Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 JjV
stuttar fréttir
Áfram ölverkfall
Eitt hundrað og fimmtíu starfs-
menn á bjórlager Carlsberg-
bruggverksmiðjanna í Tástrup
ákváðu í gær að halda áfram
verkfalli sínu sem þeir hófu á
mánudag eftir aö fimmtán lager-
mönnum var sagt upp.
Kratar enn á niðurleið
Jafnaðarmannaflokkur Pouls
Nyrups Rasmussens, forsætisráð-
herra Dan-
merkur, er ekki
í náðinni hjá
dönskum kjós-
endum um
þessar mundir,
ef marka má
nýja skoðana-
könnun sem
birtist i blaöinu Borsen. Fylgi
jafnaðarmanna dalar enn, mælist
nú 22,5 prósent en var 23,3 pró-
sent fyrir mánuði. Flokkurinn
fékk um 36 prósent atkvæða í síð-
ustu kosningum.
Svínin daglega í bað
Frank Jensen, dómsmálaráð-
herra Danmerkur, hefur lagt
fram frumvarp um velferð svína
þar sem kveðið er á um að dönsk
svín verði að fara í bað á hverj-
um degi. Kostnaðarauki svína-
bænda yrði þá um 100 íslenskar
krónur á svín.
Blaöamenn í vanda
Jan Petter Helgesen, blaðamað-
ur við norska blaðið Stavanger
Aftenblad, kom sér í vandræði
þegar hann viðurkenndi að hafa
sýnt starfsbróöur sínum, Stein
Viksveen, sem er grunaður um
njósnir, leyniskjöl frá NATO.
Chirac í baráttuna
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti og meira en eitt hundrað
krabbameinssér-
fræðingar, emb-
ættismenn, sjúk-
lingar og hags-
munahópar víðs
vegar að úr
heiminum undir-
rituðu í gær
tímamótasam-
komulag um
samvinnu í baráttunni gegn
krabbameini. Chirac sagði að bar-
áttan við krabbamein væri eitt
brýnasta verkefhi aldarinnar.
105 ára á leikskóla
Eitt hundrað óg fimm ára gam-
alli norskri konu hefur verið boð-
ið leikskólapláss. Tvöþúsund-
vandanum er kennt um.
Gæsluliðar slást
Friðargæsluliðar NATO í
Kosovo lentu í átökum við al-
banska íbúa bæjarins Mitrovica í
gær og þurftu að dreifa mann-
fjöldanum með táragasi. Fólkið
var reitt yfir dauða fimm Albana
í átökum við Serba kvöldiö áður.
Archer rekinn
Jeffrey Archer lávarður var
rekinn úr breska íhaldsflokknum
í gær í fimm ár vegna þess að
hann bað vin sinn um að bera
ljúgvitni fyrir sig fyrir dómi.
Játvarður skuldar fé
Upplýst var í gær að Játvarður
prins, sonur Elísabetar Englands-
drottningar,
skuldaði um-
talsvert fé
byggingarfyrir-
tæki sem nú er
farið á haus-
inn. Fyrirtæk-
ið hafði tekið
að sér að gera
upp herrasetur prinsins. Kostn-
aðaráætlanir stóðust ekki og rúll-
aði fyrirtækið þegar prinsinn
neitaði aö greiða 70 miUjóna um-
framreikning.
Staöfestu leynisjóði
Leiðtogar kristilegra demó-
krata í Þýskalandi staðfestu í
gær að flokkurinn hefði átt leyni-
reikninga í Sviss en margt er enn
á huldu um fjármálasukkið.
Jörg Haider boðiö að skoða dauðabúðir nasista:
Fimbulkuldi
í Austurríki
ískaldir vindar pólitískrar ein-
angrunar blésu í Austurríki í gær
þegar ný ríkisstjóm, sem í eiga sæti
ráðherrar úr Frelsisflokki hægri-
öfgamannsins Jörgs Haiders, sór
embættiseið sinn.
Evrópusambandslöndin frystu öll
tvíhliða samskipti á vettvangi
stjómmálanna, ísraelsstjóm kallaði
heim sendiherrann sinn í Vínar-
borg og belgíska landvamaráðu-
neytið afpantaði brynvarða sjúkra-
flutningabíla fyrir sjötíu milljónir
króna.
„Við höfum samþykkt að beita
Austurríki ákveðnum refsiaðgerð-
um,“ sagði Niels Helveg Petersen,
utanrikisráðherra Danmerkur, í
viðtali við danska útvarpið. „Við
munum neita að hitta austurríska
ráðherra. Hin fjórtán aðildarríki
Evrópusambandsins eru sammála
um að beita þessum refsiaðgerð-
um.“
Guy Verhofstadt, forsætisráð-
herra Belgíu, lét að því liggja að
harðari aðgerðir væm hugsanlegar
en sagði ekki hvort hann hefði
tryggt stuðning annarra leiðtoga
ESB þar um.
Bandarísk stjómvöld hafa ákveð-
ið að kalla heim sendiherra sinn í
Vínarborg til skrafs og ráðagerða.
William Cohen landvamaráðherra
sagði menn hafa áhyggjur af að með
myndun nýju stjórnarinnar væri
veriö að hverfa aftur til „dimmrar
fortíöar."
Lögregla réðst með kylfum að
þúsundum manna sem komu saman
fyrir utan forsetahöllina til að mót-
mæla nýju sfjórninni.
Jörg Haider hefur skotið Evrópu-
búum og fleirum skelk í bringu með
vinsamlegum ummælum sínum um
Þýskaland Hitlers. Hann hefur þó
tekið þau til baka síðan. Haider á
ekki sæti í ríkisstjóm Wolfgangs
Schússels, formanns Þjóðarflokks-
ins, en Frelsisflokkurinn fékk sex
ráðherraembætti, þar á meðal emb-
ætti varakanslara.
Haider varð í gær við áskorun
ítalska rabbínans Umbertos
Pipemos um að heimsækja fyrmm
dauðabúðir nasista í Trieste.
Roberto Antonione, forseti hér-
aðsstjórnarinnar í Friuli í norð-
austurhluta Ítalíu, sagði að Haider
myndi heimsækja San Sabba-búð-
imar einhvern tíma á næstu vik-
um.
Um eitt hundrað gyðingar vom
meðal fimm þúsund manna sem
voru drepin í búðunum þegar nas-
istar réöu yfir Trieste.
Þúsundir Austurríkismanna komu saman á Ballhausplatz í miöborg Vfnar í gær til að mótmæla setu hægri öfga-
manna í Frelsisflokknum í nýrri ríkisstjórn landsins. Stjórnin sór embættiseið sinn í forsetahöllinni sem er við Ball-
hausplatz. Þátttaka hægri öfgamanna í stjórninni hefur vakiö mikla reiði um allan heim.
Spennandi forsetakosningar í Finnlandi á morgun:
Elisabeth Rehn svíkur
lit og styður Esko Aho
Bakslag kom í segl Törju
Halonen, utanríkisráðherra Finn-
lands og frambjóðanda í forseta-
kosningunum á morgun, þegar
Elisabeth Rehn, fyrrum sendimaður
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu,
sveik lit í gær og lýsti yfir stuðningi
sínum við Esko Aho, leiðtoga mið-
flokksins, keppinaut Halonen. Rehn
hvatti stuðningsmenn sína til að
greiða Aho atkvæöi.
„Ég ber virðingu fyrir skoðunum
Törju Halonen en ég tel Esko Aho
hæfari til að fara fyrir landinu,"
sagði hin frjálslynda Rehn sem til-
heyrir sænskumælandi minnihlut-
anum. Sjálf var Rehn í framboði í
fyrri umferð forsetakosninganna
fyrir þremur vikum.
Tarja Halonen á áreiðanlega eftir
að finna fyrir þessu þar sem hún
hefur treyst á að samtakamáttur
Esko Aho faðmar Törju Halonen að
sér þegar atkvæöi voru talin í fyrri
umferö finnsku forsetakosninganna
fyrir þremur vikum.
kvenna myndi fleyta henni inn í for-
setaembættið.
Elisabeth Rehn tapaði sjálf fyrir
karli, núverandi Finnlandsforseta,
Martti Ahtisaari, i kosningunum
1994. Þá hafði hún ætlaö sér að
verða fyrsta konan til að ná kjöri
sem forseti Finnlands.
Halonen hefur hvatt konur um
allt land til að klúðra ekki aftur
tækifærinu til að fá kvenforseta.
Henni urðu hins vegar á þau mistök
að viðurkenna að hafa ekki greitt
Elisabeth Rehn atkvæði sitt 1994.
Nýjustu skoðanakannanir sýna
að Aho hefur saxað á forskot
Halonen. Núna munar tveimur til
fjórum prósentustigum á þeim en
munurinn var 14 prósentustig fyrir
tveimur vikum. Ef átta prósentin
sem kusu Rehn snúast á sveif með
Aho gæti það riðið baggamuninn.
Hagen vill láta
banna bænakall
Iúr hátölurunum
Carl I. Hagen, formaður
norska Framfaraflokksins, vUl að
bannað verði að
útvarpa bæna-
kalli úr mosk-
um múslima
um hátalara-
kerfi. Formað-
urinn segir að
slíkt sé ekki
viðeigandi í
Noregi og hefur
lagt fram frumvarp til laga um að
stöðva þetta.
Eftir lok ramadans, föstumán-
aðar múslima, veitti borgar-
hverfi í Ósló leyfi fyrir slíku
bænakalli í eitt skipti. Síðar í
mánuðinum verður tekin fyrir
| umsókn um föst bænaköll um há-
talarakerfi.
Framfaraflokkurinn vill að
l: innflytjendur sýni virðingu í
garð samfélags sem byggist upp á
kristnum gildum.
Prlmakov fer
ekki fram í for-
setakosningum
Jevgeni Prímakov, fyrrum for-
sætisráðherra Rússlands, til-
kynnti í gær að hann ætlaði ekki
að bjóða sig fram gegn Vladímír
Pútín, starfandi forseta, í forseta-
kosningunum í marslok. Því er
| ljóst að fátt getur komið í veg fýr-
i ir að Pútín verði nýr húsbóndi í
Kreml.
Prímakov hafði verið talinn
: eini maðurinn sem hugsanlega
gæti veitt Pútín einhverja
keppni. Hann sagðist hins vegar
ekki vilja taka þátt í forsetaslagn-
um í landi sem heföi fjarlægst
lýðræðið jafnmikið og raun bæri
vitni. Þar var hann að vísa í
f ófrægingarherferð fjölmiðla und-
ir stjórn Kremlarbænda gegn
flokki hans fyrir þingkosningam-
ar í desember.
Rússar leiða
uppreisnar-
menn I gildru
Rússnesk yfirvöld sögðu í gær
að hermenn þeirra hefðu um-
kringt um það bil eitt þúsund upp-
:í reisnarmenn múslíma þegar þeir
i reyndu að flýja burt frá Grozní,
j héraðshöfuðborg Tsjetsjeníu, sem
J Rússar hafa náð á vald sitt. Núna
ætla Rússar að beina kröftum sín-
um að uppreisnarmönnum sem
* hafast við í íjalllendi í suðurhluta
i lýðveldisins.
Hubert Védrine, utanríkisráð-
herra Frakklands, var í Moskvu í
gær og hvatti ráðamenn til að
íhuga hvaða stöðu Tsjetsjenía
; gæti haft innan rússneska sam-
bandsríkisins þegar átökunum
þar lýkur.
Heimildarmenn herma að við-
ræður Védrines við Vladímír
Pútín, starfandi Rússlandsfor-
seta, hafi verið erfiðar.
IRA fær einnar
viku frest til að
afhenda vopnin
Peter Mandelson, Norður-ír-
landsmálaráðherra Bretlands,
lagði í gær fram
frumvarp til
| laga um að leysa
upp heimastjóm
kaþólikka og
mótmælenda í
héraöinu. írski
iýðveldisherinn
(IRA) fær því
j eina viku til að
hefja afhendingu vopna sinna,
eða þann tíma sem það tekur
frumvarpið að fara gegnum þing-
ið.
IRA hefur ekki í hyggju að af-
henda vopnin á næstunni, að
sögn talsmanna Sinn Fein, póli-
tísks arms hreyfingarinnar.
Leiðtogar mótmælenda
funduðu um stöðuna í gær.