Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Page 17
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
fréttir
Hvaða hamborgari er þetta?
- á æfingu heima hjá Jónasi Ingimundarsyni
Jónas Ingimundarson, Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir æfa lög
Sveinjörns Sveinbjörnssonar fyrir tónleika í Gerðubergi.
í Kópavogi stendur lágreist en vold-
ugt hvítmálað steinhús við Álfhóls-
veg. Gestgiafi í þessu húsi er hinn ást-
sæli píanóleikari og óskabarn þjóðar-
innar, Jónas Ingimundarson. Þegar
inn er komið kemur í ljós að æfing á
flutningi verka Sveinbjörns Svein-
björnssonar tónskálds er rétt óhafm
þar sem æfa, auk Jónasar, Bergþór
Pálsson barítonsöngvari og Signý Sæ-
mundsdóttir sópransöngkona.
Augljóst er að mikið stendur til
enda tónleikar 1 Gerðubergi á sunnu-
dagskvöldið og ljósmyndarar koma og
fara unnvörpum til að mynda tríóið.
Meðlimir þess eru uppábúnir af því
tilefni og andrúmsloftið minnir meira
á tónleika en æfingu. Manni verður
starsýnt á bindið hans Bergþórs í
sænsku fánalitunum sem fer ágætlega
við svört jakkafótin og hvíta, stífaða
skyrtuna. Blaðamanni er vísað inn í
stofuna þar sem æfingin mun fara
fram en i einu homi stofunnar blasir
við voldugur svartlakkaður flygill og
að baki honum ljósmyndir af Jónasi
og samstarfsmönnum hans í gegnum
tíðina. í öðru homi stofunnar, við
annað af tveimur stofuborðum sem
þar standa, hefur sparibollum verið
komið fyrir en Signý grínast með að
gullbollamir séu aðeins teknir fram
við hátíðleg tækifæri.
Hver æfing hefst á
kaffihléi
Jónas hefur á orði að sérhver æfing
hefjist á kaffihléi og eftir að menn
hafa fengið sér sæti og kaffinu verið
hellt í bollana berst spjallið að Svein-
bimi sem tónskáldi. Sveinbjöm og
þjóðsöngurinn eru órjúfanleg heild
sem óþarft er að kynna fyrir Islend-
ingum. Forvitnilegri er þó sú stað-
reynd að Sveinbjöm samdi fjölda laga
með enskum texta sem nú eru í fyrsta
sinn flutt með íslenskum texta í þýð-
ingu Páls Bergþórssonar, föður Berg-
þórs. Jónas, Bergþór og Signý leggja
öll áherslu á að þau séu með þessu að
endurnýja kynni þjóðarinnar af
Sveinbirni, einu fremsta tónskáldi ís-
lensku þjóðarinnar, sem í lifanda lífi
hafi aldrei notið góðs af framlagi sínu
til listanna. í miðju samtali nær Jónas
í ævisögu Sveinbjörns, skráða af Jóni
Þórarinssyni, og rekur helstu verk
tónskáldsins, auk þess sem Bergþór
og Signý bæta við að skáldið hafi búið
yfir mikilli kunnáttu á sínu sviði og
að gott handbragð á verkum hans beri
vott um það.
Leikfangahamborgari
undir stofuborði
Loks er ákveðið að láta slag standa
og tekið til við æfinguna. Bergþór
stígur fyrstur á svið við undirleik
Jónasar og syngur kraftmikinn hetju-
söng eftir Sveinbjörn svo allt ætlar
um koll að keyra. Því næst syngur
Signý tvær melódíur, öllu rólegri, á
meðan Bergþór sest aftur í sófann og
fær sér meira kaffi. Svona gengur
þetta koll af kolli en á meðan á söngn-
um stendur gefst gott tækifæri á að
líta í kringum sig og skoða húsbúnað
Jónasar. Hér er allt í röð og reglu,
persneskir dreglar á gljáfægðu parket-
gólfinu, hver hlutur virðist eiga sinn
vísa stað og ekki minnsti vottur af
óreiðu. Sannkallað snyrtiheimili. Það
stingur þvi óneitanlega í stúf þegar
blaðamaður rekur augun í leikfanga-
hamborgara á einum persnesku dregl-
anna undir öðru stofuborðinu. Hann
lætur ekki mikið yfir sér en verður
óneitanlega hjákátlegur á að sjá, sér-
staklega á því regluheimili sem hér er
að finna. Skyldi vera hundur í húsinu
eða voru hér börn að leik? Blaðamað-
ur ákveður að láta þar við sitja.
Gott að æfa í heimahúsi
Það er ákveðið að taka hlé. Blaða-
manni leikur forvitni á að vita hvort
það sé algengt að listamenn æfi f
heimahúsum frekar en í þartilgerðum
æfmgasölum. Jónas verður fyrstur til
að svara og segist eingöngu starfa
heima, hér hafi hann allt sem til þurfi
og listamenn sæki hann því ávallt
heim. Augljóst er á tilburðum Signýj-
ar og Bergþórs að þau eru öllum hnút-
um kunnug, eins konar heimaalning-
ar sem þekkja hvern krók og kima á
heimili bóndans. Signý segir mjög
gott að æfa í heimahúsi og Bergþór
bætir því við að auðvitað liggi mikil
einstaklingsvinna að baki hópæfing-
um sem þessum. Það sé hins vegar á
þessum æfingum sem menn ákveði
tempó, styrk og flli lögin eins og hann
kemst að orði. Að loknu öðru kaffihléi
í þessari tiltölulega stuttu heimsókn
blaðamanns í húsið við Álfhólsveg er
tekið til við sönginn að nýju. Eins og
fyrir hlé skiptast hér á lýrískar meló-
díur og hetjusöngvar en síðamefndi
flokkurinn er í umsjón Bergþórs. Á
einum tímapunkíi, þegar komið er að
Signýju að spreyta sig, sest Bergþór
aftur í sófann, tekur sér ævisögu
Sveinbjörns í hönd og blaðar í gegn-
um hana á meðan Signý tekur eitt af
þekktari lögum skáldsins að eigin
sögn, sem blaðamanni láist að taka
nafnið á. Það er farið að rökkva og
kominn tími til að hafa sig á brott,
enda langur dagur að kveldi kominn
og fleiri verkefni bíða. Getsgjöfunum
er umhugað um að vel hafl til tekist
og spyrja um álit á flutningi. Við
kveðjumst með virktum og að þeim
orðum kveðnum fylgir Jónas til dyra
- það er mál að halda æfmgunni
áfram. -KGP
Klipptu toppa og sestu að fallegu morgunverðarborði
Þannig berðu þig að:
Ef þú vilt fá Merrild gjafavörur eða reiðufé þarftu að fylla út þennan miða og setja
hann í umslag ásamt pokatoppunum. Ef þú hefur safnað pokatoppum fyrir gjafavöru
sem þarf einnig að greiða fyrir getur þú annað hvort sent ávísun með eða greitt
fjárhæðina inn á gíróreikning Merrild. Númer gíróreikningsins er 56 86 86 og senda
þarf frumrit kvittunar ásamt útfylltum miðanum og pokatoppunum í umslagi til:
Merrild kaffi • Pósthólf 4132 • 124 Reykjavík
Greiðsla með:
Ávísun □ Gíró Q
Lene Bjerre diskamotta:
Lene Bjerre brauðkarfa:
Trip Trap stjakar fyrir teljós:
Churchill krúsir:
Trip Trap hitaplattasett:
Lene Bjerre dúkur:
Trip Trap framreiðslubakki:
Bók um bakstur:
Lene Bjerre lampi:
Reiðufé:
I I Ég óska eftirað fá Lene Bjerre diskamottu og sendi með:
15 stk. pokatoppa
C] Ég óska eftir að fá fjórar Lene Bjerre diskamottur og sendi með
30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 600 kr.
□ Ég óska eftir að fá Lene Bjerre brauðkörfu og sendi með:
30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 550 kr.
□ Ég óska eftir að fá Trip Trap stjaka fyrir teljós og sendi með:
5 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 300 kr.
C 1 Ég óska eftir að fá tvær Churchill krúsir og sendi með:
30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 500 kr.
□ Ég óska eftir að fá Trip Trap hitaplattasett og sendi með:
30 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 600 kr.
I I Ég óska eftir að fá Trip Trap hitaplattasett og sendi með:
15 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð kr. 850 kr.
[]] Ég óska eftir að fá Lene Bjerre dúk og sendi með:
40 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 1.400 kr.
[ j Ég óska eftir að fá lítinn Trip Trap framreiðslubakka og sendi með:
40 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 1.100 kr.
L. J Ég óska eftirað fá Politikens Nye Bagebog og sendi með:
40 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 550 kr.
LJ Ég óska eftir að fá Lene Bjerre lampa með skermi og sendi með:
60 stk. pokatoppa + greiðslu að fjárhæð 1.800 kr.
í..! Ég óska eftir að fá reiðufé í skiptum fyrir pokatoppa og sendi með:
_____stk. pokatoppa (minnst 10 toppa og mest 60 toppa fyrir
hvert heimili) en verðgildi hvers þeirra er 20 kr.
I I Ég óska ekki eftir að fá send önnur tilboð um gjafavörur í skiptum fyrir pokatoppa frá Merrild í framtíðinni.
Lokafrestur til að senda inn pöntun með þessum hætti ertil 29. febrúar.
Ritaðu vinsamlegast með PRENTSTÖFUM
Nafn____________________________________
Heimilisfang____________________________
Póstnr.____________Póststöð_____________
Sími____________________________________
JíeWiiM
-setur brag á scrhvem dag!