Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 13
J-j’V LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 .fréíf/f. Konráö Alfreðsson: „Ég hef lent í því aö fara um borö þar sem Steini var skipstjóri og þá var öll áhöfnin rekin.“ sköpunar- og þróunarsviðs fyrir- tækisins frá því um mitt ár 1996 þar til fyrir ári. „Þorsteinn er mjög traustur og öílugur maður og varkár persónu- leiki,“ segir Björgólfur. Þeir Þor- steinn fóru eitt sinn saman með fjöl- skyldur sínar í frí til Flórída. Þar reyndist Þorsteini erfitt að hemja veiðieðlið. „Hann getur verið mikOl grallari og það er mjög gaman að vera með honum í frii. Viö gengum mikið í sjónum og sáum einhverja furðu- fiska með hala sem helst líktust skötu. Við ákváðum að það gæti verið áhugavert að reyna að veiða þetta, fengum okkur kastnót og fór- um í veiði," segir Björgólfur. Hann telur að flestir strandgestir hafl ris- ið upp við dogg og fylgst með „þess- um hálfvitum" sem óðu út á sund- skýlunum, einbeittir í fasi með net á milli sín. „Okkur tókst að veiða fisk en það var erfitt að halda honum. Steini náði einum og hélt milli læra sér en þá var skatan með gaddi á halanum og stakk hann í höndina. En hann var meiri veiðimaður en svo að hann sleppti skötunni strax og hélt á meðan hún var að stinga hann í þumalinn þó hann væri kvalinn og horfði á mig með angistarsvip. Loksins þegar hann sleppti stóð blóðspýjan upp úr fmgrinum. Viö fórum síðan upp á herbergi og eydd- um hálfri vodkaflösku á hendurnar á honum til að tryggja að hann fengi ekki eitrun," segir Björgólfur og hlær að endurminningunni. Andvaka endurskoðandi Björgólfúr telur að farsæld Sam- herjafrænda megi reka til þess hversu markvissir og óhikandi þeir séu í starfi sínu. Þeir eru mjög líkir og það er lýsandi yfir samstarf þeirra yfirhöf- uð að þeir hafa haft mjög fasta sýn á það sem þeir ætla sér og eru óhræddir við að fylgja því eftir,“ segir hann. Eins og aðrir viðmælendur DV á Björgólfur erfitt með að nefna galla á persónu Þorsteins Vilhelmssonar. „Ég þekki bara einn galla á Steina. Hann hrýtur. Á ferðalögum gistum við yfir- leitt í sama herbergi og það var lítt svefnsamt fyrir honum því hann hrýt- ur eins og andskotinn sjálfur," segir hann og hlær enn. Þorsteinn hefúr mikinn áhuga á íþróttum og sækir fótbolta- og hand- boltaleiki. Skíðaiþróttina leggur hann sérstaka rækt við og fer oft með fjöl- Bjarni Hafþór Helgason: „Þeir náöu bara ekki lendingu í þessu máli og Þorsteinn hætti.“ skyldu sinni á skíði og vílar þá fátt fyr- ir sér ef marka má Björgólf: „Hann er óhræddur við að láta vaða. Það var verið að legga keppnisbraut fyrir þremur árum og hann smeliti sér í hana og sleit krossbönd og átti lengi í því.“ Vei að milljörðunum kominn Björgólfur telur öruggt að sjávar- útvegurinn hafi hvorki misst af Þor- steini né fjármunum hans. Hann segist þó ekki vita hvað Þorsteinn sé að hugsa í þeim efnum. „Ég átta mig ekki alveg á því og vildi að ég væri fluga á vegg til að vera á und- an honum að kaupa ef hann fer að kaupa eitthvað," segir Björgólfur sposkur. Björgólfur telur að mönnum, m.a. alþingismönnum, hafi yfirsést sú staðreynd að þeim íslenska kvóta sem Samherji ráði yfir sé ekki ein- um að þakka það verðmæti sem nú felist í fyrirtækinu. „Félagið er með starfsemi í Þýskalandi, á hlutdeild í fyrirtækjum í Færeyjum, Skotlandi og víðar. Ég tel að Steini sé vel að þessum peningum kominn og sé ekkert að því þó að ég og þú náum ekki hugsa einu sinni hvað þetta eru margir þúsundkallar." Björgólfur segist ekki vita orsak- ir þess að Þorsteinn yfirgaf Sam- herja: „Allan þann tima sem ég vann með þeim fann ég ekki annað en að þeir væru samhentir í þvi sem þeir voru að gera. Ég veit ekki um neitt atvik sem hefur orsakað það að hann hætti og finnst reyndar of mikið gert úr því þótt einhver ein- staklingiu- hætti hjá fyrirtæki sem hann hefur byggt upp. Það getur verið hið eðlilegasta mál og ég ætla ekki að það séu nein heiftarleg illindi á milli þeirra." Rak áhöfnina í bræði Mér líkar Þorsteinn ágætlega," segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sem var háseti á Akureyrinni fyrstu fjögur árin. „Steini er áhugasamur maður og það var mikil virðing borinn fyrir honum sem skipstjóra. Það verður ekki af Steina skafið að hann er skapstór en það er gott að vera með honum. Nánast allir sem ég var meö á skipinu eru enn hjá útgerðinni og voru allan tímann með Steina og það segir sitt. Hans skip voru ávallt með aflahæstu skipum og það var síður en svo tilviljun," segir Kon- ráð. Fyrir utan skapsmuni Þorsteins segist Konráð enga galla geta nefnt á manninum. „Hann var oft helst til fljótur að rjúka upp en það fór úr honum. Við höfum aldrei orðið vin- ir þó við séum ágætis kunningjar en ég veit að hann er góður félagi og Akureyrlnn EA-frystitogari Baldvin Þoreteinsson EA-frystltogari Hríseyjan EA-ísflsktogari Margrét EA-frystltogari Oddeyrin EA-nótasklp Seley SU-nótasklp Víölr EA-frystltogari Þorstelnn EA-nótasklp (FJölvelóisklp I smíðum) Þetta seldi Þorsteinn Skipastóll fyrir sölu 13,9 milljarðar í dag 14,6 milljarðar 49% f Rlfi sem gerlr út rækjutogara ísafjöröur Keyptu Hrönn og Guöbjörgu ÍS og fóru } Skagaströnd Hl Keyptu 40% Akureyri ..í ' í Skagstrendlng og seldu Aöalstöövar. Rækju- og\ lagmetisverksmiðjan Strýta, pökkunarstöö og j vöruþróun Aflaheimildir skipa 40.618 þorskíg. tonn 16.003 norsk-ísl. síld Hagnaður sl. 12 mán. 400.614.000 kr. Þórshöfn Hrisey Dalvík 33% f Hraöfrystlstöð Þórshafnar 0 Hlutur f Snæfelli í gegnum Kaldbak sem ^ SamherJI á með KEA^ Síldarsöltun og sildar- og loðnufrystlng Eskifjörðu Fisklmjölsverksmlðja og loðnufrysting Reyðarfjóröur Hlutur i Skipaklettl. Togarinn Snæfugl í lelgu erlendis : Grindavík Bandaríkin Ocean Seafoods USA Útgerð Starfsemi Færeyjar Framherji SP/f 33% hlutur vc-iðar við Færeyjar, ■ Barendshafi og á Reykjaneshrygg. Skotland OFCLtd. Gerir út þrjá togara, þ jjn. gömlu Hjaiteyrina og Snæfugl. kvóti við Skotland, Noreg, H Svaibarða og í Norðursjó England Seagold Ltd. Frsksö lufyrirtæki Þýskaland Samherji GmbH 99% hlutur í DFFU gerir út fimm sliip þ.á.m. Hannover, _____ áður Guðbjörg ÍS kvóti við Cranbnd, Sva&arSa, Island, í Norðursjó og vfðar. Rekur þar einnig vélsmiðju. Þorsteinn Viihelmsson: Með salt í blóðinu VtjálmurTr)ggÁi KristjánV.Vilhelmsson, véis^óriogeinn jósmóöirí Hrfsey ogáAkureyri. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Baldvin Þorsteinsson, skipstjóriíHriseyog áAkureyri. Rnnbogi Baldvinsson, framkvæmdastjóri DFFU í Þýskalandi. Srýálaug Þorsteinsdótlir, húsfre^aá Hámmdarstööixn. Baldvin Þorsteinsson, skipstjóri á Árbakka. BjömBaldurBaldvinsson skipstjóriog hafnarvxöur. á Akureyri. Hámundarstaðir í Hrisey. Ir BakMn Þorvafcfeson, útvegsb. á HámndarstDÖuru raút BalcMnsdóttir, I góður vinur vina sinna.“ Þeir Konráð og Þorsteinn hafa nokkra hildina háð frá því Konráð fór að starfa fyrir Sjómannafélag Eyjafjarðar. „Ég hef lent í því að fara um þorð þar sem Steini var skipstjóri og þá var öll áhöfnin rekin. Steina lík- aði ekki að ég skyldi koma um borð til þess að reyna að leiðrétta það sem miður var. Þetta voru mikil læti en það fór allt vel fyrir rest,“ rigar Konráð upp. Að sögn Konráðs hafa Samherjafrændur ekki borist mikið á á Akureyri og segir að það hafi ekki verið fyrr en á síðustu misserum, þegar þeir tóku að fjárfesta persónu- lega í ýmsu utan sjávarútvegsins, að ríkidæmi þeirra varð áber- andi. Hann segir bæjar- búa bera mikla virðingu fyrir frændunum og uppbyggingarstarfi þeirra. „Á sama tíma og hér er engin fólks- fjölgun er þetta fyrir- tæki, og ÚA sömuleið- is, að stækka og stækka. Okkur veitir ekki af þeim sprautum sem þeir hafa komið með inn í atvinnulífið hér,“ segir Kon- ráð. -GAR Björgólfur Jóhannsson: „Við eyddum hálfri vodkaflösku á hendurnar á hon- um til aö tryggja aö hann fengi ekki eitrun."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.