Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 UV m afmæli Til hamingju með afmælið 5. fehrúar 90 ára María Bjömsson, Skjólvangi Hrafnistu, Hafhéirfirði. 85 ára Sigurjón Gíslason, Laugarásvegi 67, Reykjavík. 75 ára Ingibjörg Sæmundsdóttir, Sæviðarsundi 78, Reykjavik. Jón Kristinsson, Fannafold 119, Reykjavík. 70 ára Steinunn Guðbrandsdóttir, Hléskógum 10, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í Drangey, félagsheimili í Stakkahlíð 17, milli kl. 18.00 og 21.00 í kvöld. 60 ára_______________ Þórður Óskarsson, Stigahlíð 92, Reykjavík. 50 ára Helga Rósa Ragnarsdóttir, starfsmaður í Tjaldanesi, Norður-Reykjum II, Mosfellsbæ. Eiginmaður hennar er Rúnar Jakobsson. Þau verða að heiman í dag. Eiríkur Þór Einarsson, Furugrund 52, Kópavogi. Friða S. Kristinsdóttir, Brúnavegi 4, Reykjavík. Hákon Sigurðsson, Akurgerði la, Akureyri. Jón S. Stefánsson, Hnúki, Akranesi. Jónina Kristín Eyvindsdóttir, Hrafnakletti 1, Borgamesi. Jónína Rósa Halldórsdóttir, Grundartúni 10, Akranesi. Kristján Frímann Kristjánsson, Sólheimum 42, Reykjavík. 40 ára Ingvar Bjarnason, Heiðmörk 6a, Hverageröi. Leifur Þórsson, Gilsbakka 5, Hvolsvelli. Lilja Þorsteinsdóttir, Amartanga 45, Mosfellsbæ. Ólafur Agnar Viggósson, Fjallalind 43, Kópavogi. Sigursteinn Bjamason, Stafni, Blönduósi. Sædis María Hilmarsdóttir, Hörgslundi 1, Garðabæ. Sæmundur Sigurðsson, Garðastræti 4, Reykjavík. Wieslawa Brykowska, Fjarðargötu 30, Þingeyri. aukaafslátt af smáauglýsingum DV Smáauglýsingar iPVl 550 5000 Bragi Jósepsson Bragi Jósepsson, prófessor við KHÍ, Langholtsvegi 87, Reykjavík, verður sjötugm* á morgun. Starfsferill Bragi fæddist í Stykkishólmi og ólst upp hjá fósturforeldmm sínum, séra Sigurði Ó. Lárassyni og Ingi- gerði Ágústsdóttur. Bragi lauk kennaraprófl frá KÍ 1951, stundaði framhaldsnám í upp- eldisfræöi við Newbold College í Bracknell í Englandi 1951-52, við Andrews University í Michigan i Bandaríkjunum 1961-62, lauk BA- prófi frá Peabody College of Vand- emilt University í Nashville, Tenn- essee í Bandaríkjunum 1963, MA- prófi frá sama skóla 1964, og dokt- orsprófi í samanburðarskólafræði og uppeldisfræði frá sama skóla 1968. Þá fór hann námsferðir til Norðurlandanna vorið 1969, til Vestur Evrópu 1974 og um Austur- Asíu 1989. Bragi stofnaði ásamt öðmm, og starfrækti heildsölufyrirtækið R. Jónsson & Co - ROCO, 1953-60, stofnaöi Náttúmlækningabúðina í Vestmannaeyjum og var forstöðu- maður hennar 1954-60, starfrækti og var meðeigandi Pípu- og steina- gerðarinnar, ásamt Lúðvíki Reim- arssyni 1955-67, var kennari viö Bamaskóla Aðventista í Vest- mannaeyjum i fimm ár og auk þess við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja 1957-61, lektor við Westem Kent- ucky University í Bowling Green í Kentucky í Bandaríkjunum 1967-70, dósent þar 1970-73, deildarstjóri Fræösludeildar við menntamála- ráðuneytið 1973-75, blaðamaður við Alþýðublaðið 1975-77, námsráðgjafi við FB 1977-79, sendikennari við Virginia Polytechnic Institut and State University í Virginíu í Banda- ríkjunum 1979-80, lektor í uppeldis- fræði við KHÍ 1980-84, dósent þar 1984-91 og prófessor við KHÍ frá 1991. Bragi stofhaði SKÁÍS 1980, fyrsta fyrirtæki sinna tegundar hér á landi sem stóð fyrir skoöanakönnunum í sautján ár, markaðs- könnunum og áhorfskönnunum. Hann hafði forystu um stofnun Miðskólans sem var starfræktur 1992-97. Út hafa komið eftir Braga bækumar Spíruskip, ljóð og uppstiUingar, 1960; Djúpfryst ljóð, 1961; Sjávarböm, skáldsaga, 1994; Auga fyrir tönn, skáldsaga, 1995; Ástfangnar flugvélar, ljóö, 1996. Auk þess hafa birst eftir hann ljóð og smásögur í blöðum og tímarit- um. Bragi hefur skrifað fjölda greina i dagblöð, einkum DB og DV. Þá ligg- ur eftir hann mikið magn ritgerða og greinargerða á sviði uppeldis- og kennslumála. Bragi sat í Fræðsluráði Reykja- víkur 1978-87, var formaður Bama- verndamefndar Reykjavíkur 1978-82, sat í Skólasafnanefnd Reykjavíkur 1981-90 og formaður hennar 1986-90, í úthlutunamefnd listamannalauna 1978-80, og sat í sendinefnd Islands hjá Sþ 1971-72. Fjölskylda Fyrri kona Braga er Dóróte Odds- dóttir, f. 3.4. 1934, hjúkrunarfræð- ingur. Þau skildu. Börn Braga og Dóróte eru Oddur Bragason, f. 2.7. 1953; Ingigerður Saga Bragadóttir, f. 26.6.1960. Seinni kona Braga er Grete Kaldalóns, f. 14.2.1947, kennari. Þau skildu. Synir Braga og Grete eru Logi Bragason, f. 7.8.1975; Sigurður Ósk- ar Lárus Bragason, f. 14.7. 1977; Bragi Kormákur Braga- son, f. 1.10. 1981. Hálfsystkini Braga, samfeðra, em Hulda Jósepsdóttir, f. 6.12. 1930, textílhönnuður; Þorbjörg Jósepfsdóttir, f. 19.8. 1938, talsíma- vörður; Haraldur Jós- epsson, f. 25.7. 1932, rennismiður. Foreldrar Braga voru Jósep Jakobsson, f. 17.6. 1905, d. 15.5. 1942, bóndi, og Jóhanna Bjamadóttir, f. 30.6. 1907, d. 5.5. 1943, húsfreyja. Ætt Jósep var sonur Jakobs, skósmið í Stykkishólmi Jakobssonar, Bjömssonar. Móðir Jakobs Bjöms- sonar var Ragnheiður Magnúsdótt- ir, sýslumanns í Búðardal Ketils- sonar. Móðir Jóseps var Ingibjörg, dóttir Ólafs Ólafssonar sem fór til Vesturheims, og Margrétar Hjalta- dóttur, pr. á Stað á Snæfjallaströnd og í Unaðsdal Þorlákssonar, pr. á Stað Jónssonar. Móðir Hjalta var Guðrún Guðmundsdóttir. Móðir Margétar var Rakel Þorsteinsdóttir, á Hesteyri Bjamasonar. Jóhanna var dóttir Bjama Stef- ánssonar og Guðrúnar Helgu Jós- epsdóttur, b. á Lambastöðum Jóns- sonar. Móðir Guðrúnar var Helga Bjamadóttir, b. á Ljárstöðum Berg- þórssonar, b. á Ljárskógum Þórðar- sonar, á Ljárskógum Jónssonar. Móðir Bjama var Sólveig Sigurðar- dóttir, b. á Gillastöðum Jónssonar. Móðir Sólveigar var Sigríður Skeggjadóttir, b. í Stórholti Brands- sonar. Helgu var Guðrún Jónsdótt- ir, b. á Hróðnýjarstöðum Jónssson- ar og Helgu Ásgeirsdóttur, frá Jörva. Bragi Jósepsson. Ragna Aðalsteinsdóttir Ragna Aðalsteinsdótt- ir, bóndi á Laugabóli í Laugardal við ísafjarðar- djúp, verður sjötíu og flmm ára á morgun. Starfsferill Ragna fæddist á Laug- arbóli og ólst þar upp með foður sfnum og systrum en móður sína missti hún 1934. Ragna stundað ýmis störf á unglingsárum, s.s. fiskvinnu og veit- ingastörf á vetrum en á sumrin vann hún á búi foður sins. Hún tók við búi á Laugarbóli 1955 eftir lát föður síns, og bjó þar félags- búi ásamt systur sinni í nokkur ár. Frá 1961 tók hún alfarið við jörðinni og hefur verið þar bóndi síðan. Fjöldi bama hefur verið á heimili Rögnu í gegnum tíðina svo og marg- ir sem þurft hafa athvarf og stuðn- ing um lengri eða skemmri tíma. Þá má geta þess að hún hefur á löngum búferli haft margt dyggra vinnu- hjúa, innlenda sem erlenda. Fjölskylda Böm Rögnu: Bella Aðalheiður, f. 15.3. 1955, lést í snjóflóðinu í Súða- vík 16.1. 1995, búfræðingur frá Hvanneyri en dóttir hennar var Petrea Vestfjörð, f. 21.3. 1982, fórst einnig í snjóflóðinu í Súðavík, ásamt móöur sinni; Garðar Smári Vestfjörð, f. 21.1. 1958, húsasmíöa- meistari í Garðabæ, kvæntur Katrínu Lindu Óskarsdóttur, f. 11.7. 1957, afgreiöslustjóra í íslandsbanka en börn þeirra eru Hjörtur Smári, f. 3.4. 1988, og Brynja Björk, f. 1.5. 1991, auk þess sem dóttir Garðars Smára og Erlu Björgvinsdóttur, er Helen Björg Vestflörð, f. 8.10. 1979, stúdent og fóstursonur Garðars Smára og sonur Katrínar Lindu er Óskar Sigmundsson sjúkraliði en unnusta hans er Gitte Jensen hjúkrunamemi; Gunnar Bjarki Vest- fjörð, f. 25.4. 1963, lést í snjóflóði á Óshlíð 8.3. 1989, vélvirkjameistari, var kvæntur Sesselju Vilborgu Amardótur, f. 1.9. 1964 en synir þeirra em Ragnar Freyr Vest- fjörð, f. 6.10. 1983, nemi, og Sindri Vestfjörð, f. 25.3. 1988, nemi. Fóstursonur Rögnu er Hjörvar Einir Helgason, f. 13.9. 1959, sjómaður. Systur Rögnu eru Rebekka Helga, búsett í Hafnarfirði en maður henn- ar er Sveinn Ólafur Sveinsson húsa- smíðameistari og eiga þau flmm börn; Sigríður Friðrikka, bóndi á Strandseljum en sambýlismaður hennar var Valdemar Valdemars- son sem er látinn og eru böm þeirra tvö;Sigríður Guðrún, búsett á Sel- tjamamesi en maður hennar er Jón Kr. Jónsson skipstjóri og eiga þau fimm böm; Sigríður Þorleifs, dó ung; Ásgerður, dó ung. Foreldrar Rögnu voru Aðalsteinn Jónasson, f. 1888, d. 1954, bóndi að Laugarbóli, og k.h., Ólöf Ólafsdóttir, f. 1902, d. 1934, húsfreyja. Ætt Aðalsteinn var sonur Jónasar, b. á Bimustöðum Bjamasonar, b. á Eiríks- stöðum Jónssonar, í Þemuvík Torfa- sonar. Móðir Aðalsteins var Rebekka Eg- ilsdóttir, b. á Laugarbóli Guðmunds- sonar, b. á Laugarbóli Egilssonar, b. í Bakkaseli Sigurðssonar. Móðir Egils var Rebekka Hallsdóttir, b. Tungu í Dalamynni Jónssonar en um hann er margar þjóðsögur. Ólöf var dóttir Ólafs, b. á Álfstöðum í Hrafnsflrði er varð úti 1902 Torfa- sonar, b. í Kjós í Grunnavík Ólafsson- ar, b. í Kjós Ásgeirssonar. Móðir Ólafs var Friðrikka Jónina Jónsdóttir, b. á Norðureyri Jónssonar, b. á Vífllsmýr- um Sveinssonar, á Hesti í Önundar- flrði. Móðir Friðrikku var Friðrikka Jónína Georgina Busch, dóttir Frið- riks meðhjálpara b. á Brekku Péturs- sonar Busch, verslunarstjóra í Neðstakaupstað á ísafirði. Móðir Frið- rikku var Guörún Jónsdóttir Thor- berg, verslunarstjóra á Patreksflrði, og Sigríðar Þóroddsdóttur, beykis á Vatneyri Thoroddsen. gTQRA SVIÐIÐ DJÖFLARNIR Eftir Fjodor Dostojevskí, leikgerð í 2 þáttum. 6. sýn. lau. 12/2 kl. 19, lau. 12/2 -formáli aö leiksýningu kl. 18, 7. sýn. lau. 19/2 íd. 19. BLÁA HERBERGIÐ Eftir David Hare, byggt á verki Arthurs Schnitzlers, Reigen (La Ronde). Fim. 10/2 kl. 20, sun. 20/2 kl. 19, fös. 25/2 kl. 19. Síbustu sýnlngar. LITLA HRYLLINGSBÚÐIN Eftir Howard Ashma. Tónlist eftir Alan Menken. Lau. 5/2 kl. 19, nokkur sætl laus, sun. 13/2 kl. 20. SEX í SVEIT Eftir Marc Camoletti Miö. 16/2 kl. 20, miö. 23/2 kl. 20. Síðustu sýningar. Ragna Aöalsteinsdóttir. lll hamingju með afmælið 6.febrúar 90 ára Sigurlaug Ámadóttdr, Hraunkoti, A-Skaft. 85 ára Boga M. Kristinsdóttir, Skarði 2, Búðardal. Brynhildur Baldvinsdóttir, Krummahólum 6, Reykjavík. Ólafía Þorgrímsdóttir, Bjarkargötu 7, Patreksfirði. 80 ára Guðlaug Gísladóttir, Vikurbraut 26, Höfn. Guðrún Bjömsdóttir, Brekastíg 28, Vestmannaeyjum. 70 ára Brynjólfur Brynjólfsson, Hellum, Vatnsleysuströnd. 60 ára Guðni W Kristjánsson, Reynihvammi 24, Kópavogi. Hörður Jóliannsson, Túngötu 52, Eyrarbakka. Jónina Guðmundsdóttir, Rauðalæk 47, Reykjavík. Valur Páll Þórðarson, Víkurbakka 6, Reykjavík. Hann verður að heiman. 50 ára Einar Amalds, Bugðulæk 6, Reykjavík. Guðmundur Einarsson, Lindasmára 37, Kópavogi. Gylíi Ómar Héðinsson, Birkihlíð 18, Reykjavik. Jón K. Einarsson, Skildinganesi 1, Reykjavík. Sigurbjöm Þorleifsson, Stóragerði 32, Reykjavík. 40 ára Guðrún Guðmundsdóttir, Suðurbraut 2a, Hafnarfirði. Hjördís Kristjánsdóttir, Tunguseli 8, Reykjavík. Jón Erlingsson, Álfatúni 33, Kópavogi. Ólöf Ágústsdóttir, Suðurási 6, Reykjavík. Ragnhildur Kristín Einarsdóttir, Kjartansgötu 15, Borgamesi. LiTLA SVIP: AFASPIL Höfundur og leikstjóri: Örn Árnason. Sun. 6/2 kl. 14, uppselt, sun. 6/2 kl. 17, aukasýning, sun. 13/2 kl. 14, uppselt, sun. 13/2 kl. 17, aukasýning, örfá sæti laus. FEGURÐARDROTTNING- IN FRÁ LÍNAKRI Eftir Martin McDonagh Lau. 5/2 kl. 19, örfá sæti laus, fim. 10/2 kl. 20. Sýningum fer fækkandi. LEITIN AÐ VÍSBEND- INGU UM VITSMUNALÍF í ALHEIMNUM Eftir Jane Wagner FÖS. 11/2 kl. 19, lau. 12/2 kl. 19. Miöasalan er opin virka daga frá kl. 12-18. frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram aö sýningu sýn- ingardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiöslukortaþjónusta Simi 568 8000 Fax 568 0383
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.