Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 Fréttir Kona flutt meö valdi úr kjallara á Hverfisgötu 68a: Mokað úr sóðagreni - óttumst að hún komi aftur, segja nágrannar „Konan var flutt burt af lögreglu í síðustu viku og svo komu þeir loks í dag og mokuðu út úr þessu sóða- greni,“ sagði Atli Magnússon, ibúi á Hverfisgötu 68a, í gær um ná- grannakonu sína sem búið hefur i kjallaraíbúð, yfirfullri af sorpi, svo árum skiptir. „Það er engin meðferð á geðsjúku fólki að láta þetta við- gangast. Þetta er i þriðja sinn sem mokað er út úr íbúðinni og konan flutt burt en hún hefur alltaf komið aftur og tekið til við að safna sorpi inn til sín á ný.“ Að sögn hreinsunarmanna sem unnu verk sitt í gær með gasgrímur fyrir vitum var aðkoman í ibúð kon- unnar nú verri en síðast þegar þeir voru þar á ferð sömu erindagjörða. Hvergi var hægt að stíga niður fæti fyrir sorpi og svo virðist sem konan sjálf hafi sofið ofan á sorphrúgunum um nætur ásamt ketti sínum. Rúður í kjallaraíbúðinni voru sótsvartar af skít og ólýsanlega ólykt lagði um allt hús og gerði bygginguna í raun óíbúðarhæfa fyrir aðra eigendur. Mál konunnar hefur lengi verið að velkjast hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur en þar hafa starfsmenn varið aögeröaleysi sitt með tilvísan í eignarrétt konunnar á íbúðinni, svo og friðhelgi einkalífsins. Var svo komið að aðrir eigendur íbúða í húsinu við Hverfisgötu 68a kærðu umgengnina til dómstóla á grund- velli sameignarlaga þegar þeir höíðu gefist upp á ólyktinni. „Við óttumst mest að konan komi aftur eins og hún hefur gert áður við þessar aðstæður og þá byrjar ballið aftur,“ sagði Atli Magnússon og bætti því við að aðgerðaleysi heilbrigðisyfirvalda í þessu máli væri svartur blettur á íslenska heil- brigðiskerfinu. Konan í kjallaranum sem hér um ræðir hefur verið iðin við að safna sorpi úr tunnum á Hverfisgötunni og er vel þekkt af íbúum hverfisins: „Hún er orðin eins og hluti af lands- laginu hérna í hverfinu, hálf ofani ruslatunnum í leit að einhverju sem Síðdegis í gær voru hreinsunar- menn með hlífðargrímur búnir að moka sorpi í 70 svarta plastpoka úr kjallara konunnar viö Hverfisgötu - og ekki hættir. DV-mynd GVA við vitum ekki hvað er. Hún er fyr- ir bragðið sótsvört í framan af skít og kippir sér ekki upp við það þó við ávörpum hana þegar hún er við þessa iðju sína í tunnunum. En að hún færi með allt sorpið heim til sín vissum við ekki,“ sagði einn af ná- grönnum konunnar í gær. -EIR Búnaðarbankinn hagræðir í útibúamálum: Kaupir útibú Landsbankans „Landsbankinn og Búnaðarbank- inn hafa verið um nokkum tíma að fara yfir sín útibúamál. Niðurstaðan úr þeim viðræðum varð aö það væri tæpast pláss nema fyrir eitt útibú í Vík og það sem réð í niðurstöðunni var að sá aöili sem stærri var yfirtók hinn,“ sagði Stefán Pálsson, banka- stjóri Búnaðarbankanns, við DV í gær. Landsbankinn og Búnaðarbankinn tilkynntu i gær að Búnaðarbankinn heiði keypt útibú Landsbankans í Vík í Mýrdal og afgreiðslu bankans á Kirkjubæjarklaustri. Afgreiðslu Landsbankans á Klaustri verður lok- að. „Um þetta var full sátt og ég held að báðir aðilar séu sáttir við niðurstöð- una, við hugsum okkur að veita áfram eins góða þjónustu og unnt er. Eining- in verður sterkari eftir að útibúin hafa verið sameinuð," sagði Stefán Pálsson. Starfsfólk Landsbankanns verður frá og með breytingunni starfsfólk Búnaðarbankans en í fyrstu eru ekki fyrirhugaðar breytingar á manna- haldi. „Það var ákveðið að taka við öllu almennu starfsfólki Landsbank- ans en útibússtjóri Landsbankans fylgir ekki með. Við munum reyna að fara eins mildilega í alla hluti og við getum, en auðvitað verðum við að hagræða, þetta er náttúrlega gert í þeim tilgangi," sagði Stefán. Hann sagði að á næstu dögum yrði ákveðið í hvaða húsnæöi útibúið í Vík yrði eða afgreiöslan á Klaustri. En hann taldi ekki ólíklegt að húsnæði Landsbankans yrði fyrir valinu á báð- um stöðum. Útibúamál Búnaðarbankanns hafa verið til skoðunar á fleirri stöðum og breytingar verið gerðar. „Á Grundarfirði hafa þegar verið Þrír nýir menn voru kjörnir í stjórn FBA á aðalfundi bankans í Borgarleikhúsinu i gær. Fundur- inn var sá fyrsti eftir að ríkið dró sig út úr rekstri Fjárfestinga- rbanka atvinnulífsins og gengu tveir menn úr stjóm, þeir Þor- steinn Ólafsson, sem var stjómar- formaður, og Örn Gústafsson. Inn í stjórnina komu þeir Eyjólfur Sveinsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, Bogi Páls- son, forstjóri Toyota - P. Samúels- son, og Finnbogi Jónsson, forstjóri íslenskra sjávarafurða. Jón Ingv- arsson, fyrrverandi stjómarfor- maður Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna, og Magnús Gunnarsson verða áfram í stjórninni. Magnús Gunnarsson var kosinn stjómar- formaður en Eyjólfur Sveinsson, varaformaður stjómar. gerðar breytingar, við höfum lagt það af sem sjálfstætt útibú, það er nú rekið sem afgreiðsla frá Stykkis- hólmi. En við reiknum með að úti- búið á Skagaströnd víki,“ sagði Stef- án. „Við stöndum frammi fyrir orðn- um hlut í þessu máli. Okkar við- Víglundur Þorsteinsson, stjóm- arformaður Lifeyrissjóðs verslun- armanna, gagnrýndi á fundinum rífleg kjör framkvæmdastjómar- manna FBA og stjómarmanna og brögð eru þau að þetta er ákvörðun sem er búið að taka og búið er að ganga frá. En með þessu losnar at- vinnuhúsnæði og við þurfum að fara i að finna því húsnæði vettvang annarrar atvinnustarfsemi," sagði Helga Þorbergsdóttir, oddviti Mýr- dalshrepps. -NH benti á að þeir hefðu þegið um 90 milljóna króna launa- og kaupaukagreiðslur. Þessu var þó vísað á bug af stjómendum bank- ans í gærkvöld. -hdm Aðalfundur FBA: Þrír nýir stjórnarmenn Frá aöalfundi FBA í gær. F.v: Magnús Gunnarsson, Jón Ingvarsson, Eyjólfur Sveinsson, Kristín Jóhannesdóttir, Finbogi Jónsson og Bjarni Ármannsson. Stuttar fréttir dv Áhugi á oiíu Valgerður Sverrisdóttir iðnað- arráðherra sagði á Alþingi í gær að viðræður við olíufyrirtæki hefðu sýnt að áhugi á olíu- og gasleit í ís- lenskri lögsögu er til staðar. Er- lend olíufélög munu ekki koma að þeirri leit fyrr en sett hafa verið lög um olíuleit á ís- landi. Dagur greindi frá. Kanni breytingar Samkeppnisráð hefur beint þeim tilmælum til sjávarútvegs- ráðherra að kanna breytingu á út- hlutun aflaheimilda þannig að fiskvinnslustöðvar geti fengið þær. RÚV greindi frá. Sjö dómarar Hæstiréttur verður skipaður sjö dómurum í Vatneyrarmálinu, sem dæmt verður i 15. mars næst- komandi, en afar sjaldgæft er að dómur sé svo fjölskipaður. í dóm- stólalögum segir að forseti Hæsta- réttar geti skipað fleiri dómara í sérlega mikilvægum málum. RÚV greindi frá. Misnotuðu ekki Samkeppnisráð telur að ÍÚ og Sýn hafi ekki misnotaö markaðs- ráðandi stöðu sína í samkeppni við breiðvarp Landssímans en forsvarsmenn Landssimans sögðu að áskrift að fjölvarpi ÍÚ hafi ver- ið niðurgreidd eftir að Breiðvarp Landssímans hóf göngu sína fyrir tveimur árum. Bylgjan greindi frá. Skipaður rektor Menntamálaráðherra hefur skipað Pál Skúlason rektor Háskóla íslands frá 5. september 2000 til 30. júní 2005 í samræmi við tillögu há- skólaráðs, en hann var eini umsækjandinn. Stríða gegn siðferði Sigurður Guðmundsson land- læknir segir í bréfi til samtak- anna Réttlát gjaldtaka að hug- myndir samtakanna stríði gegn siðferði í vísindarannsóknum. Samtökin fara fram á að fá umboð fólks til að semja um greiðslu fyr- ir upplýsingar sem fara eigi í gagnagrunn á heilbrigðissviði. RÚV greindi frá. Skjöl töpuðust Á annað þúsund skjala í nokkrum ráðuneytum eyddust fyrir tíu dögum vegna villu í erlendum hugbúnaði. I fréttum RÚV er greint frá því að kostnaður umboðsfyrir- tækis búnaðarins hér á landi er nokkrar milljónir vegna þessa en fyrirtækinu tókst að hanna forrit til að ná skjölunum til baka. Auðveit að biekkja Hægur vandi er að senda tölvu- póst í nafni þjóðþekktra einstak- linga og ná þannig í viðkvæmar trúnaðarupplýsingar og segja sér- fræðingar að nauðsynlegt sé að skoða öfl skilaboð með tortryggni. Stöð 2 greindi frá. Umhverfisskattur Umhverfisráðherra kynnti verkefnaskrá sína í gær, en 10 ár eru síðan ráðu- neytið var stofnað. Á kynningarfundi sínum sagði Siv Friðleifsdóttir að mikflvægast væri að auka sjáflbæra þróun og að umhverfismál verði að sam- þætta öðrum málum samfélags- ins. Þá leggur ráðherrann til að leggja á umhverfisskatta í sam- ráði við fjármálaráðuneytið og myndu þeir borga hann sem not- uðu mest eldsneyti. RÚV greindi frá. -hdm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.