Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Blaðsíða 48
56
>
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
Tilvera
I>V
Kívíávöxtur
Kívíávöxturinn á ættir að
rekja til Kína og Taívans en í
dag fer ræktun hans einkum
fram á Nýja-Sjálandi og í Kali-
forníu. í upphafi áttunda ára-
tugarins náðu vinsældir ávaxt-
arins hámarki og hann þótti
Kíví með
rommbragði
Kíví og granatepli eiga afskap-
lega vel saman og hér fylgir hug-
mynd að mjög góðum eftirrétti.
Afhýðið og skerið Qóra kívíávexti
i litla bita. Takið tvö granatepli
og skerið fræin frá. Hafið tvær
skálar til taks, setjið klví í aöra
og eplafræin í hina, utan 2 msk.
sem geymdar eru til skreytingar.
Blandið einni matskeið af rommi
við eina matskeið af hunangi og
setjið helming í hvora skál. Þá er
1,5 dl rjómi þeyttur og síðan er
ein eggjahvfta stífþeytt. Rjóman-
um og eggjahvítunni er blandað
saman og tveimur msk. af sykri
(má nota fiórsykur) hrært saman
við.
Fallegt er að setja þennan eft-
irrétt í glös á fæti. Setjið
granateplafræ í botninn, því
næst rjómablönduna, svo kíví og
þannig koll af kolli. Hafið
rjómablöndu efst og skreytið
með granateplafræjum og
* myntublöðum.
Mjólkurhrist-
ingur
Hér er hugmynd að hollum
mj ólkurhristingi sem er bæði
bragðgóður og til þess fallinn að
slá á hungurverkina. í einn
mjólkurhristing þarf tvo kívíá-
vexti, afhýdda og smátt skoma,
1 msk. hveitikím, 1 tsk. hunang,
200 ml mjólk, 4 jarðarber og
hálfan banana. Setjið í mat-
vinnsluvél eða blandara. Sigtið
löginn og setjið i stórt glas
með ísmolum.
Eiga að láta
undan
Þegar kívíávextir
eru keyptir eiga þeir
að vera óskaddaðir og
láta örlítið undan þeg-
ar þrýst er á þá. Gott
þykir að setja kívíávext-
ina í lokað ílát og þá er
hægt að geyma þá í allt að
fjóra daga í ísskáp. í
stofuhita geym
ast ávextim-
ir ekki
lengur
en í tvo
> tíl
þrjá
daga.
ómissandi á hverju veisluborði.
Undir lok áratugarins dvínuðu
vinsældirnar en á síðustu árum
hefur ávöxturinn verið að ná
sér á strik enda staðreynd að
hann er hlaðinn vítamínum,
trefjum og steinefnum.
Kíví er oft borðaður einn og
sér, en einnig skorinn í sneiðar
og notaður í salöt, eftirrétti,
kökur og sultur.
Bragðið af kíví er svolítið
súrt og þykir minna mjög á
annan skyldan ávöxt, garðaber,
og jafnvel sum-
ar tegundir
melóna.
BHi,
Créme patissiére
Kívíávöxturinn nýtur sín vel á þessum fallega eftirrétti.
Dominique Le Goff á kaffihúsinu Bauninni:
Frönsk tartaletta
með kíví
Franski bakarameistarinn Dom-
inique Le Goff, sem starfar á kaffi-
húsinu Bauninni við Siðumúla, not-
ar gjama kívíávexti þegar hann býr
til hinar ýmsu kökur og eftirrétti.
Dominique
gefur
mm
lesendum DV uppskrift að klassísk-
um frönskum eggjabúðingi sem sett-
ur er í tartalettu og bragðbættur
með kivíávöxtum. Tartalettan, sem
kallast créme patissiére á frönsku,
hentar að sögn Dominique vel sem
eftirréttur við hvaða tækifæri sem
er.
Uppskriftín er svohljóðandi:
kívíi
smjördeig
sex eggjarauður
150 g sykur
100 g hveiti
1 lítri mjólk
vanilludropar
apríkósuhlaup
Fletjið deigið út og
setjið í form.
Látið bíða í
30 mínút-
ur og
sting-
k ið
- síð-
Bakarameistarinn
Dominique Le Goff galdrar fram
gómsætan eftirrétt fyrir
lesendur DV.
an í deigið með gaffli hér og þar. Þá
em baunir eða kúskús sett í botn-
inn og deigið bakað í 15 mínútur við
180 gráður. Baunimar á síðan að
fjarlægja.
Þá er búðingurinn búinn til.
Blandið saman sex eggjarauöum og
sykri og hrærið þar til blandan er
orðin þykk og ljós á lit. Þá er hveit-
inu blandað saman við og sjóðandi
heitri mjólk hrært hægt og rólega
saman við. Bragðbætt með vanillu-
dropum. Setjið í formið og bakið við
180 gráða hita.
Afhýðið kívíávextina
og raðið fallega ofan á.
Aö þvi loknu er apríkósu-
hlaup hitað og borið á
með pensli til þess að fá
fallega glansáferð á búð-
inginn. Látið kólna vel
áður en borið er fram.
Ungnautamnra-
Iæri með hvít-
laukssveppum
Fynr ?
800 g imgnautasteik úr innralæri
1 dl ostrusojasósa
3 msk. matarolla tíl steikingar
Hvítlaukssveppir
400 g blandaðir sveppir, ferskir
10 stk. hvitlauksrif
3 msk. mataroUa tíl steikingar
salt og pipar
Hvítlaukssósa
4-5 hvítlauksrif
3 stk. eggjarauður
1 dl vatn
100-150 g smjör, bráðið
4 msk. steinselja, söxuð
1 dl rjómi, þeyttur
salt og pipar
Medlœti
12-16 Utlar kartöflur
Skerið kjötið í 1 cm þykkar sneið-
ar. Veltið upp úr ostrusojasósunni
og látið standa í 1 klst. Steikið í
heitri olíu í 3-4 mínútur, skiptið á
diska.
Hvítlaukssveppir
Saxið hvítlaukinn. Steikið í heitri
olíu ásamt blönduðum sveppum,
bragðbætið með salti og pipar, legg-
ið yfir steikurnar.
Hvítlaukssósa
Saxið eða pressið hvítlauksrifm.
Pískið yfir hita ásamt eggjarauðum,
vatni og steinselju þar til eggjarauð-
umar fara að þykkna og verða
froðukenndar. Bætið þá smjörinu
saman við og þeyttum rjóma. Bragð-
bætiö enn með salti og pipar ef vill.
HeUið yfir kjötið og sveppina.
Meðlæti
Berið fram með soðnum kartöfl-
um. Reiknið með 3-4 litium kartöfl-
um á mann.
Næringarinnihald
Kíví er fitusnauður ávöxtur sem inniheldur mikið af
C-vítamíni og örlítíð af hinu sjaldgæfa E-vítamini.
Ávöxturinn er steinefnaríkur og kvað hafa góð áhrif á
taugakerfi og hjartslátt. Kalsíum og jám er einnig að
finna í nokkru magni í ávextinum.
100 grömm af kíví innihalda:
54 hitaeíningar 1,2 g prótín
0,5 g fitu 12 g kolvetni