta landsleik í röð en
Ámi Gautur hefúr nú leikið fyrstu 249
mínútumar í islenska landsliðsbún-
ingnum án þess að fá á sig mark.
Lið íslands: Birkir Kristinsson
(Ámi Gautur Arason 45.), Auðun
Helgason, Helgi Kolviðsson, Þórhallur
Hinriksson, Amar Viðarsson - Bjarki
Gunnlaugsson (Sverrir Sverrisson 84.),
Ólafur Öm Bjamason (Sigurður öm
Jónsson 74.), Rúnar Kristinsson, Einar
Þór Daníelsson (Indriði Sigurðsson
31.)- Ríkharður Daðason (Haukur Ingi
Guðnason 80.), Tryggvi Guðmundsson.
-ÓÓJ
Stúdentaslagur
Nú líður brátt að stúdentaráðs-
■ kosningum í Háskóla íslands við
Suðurgötu í ReyKjavík sem svo er
nefndur til aðgreiningar frjá Há-
skólanum í Reykjavik. Þar takast
Vaka og Röskva á enn eina ferðina.
Kosningamar verða
sunnudaginn 23.
febrúar og því tími
til kominn að bretta
upp ermar og heija
kosningabaráttu.
Vaka var með
listakynningu í
gærkvöld en
Röskva mun vera
með slíka uppákomu í
kvöld. Konur skipa fiögur efstu sæt-
in á lista Vöku að þessu sinni.
Bregður svo við að einungis einn
lögfræðinemi er í þeim hópi en
Vökumenn hafa legið undir gagn-
rýni Röskvumanna fyrir lögfræði-
slagsíðu. Efst á lista Vöku trónir
Inga Lind Karlsdóttir íslensku-
nemi, einstæð móðir og dagskrár-
gerðarmaður hjá Skjá 1. Hún er
alvön kosningaslag, lét síðast til sín
taka í formannskosningum SUS...
Tvær hendurtómar
Mikið er nú rætt um hina vösku
athafnamenn og Samheijafrændur,
ekki síst þrjá miiljarðana sem Þor-
steinn Vilhelmsson fékk í sinn hlut
við sölu á um fimmt-
ungseignarhlut í félag-
inu. I þessu sambandi
má geta þess að þegar
þeir frændur hófust
handa við að byggja
upp útgerð sína, að
sögn með tvær
hendur tómar og
gat í buxnavösum,
var verið að úthluta kvóta sam-
kvæmt veiðireynslu nokkurra ára á
undan. Samheijaffændur völdu skip-
stjóravkótaleiðina vegna veiði-
reynslu Þorsteins sem verið hafði
fengsæll skipstjóri hjá ÚA. Sá ráð-
stöfún færði þeim ríflega 4 þúsund
tonna kvóta. Þess má geta aö verð-
gildi þess kvóta er nálægt 4 milljörð-
um í dag...
Ríkiskassinn
Á dögunum munu óboðnir gestir
hafa verið á ferð heima hjá Geir H.
Haarde fjármálaráðherra og eig-
inkonu hans, Ingu Jónu Þórðar-
dóttur. Engar fréttir fengust af því
j hve mikinn usla þjófamir gerðu eða
hvað þeir höfðu með-
ferðis. Menn eru sam-
mála um að það tölu-
verða bíræftii þurfi
að vaða inn hjá svo
háttsettum mönnum
og enn fremur vek-
ur nokkra furðu að
þeir skyldu yfirleitt
komast inn fyrir
„vamarmúra" hússins.
Gárungar vora ekki lengi að finna
skýringu á áhuga þjófanna. Vonin
um að finna ríkiskassann fúilan fiár
liafi drifið þá áfram...
]
/
2000-vandi
Sandkomi barst til eyma að
1 fjöldi starfsmanna hjá pitsastaðnum
Bing Dong á Akureyri hafi ekki
fengið ekki laun sín greidd þann 1.
i febrúar. Skiljanlega
varð starfsfólkið
hundfúlt enda stór
mánaðamót með
kreditkortareikn-
ingum og tilheyr-
andi skemmtileg-
heitum sem
i standa þarf skil á.
i Haft er eftir
j einum starfsmanna að þegar leit-
að var skýringa á seinaganginum
I hafi eigendur sagt að 2000-vandinn
S væri að gera þeim lífið leitt. Það fór
þó aldrei svo að sá marguppblásni
vandi léti ekki á sér kræla hér á
Fróni...
Umsjónhaukur Lárus Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is