Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
9
Fréttir
230 metra brú utarlega í firöinum væri hagkvæmur kostur.
Rætt um brú yfir KolgrafaQörð:
230 metra brú
besti kosturinn
DV, Grundarfirði:
Vegageröin hefur að undanfórnu
unnið að athugunum á fjórum kost-
um nýs vegar eða þverun Kolgrafa-
fjörðar, að sögn Birgis Guðmunds-
sonar, umdæmisstjóra Vegagerðar-
innar í Borgarnesi, og er skýrsla
mn frumdrög að hagkvæmisathug-
anum á leiðunum væntanleg.
Athugaðir voru fjórir kostir, það
er leið 1 A sem er 230 metra löng
brú með fullum vatnsskiptum yfir
fjörðinn og er stytting miðað við þá
leið 6,2 kílómetrar. Brúin yrði utar-
lega í firðinum. Leið 1 B gerir ráð
fyrir því að loka firðinum að ein-
hverju leyti með 60 metra langri brú
en hún er reyndar á sama stað og
með sömu styttingu. Leið 2 fer yfir
leirumar innst í Kolgrafafirðinum
og er þá stytting um 1,5 km og svo
er um að ræða leið 3 og það er á
sama stað og gamli vegurinn er og
þá er ekki um neina styttingu að
ræða. Það virðist vera hvað hag-
kvæmast að byggja 240 metra brú
yfir fjörðinn sé tekið tillit til hita-
veitu og annars slíks í dæminu. Við
erum hins vegar ekki komnir með
niðurstöðutölur úr hagkvæmisat-
hugunum vegna þess að verið er að
reikna út arðsemina en það virðist
vera að það sé hægt að ná út úr
þessu nokkuð þokkalegri arðsemi.
Samgönguráðherrann og Snæfell-
ingurinn Sturla Böðvarsson sagði á
fundi í Grundarfirði fyrir skömmu
að hann teldi að brú yfir fjörðinn
væri hagkvæmasti kosturinn. -DVÓ
Akureyri:
Tekinn tveimur
dögum eftir dóm
* íslenskar stríðshetjur orðnar
ungar aftur um borð
í varðskipinu Þór.
f ó k u s
f._J i_,_\ —• j—_í
ngu fölki
DV, Akureyri:
Nítján ára Akureyringur hefur
verið dæmdur í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra fyrir ýmis brot, m.a.
fyrir að hafa ekið bifreið undir
áhrifum áfengis í nóvember á sl.
ári, aðeins tveimur dögum eftir að
hann var sviptur ökuleyfi og dæmd-
ur í fjársekt.
Maðurinn var tekinn ásamt
þremur félögum sínum í bifreið á
Akureyri og viðurkenndu þeir að
hafa keypt hass og reykt það i bif-
reiðinni. Var lítilræði af flkniefnum
tekið af mönnunum við það tæki-
færi. Mál þriggja mannanna voru
afgreidd utan dóms með greiðslu
sekta en mál Akureyringsins, sem
að framan var getið. fór fyrir dóm.
Sá maður var á árunum 1996-1999
þrívegis dæmdur til refsinga. Hann
var sem fyrr sagði sviptur ökuleyfi
og til greiðslu 90 þúsund króna sekt-
ar tveimur dögum áður en hann var
síðast tekinn. Þá var hann í maí
1998 dæmdur til þriggja mánaða
fengelsisvistar skilorðsbundið og
rauf hann það skilorð. Hann var nú
dæmdur í 5 mánaða fengelsi, þar af
var frestað fullnustu þriggja mán-
aða til þriggja ára. Hann var svipt-
ur ökuleyfi ævilangt og dæmdur til
greiðslu sakarkostnaðar. -gk
Skæö flensa skekur Noröfirðinga:
Fjórði hver nemandi
veikur í yngstu
bekkjunum
„Við urðum vör við þetta á fostu-
daginn en ritarinn hafði ekki við að
taka við símhringingum frá foreldr-
um veikra barna í morgun en alls
hringdu 53 foreldrar," sagði Ey-
steinn Kristinsson, aðstoðarskóla-
stjóri í Nesskóla í Norðfirði, í sam-
tali við DV í gærdag.
í tíu bekkjum skólans eru 223
nemendur en Eysteinn sagði lita út
fyrir að flensan leggðist harðast á
tíu ára nemendur og yngri en fjórði
hver nemandi lá í flensu heima. í
öðrum bekk mætti eingöngu einn
nemandi, Debbie Jane Vedeja, sem
er frá Filippseyjum en hefur verið
búsett hér á landi frá því í haust.
„Hún er kannski ekki eins næm og
innfæddir en þar sem hún var ein
og eingöngu fimm nemendur mætt-
ir í fyrsta bekk, voru bekkirnir sam-
einaðir en hún var þó fyrstu tvo
tímana með kennaranum sínum,“
sagði Eysteinn. -hól
* Meö tilkomu Viagra geta eldri borgarar einnig haft ánægju af lestri Fókus.
•! f ó k u s
málgagn fólks sem er á lífi
- og verður það lengi enn.
11 í f iö
fullkominn leiðarvísir um
menningar- og skemmtanalífið.
Stærrí og öflugri
U S fylgir DV á morgun.