Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 ifciðivon i Stangaveiðifálag Reykjavíkur: Árshátíðin um næstu helgi - Ingibjörg Sólrún veislustjóri Veitt veröa verðlaun fyrir stærstu fiskana á veiöisvæöum SVR á árs- hátíðinni næstu helgi en Ingibjörg Sóirún Gísladottir verður veislu- stjóri og á örugglega eftir að segja eina veiðisögu. DV-mynd JAK Það er allt á fullu hjá skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur fyrir næstu helgi en þá verður árshátíð fé- lagsins haldin á Hótel Sögu, Súlnasal. En næsta föstudag verður hún haldin og verður örugglega fjölmenni. „Við eigum von á miklu fjölmenni enda árshátíðin stór þáttur í starfl fé- lagsins og það hefur gengið vel að selja miða,“ sagði Marinó Marinós- son, formaður skemmtinefndar, er við ræddum við hann í vikunni. „Við veitum verðlaun fyrir stærstu laxana og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri verður veislustjóri hjá okkur þetta árið. Hún mun örugglega segja skemmtilegar veiðisögur. Andrea Gylfadóttir, Sigrún Hjáfmtýsdóttir, Selma Björnsdóttir og Sigríður Bein- teinsdóttir verða með söngatriði og Björgvin Halldórsson og Stjórnin sjá um danstónlistina langt fram eftir nóttu,“ sagði Marinó enn fremur. Veiðieyrað Við vorum að tala um að veiði- menn væru að fara til veiða í Fiskilækjarvatn, en þetta átti auð- vitað að vera Tangavatn. En þetta Tangavatn er í Landsveit og þar veiðist bleikja og urriði. Stærstu fiskamir eru kringum 4 pund. Og veiðimenn hafa verið að fá þarna fína veiði og góða fiska og auðvit- að hafa þeir allir fengist á flugu. í Fiskilækjarvatni, sem er rétt und- ir Hafnarfjalli, er lítið veitt á vet- urna. En til er góð saga af veiði- manni sem fór þangað einn vetur- inn og fékk að renna undir ísinn. Veiðiskapurinn gekk rólega til að byrja með og hann varð alls ekki var. Ætlar hann að taka síðasta kastið niður um vökina og hann er rétt búinn að renna færinu nið- ur þegar kemur boltafiskur og tekur agnið. Fiskurinn var rétt á 10-15 sekúndur en slítur færið og lætur sig hverfa. Þessi fiskurinn hefur ekki sést siðan, en veiði- maðurinn giskaði á að hann hefði verið 6-7 pund. Eins gott að passa sig á ísnum Veiðimenn hafa eitthvað verið að reyna gegnum ís í vetur þar sem því verður við komið. Tíðar- farið hefur ekki verið hagstætt fyrir veiðimenn og af einum frétt- um við um daginn sem fór að dorga niður um ís eða hann ætl- aði allavega að reyna það, bless- aður. Hann kemur að vatninu og finnst isinn eitthvað skrýtinn. Þegar hann stígur á ísinn var hann þunnur og veiðimaðurinn datt niður mn hann. En sem bet- ur fer er ekki djúpt þarna við landið svo að hann gekk með landinu og fann sér vök. Þar var hægt að dorga, en engan fékk hann fiskinn. Það er eins gott að passa sig þegar ís á vötnum er annars vegar. Þrjár á lausu þessa dagana Þær em nokkrar laxveiðiámar á lausu þessa dagana eins og Búð- ardalsá á Skógarströnd, Hallá, skammt frá Skagaströnd og Þverá i Fljótshlíð. Það ætti að skýrast á allra næstu dögum hver fær þess- ar laxveiðiár fyrir sumarið. Þess- ar laxveiðiár eiga það sameigin- legt að hafa gefið svipað magn af fiski á síðasta sumri. VERÐ FRÁ KR. 1 BEINSKIPTUR Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1280 Hyundai Elantra er með 116 hestafla 16v vél sem þýðir að enginn bíll í sama stærðarflokki er jafn kraftmikill. Þar að auki er enginn á jafn góðu verði. Staðalbúnaður: ABS hemlalæsivörn, 2 loftpúðar, útvarp/kassettutæki m/4 hátölurum, samlæsingar, vökva- og veltistýri, rafknúnar rúður, bensínlok opnanlegt innanfrá, litað gler, samlitir stuðarar, stafræn klukka, tvöfaldir styrktarbitar í hurðum, snúningshraðamælir, haldari fyrir drykkjarmál, krumpusvæði, barnalæsingar, hæðarstillanleg öryggisbelti og margt fleira. HYunoni meira, afollu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.