Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Side 19
I>V LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
(tímatal
Kínverjar eru nokkuð á und-
an okkur í ártalinu því í
dag, 5. febrúar, byrjar árið
4637 hjá þeim. Kínverska
nýárið byrjar ekki á sama degi ár
hvert, eins og hjá okkur, heldur
er það hreyfanlegt en er jafnan á
tímabilinu frá 21. janúar til 20.
febrúar.
Kínverska almanakið fylgir
tunglinu og nýárið hefst við byij-
un annars nýs tungls eftir vetrar-
sólstöður en tíminn frá nýju
tungli til næsta nýs tungls er 29
dagar, 12 stundir og 44 mínútur.
Eitt tunglár með 12 mánuðum er
þess vegna 354 dagar, 8 stundir og
48 mínútur. Það er tæpum ellefu
döginn styttra en sólarárið og því
leggja Kinverjar inn hlaupárs-
mánuði í dagatalið með jöfnu
miHibili.
Unnur Guðjónsdóttir, sem hef-
ur farið þrettán sinnum til Kína á
undanfömum árum, ætlar að
halda sérstaklega upp á áramótin,
einkum vegna þess að hún er sjálf
fædd á ári drekans. „Kínverjar
gera miklu meira úr þvi á hvaða
ári maður er fæddur en á hvaða
degi. Það er því alltaf spennandi
þegar afmælisárið rennur upp þvi
það gerist aðeins á tólf ára fresti,“
segir Unnur í samtali við DV.
Hvert og eitt hinna tólf dýra í
dýrahring tungláranna hefur sitt
skapgerðareinkenni. Drekinn
þykir góður, ekki síst vegna þess
að hann var dýr keisaranna.
Vildi frekar vera rotta
Unnur segir að almanak Kínverja
greini frá þvi að hamingjan fylgi
þeim sem fæddir eru á ári drekans
og þeir hafi alla möguleika til
frama. Þeir séu gáfaðir og ákveðnir
en þeir eigi erfitt með að fara að
Unnur í drekabúningi. Kvenbúningur þessi er úr rauöu silki, skrautsaumaöur
meö gullþræöi. Mynstrið er dreki en búningur sem þessi var notaöur í Forboðnu
borginni í Kína á Ching-tímabilinu (1644-1911). Skórnir eru meö þykkum sólum
en þeir voru einnig notaöir á fyrrnefndu tímabili. Höfuðfatið er úr silfri en Miao-
ættbálkurinn í Yunnan-héraöi notar enn slíkan höfuöbúnaö.
Árið 4637 rennur upp í Kína í dag:
Hamingjan fylgir þeim
sem fæðast á ári drekans
ráðum annarra og það geti valdið
þeim vandræðum. „Það er sagt um
drekann að hann sé vinmargur og
aðlaðandi en eigi jafnframt erfitt
með að verða ástfanginn. Drekinn
má þó búast við að verða hamingju-
samur en hætta er á aö hamingjan
verði hverful ef hann er fæddur í
hvassviðri. Ég er harla ánægð með
að vera dreki þótt ég hefði nú held-
ur viljað vera rotta, hún er best að
minu mati. Það er hins vegar gam-
an að eiga heilt afmælisár fram und-
an og ég óska öllum drekum til
hamingju með afmælið," segir Unn-
ur en hún ætlar að halda skemmti-
dagskrá á veitingahúsinu Shanghæ
á morgun til að fagna áramótunum.
Unnur mun halda erindi um Kína-
ferðir sínar og síðan verður efnt
spurningaleiks og happdrættis.
Dýrahringurinn:
Rottan 1996
Vatnauxi 1997
Tígur 1998
Kanína 1999
Dreki 2000
Slanga 2001
Hestur 2002
Geit 2003
Api 2004
Hani 2005
Hundur 2006
Grís 2007
---fTöfyMi/H/i/i í Aú&g/hpnuni l i/ay-
Dúndursala!
| í dag og næstu daga |
I rýmum við fyrir 1
nýjum vörum.
usgogn
Bæjarhrauni 12 Hf. • Sími 565 1234
Opiö virka daga 10-18, laug. 10-16
Sunnudagar eru
fjölskyldudagar
Kringlan er opin á sunnudögum
og þar finna allir í fjölskyldunni
eitthvað viö sitt hæfi.
FLESTAR VERSLANIR
STJORNUTORG
skyndibita- og veitingasvæðið
frákl. 11.00-21.00
alla daga.
Abrir veitingastabir og Kringlubíó
eru meb opib fram eftir kvöldi.
P R R SEM^HJRRTRfl 5 L (E R
PPLÝSINGHSiMI 5 8 8 7 7 B 8 SKRIFSTDFUSÍMI 5GB 9208