Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2000, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
Útlönd
Tony Blair ekki
verið jafnóvin-
sæll frá 1997
Tony Blair, forsætisráöherra
Bretlands, hefur ekki notið jafn-
lítiUar hylli meðal kjósenda frá
því hann komst til valda 1997 og
einmitt nú.
Samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un sem birtist í Lundúnablaðinu
Times í morgun eru 49 prósent
Breta ánægö með forsætisráð-
herrann sinn nú en 42 prósent eru
óánægð.
Að sögn blaðsins geldur Blair
þarna fyrir ýmsar neikvæðar
fréttir af honum að undanfomu,
meðal annars ásakanir stjómar-
andstæðinga um að hann vilji
hafa puttana í öllu, stóru jafnt
sem smáu. Þá hefur fyrrum ráð-
herra í stjóm Blairs sakað hann
um að vera ekki í tengslum við
marga stuðningsmenn Verka-
mannaflokksins.
Þá má Blair eiga von á frekari
vandræðum þvi Ken Livingstone
gaf sterklega til kynna að hann
myndi bjóða sig fram i borgar-
stjórakosningunum í London sem
óháður. Livingstone er í vinstri-
armi Verkamannaflokksins og
var Blair mjög á móti því að hann
yrði frambjóðandi flokksins.
Skoðanakannanir benda tU að
Rauði-Ken, eins og hann er kaU-
aður, myndi fara með sigur af
hólmi og óttast Blair að hann
myndi nota borgarstjórastöðuna
tU að grafa undan honum.
Komu í veg fyrir
skólafjöldamorð
Þýska lögreglan hefur handtek-
iö sextán ára stólku sem ku hafa
lagt á ráöin um að drepa að
minnsta kosti þrettán bekkjarfé-
laga sina á eins árs afmæli
fjöldamorðanna í Columbine
framhaldsskólanum í Bandaríkj-
unum. Stúlkan ætlaði síðan að
fremja sjálfsmorð á eftir. Upp
komst um áformin þegar hún
reyndi að fá tvo tU liðs við sig.
UPPBOÐ
Uppboö mun byrja á skrifstofu
embættisins aö Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
_______farandl eign:____
Álakvfsl 28, 3ja herb. íbúð, hluti af nr.
24-30, og stæði í bílskýli, Reykjavík,
þingl. eig. Solveig Pétursdóttb, gerðar-
beiðendur Ibúðalánasjóður og Islands-
banki hf., höfuðst. 500, mánudaginn 28.
febrúar 2000, kl. 10.00.
SÝ SLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eign veröur háð á hennl sjálfri
sem hér segir:
Laugavegur 147, eitt herbergi og eldhús á
1. hæð í N-álmu, Reykjavík, þingl. eig.
Jón Ragnar Helgason, gerðarbeiðendur Is-
landsbanki hf., útibú 545, og Sparisjóður
vélstjóra, mánudaginn 28. febrúar 2000,
kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Nú er að duga eða drepast fyrir McCain og Bush:
Víglínan til vest-
urstrandarinnar
John McCain reynir nú hvað
hann getur tU að nýta sér sigur sinn
í forkosningum repúblikana í
Michigan á þriðjudag í að vinna
hugi og hjörtu samflokksmanna
sinna á vesturströndinni. Keppi-
nautur hans um forsetaútnefningu
flokksins, George W. Bush, kenndi
hins vegar demókrötum um ófarir
sínar og sakaði þá um að hafa rænt
kosningunum. Forkosningarnar í
Michigan voru öUum opnar.
McCain og Bush eru báðir komn-
ir tU vesturstrandar Bandaríkjanna
þar sem mikið er í húfl þann 7.
mars næstkomandi. Þann dag verð-
ur efnt til forkosninga eða kjör-
nefndarfunda í sextán ríkjum, þar á
meðal í Kalifomíu.
McCain sagði á fundi í Wash-
ingtonríki í gær að hann væri
repúblikani í anda Ronalds Reagans
og gæti laðað að sér bæði
George W. Bush veröur aö heröa
sig ef draumur hans um Hvíta húsið
á aö veröa aö sætum veruleika.
demókrata og óháða kjósendur, auk
repúblikana sjálfra.
„Við viljum þá aUa, kæru vinir,
af því að i flokki Abrahams
Lincolns er pláss fyrir aUa. Takið
þátt í þessari krossferð og það meg-
ið þið vita að í ferðalok fyUist þið
stolti," sagði McCain.
Bush var í Kalifomíu þar sem eft-
ir mestu er að slægjast í einum
potti, 162 fulltrúum á landsfund
repúblikana. Það gerir rúm 15 pró-
sent þeirra 1035 fuUtrúa sem þarf tU
að öðlast útnefningu flokksins.
„Auðvitað vildi ég hafa sigrað en
fátt er svo með öUu Ult að eigi boði
nokkuð gott,“ sagði Bush um niður-
stöðuna í Michigan. Hann benti þó á
að hann hefði fengið 67 prósent at-
kvæða repúblikana.
Demókratamir A1 Gore og BiU
Bradley eru einnig komnir í start-
holurnar fyrir 7. mars.
Bandaríski ofurhuginn Robbie Knievel ætlar ekki aö vera minni maöur en pabbi gamli, Evel Knievel. Þessi mynd var
tekin í gærkvöld þegar Robbie stökk á vélhjóli sínu yfir járnbrautarlest í bænum Palestine í Texas. Allt fór vel.
Tugir þúsunda mót-
mæltu árás ETA
Tugir þúsunda efndu í gær tU
mótmæla um aUan Spán gegn
sprengjuárásinni í Vitoria í Baska-
landi gegn stjórnmálamanninum
Fernando Buesa og lífverði hans. 1
Vitoria söfnuðust þúsundir saman í
rigningu fyrir utan þinghús Baska,
ekki langt frá staðnum þar sem bUa-
sprengjan sprakk á þriðjudaginn.
„ETA hefur myrt mann sem vann
að friði,“ sagði flokksfélagi Buesa.
„Það er ef tU viU ekki auðvelt fyrir
útlendinga að skUja það en allir sem
eru andvígir sjálfstæði Baska eru
skotmark hryðjuverkamanna,"
sagði Lana.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á
sprengjutilræðinu en ekki þykir
leika vafi á að ETA, aðskilnaðar-
hreyfing Baska, hafi verið að verki.
íbúar Vitoria söfnuöust saman viö
þinghús bæjarins.
Símamynd Reuter
Stjómmálaleiðtogar, með Jose
Maria Aznar í fararbroddi, aflýstu í
gær öUum kosningafundum tU þess
að lýsa yfir fordæmingu sinni á
hryðjuverkinu. Dagskrá baráttunn-
ar fyrir kosningamar, sem haldnar
veröa 12. mars, verður þó óbreytt
frá og með deginum í dag.
Það er almennt álit Spánverja að
sprengjutilræðið muni ekki hafa
áhrif á kosningaúrslitin. Ástæðan
er sú að báðir stóru flokkarnir,
ihaldssamur þjóðarílokkur Aznars,
og SósíalistaUokkurinn eru andvíg-
ir sjálfstæði Baska og líta á ETA
sem hryðjuverkasamtök en ekki
pólitíska ögrun.
Fjöldi erlendra þjóðarleiðtoga hef-
ur fordæmt sprengjutilræðið í
Vitoria á þriðjudaginn.
Stuttar fréttir dv
Þurfa neyöarhjálp strax
Forseti Mósambik, Joaquin
Chissano, sagði í gær að þörf væri
á neyðaraðstoð strax vegna eyði-
leggingarinnar af völdum Uóð-
anna að undanfórnu.
Lést í fangauppreisn
Einn fangi lét lífið og tólf særð-
ust þegar verðir hófu skothríð tU
að stöðva uppreisn í fangelsi í N-
Karólínu í Bandaríkjunum í gær.
Nýjar refsiaðgerðir
Þegar Frakkar taka við for-
mennsku í Evrópusambandinu 1.
júlí er hugsan-
legt að gripið
verði tU frekari
aðgerða gegn
Austurríki
vegna stjómar-
þátttöku Frels-
isUokks Jörgs
Haiders. Þetta
sagði Hubert
Vedrine, utanríkisráðherra
Frakklands, í viðtali við austur-
ríska blaðið Standard í gær.
Óttast pyntingar
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International óttast að þrír
kúrdískir borgarstjórar, sem
handteknir voru um helginga í
Tyfklandi, verði pyntaðir.
Létust í snjóflóðum
Fimm létu lífið og einn slasað-
ist alvarlega er snjóUóð féU á sjö
skíðamenn við Prapic í frönsku
Ölpunum i gær.
Bætt samskipti
Utanríkisráðherra Irans,
Kamal Kharrazi, kvaðst í gær
vona að sigur umbótasinna í
kosningunum leiddi til mikUla
breytinga í samskiptum við um-
heiminn.
Súkkulaðidrottning
Þegar kökugerðarmeistari
Hvíta hússins i Washington frétti
að Soffia Spán-
ardrottning
væri hrifin af
súkkulaði
ákvað hann að
gera drottning-
una yfir sig
hamingjusama.
Meistarinn út-
bjó eftirrétt úr
hvítu súkkulaði með sítrónu-,
súraldins- og appelsínufrauðís
ásamt ýmsum ávöxtum. Næsti eft-
irréttur var einnig úr súkkulaði
og ýmsu öðru góðgæti.
ESB sigraði
Evrópusambandið, ESB, vann
mikUvægan sigur yfir Bandaríkj-
unum i gær þegar Heimsvið-
skiptastofnunin úrskurðaði að
skattareglur Bandaríkjanna um
útflutning stríddu gegn reglum
stofnunarinnar.
Aftöku ekki frestað
Dómari i Bandaríkjunum hafn-
aði í gær beiðni um að aftöku
Betty Lou Beets, 62 ára langömmu,
yrði frestað. Hún er sökuð um að
hafa myrt tvo eiginmenn sína og
grafið þá í garði sínum.
Gegn barnaníðingum
Sænsk yfirvöld leggja fram
frumvarp i dag um að þeir sem
sækja um störf með börnum verði
að sanna að þeir hafi ekki verið
dæmdir fyrir kynlífsglæpi eða
önnur alvarleg afbrot.
Nöfn fórnarlamba birt
Bandarísk mannréttindasam-
tök hafa birt nöfn 50 óbreyttra
borgara sem
rússneskir her-
menn myrtu í
úthverfi Grosní
fyrr i mánuðin-
um. Robin
Cook, utanrík-
isráðherra Bret-
lands, sagði að
loknum fundi sinum með Vladi-
mir Pútín, starfandi forseta Rúss-
lands í gær, að Vesturlönd hefðu
engan möguleika á að hafa áhrif á
stríðsrekstur Rússa.