Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 21
f ’ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 viðtal 21 ín Sesselja Arnardóttir: ist á í ráttarsalnum i en faðirinn ver. Á veggjunum hanga málverk eftlr Arreboe Clausen, föður Arnar, ásamt teikningum úr hverja mynd og Örn kann þær allar. réttarsal eftir Árna Elfar, málverkum eftir Matthías Sigfússon og teikningum af frægum tónlistarmönnum. Það er saga bak við DV-myndir ÞÖK hún er gift Jóhanni Sigurðarsyni leik- ara. Eru leiklistin og lögfræðin skyld fög? Er gott fyrir lögfræðing að vera gæddur leikhæfileikum? „Það er eng- inn vafi á því,“ segir Guðrún. „Ég held að pabbi hefði orðið fínn leikari." „Ég fékk nú þá umsögn frá einum skjólstæðinga minna fyrir skömmu að ég hefði átt að fæðast i Ameríku," seg- ir Öm glottandi. „Ég held að lögfræð- ingur sem ekki hefur sannfæringar- kraft til að fylgja sínu máli eftir sé ekki góður lögfræðingur. Hann er því leik- ari í þeim skiiningi og verður að vera dálítið góður leikari. Hitt er svo annað mál að sú mynd sem er dregin upp af lögfræðingum í bandarískum bió- myndum á lífið skylt við islenskt rétt- arkerfi. Það getur verið að lögfræðing- ur sem er góður leikari geti platað kviðdóm upp úr skónum en þú platar ekki löglærða dómara sem hlýða á mál hér á landi. Þú getur í besta falli haft einhver svolítil áhrif á þá.“ Eiginkona Amar, Guðrún Erlends- dóttir hæstaréttardómari, starfaði með honum á stofúnni á árunum 1961 til 1971 þegar hún fór að kenna við Há- skólann en tók sæti sem dómari 1986. Sjö ára í heimsókn hjá morðingja Það hlýtur að hafa verið mikið talað um lögfræði í kringum Guðrúnu Sess- elju þegar hún var að alast upp? „Það fór auðvitað ekkert hjá því. Ég fór snemma að fylgja pabba og mömmu í vinnuna og mér er mjög minnisstætt þegar ég fór með pabba 6 eða 7 ára gömul í fangaheimsókn inn í Síðu- múla. Þetta var kona sem haföi orðið manni að bana og mér er minnisstætt hvað var fínt inni hjá henni, útsaums- myndir og hannyrðir upp um aila veggi. Sehma notaði ég oft tækifærið og fékk að fara með honum austur á Litla-Hraun og æfa mig í að keyra en þar fór ég aldrei inn.“ Öm rifjar upp að margir hafi hneykslast á honum að taka bamið með sér til þessarar voðalegu konu en þetta hafi ailt saman verið i góðu. En ef lögfræðingar era góðir leikarar era þeir þá ekki oft að halda fram sakleysi manna þótt þeir viti að þeir séu sekir? Berst fyrír alla „Það hlýtur að vera fyrsta skylda allra lögmanna að beijast fyrir hags- munum skjólstæðinga sinna hvort sem þeir eru sekir eða saklausir," segir Öm. „Stundum veit ég ekki hvort skjólstæðingar mínir eru sekir eða saklausir en stundum veit ég að þeir eru annað hvort. En ég berst af jafn- miklum krafti fyrir báða. Þannig er lögfræðin og henni verður að lúta. Ef einhver maður sem er sekur er sýkn- aður vegna einhverra lagaákvæða þá má lögfræðingurinn ekki taka það nærri sér. Ég segi ekki að ég væri ró- legur ef ég vissi til þess að morðingi væri sýknaður og sennilega myndi ég segja mig frá slíku máli. En í flestum öðrum tilvikum hef ég ekkert sam- viskubit þótt menn séu sýknaðir þó ég viti að þeir séu sekir.“ Guðrún segir að hjá Ríkissaksókn- ara líti lögfræðingar ekki á dómsniður- stöðu sem sigur eða tap. Þeim sé skylt að sætta sig við niðurstöður þess rétt- arkerfis sem þau starfi við og trúi að sé skilvirkt. „Ég hefi lent í því að setja ofan í við unga sækjendur sem mér fimdust vera of ákafir," segir Öm og slær risastór- um hnefanum í borðið orðum sínum til áréttingar. „Það er skylda okkar sem störfum fyrir ákæruvaldið að leita sannleikans og upplýsa mál. Það þýðir ekki að við höfúm ekki samúð með þvi fólki sem við fáum til umfjöllunar í sakamálum en lögfræðingar geta ekki látið tilfinningar stjóma afstöðu sinni. Lögin bjóða okkur að leita sannleikans og ákæra ef fyrirliggjandi sönnunar- gögn em nægileg eða líkleg til sakfeO- ingar.“ Hvaða áhríf hefur dómstóll götunnar? Eitt af þeim hugtökum sem hafa ver- ið hávær í umræðunni að undanfómu er, „dómstóll götunnar". í munni flestra virðist það þýða almenningsá- lit. Þama er verið að vísa til háværrar umræðu sem hefur orðið um suma dóma Hæstaréttar, sérstaklega þá sem fjalla um viðkvæm mál eins og kyn- ferðisafbrot. Er „dómstóll götunnar" áhrifamikið tæki og hefur hann áhrif i islensku réttarkerfi? „Það er enginn vafi á því að hávær umræða hefur oft á tíðum einhver álirif. Dómstólar eiga hins veg- ar ekki að láta slíka umræðu hafa áhrif á sig enda er hún oft byggð á van- þekkingu á rökum málsins og þeim forsendum sem dómur byggist á. Al- menn umræða hefúr hins vegar áhrif á þingmenn og Alþingi sem á stundum breyta lögunum til samræmis við það. Maður heyrir fólk út i bæ heimta dóma upp á 10-20 ár en það finnst mér of langt gengið," segir Öm. „Það verður að gæta þess að lögin snúist ekki upp í andhverfú þess sem ætlast er til. Við höfúm dæmi frá Bandaríkjunum þar sem refsing við nauðgun er svo þung að árásarmaður- inn getur allt eins drepið fómarlambið líka, því það munar ekki svo miklu varðandi refsinguna," segir Guðrún. „Þetta er réttarfar sem við viljum ekki sjá hér á landi.“ En er refsirammi ís- lenskra laga of vægur miðað við ná- grannalöndin? „Mér sýnist að í mörg- um tilvikum sé hann mjög áþekkur,“ segir Guðrún. „Menn geta haft ólíkar skoðanir á því gildismati sem felst í lögum og dómaframkvæmd. Mér finnst t.d. að refsingar við ofbeldisbrotum ættu að vera þyngri en refsingar við fjármuna- brotum. Það byggist á þeirri persónu- legu skoðun minni að ofbeldi sé alvar- legra brot en fjármunabrot." „Mér sýnist að almennt hafi dóm- stólar refsiramma sem er sæmilega nothæfúr," segir öm. Þau feðgin em treg til að ræða einstök mál eins og góðum lögfræðingum sæmir en era sammála um að stundum þyrfti að upplýsa þá betur sem tjá sig um dóms- niðurstöður á opinberum vettvangi. Það þarfaðveija Hæstarétt „Ég má auðvitað aldrei láta neitt í mér heyra," segir Öm og vísar þar til tengslcinna við eiginkonuna. „En stundum blöskrar mér hvemig Hæsti- réttur er gagnrýndur að ósekju og menn tína til þau rök sem henta þeirra málstað hveiju sinni. Mér finnst að lagaprófessorar við Háskólann ættu oft að vera duglegri að skrifa um lögfræði- leg málefni og upplýsa almenning því dómaramir mega ekki blanda sér í umræðuna. Mér fyndist þess vegna vel koma til greina að einhver starfsmað- ur réttarins hefði leyfi til þess að skýra ýmis rök af þessu tagi fyrir fólki þegar vitleysan keyrir alveg um þverbak." Verðum að trúa á réttarríki og gott dómskerfi En er þá dómskerfi okkar nógu gott? Er ekki hávær umræða um dómsnið- urstöður vitni um það að svo sé ekki? „Ég vil benda á að 1992 vom t.d. ákvæði hegningarlaganna um kynferð- isafbrot endurskoðuð og margt fært til betri vegar,“ segir Guðrún. „Það er einnig nýlega búið að breyta lögum um meðferð opinberra mála sem tryggja réttarstöðu brotaþola verulega. Nú er t.d. brotaþolum í kynferðisbrot- um og öðrum oföeldisbrotum skipaður talsmaður strax og fleira gert til að tryggja réttindi þeirra. Ég hlýt að trúa því að við búum í góðu réttarríki og er reyndar sannfærð um að svo sé.“ „Hér áður var það þannig að ef menn réðu sér ekki sjálfir prívatlög- fræðing þá fengu þeir enga aðstoð,“ segir Öm. „Ég tel að við búum við hlutlaust og réttlátt réttarfar. Hér er spilling nær óþekkt miðað við mörg önnur lönd og réttarstaða manna trygg. Við sem störfum í þessu samfé- lagi við lög og rétt verðum að trúa á það.“ -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.