Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 30
» 38 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 Ferðamönnum fækkar Ferðamenn streyma ekki til Tyrklands eins og áður. Menn tala jafnvel um hrun í ferða- þjónustunni en á síðasta ári fækkaði ferðamönnum á Tyrk- land um 24.1%. Helstu ástæð- umar fyrir minnkandi áhuga á landinu rekja menn annars veg- ar til hótana kúrdískra skæru- liða og hins vegar til hinna skelfilegu jarðskjáifta sem skóku landið í fyrra. Rokk og ról Nýlega hóf breska ferðaskrif- stofan Adventures Rock, sem hefur aðsetur í London, að bjóða tóniistarferðir um borg- ina. Hægt er að hafa samband við ferðaskrifstofuna og fá upp- lýsingar um tónieika fram í tímann en auk þess er fólki boð- ið upp á skoðunarferð á merka staði í borginni sem tengjast popptónlist með einum eða öðr- um hætti. Nú þegar hefur ferða- skrifstofan efnt til ferða á tón- leika Eurythmics, Elvis Costello og Blondie. Fyrir dyr- um standa tónleikar með Sting i Royal Albert Hall og má búast við miklu húllumhæi í kring- um þá. Gönguferðir á Spáni Ferðaskrifstofan IT-ferðir hyggst bjóöa upp á gönguferðir á Spáni næsta sumar, nánar til- tekið pílagrímaleiðina frá Frakklandi til Santiago de Compostella í Galisíu. Öll vegalengdin eru fyrir- skrifaðar 29 dagleiðir en ferða- skrifstofan býður upp á fyrstu átta dagleiðimar frá Ronceaval- les, sem var fyrsti áfangastaður pílagrímanna á Spáni. Þar barði Roldán fyrir Karl mikla gegn Márum árið 778. Eins og áður segir verða gengnar átta dagleiðir og endað í höfuðborg Rioja-héraðs í Logrono. Píla- grímaferðimar hófust snemma á þessari öld og smám saman þróaðist fastmótuö gönguleið. Mikil náttúrufegurð er á þess- um slóðum og sums staðar ligg- ur leið göngumanna yfir 2000 ára gamlar brýr frá tímum Rómverja. Gist verður í svefh- pokum í skálum eða á ódýrum hótelum, svo sem venja er á pílagrímaleiðinni. Nánari upp- lýsingar er að fá á ferðaskrif- stofunni. Skíðaganga um Kjósarskarð í vetur efnir Ferðafélagið Úti- vist til skíðagönguferða flesta sunnudaga meðan snjóalög leyfa. Á morgun verður boðiö upp á skiðagöngu um Kjósar- skarð og eins og kemur fram í nýrri ferðaáætlun félagsins verður m.a. fariö hjá Sauðafelli. Lagt verður upp frá BSÍ klukk- an 10.30. Þá er vert að minna á myndakvöld Útivistar á mánu- dagskvöld þar sem meðal verða sýndar myndir frá ferð jeppa- deildar í Fjörður og einnig verða sýndar myndir af nýju göriguleiðinni frá Sveinstindi um Skælinga að Eldgjá. Grænlendingar taka vetrarsportið með trompi: Keppt í ísgolfi og erfiðustu skíða- gönguleið heims Heimsmeistarakeppni í ísgolfl var haldin í fyrsta skipti í fyrra við góðan orðstír. Það var Englending- urinn Peter Masters sem bar sigur úr býtum og mun hann verja titil sinn í næsta mánuði þegar keppnin verður haldin á ný. Miðdepill keppninnar er í nágrenni ferða- mannabæjarins Uummannaq á Norður-Grænlandi en þeir sem vit hafa á ísgolfi segja að þar séu kjöraðstæður. ísgolf er í sjálfu sér ekki svo mjög frábrugðið hefð- bundnu golfl; kúlan er reyndar ekki hvít heldur dökk og flötin hvit en ekki græn. Eins og gefur að skilja er ekki hægt að eiga viö lögun vallar- ins en sökum þess hversu erfitt er að ganga á ísnum samanborið við grasi vaxnar flatir eru vegalengdir mun styttri en almennt tíðkast á golfvöllum. Fleiri vetraríþróttir verða í brennidepli á Grænlandi á næst- unni því einnig stendur fyrir dyrum keppni í skíðagöngu um óbyggðir landsins; alls 160 kílómetra leið. Lagt verður upp frá bænum Sisimut á vesturströnd Grænlands þann 7. apríl næstkomandi og tekur skíða- gangan þrjá daga. Göngumenn gista tvær nætur í tjöldum en með í for er jafncm hópur starfsfólks sem sér um farangur og matreiðslu. Það þykir sæta nokkrum tíðindum að Thomas Alsgaard, einn af bestu skíðamönn- um Noregs, hefur tilkynnt þátttöku sína í keppninni. Að sögn aðstand- enda keppninnar mega allir taka þátt en betra er að kunna eitthvað fyrir sér á gönguskíðum en keppnis- leiðin er talin svo erflð að allir þeir sem komast í mark eru í sjálfu sér sigurvegarar. í tengslum við keppnina verður ýmis önnur afþreying í boði í bæn- um Sisimut, svo sem hundasleða- ferðir og skemmtanir þar sem ferða- mönnum gefst færi á að kynnast háttum innfæddra. Sofið í snjóhúsi Þá er ótalin enn ein nýjungin á Grænlandi en það er nýtt snjó- húsahótel í grennd við bæinn Kan- gerlussuaq. Hótelið sam- anstendur af fimm snjóhúsum sem tengd eru saman með tveim- ur stærri húsum. Hótelhald- arar heita fólki fersku lofti en líka nokkrum kulda. Gera Snjóhúsið er mikil listasmíö og þar er finna lágmarksþæg- indi, svo sem hreindýraskinn til aö liggja á. Innandyra má gera ráö fyrir tæplega 10 gráöa hita aö næturlagi en ut- andyra fer frost gjarna niöur í 30 gráöur á þessum árstíma. DV-mynd LIL foto má ráð fyrir að frost fari niður í 30 gráður að næturlagi og hitastig inn- andyra í snjóhúsunum sé rétt neðan við 10 gráöur. Engum á samt að verða kalt því snjóhúsið leggur fólki til hreindýraskinn og kuldaþolna svefnpoka. Snjóhúsin eru ekki stór og aðeins tólf gestir geta gist í þeim í einu. Þá geta menn gætt sér á ýmsum guðaveigum á bar snjóhótelsins. Þar eru menn víst blessunarlega lausir við skort á ísmolum en gest- um er jafnan bent á að klæðast vett- ísgolf er í sjálfu sér ekki svo mjög frábrugöið heföbundnu golfi; kúlan er reyndar ekki hvít heldur dökk og flötin hvít en ekki græn. DV-mynd Matthew Harris lingrnn því glösin, eins og reyndar borð og stólar staðarins, eru öll búin til úr ís. Ýmsar gagnlegar upplýsingar um ferðamennsku á Grænlandi er að finna á heimasíðu grænlenska ferðamálaráðsins á slóðinni www.acr.gl á Netinu. -aþ Auk heföbundinna siglinga um Breiðafjörö munu allar sérferðir og veislu- ferðir veröa stórauknar. Sæferðir yfirtaka Eyjaferðir í Stykkishólmi: Veislu- og hvalaskoðunarferðum fjölgað DV, Vesturlandi:__________________ Nýtt ferðaþjónustufyrirtæki hefur veriö stofnað í Stykkishólmi sem mun taka yfir alla ferðaþjónustu Eyjaferða. Nýja fyrirtækið, sem ber nafnið Sæferðir ehf., hyggst viðhalda þeirri góðu þjónustu sem Eyjaferðir hafa boðið á undanförnum árum og kappkosta að auka hana enn frekar. Aöaleigendur fyrirtækisins eru Kynnisferðir ehf., Pétur Ágústsson, Svanborg Siggeirsdóttir og fjölskylda, auk Olis hf. og Sjóvá-Almennra hf. Framkvæmdastjóri félagsins verður Björn Kristjánsson og mun hann jafn- framt annast markaðs- og sölumál varðandi ferðaskrifstofur og erlendan markað. Höfuðstöðvar félagsins verða í Stykkishólmi og mun Svanborg Sig- geirsdóttir hafa umsjón með dagleg- um rekstri. Pétur Ágústsson verður útgerðarstjóri og aðalskipstjóri fé- lagsins ásamt Siggeiri Péturssyni. Félagið mun verða með tvo báta á næsta sumri. Það er Brimrún sem mun verða notaður aðallega fyrir hvalaskoðun en jafnframt hafa verið fest kaup á öðrum stórum bát sem mun sinna hefðbundnum skoðunar- ferðum og veisluferðum frá Stykkis- hólmi. Auk heföbundinna siglinga um Breiðafjörð munu allar sérferðir og veisluferðir verða stórauknar. Þá er einnig hugmyndin að stórefla hvala- skoðunarferðir frá Ólafsvík. -DVÓ Úrval-Útsýn hefur beint leiguflug til Krítar: Ber svip af Feneyj- um og Tyrklandi Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn býð- ur í ár nýjan sólarstað við Miðjarðar- haf i beinu vikulegu áætlunarflugi, hina fomfrægu eyju Krít sem er svo sannarlega töfrandi heimur út af fýr- ir sig. Sumarið er langt á Krít, sem er stærst grísku eyjanna, eða frá byrjun mars til loka október. Eyjan er óum- deilanlega vinsælasti sumarleyfis- staður á Grikklandi. Sjórinn með- fram Krítarströndum er óvenju hreinn og tær og þær hafa iðulega hlotið hin evrópsku bláfanaverölaun. Ferðaskrifstofan býður dvöl í tveimur sólarstrandabækjum á Krít, í Chania og i Rethymnon. Chania er önnur stærsta borgin á Krít og fyrrum höfuðstaður eyjarinn- ar. Hún er á vesturströndinni og tal- in vera elsta borg i heimi sem verið hefur samfellt í byggð frá stofmm fram á okkar daga. Gamh bæjarhlut- inn innan borgarmúranna ber svip af Feneyjum og Tyrklandi en hjarta borgarinnar er gamla höfhin þar sem andrúmsloftið er heillandi og laðar til sín bæði íbúa og erlenda ferðamenn. Rethymnon er miðja vegu milli Chania og Herakhon, höfuðborgar Heimaland Grikkjans Zorba verö- ur áfangastaöur Úrvals-Útsýnar í sumar. Krítar. Hún er lítil perla, miðstöð menningarlífs á Krít, skemmtilegur bær með tyrkneskum blæ. Farþegum gefst kostur á skoðunar- ferðum um Krít, m.a. til Heraklion og Knossos en auk þess verða í boði skoðunarferðir til Aþenu og Santor- ini. Krítarferðimar standa frá 17. apr- íl til 11. september nk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.