Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Side 7
Arfur aldanna ÞJOÐS AGNASAF Þjóðsögur eru einhver dýrasti arfur hverrar þjóðar. Þær veita einstaka innsýn í hugar- heim genginna kynslóða, líf þeirra, reynslu og örlög, trú og hjátrú. Þar birtist okkur að auki kynjaveröld hins dulúðuga og yfirnáttúrulega. Með útgáfu á íslensku þjóðsagnasafni Vöku-Helgafells er nú aðgengilegt á einum stað úrval þjóðsagna frá fyrstu ellefu öldum byggðar í landinu, dregið saman úr aragrúa þjóðlegra rita, fornra og nýrra, samtals á áttunda hundrað sögur. Margar þeirra eru alkunnar, aðrar gersemar sem ekki hafa verið handbærar almennum lesendum. Þjóðsögurnar eru hér flokkaðar á nýjan hátt, stafsetning og málfar fært til nútíma- horfs, getið sögumanna, skrásetjara eða annars uppruna sagnanna ásamt því hvar þær hafa verið birtar. Útgáfunni fylgir sérstök lykilbók til að auðvelda notkun safnsins. Þar er að finna ýtarlega ritgerð um þjóðsögur, eðli þeirra, uppruna og ástæður þess að farið var að safna þeim á 19. öld. Þá eru þar margvís- legar skrár, s.s. um manna- og staðanöfn. Ritstjórar verksins eru Ólafur Ragnarsson, Margrét Guðmundsdóttir og Svem'r Jakobsson. fslenskt þjóðsagnasafn hefur að geyma úrval úr einstæðum sagnabrunni, arf sem þjóðinni hefur safnast í aldanna rás. VAKAHELCAFELL Kynnmgarverð 24.800 kr. ff-Jr ffe * ÍSLENSKT ÍSIXNSK I’JÓÐSAGN/. ÞJÓBSAG! SAFN SAFN ÞJÓI SÖGV Iyhilkc. ÍSLENSK.V ÞJÓÐSACM SAFN ÍSLENSKT ÞJÓÐSAGS SAFN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.