Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
JOV
Fréttir
Nýr forsætisráðherra^pans:
Eins og vindhani
í stjórnmálum
Nýr forsætisráðherra Japans
Yoshiro Mori studdi við bakið á Keizo Obuchi í stað þess að berjast við hann um toppstöður. Mori, sem er stór og
mikill á velli, er sagður metnaöurfullur og þolinmóður en ekki stefnufastur.
Japanar eru enn hálikuldalegir í
garð nýs forsætisráðherra síns, Yos-
hiros Moris, og búast i raun ekki
við neinu sérstöku af hans hálfu.
Mori hlaut atkvæði 335 þingmanna
af 448 þegar kjörinn var nýr forsæt-
isráðherra vegna veikinda Keizos
Obuchis. Þótti víst að Mori yrði val-
inn þar sem samsteypustjórnin, sem
flokkur hans, Frjálslyndi demó-
krataflokkurinn, leiðir er með mik-
inn meirihluta.
Stjórnmálaskýrendur segja að val
Moris sýni að tryggð við banda-
menn sé tekin fram yfir knýjandi
þarfir flokksins sjálfs.
„Þetta er ekki vegna þess að
skortur sé á mönnum í Frjálslynda
demókrataflokknum sem gætu notið
vinsælda," segir Masumi Ishikawa,
prófessor i stjórnmálafræði „Kono
og Kato hefðu líklega báðir orðið
vinsælli.“ Talið var að Yohei Kono
utanríkisráðherra og Koichi Kato,
fyrrverandi aðalritari flokksins,
kæmu til greina sem forsætisráð-
herraefni.
Ekki hugsað um viðbrögð
þjóðarinnar
„Frjálslyndi demókrataflokkur-
inn byggir ákvörðun sína á því hver
sé í góðu sambandi við Komeito,"
segir Ishikawa. „Það var ekki verið
að hugsa um viðbrögð japönsku
þjóðarinnar og þetta er mjög undar-
legt.“
Komeito, sem nýtur stuðnings
búddista, er helsti samstarfsaðili
Frjálslynda demókrataflokksins í
Erient
fréttaljós
samsteypustjórninni.
Margir telja að val frjálslyndra
demókrata boði erfiðleika í kom-
andi kosningum. Samsteypustjórn-
in, sem mynduð var í október síð-
astliðnum, hefur verið óvinsæl.
Skoðanakannanir hafa sýnt að kjós-
endur eru andvígir því að flokkur
sem tengist trúmálum sé í stjóm-
inni.
Þó svo að fjölmiðlar séu æfir
vegna leyndarinnar yfir veikindum
Obuchis og því hvemig ráðríkir for-
ystumenn Frjálslynda demókrata-
flokksins ákváðu hver yrði eftir-
maður hans kippir almenningur sér
litið upp við það. Sumir segja reynd-
ar að þeir séu ánægðir með að stöð-
ugleiki haldist, jafnvel þó að leynd-
arhjúpur hafi hvílt yfir atburða-
rásinni. Aðrir segja að leyndar-
makk sé daglegt brauð. „Það gerist
á hverjum degi að einhverju mikil-
vægu er haldið leyndu. Og það
skiptir ekki máli hver verður for-
sætisráðherra. Ekkert mun breyt-
ast.“
Sjálfir segjast Japanir vita lítið
um nýja forsætisráðherrann sinn,
Yoshiro Mori, þó svo að hann hafi
verið aðalritari Frjálslynda
demókrataflokksins og gegnt ýms-
um ráðherraembættum. Mori er 62
ára og var skólafélagi Obuchis i há-
skóla. Þeir fylgdust að í stjórnmál-
unum í þrjá áratugi.
Mori er sagður hafa áunnið sér
traust Obuchis með því að styðja
hann í stað þess að keppa við hann
um toppstöður.
Sakaður um spillingu
Mori, sem starfaði sem blaðamað-
ur á árunum 1960 til 1962, varð
reyndar að yfirgefa ríkisstjórn Jap-
ans árið 1988 vegna spillingarmáls.
Hann var sakaður um að hafa keypt
hlutabréf af kaupsýslumanni, sem
sóttist eftir greiða stjórnvalda, áður
en bréfin voru sett á markað. Fjöldi
háttsettra manna í Frjálslynda
demókrataflokknum tengdist mál-
inu sem leiddi til afsagnar Noborus
Takeshita forsætisráðherra 1989.
Mori viðurkenndi að hafa grætt yfir
100 milljónir jena með því að selja
30 þúsund hlutabréf eftir að þau
komu á markað. Ekki þótti ástæða
til að dæma Mori og 13 aðra stjórn-
málamenn sem keyptu hlutabréf.
Fjórum árum seinna var Mori sak-
aður um að hafa boðið hægri sam-
tökum 2 milljónir jena til að hætta
herferð gegn Takeshita. Mori vísaði
þessum ásökunum harðlega á bug.
íþróttamaður
Mori er hrifinn af íþróttum. Hann
hefur komið nokkrum fyrrverandi
íþróttamönnum á þing og spilar
sjálfur rugby. Hann hefur verið rug-
bymaður frá því að hann var í
fimmta bekk þegar hann og félagi
hans, Morio Saito, læddust inn í æf-
ingasal rugbyliðs Wasedaháskólans.
„Við vorum heillaðir af þessum
stóru, hugrökku strákum. Við sögð-
um ekki hvor öðrum frá því en við
ákváðum hvor um sig að fara í
Wasedaháskólann og leika rugby,“
greinir Saito frá.
Þeir hófu báðir nám í Wasedahá-
skólanum en magasár kom í veg fyr-
ir að Mori léki lengi rugby í skólan-
um. Hann gekk í ræðuklúbb skólans
í staðinn. Meðal skólabræðra Moris
í Wasedaháskólanum voru Obuchi
og Mikio Aoki, sem var starfandi
forsætisráðherra fyrri hluta þessar-
ar viku, og að minnsta kosti tveir
aðrir sem urðu stjórnmálaleiðtogar.
Fæddist inn í stjórnmálin
Mori fæddist eiginlega inn í
stjómmálin. Bæði faðir hans og afi
voru bæjarstjórar. Það kom því
skólabróður hans Saito ekki á óvart
1969 þegar Mori bað hann um að að-
stoða sig í kosningabaráttu. Frjáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn bauð Mori
í sinar raðir og þar lá leiðin upp á
við. Mori gegndi embætti mennta-
málaráðherra 1983 til 1984, hann var
iðnaðar- og utanrikisviðskiptaráð-
herra 1992 til 1993 og byggingar-
málaráðherra 1995 til 1996. Þegar
Obuchi varð forsætisráðherra í júlí
1998 varð Mori aðalritari Frjáls-
lynda lýðræðisílokksins.
Þekktur fyrir klaufaskap
Aðspurður hvernig hann ætlaði
að takast á við nýtt starf sagði Mori
að það væri eins og að leika rugby.
„Einn leikmaður getur ekki verið
stjarna. Stjórnmálaskýrendur segja
hann hafa hæfileika til að sigla á
milli skers og báru. Þeir velta því
hins vegar fyrir sér hvort hann hafi
hæfileika til að sinna erfiðum verk-
efnum eins og fallvöltum efnahag,
miklum skuldum og tíðum funda-
höldum með erlendum aðilum.
Ekki bætir úr skák að Mori er
þekktur fyrir klaufaskap. íjanúar
síðastliðnum sagði Mori frá því að
hann hefði verið að heilsa bændum
úr bíl sínum. Þegar bændurnir hafi
allir snúið til heimila sinna hafi
honum liðið eins og hann væri með
alnæmi. Mori baðst siðar afsökunar
á þessum ummælum sinum.
Um 2000-vandann, sem Banda-
ríkjamenn bjuggust við, sagði Mori
eitt sinn: „Þegar það er rafmagns-
leysi fara morðingjarnir alltaf á
kreik. Þetta er þess háttar þjóðfé-
lag.“
Japanir hafa veitt klaufaskap
Moris athygli en þeim hefur þótt lít-
iö fara fyrir stefnufestu. Honum hef-
ur meira að segja verið lýst sem
vindhana í stjórnmálum.
Nú velta stjórnmálaskýrendur
því fyrir sér hvort Mori muni flýta
kosningunum, sem halda átti 19.
október næstkomandi, til þess að
nýta samúð kjósenda vegna
veikinda Obuchis. Einnig þarf að
taka tillit til fyrirhugaðs fundar átta
ríkustu þjóða heims sem halda á í
Japan í júlí. Obuchi hafi ráðgert að
fundurinn yrði stökkpallur fyrir
kosningabaráttuna en í henni
ætlaði hann að leggja áherslu á
efnahagsumbætur. Efnahagurinn í
Japan er ekki í blóma og
atvinnuleysið, sem er tæp 5 prósent,
hefur ekki verið meira síðan í
seinni heimsstyrjöldinni.
Byggt á Washington Post, New
York Times og Reuter.
Keizo Obuchi
Almenningur lætur sér fátt um finnast þótt leynd hafi hvílt yfir veikindum
japanska forsætisráðherrans.