Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Side 5
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
5
Fréttir
„Bílamir koma aftur þegar búið
verður að gera þá upp. Maður þigg-
ur góð boð ef þau bjóðast," sagði Þór
Magnússon þjóðminjavörður um
tvo fombíla sem komnir eru úr um-
sjá safnsins til viðgerða hjá einka-
aðilum. Annar bílinn, Oldsmobile
frá 1940, lenti í geymslu Hinriks
Thorarensens fombúasafnara uppi
á Kjalarnesi eftir fombílasýningu í
Laugardalshöll síðastliðið sumar,
og hinn, Chevrolet frá 1928, er kom-
inn alla leið til ísafjarðar þar sem
útibústjóri Landsbankans er að gera
hann upp. „Ég veit ekki hvenær
Þjóðminjasafnið hefði haft peninga
til að gera upp þessa bíla og því hef
ég þegið það með þökkum þegar
áhugamenn bjóðast til að gera þetta
fyrir okkur ókeypis," sagði Þór
Magnússon.
Góður gripur
Pétur Jónsson, starfsmaður
tækniminjadeildar Þjóðminjasafns-
ins, er hins vegar ekki sáttur við
þessi vinnubrögð yflrmanns síns:
„Ég hefði aldrei látið þessa gripi
frá mér. Oldsmobilen var vel sýn-
ingarhæfur og einn af betri gripun-
um í bílasafni okkar. Hann var gef-
inn Þjóðminjasafninu með því skil-
yrði að hann mætti ekki vera í um-
ferðinni. En nú er hann kominn
upp á Kjalames og ég á eftir að sjá
hann koma aftur,“ sagði Stefán sem
hefur sent þjóðminjaverði fyrir-
spurnir vegna bílsins en ekki fengið
svör. „Chevrolettinn hirti ég sjálfur
af Snorrabrautinni fyrir mörgum
árum og allt í einu er hann kominn
til ísafjarðar eftir að hafa verið í
geymslu hjá okkur í 16 ár. Ég stend
hér eins og spurningarmerki."
Örn Sigurðsson, formaður Forn-
Pétur Jónsson í tækniminjadeild Þjóöminjasafnsins: - Oldsmobile á Kjalarnesi og Chevrolet á ísafirði.
DV-mynd S.
bílaklúbbsins, segir að lán þjóð-
minjavarðar á umræddum fornbil-
um séu klúbbfélögum undrunarefni,
sérstaklega í ljósi þess að Hinrik
Thorarensen sé ekki þekktur að því
að koma hlutum í verk og hvað þá
að gera upp fombíla: „Ég fæ ekki
betur séð en Hinrik sé þama að
sölsa undir sig fombíl, Oldsmobile
‘40, sem með réttu á að vera á Þjóð-
minjasafninu. Við í Fornbílaklúbbn-
um skiljum þetta ekki,“ sagði Örn.
Skila aftur
Ekki náðist í Hinrik Thorarensen
þar sem hann er staddur á Kanaríeyj-
um. Brynjólfur Þór Brynjólfsson, úti-
bússtjóri Landsbankans á ísafirði,
sem fékk Chevrolet ‘28 frá Þjóðminja-
safninu, hafði hins vegar þetta um
málið að segja: „Ég sóttist eftir bíln-
um enda hafði ég átt hann áður en gef-
ið Þjóðminjasafninu. Ég er að gera bíl-
inn upp og samkvæmt samningi sem
ég gerði við Þjóðminjasafnið og fór
fyrir þjóðminjaráð skila ég Chevro-
lettinum aftur að viðgerð lokinni, þó
ekki síðar en við dauða minn,“ sagði
Brynjólfur Þór Brynjólfsson, banka-
stjóri á ísafirði. -EIR
Þjóðminjavöröur ekki af baki dottinn:
Lætur gera upp
fornbíla ókeypis
- minjavörður stendur eftir eins og spurningarmerki
Lögreglumönnum á Akureyri stefnt í eina líkamsræktarstöð:
Líta á okkur sem útlenda ógnun
- segir Björn í World Class
„Akureyringar líta á okkur sem út-
lenda ógnun. Þetta er sami Akureyr-
armórallinn og kom upp þegar Bónus-
menn voru flæmdir úr bænum á stn-
um tíma,“ segir Bjöm Leifsson, eig-
andi líkamsræktarstöðvarinnar
World Class sem hefur reynt að hasla
sér völl í höfuðstað Norðurlands.
„Sýslumaður og yfirlögregluþjónn
hafa samið við líkamsræktarstöð Sig-
urðar Geirssonar í kjallara íþrótta-
hallarinnar um að þar æfi lögreglu-
menn frítt í vinnutíma en ef þeir vilja
æfa hjá mér verða þeir að greiða fyrir
það sjálfir og æfa í frítíma sínurn,"
sagði Bjöm i World Class.
Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu-
þjónn á Akureyri, segir að lögreglu-
menn sínir ráði sjálfir hvar þeir æfi:
„En við sömdum við eina líkamsrækt-
arstöð og þangað eiga mennimir að
fara vilji þeir æfa í vinnutíma og sér
að kostnaðarlausu. Lögreglumennim-
ir ráða hvar þeir æfa en við ráðum
við hverja við semjum,“ sagði Daníel
Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Ak-
ureyri.
-EIR
Annar Nóatúnsbíllinn eftir árás
uöabrúsamannanna.
Úðabrúsamenn:
Ráðist á
Nóatúns-
bíla
Úðabrúsamenn réðust til at-
lögu gegn tveimur flutningabíl-
um í eigu Nóatúnsbúðanna um
síðustu helgi og skreyttu með
alls kyns torkennilegum tákn-
um:
„Það er furðulegt að menn
skuli leggja á sig að standa heila
nótt í tíu stiga frosti og úða
svona á bílana. Sérstaklega þeg-
ar haft er í huga að þeir hafa
þurft stiga við verkið,“ sagði Jón
Þorsteinn Jónsson, markaðs-
stjóri Nóatúnsbúðanna, þegar
verið var að þrifa bílanna. „Þetta
kostar okkur ekki undir millj-
ón,“ sagði Jón.
Sýnilegt var að úöabrúsa-
mennimir höfðu lagt metnað í
verk sitt á Nóatúnsbílunum og
ekki kastað til höndunum því
táknmyndimar voru nostursam-
lega unnar. Bílarnir stóðu í
stæðum á umráðasvæði Nóatúns
í Faxafeni þegar úðabrúsamenn-
irnir létu til skarar skríða -
hvers vegna er ekki vitað.
-EIR
Reykjadalur:
Síldarveisla
á frumsýn-
ingu
Það er ekki á nverjum degi sem
slldarréttir eru bornir fram á
frumsýningu. Það verður þó gert á
frumsýningu að Breiðumýri í
Reykjadal i S-Þingeyjarsýslu nk.
fostudagskvöld. Þá verður frum-
sýnt verkið Síldin kemur, síldin
fer, eftir Iðunni og Kristínu Steins-
dætur. Arnór Benónýsson leik-
stýrir en hann mun einnig stíga á
svið og leika. Kvenfélag Reykdæla
sér um að koma síldinni i girni-
legu fæðuformi til frumsýningar-
gesta.
Fjöldi fólks tekur þátt í sýning-
unni eða um 50 manns. Bryggju-
balli verður slegið upp og leikur
heil hljómsveit þar fyrir dansi.
Gömlu slagaramir frá um 1960
verða notaðir í verkinu. Síldin
kemur, síldin fer er samvinnu-
verkefni leikhóps ungmennafé-
lagsins Eflingar og nemenda í
Framhaldsskólanum á Laugum.
-JSS
Húnaröst og Skinney komu báöar með fullfermi af góðri loðnu á sunnudag. Loðnuna fengu skipin um klukkustundarsiglingu út af Hornafiröi. Hrognafylling loðnunnar er 16-19% og fara 56 til 60
stykki af hrygnu í kílóiö. Um 130 tonn fóru til frystingar hjá Skinney Þinganesi. Varan fer á Japansmarkað og er það eingöngu hrygnan sem Japanar vilja og hafa tröllatrú á aö geri ýmis kraftaverk.